Morgunblaðið - 21.10.2016, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skjaldþingsstaðir í Vopnafirði hafa
verið áberandi í veðurfréttunum á
þessu hausti. Þar er veðurstöð og
dag eftir dag hefur hún státað af
hæsta hitastigi á landinu. Í gær
komst hitinn í tæpar 18 gráður og 16
gráður í fyrradag. Og þótt fyrsti
vetrardagur sé á morgun, laugar-
dag, er engan vetur að sjá í kort-
unum.
Skjaldþingsstaðir eru í botni
Vopnafjarðar og í sunnanáttum blæs
þurr vindur niður af fjöllunum,
hnjúkaþeyr myndast og hitinn
magnast.
„Man ekki eftir öðru eins“
Refsstaður er nágrannabær
Skjaldþingsstaða og þar ræður ríkj-
um hin þjóðþekkta Ágústa Þorkels-
dóttir. „Haustið hefur verið með ein-
dæmum gott. Ég hef búið hérna í 46
ár og man ekki eftir öðru eins. Það
hefur nánast verið sumarveður upp
á hvern dag,“ segir Ágústa í samtali
við Morgunblaðið.
„Það er sólskin núna og þætti
ljómandi fallegt veður að sumarlagi
en það er dálítið hvasst. Sunnanáttin
getur verið alveg svakaleg þegar
hún kemur héðan af Skörðunum,
fjöllunum milli Héraðs og Vopna-
fjarðar. Þetta er oft engu líkt en þeir
sem eru fæddir hérna eru vanir
þessu og tala um hlaupandi logn,“
segir Ágústa.
„Í augnablikinu sit ég hér við eld-
húsgluggann og túnin eru fagur-
græn á öllum bæjum hér í sveitinni,“
segir hún. Verið var að vinna með
heyvinnslutæki í túninu á Refsstað í
gær. Unnið var að því að þurrka
hálminn eftir kornskurðinn. Kornið
var skorið frekar seint því það var
seint hægt að sá í vor. En korn-
uppskeran var góð og nú er verið að
þurrka hálminn. Honum verður svo
rúllað í rúllubagga og hann notaður
undir skepnur.
Meðalviktin með fádæmum
„Það hefur verið topp fram-
leiðslugeta á öllu í sumar, gras-
spretta góð og sömuleiðis mikil upp-
skera garðávaxta,“ segir Ágústa.
Hún segir að núna sé fólkið henn-
ar að vinna í sláturhúsinu og hún
fylgist vel með því. Búið sé að lóga
26 þúsund lömbum og er með-
alviktin 17,13 kíló, sem er með fá-
dæmum. Oft hefur meðalviktin verið
um og yfir 15 kíló.
„Sumarið og haustið hafa verið
með eindæmum, það er eins og að
búa í Paradís að búa í Vopnafirði,“
segir Ágústa að lokum.
Á Skjaldþingsstöðum er svokölluð
mönnuð skeytastöð. Mælingar hafa
farið fram á bænum síðan 1994. Jón
Ingólfsson bóndi annast veður-
athuganir.
www.mats.is
Skjaldþingsstaðir Þótt komið sé langt fram í október eru tún bæjanna í Vopnafirði enn fagurgræn.
„Nánast sumarveður
upp á hvern dag“
Eindæma veðurblíða í Vopnafirði í sumar og haust
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Sumarveður Ágústa Þorkelsdóttir
á Refsstað fær sér kaffisopa.
Heildarlaun fullvinnandi launafólks á
Íslandi voru á síðasta ári að meðaltali
612 þúsund krónur á mánuði en
helmingur launamanna hafði 535
þúsund krónur eða meira. Munurinn
skýrist, að mati Hagstofunnar, af
dreifingu launa þar sem hæstu laun
hækka meðaltalið og kjarasamning-
ar tryggja lágmarkskjör en kveða
ekki á um hámark.
Lægri laun hjá sveitarfélögum
Samkvæmt tölum Hagstofunnar
var fjórðungur launamanna í fyrra
með 433 þúsund krónur eða minna í
heildarlaun. Um tíundi hver launa-
maður var með lægri laun en 348
þúsund krónur fyrir fullt starf. Í hina
áttina horft voru rúmlega 7% full-
vinnandi launamanna með yfir eina
milljón á mánuði í heildarlaun.
Af launamönnum sem starfa hjá
ríkinu voru 23% með heildarlaun yfir
800 þúsund krónur á mánuði, 19%
launamanna á almennum vinnu-
markaði og 5% starfsfólks sveitarfé-
laga. Hinsvegar voru rúmlega 60%
launamanna á almennum vinnu-
markaði með heildarlaun undir 600
þúsund krónum, 45% ríkisstarfs-
manna og 85% starfsmanna sveitar-
félaga.
Heildarlaun fullvinnandi starfs-
manna á almennum vinnumarkaði
voru að meðaltali 637 þúsund krónur
á mánuði árið 2015 en heildarlaun op-
inberra starfsmanna 583 þúsund
krónur.
Stjórnendur á almennum vinnu-
markaði voru að meðaltali með heild-
arlaun upp á 1.156 þúsund krónur á
mánuði fyrir fullt starf, stjórnendur
hjá ríki með 968 þúsund krónur en
722 þúsund krónur hjá sveitarfélög-
um. Verkafólk var með 477 þúsund
króna heildarlaun á almennum
vinnumarkaði, 495 þúsund krónur
hjá ríki og 424 þúsund krónur hjá
sveitarfélögum. Starfsmenn sveitar-
félaga voru með lægst laun óháð
starfsstétt.
Lægst í fræðslustarfsemi
Heildarlaun voru hæst í fjármála-
og vátryggingastarfsemi eða 815 þús-
und krónur að meðaltali á mánuði og
næst komu veitufyrirtækin. Lægstu
heildarlaunin voru í fræðslustarf-
semi, svo sem hjá kennurum, eða 505
þúsund krónur á mánuði. sbs@mbl.is
Veitur og vátrygg-
ingar borga best
7% launamanna með yfir eina milljón
á mánuði, samkvæmt tölum Hagstofu
Hæstiréttur dæmdi í gær Björn
Valdimarsson í tveggja og hálfs árs
fangelsi fyrir nauðgun. Héraðsdóm-
ur Vesturlands hafði áður dæmt
hann í tveggja ára fangelsi. Hinn
dæmdi skal og greiða fórnarlambi
sínu um 1,2 milljónir króna í miska-
bætur og annað eins í málskostnað
til réttargæslumanns brotaþola og
verjanda síns.
Björn var sakfelldur fyrir að hafa
notfært sér ölvun og svefndrunga
brotaþola til að hafa við hana sam-
ræði. Fór hann á heimili konunnar
ásamt kærasta systur hennar. Kon-
an bjó í foreldrahúsum þar sem kær-
asti systurinnar var einnig til húsa.
Fóru þeir í herbergi konunnar og
lagðist Björn upp í hjá henni og hinn
tók myndir af. Kærastinn yfirgaf svo
herbergið.
Eftir það hafði maðurinn samræði
við konuna og hélt því fram að það
hefði verið með fullum vilja. Konan
segist hafa vaknað við það að mað-
urinn hafi legið nakinn ofan á henni.
Hann hafi kysst hana og hún í fyrstu
brugðist vel við því en svo áttað sig á
því hvað væri í gangi. Hún hafi þá
vakið systur sína og greint frá því
sem gerst hafði.
Hringt var á lögreglu sem hand-
tók Björn sem var ölvaður. Hann
hélt því fram að konan hefði verið
vakandi þegar kærasti systur henn-
ar hafi tekið myndir af þeim saman,
sá neitaði því. Hæstiréttur tók þó
ekki mark á því.
Morgunblaðið/Þórður
Hæstiréttur Afdráttarlaus dómur.
Hæstiréttur þyngdi
nauðgunardóm
Ölvaður maður
hafði mök við sof-
andi konuna
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Fyrsti vetrardagur er á morgun,
laugardag. Haustið hefur verið afar
milt og enn hefur frost aðeins
mælst á fáum stöðum í byggð.
Trausti Jónsson veðurfræðingur
bloggaði um haustið og tíndi til
nokkrar staðreyndir. Fram kemur
hjá Trausta að fyrsta frost hausts-
ins hafi mælst á Akureyri 16. októ-
ber. Lágmarksmælingar hafa verið
gerðar þar síðan 1938 og var frost-
lausa skeiðið nú með allra lengsta
móti, 158 dagar, og vantaði aðeins
einn dag upp á að jafna metið, sem
er frá 1972. Árið 1939 var tímabilið
157 dagar.
Enn hefur ekki
mælst frost í
haust í Reykjavík
og hefur ekki
mælst síðan 30.
apríl, segir
Trausti. Frost-
laust hefur því
verið í 173 daga
samfellt. Langt
er þó í metið frá
1939, en þá var
frostlaust í Reykjavík í samfellt 201
dag, frysti ekki fyrr en 10. nóv-
ember.
„Það lengdarmet verður varla
slegið nú – því frostlaust yrði að
vera allt til 17. nóvember, sem er
nánast útilokað,“ bloggar Trausti.
Samfelldar lágmarksmælingar í
Reykjavík ná aftur til 1920 – fyrir
þann tíma eru þær gloppóttar. Þó
var hámark og lágmark mælt árið
1830 og var frostlaust í 188 daga
samfellt.
Lægsta lágmark haustsins til
þessa í Reykjavík er +1,2 stig (mælt
30. september) og þarf að fara allt
aftur til 1959 til að finna hærri lág-
markstölu en nú – +1,5 stig – sem
þá mældist reyndar 6. september.
Ekki er annað að sjá í veður-
kortunum en að hlýtt verði á land-
inu fram í næstu viku.
Frostlausir októbermánuðir eru
ekki algengir hér á landi – óþekktir
reyndar á flestum veðurstöðvum,
segir Trausti Jónsson.
Frost hefur mælst á fáum
stöðum í byggð núna í haust
Frostlaust hefur verið í 173 daga samfellt í Reykjavík
Trausti
Jónsson
Loftkæling
Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666
og varmadælur