Morgunblaðið - 21.10.2016, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016
félags- og tryggingamálaráðuneyti.
Þar voru þeir sem fengu matarað-
stoð hjá þremur hjálparsamtökum á
einum tilteknum degi taldir. „Niður-
staðan var að þennan dag sóttu 730-
790 manns mataraðstoð til þessara
þriggja samtaka,“ segir Siv.
Spurð hvort ekki þyrfti að taka
saman heildartölu þeirra sem fá
mataraðstoð hér á landi segir hún
svo vera. „Það væri mjög áhuga-
vert. En það kallar hugsanlega á
meira samstarf á milli hjálp-
arsamtakanna allra og að þau skrái
upplýsingar á sama hátt.“
Ásta Dís Guðmundsdóttir, for-
maður Sjálfs-
bjargar á höfuð-
borgarsvæðinu,
er samhæfingar-
stjóri Pepp. Hún
hefur þegið
mataraðstoð og
segir viðhorf
samfélagsins
hafa verið nei-
kvætt gagnvart
þessum hópi í
gegnum tíðina og einkennst af
hroka og skilningsleysi. Það hafi þó
breyst í kjölfar hrunsins. „Þá áttuðu
margir sig á því að venjulegt fólk
gæti vel lent í þeirri stöðu að eiga
erfitt. En það er enn algengt við-
horf á Íslandi að fátækt sé ekkert
annað en aumingjaskapur. Að hægt
sé að komast út úr henni með því að
vinna meira, skaffa meira. En það
er bara ekki alltaf hægt,“ segir Ásta
Dís.
Hún segir að fundurinn í dag
marki ákveðin tímamót. Hingað til
hafi raddir þeirra sem noti þjónustu
á borð við matargjafir ekki verið há-
værar. „Það hefur verið svo mikil
skömm á Íslandi að vera fátækur.
En það skiptir virkilega miklu máli
að þeir sem fái aðstoðina komi að
borðinu.“
Hjálparstarf kirkjunnar er meðal
þeirra samtaka sem veita matar-
aðstoð. Á síðasta starfsári, frá júlí
2015 til júní 2016, fengu rúmlega
2.000 einstaklingar slíka aðstoð. „Á
bak við þessa einstaklinga eru fjöl-
skyldur, þannig að við gætum sagt
að 5.500 manns hafi notið matar-
aðstoðar hjá okkur á þessu tíma-
bili,“ segir Sædís Arnardóttir, fé-
lagsráðgjafi hjá hjálparstarfinu.
Margvísleg aðstoð
Sædís segist finna að staðan hafi
batnað hjá mörgum. Til dæmis sé
auðveldara að fá vinnu nú en oft
áður. Hún segist þó verða vör við að
húsnæðiskostnaður sé að sliga
marga. „46% af þeim sem koma til
okkar eru á almennum leigumark-
aði og þeir ráða einfaldlega ekki við
leiguna. Ég hef heyrt dæmi um
200.000 á mánuði fyrir litla þriggja
herbergja íbúð. Fólk með lágar
tekjur ræður alls ekki við það.“
Hjálparstarfið veitir margs konar
aðra aðstoð. Á síðasta starfsári voru
til dæmis 38 börn styrkt til tóm-
stundastarfs, 439 manns fengu að-
stoð við lyfjakaup og foreldrar 210
skólabarna fengu inneignarkort til
að kaupa skóladót.
Að sögn Sædísar er nokkuð um
að fólk fái mataraðstoð og aðra að-
stoð frá hjálparsamtökum svo árum
skipti. „Það eru allnokkur dæmi um
fólk sem hefur fengið mataraðstoð í
meira en tíu ár, sumir hafa fengið
hana síðan við byrjuðum að skrá
niður árið 1995.“
Sædís segir að fólk á aldrinum
30-49 ára sé um helmingur þeirra
sem fái aðstoð hjá Hjálparstarfi
kirkjunnar og að konur séu í meiri-
hluta. „Annars er þetta fjölbreyttur
hópur, en fólk sem hefur verið í
þessari stöðu lengi á það gjarnan
sameiginlegt að vera bæði brotið og
viðkvæmt. Þunglyndi og kvíði eru
algengir fylgifiskar fjárhags-
erfiðleika.“
Mörg þúsund fá mataraðstoð
Algengt viðhorf að fátækt sé aumingjaskapur Þeir sem fái aðstoðina séu með í ráðum Staðan
betri hjá mörgum að mati Hjálparstarfs kirkjunnar Hafa fengið mataraðstoð í meira en 20 ár
Morgunblaðið/Ernir
Matarúthlutun Myndin er tekin hjá Mæðrastyrksnefnd, þar sem búið var að
útbúa matarpoka fyrir ein jólin. Ekki er vitað um nákvæman fjölda þeirra
Íslendinga sem fá matargjafir en talið er að þeir séu nokkur þúsund.
Sædís
Arnardóttir
Ásta Dís
Guðmundsdóttir
Siv
Friðleifsdóttir
Velferðarvaktin spurði öll hjálpar-
samtök sem veita mataraðstoð
hver þróun umfangs aðstoðarinnar
hefði verið á síðustu fimm árum.
Sum hjálparsamtökin svöruðu
því til að umsækjendum hefði
fækkað og töldu það vera vegna
betra atvinnuástands, önnur sögð-
ust merkja aukningu. Í svari Sam-
hjálpar kom fram að undanfarin
fimm ár hefði heimsóknum á kaffi-
stofu Samtakanna, þar sem fólki
er boðinn matur, fjölgað um 1.500-2.000 á ári.
Einnig var spurt um samsetningu hópsins sem nýtur aðstoðarinnar. Í
svörunum kemur fram að örorka er algeng ástæða þess að fá mataraðstoð,
margir eru einstæðir foreldrar og meirihluti fólksins er á leigumarkaði.
Nánast öll samtökin sögðu að erlendum ríkisborgurum og hælisleit-
endum hefði fjölgað mikið.
VELFERÐARVAKTIN KANNAÐI ÞRÓUNINA UNDANFARIN FIMM ÁR
Biðröð Beðið eftir mataraðstoð.
Heildarlausnir
fyrir mötuneyti og stóreldhús
Allt fyrir eldhúsið
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–18.
Gufusteikingarofnar
í ýmsum stærðum
Gæðatæki
á góðu verði
Yfir 30 ára reynsla á Íslandi
BAKSVIÐ
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Þeir sem þiggja mataraðstoð á Ís-
landi verða oft fyrir fordómum. Úr
slíkum viðhorfum dró þó í kjölfar
hrunsins. Ekki er vitað með vissu
hversu margir Íslendingar fá
mataraðstoð en talið er að þeir
skipti þúsundum.
Mataraðstoð, umfang hennar og
reynsla þeirra sem hennar njóta er
til umræðu á fundi sem samtökin
Pepp Ísland standa fyrir nú í
morgunsárið. Pepp er skammstöfun
á ensku fyrir „People experiencing
poverty“ og er tengslanet fólks sem
hefur það að markmiði að vinna bug
á fátækt. Á fundinum verða einnig
fulltrúar ýmissa hjálparsamtaka,
auk fulltrúa Velferðarvaktar félags-
málaráðuneytisins.
Siv Friðleifsdóttir, formaður Vel-
ferðarvaktarinnar, segir að ekki séu
til heildartölur um fjölda þeirra sem
þiggi mataraðstoð frá frjálsum fé-
lagasamtökum. Aðstoðin sé afar
mismunandi; stundum sé verið að
afhenda matvörur, í öðrum tilvikum
fái fólk inneignarkort í tilteknar
matvöruverslanir og þá sé nokkuð
um að fólk fái „mat á disk“. „Við
höfum gert lauslega könnun meðal
hjálparsamtaka en við getum ekki
byggt á þeim tölum því skráningin
er mismunandi,“ segir Siv.
Vinna meira, skaffa meira
Til þess að fá einhverja hugmynd
um umfangið segir Siv að styðjast
megi við skilgreiningu Eurostat,
evrópsku hagstofunnar, á sárafá-
tækt en samkvæmt henni falla 1,3%
Íslendinga, tæplega 4.300 manns,
undir þá skilgreiningu. „Við vitum
ekki hvort allir í þeim hópi fá
mataraðstoð en þetta gefur okkur
einhverja hugmynd um stöðu mála,“
segir Siv.
Í þessu sambandi nefnir hún
könnun Félagsvísindastofnunar HÍ
sem gerð var 2010 fyrir þáverandi
Örorka er algeng ástæða
„Jú, við erum svo sannarlega
ánægðir, sérstaklega með að vera
ofar á listanum en grannar okkar
frá Noregi og Finnlandi,“ segir
Virgar Hvidbro, adalskrivari fær-
eyska knattspyrnusambandsins, um
árangur karlalandsliðsins sem er í
74. sæti á FIFA-listanum yfir bestu
landslið í heimi, Noregur er í 81.
sæti og Finnland í 101. sæti.
Adalskrivari er nokkurs konar
framkvæmdastjórastaða hjá sam-
bandinu, sambærilegt stöðu Klöru
Bjartmarz hjá KSÍ.
Uppbyggingarstarfið lykillinn
Hver er grunnurinn að þessum
góða árangri?
„Já, það eru ekki nema tíu ár síð-
an við byrjuðum að taka þátt í
keppni landsliða yngri en 21 árs og
af 22 leikmönnum liðsins er 21 sem
hefur spilað með því.
Svo erum við með marga leik-
menn í erlendum deildum, til dæmis
leika þrír leikmenn á Íslandi, allir í
FH en einn lék í sumar fyrir Fylki á
lánssamningi. Frægastur þeirra er
líklegast Gunnar Nielsen sem er að-
almarkvörður Íslandsmeistara FH.
Hann lék áður með Stjörnunni og
þar áður í skosku deildinni með
Motherwell.
Við erum með þrjá færeyska leik-
menn í efstu deildinni í Danmörku
og nokkra í neðri deildum þar. Svo
er einn í Noregi sem leikur með
Brann í Bergen. Þessir leikmenn
elska að leika fyrir land sitt.
Þjálfarinn okkar er góður, Dan-
inn Lars Olsen sem var fyrirliði
hins fræga danska liðs sem vann
Evrópukeppnina árið 1992.“
Var ekki skálað í kampavíni þeg-
ar FIFA gaf út listann?
„Jú, það gerðum við svo sann-
arlega.“ borkur@mbl.is
Færeyjar fyrir of-
an Noreg á FIFA
Morgunblaðið/Kristinn
Landsliðsmaður Nielsen leikur
með FH en lék áður með Stjörnunni.
Á nýútkomnum
lista FIFA eru
Færeyjar í 74. sæti