Morgunblaðið - 21.10.2016, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016
rýmum á Kvíabryggju hafi verið
fjölgað úr 11 í 22 og Sognsfangelsið
tekur jafnmarga. „Þessi fjölgun op-
inna plássa er bylting. Áður voru
menn hér í lokaðri aðstæðum en
þótti nauðsyn og opnu úrræðin
ganga betur en við væntum,“ segir
Halldór Valur þegar hann kynnti
blaðamanni Morgunblaðsins starf-
semi og húsakost. Gengið var um
langa ganga og í gegnum járnluktar
dyr og vissulega er staðurinn ekki
aðlaðandi. Stærstu klefarnir eru um
níu fermetrar með hreinlætis-
aðstöðu; rúm, stóll, borð og fleira
slíkt. Allt íburðarlítið og kannski á
þetta að vera svo.
Elsti hluti Eyrarbakkafangels-
isins er frá um 1920 og við hann
hefur verið byggt mikið í áranna
rás. Flestir klefarnir eru í byggingu
frá 1995. Á hverjum gangi er sam-
eiginlegt rými og eldunaraðstaða,
en fangar sjá sjálfir um matargerð
sem er hluti af endurhæfingu
þeirra.
Lykilatriði í betrun í fangavist-
inni eru þó starf og nám og í þeim
efnum hafa góðir hlutir verið að
gerast á undanförnum árum. Um
árabil hefur verið starfandi náms-
ráðgjafi, sem hefur það hlutverk að
finna leiðir sem henta hverjum.
„Við upplifum það að við mætum
skilningi í menntakerfinu og skóla-
fólk hefur skilning á því að fangar
sem eru til dæmis í fjarnámi við há-
skólana geti ekki mætt skilyrð-
islaust í staðlotur eða námshelgar.
Fundnar eru lausnir á því eftir at-
vikum.
Þá hafa reglur um netaðgengi
fanga verið rýmkaðar og nú er til
dæmis heimilað netaðgengi undir
eftirliti og við viljum raunar ganga
lengra í því efni. Margir nemar hér
hafa plummað sig vel í akademísku
námi,“ segir Halldór Valur. Hann
bætir því við að þó sé mikilvægt að
fjölga námskostum, svo sem í verk-
námi og tilgreinir þar sérstaklega
tré- og járnsmíði.
Pappaöskjur, trésmíði
og bílabón
Halldór Valur segir að af um 70
langtímaföngum í dag séu um 50
þeirra í námi eða vinnu. Þeir sinni
ýmsu svo sem trésmíði, samsetn-
ingu á pappaöskjum, nokkrir séu
að skrúfa niður gömul raftæki, aðr-
ir að bóna bíla og svo framvegis. Þá
skapar framleiðsla á bílnúmerum
störf. Sú iðja hefur raunar vaxið að
undanförnu, því í góðæri eykst inn-
flutningur bíla.
„Viðfangsefnin eru endalaus; svo
sem að koma mönnum í virkni,
vinnu, nám og kenna þeim að lifa
samkvæmt einhverri reglu. Með
opnum fangelsum, áfangaheimili,
rafrænu eftirliti og slíkum nýjum
úrræðum erum við að skapa að-
stæður sem geta stuðlað að bættri
virkni og þá er til nokkurs unnið,“
segir Halldór Valur að síðustu.
Fangelsismál eru í framþróun
Breytingar á Litla-Hrauni framundan Gæsluvarðhald flyst á Hólmsheiði Rýmri reglur um af-
plánun gefa góða raun Mannúðleg vistun og nýja leiðir Virkni, vinna, nám og líf samkvæmt reglu
Stórhýsi Elsti hluti fangelsins, burstahús, var byggður fyrir um 100 árum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fangelsisstjórinn Halldór Valur á varðstofunni þar sem fylgst er með öllu sem gerist á stórum skjám.
Að fangelsi eins og Litla-
Hraun geti orðið 100% fíkni-
efnafrítt er óraunhæft, segir
Halldór Valur Pálsson. Í krafti
sterkrar fíknar muni þeim
sem ætla alltaf takast að út-
vega sér dóp. Þó hafi náðst
ákveðinn árangur í viðspyrnu
á síðustu árum, bæði með
bættu eftirliti og auknum
meðferðarmöguleikum. Sam-
spilið þar á milli sé mikilvægt.
„Þegar við náum fíkniefnum
sem ætlunin er að dreifa til
fanga þá róast ástandið innan
veggja hér í kjölfarið. Áður
sáum við ekki endilega
tengslin þar á milli,“ segir
Halldór Valur. Að undanförnu
nefnir hann að borið hafi á
spice, kannabisskyldu slæv-
andi efni sem er í duftformi
og blandað saman við tóbak,
krydd og slíkt. Þetta telst þó
ekki fíkniefni samkvæmt lög-
gjöfinni, en er slævandi. Í
nokkrum mæli berst svo
læknadóp, til dæmis Ritalin
og glærir verkjastillandi
plástrar.
Efnum náð og
ástandið róast
FANGELSI VERÐUR ALDREI
FÍKNIEFNAFRÍTT
Morgunblaðið/Kristinn
Kannabis Töluverður árangur hefur
náðst í viðspyrnu gegn fíknefnum.
BAKSVIÐ
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Rýmri heimildir sem gefa fyr-
irmyndarföngum möguleika á að
komast út í frelsið fyrr en boðist
hefur til þessa hafa skapað betri
brag í fangelsunum. Sumir stoppa
hér aðeins í örfáa mánuði og komast
þá í opnari úrræði,“ segir Halldór
Valur Pálsson, forstöðumaður fang-
elsisins að Litla-Hrauni á Eyrar-
bakka. Þar eru í dag allt að 85 fang-
ar í vistun um lengri og skemmri
tíma. Starfsemi eystra mun svo
breytast nokkuð á næstunni þegar
nýja fangelsið á Hólmsheiði verður
tekið í notkun á næstu dögum.
Húsakynni séu endurskipulögð
Morgunblaðið heimsótti Litla-
Hraun í síðustu viku og ræddi við
Halldór Val sem tók við forstöðu þar
snemma á þessu ári. Hann er þess-
um málaflokki vel kunnugur eftir
langt starf. Byrjaði árið 2000, þá tví-
tugur að aldri, sem fangavörður og
var í nokkur ár. Vann svo um árabil
hjá Fangelsismálastofnum og hafði
meðal annars umsjón með málum
viðvíkjandi Hólmsheiðarfangelsinu
og hönnun þess.
„Fangelsismál eru í mikilli
framþróun. Mannúðlegri vistun og
nýjar leiðir sem styðja eiga við
fanga eru leiðarljósið í dag, svo jafn-
vel aðrar þjóðir horfa í þessum efn-
um til Norðulandanna, þar með talið
Íslands.“
Á Litla-Hrauni segir Halldór Val-
ur að sé nú orðin mikil þörf á end-
urskipulagningu húsa, svo álmur og
gangar séu betur aðskilin. Sé það
nauðsynlegt vegna öryggis og að-
búnaðar. Þá sé mikilvægt að bæta
heimsóknaraðstöðu og finna sem
best not fyrir þau húsakynni þar
sem nú eru notuð fyrir gæslu-
varðhald, en sá starfsþáttur flyst á
Hólmsheiði á næstunni.
Púsluspil í miklu návígi
Alls níu deildir eru í fangelsinu að
Litla-Hrauni. Þær almennu eru sjö
og á hverri 10 til 12 eins manns klef-
ar. Svo eru níu rými í tvískiptri
gæsluvarðhaldsálmunni og í fullskip-
uðu húsi eru 85 fangar.
„Þetta er púsluspil. Á hvern gang
setjum við menn sem raðast vel í
hóp svo þeir geti verið saman í ná-
vígi,“ segir Halldór Valur. „Í hverri
viku eru tilfærslur milli klefa og
deilda, til dæmis þarf að taka tillit til
aldurs, þjóðernis, hegðunar og fleira
þegar raðað er niður á deildir.“
Alþingi samþykkti ný og breytt
lög um fullnustu refsinga snemma á
líðandi ári. Í stuttu máli sagt er
breytingin sú að fanga með til
dæmis fjögurra ára dóm gefst nú
kostur á að fara, ef allt gengur vel,
úr öryggisvistun á Litla-Hrauni í
opið fangelsi eftir skemmri dvöl þar
en áður fyrr, þá á Kvíabryggju eða
Sogn í Ölfusi. Í opinni vist eru
menn hugsanlega í eitt ár en geta
eftir það komist á áfangaheimili, í
rafrænt eftirlit eða slíkt. Fara svo
út í frelsið á reynslulausn þegar
kannski þrjú af fjórum árum eru
liðin.
Langir gangar
og járnluktar dyr
„Að létta svona þrepaskipt á refs-
ingum er hægt nú af því að rýmum
í opnu fangelsunum var fjölgað,“
segir Halldór. Hann nefnir þar að
„Hundurinn minn var búinn að
vera í meðferðum hjá dýralækni
í heilt ár vegna húðvandamála
og kláða, þessu fylgdi mikið
hárlos. Hann var búinn að vera
á sterum án árangus. Reynt
var að skipta um fæði sem bar
heldur ekki árangur. Eina sem
hefur dugað er Polarolje fyrir
hunda. Eftir að hann byrjaði að
taka Polarolje fyrir hunda hefur
heilsa hans tekið stakkaskiptum.
Einkennin eru horfin og hann er
laus við kláðann og feldurinn
orðinn fallegur.“
Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi
Sími 698 7999 og 699 7887
Náttúruolía sem
hundar elska
Við Hárlosi
Mýkir liðina
Betri næringarupptaka
Fyrirbyggir exem
Betri og sterkari fætur
NIKITA
hundaolía
Selolía fyrir
hunda
Hindberjajógúrt
Lífrænar
mjólkurvörur
• Engin aukaefni
• Meira af Omega-3
fitusýrum
• Meira er af CLA
fitusýrum sem byggja
upp vöðva og bein
• Ekkert undanrennuduft
• Án manngerðra
transfitusýra
www.biobu.is
NÝ AFURÐ FRÁ BIOBÚ!