Morgunblaðið - 21.10.2016, Side 20

Morgunblaðið - 21.10.2016, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum. Frábært til að bæta hormónajafnvægi fyrir konur á öllum aldri Heilbrigðari og grennri konur Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið lignans i blóðinu eru að meðaltali með 8,5 kg minni fitumassa en þær konur sem skortir eða hafa lítið af Lignans.** * Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082 ** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University. 1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur Mulin hörfræ - rík af Lignans Trönuberjafræ Kalk úr hafþörungum CC FLAX • Regluleg inntaka stuðlar að kjörþyngd • Omega 3- ALA • Fjölbreyttar trefjar NÝJAR UMBÚÐIR SLEGIÐ Í GEGN Í VINSÆLDUM - FRÁBÆR -ÁRANGUR PREN TU N .IS VIÐTAL Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Við erum að gera skemmtilega hluti og leita að tækifærum sem felast í þessum miklu breytingum. Við höfum fengið inn nýtt og kraftmikið fólk í stað öflugra reynslubolta sem við misstum frá okkur. Á vissan hátt er- um við með nýja stofnun og það felast tækifæri í því að vera nánast á byrj- unarreit,“ segir Eyþór Björnsson fiskistofustjóri. Starfsemi í nýjum höfuðstöðvum Fiskistofu á háskólasvæðinu á Borg- um á Akureyri er smátt og smátt að komast í fastar skorður, en formlega var opnað þar fyrir hálfum mánuði. Mikið öldurót fylgdi þeirri ákvörðun stjórnvalda að flytja höfuðstöðvarnar norður og létu um 20 starfsmenn af störfum í kjölfarið. Eftir sem áður er meirihluti starfsmanna Fiskistofu í Hafnarfirði. Krísustjórnun frá degi til dags Aðeins fiskistofustjóri flutti með stofnuninni norður og annar starfs- maður hefur nýtt sér tækifæri til að hafa aðstöðu á báðum stöðum. Eyþór dregur ekki dul á að síðustu ár hafi verið erfið í rekstri Fiskistofu. „Það varð mikil óánægja og rót meðal starfsmanna þegar áformin voru kynnt í lok júní 2014,“ segir Ey- þór. „Þetta var strembið og í raun krísustjórnun frá degi til dags í rúm- lega eitt ár, því formleg ákvörðun um flutning kom ekki fyrr en 13 mán- uðum síðar. Þann tíma vorum við í limbói um hvað yrði og þessi langi óvissutími var okkur öllum mjög erfiður. Hann skýrist meðal annars af því að fyrst var tilkynnt um áformin, en svo kom í ljós að lagaheimild skorti fyrir flutn- ingnum. Það tók því þennan tíma að eyða allri óvissu og afla lagaheim- ildar. Lengi vel gerði fólk ráð fyrir að á 18 mánuðum þyrfti það að hætta störfum hjá Fiskistofu eða flytja til Akureyrar. Þegar í ljós kom að flutn- ingur starfsfólks yrði gerður með starfsmannaveltu fór rykið að setjast. Þá höfðu nokkrir þegar látið af störf- um, aðrir fóru að líta í kringum sig í rótinu eftir að áformin voru kynnt og hugsa hlutina upp á nýtt. Fleiri ástæður voru að baki uppsögnum og starfslokum, en við misstum mikla þekkingu og erum enn að byggja starfsemina upp að nýju.“ Starfsmenn Fiskistofu eru um 75 og hefur starfsmannafjöldi ekki breyst síðustu ár fyrir utan tíma- bundna fækkun 2014-2015 vegna óvissuástands. Fjöldi starfsmanna í Hafnarfirði ekki undir 20 Núna eru 17 starfsmenn fyrir norð- an og tveir bætast væntanlega við fyr- ir áramót. Með í fjöldanum á Akur- eyri eru taldir þrír starfsmenn Verð- lagsstofu skiptaverðs. Þegar áform um flutning voru kynnt voru fimm starfsmenn Fiskistofu þegar stað- settir á Akureyri, fjórir veiðieftir- litsmenn og einn á skrifstofu. Því hafa í raun níu manns bæst við á Akureyri síðan. Á skrifstofu Fiskistofu í Hafn- arfirði starfa 28 manns og þar eru ell- efu veiðieftirlitsmenn. Eyþór á ekki von á að fjöldi starfsmanna í Hafnar- firði fari undir 20. Þess má geta að Fiskistofa hefur aldrei farið fram úr fjárheimildum sínum, samkvæmt upplýsingum Eyþórs. Í Hafnarfirði er m.a. rekin upplýs- ingatæknideild með Hafrannsókna- stofnun, sem þarf þjónustu og ákveðna nálægð. Einnig er þar öflug deild sem sinnir veiðieftirliti, m.a. í vinnsluskipum, og þar er allt landa- mæraeftirlit eða þriðja ríkis eftirlit vegna slíkra umsvifa á suðvestur- horninu. Þá er Fiskistofa með útibú á Ísafirði, Stykkishólmi, Vestmanna- eyjum og Hornafirði þannig að alls er stofnunin með starfsemi á sex stöðum á landinu. Leigja 7-800 femetra sem ekki er lengur þörf á Á eftir launakostnaði starfsmanna er kostnaður vegna leigu á húsnæði næststærsti kostnaðarliður Fiski- stofu. Samið var til 10 ára við Reiti ehf., sem á húsnæðið á Borgum. Ekki er hins vegar útséð um hvað verður með húsnæðið í Hafnarfirði. „Í Hafnarfirði erum við með samn- ing um leigu á alltof stóru húsnæði til ársloka 2025,“ segir Eyþór. „Þarna erum við með 7-800 fermetra sem við höfum ekki þörf á lengur og erum því að borga tvöfalda húsaleigu eða sem nemur um 1,8 milljónum á mánuði fyrir leigu á umframhúsnæði í Hafn- arfirði. Ég hef átt nokkra fundi með mínu ráðuneyti, fjármálaráðuneytinu og Framkvæmdasýslu ríkisins um að leita leiða til að koma þessu húsnæði í vinnu eins og það heitir. Niðurstaða er ekki komin í það mál.“ Starfsfólk viti sína stöðu Þegar Eyþór er spurður hvað læra megi af þessu máli spyr hann hlæj- andi á móti hvar hann eigi að byrja, en segir síðan: „Fyrst og fremst þarf að vanda sig gríðarlega í undirbúningi ef menn ætla að fara út í svona flutninga. Leikreglur slíks verkefnis þurfa að vera skýrar og skrifaðar niður. Þegar uppi eru vangaveltur eða áform þarf starfsfólk að vita frá fyrstu stundu hvar það stendur og hvað bíði þess. Einnig þarf að liggja fyrir á hvaða grundvelli á að framkvæma svona mikla breytingu.“ Eyþór segist þurfa lengri tíma til að meta hvað hafi áunnist, en í öllum breytingum séu fólgin tækifæri. Verkefnið hafi verið kynnt undir for- merkjum byggðasjónarmiða og vissu- lega hafi störfum fjölgað á Akureyri. „Á vissan hátt með nýja stofnun“  Mikið öldurót fylgdi ákvörðun um að flytja höfuðstöðvar Fiskistofu til Akureyrar  Langan tíma tók að eyða óvissu og afla lagaheimildar  Starfið að komast í fastar skorður í nýjum höfuðstöðvum á Borgum Flutningur » Sigurður Ingi Jóhannsson, þá sjávarútvegsráðherra, kynnti í ríkisstjórn 27. júní 2014 áform um að efla starf- semi Fiskistofu á Akureyri og flytja höfuðstöðvar þangað. Stefnt var að því að flutningum yrði lokið í lok árs 2015. » Vitnað var í stefnuyfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar um að mikilvægt væri að stuðla að fjölbreyttum atvinnutækifær- um um allt land, m.a. með dreifingu opinberra starfa. » 29. júlí 2015 var tilkynnt að höfuðstöðvar Fiskistofu myndu flytjast til Akureyrar um áramótin 2016/17. Þá hafði Alþingi samþykkt breytingar á lögum þar sem lögfest var heimild fyrir ráðherra til að taka ákvörðun sem þessa. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fiskistofa Eftir mikið rót er starfsemin að komast í fastar skorður. Eyþór Björnsson, lengst til hægri, ásamt hluta starfsfólks stofnunarinnar á Akureyri. Borgir Höfuðstöðvar Fiskistofu eru á háskólasvæðinu á Akureyri. Eyþór og samstarfsfólk hans á Fiskistofu hefur síðustu misseri verið dyggir viðskiptavinir Flugfélags Íslands. „Það var svolítið táknrænt að í síðustu viku pakkaði ég niður dótinu á skrifstofu minni í Hafnarfirði og er að tæma hana. Þegar ég verð á ferðinni í framtíðinni verð ég með skrif- borð úti í horni á skrifstofunni í Hafnarfirði. Fyrst eftir að ég flutti norður fyrir ári fór ég suður nánast í hverri viku. Ferðunum hefur fækkað mjög upp á síðkastið og nú orðið fer ég suður 1-2 sinnum í mánuði. Það var mikilvægt að koma samskiptunum þannig fyrir að ekki þyrfti að eyða peningum skattborgaranna í endalausar flug- ferðir,“ segir Eyþór. Flugferðunum fækkar MEÐ SKRIFBORÐ ÚTI Í HORNI Í HAFNARFIRÐI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.