Morgunblaðið - 21.10.2016, Side 18

Morgunblaðið - 21.10.2016, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 SÍÐUMÚLI 14 108 REYKJAVÍK SÍMI 510 5510 OPIÐ VIRKA DAGA KL. 8 -18 Þorsteinn Ásgrímsson Mélen thorsteinn@mbl.is Jón Ásgeir Jóhannesson, einn hinna ákærðu í Aur- um Holding-málinu, gagnrýndi í framsögu sinni við skýrslutöku í gær meðferð ákæruvaldsins og lögregluyfirvalda í sínum málum undanfarin 15 ár, en þá byrjaði rannsókn á Baugsmálinu svokallaða. Sagði hann sömu lögreglumenn hafa rannsakað mál gegn sér núna og gerðu það í Baugsmálinu. Ásakaði Jón Ásgeir tvo lögreglumenn um að hafa óhikað leynt gögnum sem sýndu að ásakanir gegn ákærðu í þessu máli stæðst ekki. Nefndi hann í því samhengi undirritaða pappíra frá félag- inu Damas, sem var í viðræðum við Baug um kaup á hlut í Aurum. Þá hefði líka verið gert verðmat af hálfu Damas sem sýndi hærra verðmat en sak- sóknari legði upp með í málinu. Átti að hafa vitað af tengslum meðdómara Saksóknari telur verðmat Aurum í viðskiptun- um hafa verið of hátt og því hafi lánveiting Glitnis í því tilfelli verið allt of há. Er það eitt grundvallar- atriði í málinu. Sagði Jón Ásgeir að verðmatið sem Damas hefði látið gera væri upp á 107 milljónir, en það er hærra en það 100 milljóna mat sem Glitnir horfði til við lánveitinguna. Þá sagði Jón Ásgeir það ólíklegt að saksóknari hefði ekki vitað af tengslum meðdómara þegar málið var rekið í fyrra skipti fyrir héraðsdómi við Ólaf Ólafsson fjárfesti. Spurði hann hvort sak- sóknari hefði ekki aðgang að Google. Hæstiréttur ógilti eftir fyrra málið sýknudóm vegna ummæla dómarans í garð saksóknara. Sagði Jón Ásgeir að ef dómsmál saksóknara gengi ekki upp „fær sérstakur bara aðra tilraun“ sem hann sagði byggja á upplognum ástæðum. „Ég get trúað ykkur fyrir því að ég er orðinn bug- aður,“ sagði Jón Ásgeir um þessi mál gegn sér. Ítrekaði hann að gerð hefðu verið verðmöt á virði Aurum og að við lánveitingu hefðu starfs- menn Glitnis farið eftir réttum ferlum. Saksóknari telur í málinu að Jón Ásgeir hafi verið eins konar skuggastjórnandi sem hafi gefið fyrirmæli til stjórnanda Glitnis um hvernig ætti að haga mál- um. Jón Ásgeir sagði gögn málsins aftur á móti sýna að svo hefði ekki verið. Annars hefðu starfs- mennirnir væntanlega framkvæmt hugmyndir hans, en það hefði ekki verið niðurstaðan. „Frekja og eftirfylgni er ekki glæpur,“ sagði Jón Ásgeir um samskipti sín við starfsmenn bankans. Jón Ásgeir segist bugaður  Réttarhöld héldu áfram í Aurum-málinu í héraðsdómi  Jón Ásgeir Jóhannesson í skýrslutöku  Sakaði lögreglumenn um að leyna gögnum  Spurði hvort saksóknari hefði ekki aðgang að Google Morgunblaðið/Árni Sæberg Dómsalur Jón Ásgeir Jóhannesson ásamt lögmönnum í Héraðsdómi Reykjavíkur. Saksóknari spurði um tengingar á milli Aurum-málsins og Stím- málsins í skýrslutöku yfir Jóni Ásgeiri og vitnaleiðslum yfir nokkrum fyrrverandi starfs- mönnum eignarhaldsfélagsins Fons. Spurði hann Jón Ásgeir m.a. hvort tapið af Stím- viðskiptunum hefði í raun ekki að lokum verið greitt með Aur- um-viðskiptunum. Vísaði saksóknari meðal ann- ars til pósts frá Jóni Ásgeiri til Gunnars Sigurðssonar, fyrrver- andi forstjóra Baugs, þar sem hann sagði að Pálma Haralds- syni, fyrrverandi eiganda og for- stjóra Fons, hafi verið lofað skaðleysi. Neitaði Jón Ásgeir samskiptum við Pálma vegna Stíms. Þá var einnig sýndur póstur þar sem Jón Ásgeir segir við viðskiptastjóra sinn hjá Glitni að Pálmi telji Lárus Weld- ing, fyrrverandi bankastjóra og einn ákærða í málinu, hafa svik- ið sig. Spurði um tengingar SAKSÓKNARI Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Jógúrtísfyrirtækið Yogiboost, sem er í eigu Lúðvíks Georgssonar og fjölskyldu hans í Malmö í Svíþjóð, vann í vikunni dómsmál sem mjólkurrisinn Arla höfðaði gegn því vegna nafns fyrirtæk- isins. „Þetta er sann- kallaður sigur Davíðs á Golíat og mikill léttir, enda verður mál- inu ekki aftur áfrýjað,“ segir Lúðvík, sem opnaði fyrstu Yogiboost-ísbúðina fyrir rúmlega þremur árum og rekur nú sex ísbúðir í Svíþjóð. Ein hefur ver- ið opnuð í Kína, en þar stendur til að opna 102 Yogiboost-ísbúðir á næstu fimm árum. Yogiboost-ísbúðirnar eru sjálfs- afgreiðsluverslanir. 10 mismunandi ístegundir eru í boði og 70 sósur, kurl, ber og fleira. Neytandinn set- ur sjálfur í box það sem hann vill og greiðir síðan samkvæmt vigt. Löng deila Fyrsta verslunin var opnuð í Malmö 14. maí 2013. Lúðvík segir að Arla, sem er stærsta mjólkur- framleiðslufyrirtæki í Evrópu, hafi þá kvartað skriflega yfir vörumerk- inu Yogiboost og sagt að það skyggði á vörumerkið Yoggi, sem það ætti og notaði á jógúrtvörur fyrirtækisins. Það hafi hótað öllu illu og málið hafi endað í málaferl- um fyrir dómi. „Ég vissi að ég var í fullum rétti og við ákváðum að standa á honum,“ segir Lúðvík. Málaferlin kostuðu Lúðvík um 1,2 milljónir sænskra króna, um 15,5 milljónir króna, en kostnaðurinn lendir á Arla. „Það fór mikill tími og peningur í þetta en ég vissi allan tímann að við höfðum rétt fyrir okkur. Þetta hefur tekið mikið á okkur en nú höldum við bjartsýn áfram uppbyggingunni.“ Yogiboost-ísbúð 10 ístegundir eru í boði og 70 sósur, kurl, ber og fleira. Hafði betur gegn mjólkurrisanum  Yogiboost vann dómsmál gegn Arla Lúðvík Georgsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.