Morgunblaðið - 21.10.2016, Page 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
VIÐTAL
Líney Sigurðardóttir
lineyster@gmail.com
Haustið er tími búverka í sveitinni og
ekki er slegið slöku við í sláturtíð-
inni. Á myndarlegu sveitabýli þarf að
sulta og súrsa, salta og reykja og allt
þar á milli; íslenska sauðkindin gefur
af sér hinar ótrúlegustu afurðir ef
fólk á annað borð vill nýta sér þær.
Á bænum Felli við Finnafjörð búa
hjónin Dagrún Þórisdóttir og Reim-
ar Sigurjónsson með dætrum sínum.
Þau reka þar myndarlegt fjárbú auk
geita og hrossa og þótt þau teljist til
yngri bænda halda þau fast í matar-
hefðir forfeðranna.
„Við reykjum sjálf okkar hangi-
kjöt og svíðum hausa, hrútspunga og
kindalappir á haustin,“ sagði Dagrún
húsfreyja, sem stóð við sviðagrindina
snemma á sunnudagsmorgni ásamt
mágkonu sinni sem þar var í heim-
sókn.
„Lappirnar eru herramannsmatur
en mér finnst þær nú heldur betri
nýjar en súrsaðar. Við sultum þær
líka með hausunum.“
Þindar með lambseistum
Það er því myndarlegt matbúrið á
Felli þegar bústangi lýkur á haustin.
Flestir kannast við sviðasultuna,
súra punga og svið en líklega eru
þeir færri sem hafa gætt sér á þind-
um, fylltum með lambseistum.
„Það er mín sérgrein,“ sagði
Reimar bóndi og því til sönnunar
kom hann með snyrtilega saumaðan
kepp, sem reyndist vera ærþind,
saumuð utan um lambseistu.
„Ég saumaði þetta sjálfur, reynd-
ar hvorki með kontórsting eða kross-
saumi en þetta er algert hnossgæti,
svo sýð ég það í tæpa tvo tíma en set
síðan í mysu til súrsunar,“ sagði
Reimar, sem ólst upp við þessa mat-
arhefð og hefur tileinkað sér hana
dável. Dagrún og dæturnar eru ekki
alveg eins hrifnar en hver hefur sinn
smekk.
Geiturnar á Felli gefa líka af sér
afurðir, en Dagrún gerir ljómandi
góðan fetaost úr geitamjólkinni.
Geitakjöt er einnig á boðstólum, en í
haust fóru tveir veturgamlir sauðir
af geitakyni í sláturhúsið. Geitakjötið
er ekki ólíkt kjöti af sauðfé, segir
Reimar, en svo til fitulaust eins og
sjá mátti á skrokkunum sem biðu
sölu og afhendingar í skemmunni.
Með harðfisk og siginn fisk
Ærinn starfi bíður ungu hjónanna
daglega, en Reimar og Dagrún eru
einnig með ferðaþjónustu á jörðinni í
tveimur smáhýsum sem fengu nöfnin
Smyrill og Fálki. Nöfnin vísa til
Smyrlafells, sem er rétt ofan við bæ-
inn Fell. Frá bænum og smáhýs-
unum er mikið útsýni yfir Finna-
fjörðinn og tignarlegt Gunnólfs-
víkurfjallið, sem rís 719 m upp úr
hafinu.
Nóg var að gera í ferðaþjónust-
unni í júlí og ágúst, sögðu hjónin, og
hver veit nema í framtíðinni munu
þau bjóða gestum upp á þjóðlegan
mat sem allur er upprunninn og
útbúinn á býlinu sjálfu. Eflaust þætti
einhverjum mikið nýnæmi að fá að
kynnast þessari aldagömlu matar-
hefð og bragða á ýmsum afurðum
sauðkinda og geita sem Dagrún og
Reimar hafa útbúið með mikilli natni
á þjóðlegan hátt heima á bænum.
Ekki er þó eintómt kjötmeti á
borðum fjölskyldunnar á Felli að
sögn Dagrúnar.
„Við veiðum okkur fisk í matinn
hér í Finnafirðinum og eigum lítinn
bát í fjörunni skammt frá bænum.
Við gerum okkar eigin harðfisk og
siginn fisk en svo veiðum við líka í
Krókavatninu sem er hér uppi á
heiðinni.“
Þar er yndislegt að vera við veiðar
á björtum sumarkvöldum en líka
sport að veiða þar gegnum ís að
vetrarlagi. Í fjörunni er svo nægan
eldivið að fá, en kamína hitar upp
stóran hluta íbúðarhúss fjölskyld-
unnar.
Það má því segja að sjálfsþurftar-
búskapur sé stundaður á Felli í
Finnafirði. Dagrún og Reimar eru
sátt við lífið og friðsældina sem enn
sem komið er ríkir á jörðinni þeirra
við Finnafjörðinn og ósk þeirra er sú
að svo megi verða um ókomna fram-
tíð.
Sulta, reykja, súrsa og salta
Annríki í haustverkunum á Felli við Finnafjörð Búa með sauðfé, geitur og hross Halda fast
í matarhefðir forfeðranna Tvær geitur sendar til slátrunar Nóg að gera í ferðaþjónustunni
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Finnafjörður Reimar Sigurjónsson með löpp og hrútspung sem búið er að svíða. Þetta þykir herramannsmatur.
Haustverkin Dagrún Þórisdóttir, til hægri, ásamt mágkonu sinni, Helgu,
við að svíða lappir og hrútspunga í gríð og erg. Haldið er fast í matarhefðir.
Slátrun Tveir fitulitlir geitaskrokk-
ar komnir úr sláturhúsinu.
Geitur Ábúendur á Felli við Finnafjörð eru með nokkrar geitur, auk þess að
vera með sauðfé og hross, ásamt ferðaþjónustu. Gunnólfsvíkurfjall í baksýn.