Fréttablaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 60
Ólíkt kvennalínunni verður karlahönnunin ekki
miðuð við ákveðinn árstíma því kenningin er sú að
verslunarvenjur karlmanna séu ólíkar kvenna, að karlar
kaupi strax það sem þeim líkar og hugsi síður í tísku-
sveiflum.
Fatahönnuðurinn Stella McCart-
ney hefur staðfest þrálátan orð-
róm þess efnis að hún hyggist
hasla sér völl í karlatískunni.
Þessi orðrómur hefur farið víða
síðan í febrúar síðastliðnum og
loks hefur Stella sjálf gengist við
því að Stelluklæddur karl verði
við hlið Stelluklæddu konunnar
á sýningarpöllum í haust, nánar
til tekið 10. nóvember í London.
Stella var lærlingur hjá jakka-
fataskraddaranum Edward Sexton
eftir að hún lauk námi í fatahönn-
un og þess má sjá glögg merki í
hönnun hennar. Og nú segir hún
röðina komna að körlum að fá það
sem þeir eiga skilið, þægileg og
nútímaleg föt. Hún hefur ekki
látið uppi hvernig fötin koma til
með að líta út en ýmsar vísbend-
ingar má þó finna í fortíð henn-
ar og fyrri yfirlýsingum. Það má
ganga út frá því sem vísu að ekk-
ert leður eða aðrar dýraafurðir
verði notaðar og einnig að línan
verði heildstæð með bæði sam-
stæðum og stökum fatnaði, yfir-
höfnum og fylgihlutum og jafnvel
gleraugum.
Ólíkt kvennalínunni verður
karlahönnunin ekki miðuð við
ákveðinn árstíma því kenning-
in er sú að verslunarvenjur karl-
manna séu ólíkar kvenna, að karl-
ar kaupi strax það sem þeim líkar
og hugsi síður í tískusveiflum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
McCartney hannar fyrir karla.
Hún hefur gert jakkaföt á bæði
eiginmann sinn og föður. Þá hann-
aði hún eftir pöntun fyrir Guy
Ritchie og David Bowie og hefur
einnig á sinni könnu allan fatnað
keppenda og aðstoðarfólks Breta
á Ólympíuleikunum í samstarfi
við Adidas.
Eini vandinn gæti verið sá að
McCartney hefur byggt hönnun-
arhugmyndafræði sína á því að
hún sé kona sem hannar fyrir
konur og það má velta fyrir sér
hvernig sú hugmyndafræði fær-
ist yfir í karlatísku. Þá hefur hún
einnig lagt áherslu á að hægt sé að
nota fötin jafnt til að borða vöffl-
ur, fara á mikilvæga viðskipta-
fundi og svo út á lífið á kvöldin.
Fátt bendir til þess að þessir eig-
inleikar fari í kyngreinarálit svo
karlmenn geta hlakkað til að eign-
ast fatnað með víðtækt notagildi
strax í desember þegar áætlað er
að fatalínan komi í verslanir.
leggur karlmönnum línurnar
Aðalsmerki hönnunar Stellu McCartney eru þægileg föt við flest tilefni og nú fá karlmenn líka að njóta.
Eiginmaður Stellu McCartney, Alasdhair Wills, í næturbláum
smóking eftir konu sína. Það er ljóst að McCartney er enginn
nýgræðingur þegar kemur að hönnun karlmannaafatnaðar.
Hér er pabbi hennar Stellu í fallegum skoskmynstruðum eða
„tartan“ jakka sem hún hannaði á hann.
Það er til einfalt ráð til að fá fallega liði í hárið.
Hvaða aðferð sem þú notar til að
setja krullur í hárið, krullujárn,
rúllur eða eitthvað annað, eru
allar líkur á að í eitthvert þeirra
skipta hafi hárið á þér litið út eins
og rolla hafi sest á hausinn á þér.
Að öllum líkindum leka krullurnar
svo aðeins niður og hárið lítur þá
loksins út eins og það átti að gera
í upphafi. Það er til einfalt ráð til
að losna við þetta ofurkrull og fá
liði í hárið sem líta náttúrulega út.
Og það þarf hvorki einhver súper-
sprey eða dýr raftæki, aðeins það
sem þú notar vanalega við liða-
gerðina auk hárbursta.
Skiptu hárinu í um þriggja senti-
metra þykka lokka með burstanum.
Ef þú notar krullujárn vefur þú
hárinu utan um það eins og venju-
lega – en skilur eftir um það bil
fimm sentimetra af hárinu þannig
að endarnir haldist sléttir. Gerið
þetta við alla lokkana og passið að
endarnir séu sléttir. Þannig virð-
ast lokkarnir mýkri og náttúrulegri
þegar búið er að krulla hárið og
óþarfi að greiða krullurnar úr því.
Náttúrulegir liðir
á auðveldaN hátt
3 0 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R16 F ó l k ∙ k y n n I n G A R b l A ð ∙ T í s k A
3
0
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
6
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
D
E
-7
2
2
C
1
9
D
E
-7
0
F
0
1
9
D
E
-6
F
B
4
1
9
D
E
-6
E
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
2
9
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K