Morgunblaðið - 21.10.2016, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofsíbúðum á leigu
til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á
landsbyggðinni fyrir næsta sumar. Áhugasamir sendi upplýsingar
á vr@vr.is fyrir 15. nóvember 2016.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:
- Lýsing á eign og því sem henni fylgir
- Ástand íbúðar og staðsetning
- Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár
- Lýsing á möguleikum til útivistar og
afþreyingar í næsta nágrenni
Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir
og lýsing á umhverfi fylgi með.
Öllum tilboðum verður svarað.
Einn af fjölmörgum „Íslands-vinum“ og góðkunningjum úr
umræðu hér á landi var nefndur til
sögunnar í eftirtekt-
arverðri frétt Ríkis-
útvarpsins:
Breska þingiðsamþykkti sam-
hljóða í dag að
svipta Philip Green,
fyrrverandi við-
skiptafélaga Baugs,
aðalstign sem hann
hlaut fyrir tíu árum.
Lokaákvörðunum hvort svipta
eigi Green aðals-
tigninni verður þó
tekin af sérstakri nefnd um heið-
urssviptingar.
Green var aðaleigandi versl-
unarkeðjunnar BHS og seldi hana í
fyrra, eftir söluna fór BHS á hausinn
og ellefu þúsund starfsmenn misstu
vinnuna og lífeyri sinn.
Þingheimur ræddi í þrjá klukku-tíma um það hvort ætti að
svipta Green aðalstigninni og komu
fáir honum til varnar.
Í umræðunum var Green líkt viðNapóleon og Rupert Murdoch,
hvorugt honum til hróss.
David Winnick, þingmaðurVerkamannaflokksins, sagði
að Green væri billjónamæringur en
smáglæpon, sem aldrei hefði átt að
fá aðalstign.
Lífsstíll hans og ríkidæmi værimóðgun við starfsmennina sem
sætu eftir slyppir og snauðir.
Green hefur lýst því yfir að hannvilji leita lausna á lífeyrismál-
unum en lítið hefur verið um efnd-
ir.“
Philip
Green
Grátbroslegt grín
STAKSTEINAR
Jón Ásgeir
Jóhannesson
Veður víða um heim 20.10., kl. 18.00
Reykjavík 8 skúrir
Bolungarvík 6 súld
Akureyri 10 skýjað
Nuuk -2 skýjað
Þórshöfn 10 alskýjað
Ósló 5 rigning
Kaupmannahöfn 10 skýjað
Stokkhólmur 7 alskýjað
Helsinki 6 heiðskírt
Lúxemborg 9 rigning
Brussel 11 rigning
Dublin 11 léttskýjað
Glasgow 10 léttskýjað
London 12 rigning
París 13 rigning
Amsterdam 11 rigning
Hamborg 8 alskýjað
Berlín 9 léttskýjað
Vín 7 rigning
Moskva 0 skýjað
Algarve 23 skýjað
Madríd 15 rigning
Barcelona 16 rigning
Mallorca 18 rigning
Róm 15 rigning
Aþena 19 heiðskírt
Winnipeg 0 heiðskírt
Montreal 13 alskýjað
New York 21 léttskýjað
Chicago 14 alskýjað
Orlando 27 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:39 17:47
ÍSAFJÖRÐUR 8:52 17:43
SIGLUFJÖRÐUR 8:35 17:26
DJÚPIVOGUR 8:10 17:14
Reiknað er með að velta í framleiðslu
á kvikmyndum, myndböndum og
sjónvarpsefni hér á landi muni tvö-
faldast á þessu ári, ef mið er tekið af
veltu á fyrstu sex mánuðum ársins.
Áætluð velta þessa árs er 24,4 millj-
arðar króna í samanburði við 11
milljarða króna veltu á síðasta ári.
Það stefnir því allt í metár í íslensk-
um kvikmyndaiðnaði.
Þegar horft er á tímabilið janúar
til júní á þessu ári eru umsvifin þeg-
ar orðin tvöföld á við það sem var á
sama tíma í fyrra. Frá árinu 2008
hafa umsvifin á þessum markaði
fimmfaldast en árið 2008 var veltan
rúmir 4,4 milljarðar króna, sam-
kvæmt upplýsingum frá Sambandi
íslenskra kvikmyndaframleiðenda,
SÍK.
Kristinn Þórðarson, framleiðandi
hjá Truenorth og formaður SÍK,
segir mikla grósku í íslenskri kvik-
myndagerð en staðreyndin sé að
veltuaukninguna megi nær eingöngu
rekja til þess að undanfarin ár hafi
verið gríðarlegur áhugi erlendra
framleiðenda á að koma til Íslands.
Þar sé árið í ár engin undantekn-
ing því hingað komi hver stórmyndin
af annarri. Áhrif þessara verkefna
séu mjög jákvæð og nægi að nefna
aukningu ferðamanna auk beinna
tekjutengdra áhrifa um allt land.
Stefnir í metár í kvikmyndaiðnaði
Velta þessa árs áætluð 24,4 milljarðar
króna í kvikmyndaiðnaði hér á landi
Stórmyndin Justice League er
tekin að hluta upp hér á landi.
Biskup Íslands
hefur skipað dr.
Grétar Halldór
Gunnarsson í
embætti prests í
Grafarvogs-
prestakalli,
Reykjavíkur-
prófastsdæmi
eystra. Kjör-
nefnd presta-
kallsins komst að
þessari niðurstöðu, en kosið var á
milli fimm umsækjenda. Áður hafði
matsnefnd metið þessa umsækj-
endur hæfasta til þess að gegna
embættinu.
Umsækjendurnir auk Grétars
voru Anna Þóra Paulsdóttir guð-
fræðingur, Arnór Bjarki Blóm-
sterberg guðfræðingur, séra Fritz
Már Berndsen Jörgensson, séra Jón
Ásgeir Sigurvinsson, María Gunn-
arsdóttir guðfræðingur, séra Páll
Ágúst Ólafsson, séra Sigfús Krist-
jánsson, séra Stefán Már Gunn-
laugsson og Sylvía Magnúsdóttir
guðfræðingur.
Frestur til að sækja um embættið
rann út 8. ágúst sl. Kjörnefnd
prestakallsins er skipuð 29 ein-
staklingum auk prófasts sem leiðir
störf nefndarinnar. sisi@mbl.is
Grétar Halldór
Gunnarsson
Nýr prest-
ur í Graf-
arvoginn