Morgunblaðið - 21.10.2016, Page 1
Píratar 15
6
15
4
13
4
6
0
Fjöldi þingsæta
Sjálfstæðisflokkurinn
Vinstri græn
Samfylkingin
Framsóknarflokkurinn
Björt framtíð
Viðreisn
Flokkur fólksins
22,6%
21,1%
18,6%
6%
3,8%
9,1%
8,8%
6,5%
Fylgi stjórnmálaflokka
Anna Lilja Þórisdóttir
Viðar Guðjónsson
Mikil hreyfing er á fylgi flokkanna
á milli vikna og sömuleiðis á því
hlutfalli kjósenda sem taka afstöðu.
Þetta sýnir könnun sem Félagsvís-
indastofnun HÍ gerði fyrir Morg-
unblaðið dagana 14. til 19. október.
Píratar mælast með mest fylgi,
22,6%, og fengju 15 þingmenn yrði
gengið til kosninga nú. Sjálfstæð-
isflokkur mælist með næstmest
fylgi, 21,1% og 15 þingmenn, og
Vinstri græn mælast með 18,6% og
13 þingmenn.
9,1% segjast ætla að kjósa
Framsóknarflokkinn, sem er sama
hlutfall og í síðustu könnun og
fengi flokkurinn sex þingmenn.
8,8% ætla að kjósa Viðreisn, um
fjórðungi færri en í síðustu tveimur
könnunum og samkvæmt þessu
fengi flokkurinn sex þingmenn
kjörna.
6,5% ætla að kjósa Samfylk-
inguna sem fengi fjóra þingmenn
og Björt framtíð mælist með 6% og
fjóra þingmenn. Flokkur fólksins
mælist með 3,8%, en næði ekki inn
manni. Fylgi annarra flokka
mælist minna.
Píratar mælast stærstir
Píratar mælast með 23% og Sjálfstæðisflokkur 21% Viðreisn tapar fjórðungi
VG bæta enn við sig Mikil hreyfing er á fylgi flokkanna á milli kannana
MÁfram sveiflast fylgið »4
F Ö S T U D A G U R 2 1. O K T Ó B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 247. tölublað 104. árgangur
SULTA, REYKJA,
SÚRSA OG
SALTA KJÖT
UMFJÖLLUN
UM HÓTEL
OG BÆKUR
ÍSLENSK NÁTT-
ÚRA ER MJÖG
MIKILVÆG
SÉREFNI 58-66 ÓLAFUR ELÍASSON 80HAUSTVERK 30
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Næring Margir þurfa mataraðstoð.
Örorka er helsta ástæða þess að
fólk leitar til líknarsamtaka eftir
mataraðstoð. Einstæðir foreldrar
eru einnig í þessari stöðu, erlendir
ríkisborgarar og hælisleitendur.
Þetta kemur fram í nýlegri könnun
Velferðarvaktarinnar sem kannaði
stöðu þessara mála fimm ár aftur í
tímann. Staða þessara mála verður
rædd í dag hjá Pepp, sem er sam-
eiginlegur vettvangur þeirra sam-
taka sem svona málum sinna.
Hundruð manna fá mataraðstoð á
hverju ári, auk þess sem margir fá
stuðning til að kaupa lyf og skóla-
dót fyrir börnin. »10
Einstæðir og öryrkjar
þiggja oftast aðstoð
Að fá sér eina með öllu á Bæjarins bestu er orðið
hluti af upplifun ferðamanna af Íslandi, eins og
sést á þeim mannfjölda sem leggur leið sína í
pylsuvagninn á degi hverjum. Á Bæjarins bestu
eru seldar SS-pylsur og hefur sala á þeim aukist
í takt við fjölgun ferðamanna, að sögn Steinþórs
Skúlasonar, forstjóra Sláturfélags Suðurlands.
„Við erum að njóta ferðamannastraumsins í
sölu á slíkum vörum. Við höfum líka breytt um-
búðunum og erum komin með pylsuumslag sem
er með íslensku öðru megin og ensku hinum
megin,“ segir Steinþór.
Auk pylsunnar er íslenska skyrið orðið hluti af
þeim mat sem ferðamönnum finnst þeir þurfa að
smakka þegar þeir koma hingað til landsins.
Á þessu ári hefur sala á Skyr.is aukist um 30%
á innanlandsmarkaði, sem eru yfir 300 tonn. Þá
hefur sala á smjöri frá MS aukist um 70% frá
2008 og sala á rjóma um 30%. Alls er talið að
ferðamenn neyti um 22 tonna af innlendri mat-
vöru á degi hverjum. Mikil vitundarvakning er
um að kynna innlenda matvælaframleiðslu fyrir
erlendum ferðamönnum og að þeir upplifi mat-
inn eins og náttúruna og menninguna, en mörg-
um af viðmælendum Morgunblaðsins hefur ekki
fundist því nægilega sinnt fram að þessu. Fjölg-
un ferðamanna veitir landbúnaðinum og dreifð-
ari byggðum aukin tækifæri til að stækka og
dafna og verður fjallað um það í Morgunblaðinu
næstu daga. ingveldur@mbl.is »26 og 28
Morgunblaðið/Golli
22 tonn á dag af innlendum mat
Ferð á Bæjarins bestu orðin hluti af upplifun ferðamanna af Íslandi
Pylsur seljast í takt við fjölgun ferðamanna 30% meiri sala á Skyr.is í ár
Á Litla-Hrauni, þar sem fangar
framleiða númeraplötur á bílaflota
landsmanna, hefur verið í nógu að
snúast að undanförnu. Það sem af
er þessu ári hafa 57.100 slíkar verið
framleiddar og gæti talan á árinu
nálgast fjöldann árið 2007 þegar
framleiddar voru 70.430 plötur.
Að sögn Halldórs Vals Pálssonar,
forstöðumanns á Litla-Hrauni, eru
áherslur í fangelsismálum mjög að
breytast. Að fólk í afplánun fari
fyrr en áður í opin úrræði eða á
áfangaheimili gefi góða raun. »22
Aukin bílasala skapar
vinnu á Litla-Hrauni
Númer Halldór Valur er fangelsisstjóri.
Frír ís
fyrir
krakka!
í september
Nánar á bls 19