Morgunblaðið - 21.10.2016, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016
BRÚ LÍFEYRISSJÓÐUR starfsmanna sveitarfélaga býður
sjóðfélögum sínum upp á tvo kosti:
Óverðtryggð lán, nú með 6,44% breytilegum vöxtum
Verðtryggð lán með 3,7% vöxtum
— Fasteignaveðlán, allt að 50 milljónirmeð 75% hámarksveðhlutfalli*
— Aðeins 0,5% lántökugjald
— Ekkert lántökugjald við endurfjármögnun á lánum frá sjóðnum **
— Ekkert uppgreiðslugjald
Hvernig lán hentar þér best?
Skoðaðu lánareiknivélina á www.lifbru.is
Sjóðfélagar eru þeir sem hafa greitt iðgjöld í Brú lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga,
Lífeyrissjóð starfsmanna Reykjavíkurborgar og Lífeyrissjóð starfsmanna Kópavogsbæjar.
*Skilyrði fyrir lánveitingu umfram 65% veðhlutfall er 1. veðréttur og takmarkast við 35 ára lánstíma.
**Skilyrði að lán séu eldri en 12 mánaða.
Hagstæðir
LÁNAKOSTIR í boði
Sigtúni 42 I 105 Reykjavík I sími 540 0700 I lanamal@lifbru.is
„Síðari hluti nætur er besti tími sól-
arhringsins. Ég fer yfirleitt út upp
úr klukkan sex og þá eru fáir á ferli.
Þetta eru gæðastundir sem maður á
svolítið fyrir sjálfa sig og getur látið
hugann reika. Kisurnar mínar tvær
fylgjast oft þegar ég fer út með blöð-
in og stundum sjáum við fleiri ketti
úr hverfinu á þessu morgunrölti,
sem eru þá úti á stjákli í óvissuferð-
um,“ segir Heiðrún Hlín Guðlaugs-
dóttir sem ber út Morgunblaðið við
Hlíðarveginn og í Bröttutungu í
Kópavogi. Oft eru þau Hermann
Kári sonur hennar, sem einnig er
blaðberi, saman á ferð og þá bætast
við göturnar hans; það er Digranes-
heiði, Gnípuheiði, Gnitaheiði og
Hólahjalli.
„Þetta er dágóður skammtur af
blöðum og röltið tekur mig um eina
klukkustund. Eldri strákurinn okk-
ar var fyrst að bera út Moggann og
byrjaði fyrir 15 árum. Svo má segja
að hann hafi vaxið upp úr starfi sem
þá erfðist í öfuga átt; það er að
mamman tók við og það voru ágæt
skipti. Mér finnst gott að byrja dag-
inn á því að vera ein á gangi, undir
næturstjörnunum,“ segir Heiðrún
Hlín sem í frístundum föndrar og
safnar og skiptist á póstkortum.
Frísk eftir útiveruna
Útiveran og ágætur aukapeningur
eru kostir blaðberastarfsins, segir
viðmælandi okkar.
„Þetta er líkamsræktin sem hent-
ar mér og peningurinn nýtist í ferða-
sjóð. Við hjónin erum nýlega komin
heim frá Ungverjalandi og stefnum
svo á Tenerife á næsta ári. Nei ég
læt veturinn og kuldann ekki trufla
mig neitt í blaðburðinum. Snjó-
þyngsli geta verið erfið en verri er
þó hálkan, þessir köldu morgnar
þegar glæran liggur yfir öllu og ekki
þarf mikið til að missa fótanna. Þá er
líka ómissandi að hafa undir skónum
broddana sem Mogginn lætur okkur
hafa. Og svo er líka fínt að koma
fersk eftir útveruna til daglegrar
vinnu, ég er frískari fyrir vikið,“ seg-
ir Heiðrún Hlín sem að aðalstarfi er
gjaldkeri hjá Rekstrarvörum á Rétt-
arhálsi í Reykjavík. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mogginn Heiðrún Hlín með blað dagsins sem hún ber út til lesenda.
Líkamsrækt og
laun í ferðasjóð
Heiðrún er blaðberi á Digranesinu
Landkönnuðir og listamenn mæt-
ast á Húsavík á hátíð sem stend-
ur frá deginum í dag til sunnu-
dags, það er 20. til 23. október.
Þar verða geimferðir, myndlist,
fjallaferðir, matur, heimskauta-
menning og ljóðlist í deiglu.
Heiðursgestur hátíðarinnar er
Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands, sem í lok hátíðarinnar
veitir Landkönnunarverðlaun
Leifs Eiríkssonar. Þetta er annað
árið sem verðlaunin eru veitt.
Aðalfyrirlesari hátíðarinnar í
ár er geimfarinn Scott Para-
zynski, sem á að baki 5 geimferð-
ir og hefur 7 sinnum farið í geim-
göngu, auk þess að vera fyrsti og
eini geimfarinn sem hefur náð
tindi Everest-fjalls.
Það er The Exploration Mu-
seum á Húsavík sem stendur að
hátíðinni í samstarfi við Norð-
ursiglingu. Safnstjórinn Örlygur
Hnefill Örlygsson hefur sinnt
uppbyggingu safnsins sem var
opnað árið 2011. Ýmsir góðir
gestir hafa heimsótt safnið á síð-
ustu árum, svo sem tunglfarinn
Schmitt sem var á mánanum í
desember 1972, síðastur allra
manna.
Geimferðir, heimskautalist
og ljóð mætast á Húsavík
Örlygur Hnefill
Örlygsson
Guðni Th.
Jóhannesson
Næsta ríkisstjórn þarf að forgangs-
raða í þágu lista og menningar með
því að skipaður verði sérstakur ráð-
herra þeirra mála. Þetta kemur
fram í ályktun Bandalags íslenskra
listamanna, en að undanförnu hafa
fulltrúar þess fundað með tals-
mönnum stjórnmálaflokka um
menningarmál, segir í tilkynningu.
Á grunni sóknaráætlunar sem
listamenn kynntu á síðasta ári hef-
ur nú verið tekinn saman listi yfir
þau mál sem stjórn BÍL telur mik-
ilvægt að frambjóðendur til Alþing-
is taki afstöðu til fyrir kosningar og
í stjórnarmyndunarviðræðum. Efst
á blaði þar er að opinber stuðn-
ingur við skapandi greinar verði
kortlagður í fjárlagafrumvarpi.
BÍL vill að í samvinnu við Samtök
atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins
og Samtök skapandi greina verði
komið á samstarfi um hlutdeild
þeirra í eflingu greinanna. Það snú-
ist um aukna fjárfestingu í fyr-
irtækjum á sviði lista og sköpunar
og um markaðssókn innanlands.
Opna þurfi skapandi greinum að-
komu að átaksverkefninu Ísland
allt árið sem Íslandsstofa hýsir.
Vilja fá ráðuneyti menningarmála