Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.06.2016, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 30.06.2016, Qupperneq 70
O. Lilja Birgisdóttir formaður Vinnís Fallega hannað umhverfi hefur áhrif á okkur flest. Tökum Hörpuna sem dæmi, maður gengur inn í listina og upplifir nýja stemningu í hverju horni. Eða Perl- una sem trónir efst á Öskjuhlíðinni í dásamlega fallegu umhverfi. Á Íslandi má finna margar fagrar byggingar, vinnustaði, heimili, hús- gögn, tæki og tól. Hönnun skiptir máli. Fyrsta upplifun er oftast góð en því miður er það stundum svo að gleymst hefur að huga að ýmsum þáttum í hönnuninni sem geta haft neikvæð áhrif á heilsu til lengri tíma. Margar rannsóknir eru til varðandi áhrif umhverfis á heilsu eins og t.d. sjónræn áhrif í formi birtu og litavals, hljóðvistar og hönnunar húsbúnaðar. Vinnu- ferlar og viðmót tæknibúnaðar getur einnig haft áhrif. Vinnuvist- fræðin fjallar um samspil manns og umhverfis, áhrif á líðan og heilsu. Með sólgleraugu í vinnunni Hvers vegna þarf starfsfólkið í afgreiðslu Hörpunnar helst að vera með sólgleraugu í vinnunni? Hvern- ig skyldi kokkunum í Perlunni líða, þurfa þeir kannski að hlaupa upp og niður stiga eða vinna við erf- iðar og þröngar aðstæður? Hvað með fallegu háu glerbyggingarnar sem hafa skotist upp hér og þar um höfuðborgina, eru þær hann- aðar bæði með hönnun og heilsu í huga? Fær starfsfólkið höfuðverk og vöðvabólgu vegna birtu og glampa- myndunar? Þarf að vera með auka- peysu vegna kuldans sem streymir frá glerinu á köldum dögum? Dæmi má einnig taka varðandi hönnun húsgagna, fagurlega hann- aður stóll sem fáum þykir gott að sitja í. Umbúðir sem eru fallega hannaðar en þegar þarf að opna þær þá þarf verkfæri og kraft til verksins. Heimilistæki sem eru með svo flóknar stýringar að það þarf verkfræðing til að skilja þær. Tölvukerfi sem eru svo margþætt að nauðsynlegt er að hafa púða á veggnum til að banka höfðinu í reglulega. Heilsan skiptir máli. Hönnuðirnir gleyma sér Því miður er það svo að hönnuð- irnir sem eiga verkin gleyma sér oft í sköpuninni og fegurðinni sem síðar kemur mögulega niður á líðan þeirra sem nota eiga hönnunina eða vinna í umhverfinu í lengri tíma. Vinnuvistfræðingur myndi ekki endilega hanna sérlega fagurt umhverfi, tæki eða tól, en vel not- endahæft væri það. Þess vegna er það svo mikilvægt að við vinnum saman að hönnun, notum þá þekk- ingu sem til er á öllum sviðum. Nýtum okkur þau fræði sem við eigum, þá kunnáttu sem fagfólkið hefur og hönnum með heilsuna í huga. Hönnun og heilsa skipta máli. Hönnun og heilsa Hvers vegna þarf starfsfólkið í afgreiðslu Hörpunnar helst að vera með sólgleraugu í vinnunni? Hvernig skyldi kokkunum í Perlunni líða, þurfa þeir kannski að hlaupa upp og niður stiga eða vinna við erfiðar og þröngar að- stæður? Vilhelm Jónsson fjárfestir Tæplega myndi nokkurs staðar í siðmenntuðum réttarríkjum, þar sem bankamenn hefðu tæmt banka innan frá, öllum hafa verið stefnt saman í opið fang- elsi og þeir afplánað síðan 20% af refsingu í anda sýndarmennsku. Með ólíkindum og vafasamt er að fangelsismálastjóri/stjórn geti að eigin geðþótta ákveðið með hvaða hætti refsingar séu teknar út, þvert á fallna dóma, ásamt því hvenær og hverjir ljúki afplánun á skemmri tíma og með öðrum forréttindum. Ný fangelsisbygging á Hólms- heiði hefur að geyma 56 klefa þar sem látið hefur vera stjórnast af flott ræfilshætti þvert á efnahagslega getu. Það er umhugsunarefni að yfir- völd skuli réttlæta framkvæmd upp á þrjá miljarða sem leysir síðan tak- markaðan vanda. Lauslega má áætla að hver klefi ásamt annarri aðstöðu leggi sig á ríflega fimmtíu miljónir. Forgangsröðun er röng og fangelsið er alltof dýrt ásamt rekstrar- og fjár- magnskostnaði. Höfuðvandinn er enn til staðar þar sem lokað er öðrum afplánunarrýmum sem nemur helm- ingi þessarar byggingar. Stjórnvöld ásamt ríkisstofnunum eru í engum tengslum við efnahags- lega getu og þurfa að fara að gera sér grein fyrir að sjúkir og þeir sem minna mega sín gjalda of oft með lífi sínu vegna rangrar forgangsröðunar. Undangengin ár hafa biðlistar eftir fangelsisvist verið ca. 500 manns og sá biðlisti lengist lítið þar sem dómar fyrnast með einum og öðrum hætti. Aðeins lítill hluti þeirra sem hafa fengið dóm hefur framið ofbeldis- eða kynferðisbrot. Stærsti hópurinn er með dóm vegna umferðarlaga- brota eða nytjatöku sem ekki er hægt að kalla til afplánunar vegna pláss- leysis sem láta þar af leiðandi ógert að greiða sínar samfélagslegu skuldir. Meirihluti biðlistans uppfyllir lík- lega skilyrði til að afplána dóm sinn með vægari hætti eða samfélagsþjón- ustu. Flestir af þessum einstaklingum sem bíða eftir að sitja af sér viðkom- andi dóm myndu síður vilja afplána refsingu í rammgirtu fangelsi, jafnvel þótt það sé í anda fimm stjörnu hót- els. Ítrekað er búið að benda á ýmsar ódýrar leiðir til að uppræta biðlista þeirra sem bíða afplánunar á ein- faldan og ódýran hátt. Hefði t.d. verið hægt að leysa sárasta vandann með gámabúðum sem hefði t.d. mátt setja innan girðingar á Litla-Hrauni, sem fangelsismálayfirvöldum þótti ekki boðlegt. Þessar sömu vinnubúðir eru nýttar í dag sem hótel ásamt því að hýsa skrifstofur lækna við Land- spítalann. Ógæfumenn Meginþorri þeirra sem afplána ítrek- aða refsivist eru fátækir, heimilislaus- ir ógæfumenn sem dómstólar hafa ómældan kjark til að vísa umsvifa- laust og án málalenginga í rammgirt fangelsi, enda ekki hvítflibbar. Vart getur talist eðlilegt eða ásættanlegt að smákrimmi sem hnuplar einhverju lítilræði þurfi að kosta samfélagið fleiri milljónir. Síbrotamaður hefur sjaldnast eftir refsivist að einhverju að hverfa og á litla sem enga möguleika á að fóta sig á ný í lífinu. Eðlilegra væri að vistun og eftirmeðferð ætti sér stað með hag- kvæmari og uppbyggilegri hætti, jafn- vel þó svo um harðan fíkil sé að ræða. Þó svo frelsissvipting verði að eiga sér stað, þá eru flestir hverjir meðvitaðir um að þurfa að taka út sína refsingu þótt ekki sé það innan rammgirtra fangelsisveggja, og myndu láta ógert að útskrifa sig sjálfir. Mun eðlilegra hefði verið og væri að opna fangelsi með kostnaðarminni hætti, t.d. í anda Kvía bryggju, sem myndi kosta innan við 30% af núverandi nýbyggingu ásamt minni rekstrarkostnaði. Jafnvel þótt fangi útskrifi sig sjálfur verða yfirvöld að taka meiri hags- muni fram yfir minni og gera sér grein fyrir að oft er um óhörðnuð og illa áttuð ungmenni að ræða. Vart getur talist uppbyggilegt að vista brotna og illa áttaða einstaklinga í rammgirtu fangelsi eins og harðsvíraða glæpa- menn. Yfirvöld gætu náð milljörðum í ríkis sjóð af ógreiddum sektar- greiðslum við innköllun hundraða manna, sem hafa fengið dóm til afplánunar, á einfaldan hátt, væri látið af þröngsýni og röngu verk- lagi. Tæplega getur talist eðlilegt að afbrotamaður sé með refsingu hangandi yfir sér árum saman vegna úrræðaleysis fangelsismálayfirvalda. Til lítils er að dæma afbrotamenn sem er síðan ekki fylgt eftir þar sem það er ekki hægt að fullnusta dóma vegna pláss- og fyrirhyggjuleysis og síðan fyrnast dómar í skjóli dráttar. Þessi háttur er aðeins til að fleiri sjá sér leik á borði að fara á skjön við lög og reglur ásamt því að hunsa sektar- greiðslur sem þeir myndu frekar borga en þurfa að hefja afplánun. Ef fangelsismálayfirvöldum er svona annt um skjólstæðinga sína sem sumir hverjir eru ógæfu- og síbrotamenn þá hefði verið eðli- legra að veita fé til eftirmeðferðar til að viðkomandi einstaklingar næðu festu til að fóta sig áfram í lífinu, í stað þess að sækja í fyrri iðju. Svo vitnað sé í orð fangelsismálastjóra er engin uppbyggileg vinnuaðstaða fyrir fanga fyrir hendi á Hólmsheiði ásamt lítilli geðheilbrigðisaðstoð vegna fjár- skorts. Slík meðferð verður ekki fengin með stífbónuðum og rammgerðum flísalögðum steypuklumpi, gadda- vírsgirðingum ásamt flatskjáum og róandi geðlyfjum. Nokkuð ljóst er að hvítflibbar ásamt fleirum munu með sinni hógværð gera sér að góðu íburðarminni húsakynni en Hólms- heiði hefur að geyma. Fangelsismálayfirvöld stýrast af dómgreindarleysi Ef fangelsismálayfirvöldum er svona annt um skjólstæð- inga sína sem sumir hverjir eru ógæfu- og síbrotamenn þá hefði verið eðlilegra að veita fé til eftirmeðferðar til að viðkomandi einstaklingar næðu festu til að fóta sig í lífinu, í stað þess að sækja í fyrri iðju. RýmingaRsala Í DýRaRÍkinu HoltagöRðum allt á að seljast • veRslunin HættiR 3 0 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R38 s k o ð U n ∙ F R É T T A B L A ð I ð 3 0 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 D E -4 0 C C 1 9 D E -3 F 9 0 1 9 D E -3 E 5 4 1 9 D E -3 D 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 9 6 s _ 2 9 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.