Fréttablaðið - 30.06.2016, Side 58

Fréttablaðið - 30.06.2016, Side 58
 Bruschetta er vinsæll ítalskur réttur. Hægt er að útfæra brauðið með ýmsum hætti, allt eftir smekk hvers og eins. Flestar útgáfur er ein- falt að útbúa. Bruschetta passar vel á spennandi fótboltadegi. Bruschetta með ricotta, peru og sultu. Bruschetta með hráskinku, tómötum, ólífum, mozzarella, basil og klettasalati. Bruschetta með tómötum og basil. Þetta er algeng útgáfa af bruschettu á Ítalíu. Bruschetta með mozzarella, tómötum, basil og pestói sem er sett undir. Það er afar einfalt að útbúa veislu- borð með bruschettum. Undir- staðan er grilluð brauðsneið sem er nudduð með hvít- lauksrifi og vætt í ólífu- olíu. Hægt er borða brauð- ið eins og það kemur fyrir og dýfa í jómfrúarolíu eða setja einhvers konar dá- semd ofan á. Hin týpíska bruschetta er með tómat, mozzarella-osti og fersku basil. Svo eru til marg- ar aðrar útgáfur, brusch- etta með tómat, hráskinku, mozzarella og ólífum, eða með ricotta, peru og sultu. Gott er að setja rækjur og lár- peru á bruschettu og þannig mætti lengi telja. Nota má hugmynda- flugið út í ystu æsar þegar kemur að svona sólskinsbitum. Best er þó að borða brauðið meðan áleggið er ferskt og nýtt. Sérfræðingar í ítölskum mat segja að hráefnið skipti öllu máli, einungis skuli nota gæðavöru. Til dæmis er mjög mikilvægt að nota góða jómfrúar olíu til að fá rétta bragðið. Ítalir borða grillað brauð með hvítlauk og ólífuolíu þegar þeir halda uppskeruhátíð. Þá dýfa þeir brauðinu í nýpressaða ólífu- olíu og drekka gott rauðvín með. Þeir kjósa að nota hvítt snittu- brauð, stundum svokallað ciabatta. Vel má nota súrdeigsbrauð. Brauð- ið á að vera stökkt að utan þegar það kemur af grillinu en mjúkt að innan. Nýir, sætir og fullþroskað- ir tómatar eru skornir smátt og fræhreinsaðir, smá olíu skvett yfir þá og bragðbættir með salti og nýmöluðum pipar. Allt hrært saman og sett á brauðið. Skreytt með basil blöðum. Er til einfald- ari veislumatur? Til tilbreyting- ar má bæta smá chili, rósmaríni eða timjan, mjög smátt söxuðu, út í blönduna. Gott er láta smátt skorna tómatana liggja í ólífuolíu og kryddi í smá tíma áður en bland- an er sett á brauðið. Notið endi- lega balsamedik í blönduna. Það gefur skemmtilegt bragð. Þegar notuð er lárpera á brauðið þarf að gæta þess að væta hana með lím- ónu- eða sítrónusafa áður en hún er maukuð eða skorin í bita. Hin eina sanna bruscHetta Það er óhætt að segja að hin ítalska bruschetta sé sannkallaður sólskinsbiti. Hægt er að útbúa bruschettu á margvíslegan hátt með ýmsu hráefni. Þær eru fallegar á borði og ljúffengar á bragðið. Svo passa þær einstaklega vel með leiknum á sunnudaginn. Bruschetta með lárperu, tómötum og risarækju. 365.is Sími 1817 Sportpakkinn er tilvalinn fyrir þá sem elska íþróttir. Enski boltinn, Meistaradeildin, Evrópuboltinn ásamt spjallþáttum með spekingunum. Körfubolti, Formúlan, NFL, bardaga- íþróttir og margt annað sem fær hjartað til að slá örar. YFIR 1.300 BEINAR ÚTSENDINGAR Á ÁRI Sportpakkinn inniheldur: Stöð 2 Sport, hliðarrásir, Eurosport, Extreme Sport, Motors TV, Sky News, NBA TV, MUTV, LFC TV og Chelsea TV. ENDALAUST NET Á 1.000 KR. FYLGIR SPORTPAKKA 365* *Undanskilið er aðgangsgjald og leiga á beini. Nánari upplýsingar á 365.is. Samsetning sjónvarpspakka getur breyst án fyrirvara. 3 0 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R14 F ó l k ∙ k y n n I n G A R b l A ð ∙ T í s k A 3 0 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 D E -5 E 6 C 1 9 D E -5 D 3 0 1 9 D E -5 B F 4 1 9 D E -5 A B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 9 6 s _ 2 9 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.