Morgunblaðið - 21.10.2016, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Vefur með ljósmyndum Bærings
heitins Cecilssonar í Grundarfirði
hefur verið opnaður á netinu. Ber
vefurinn sama nafn og ljósmynda-
og minjasafn sem opnað var í
Sögumiðstöðinni í Grundarfirði
fyrir nokkrum árum. Var safnið
opnað í kjölfar þess þegar fjöl-
skylda Bærings gaf
Grundarfjarðarbæ myndasafn
hans til varðveislu. Fór sú athöfn
fram 24. mars árið 2003, þegar
Bæring hefði orðið 80 ára en hann
lést í maí 2002.
Eftir Bæring liggja nokkrir tug-
ir þúsunda ljósmynda, sem spanna
vel sögu byggðar og samfélags í
Grundarfirði allt frá árinu 1938
fram undir árið 2000. Bæring tók
fjölda ljósmynda fyrir dagblöðin,
einkum Morgunblaðið til margra
ára, auk þess sem hann sendi
Sjónvarpinu fréttaupptökur af
svæðinu um árabil.
„Bæring var Grundfirðingum vel
kunnugur á síðustu öld enda lét
hann sig sjaldan vanta með
myndavélarnar sínar þegar eitt-
hvað var um að vera í bænum.
Myndir hans eru ómetanlegar
heimildir sem mikilvægt er að
halda vel utan um, skrásetja og
varðveita með sem bestum hætti,“
segir Sigríður Hjálmarsdóttir,
menningar- og markaðsfulltrúi
Grundarfjarðar, en Bæring var
gerður að heiðursborgara Grund-
arfjarðar árið 1997, sama ár og
100 ára afmæli byggðarlagsins
sem verslunarstaðar var fagnað.
Fjórir einstaklingar heiðraðir
Bæringsstofa er sem fyrr segir
safn muna og mynda úr eigu Bær-
ings auk þess að vera bíó- og fyrir-
lestrarsalur. Það þótti því vel við
hæfi á dögunum að formleg opnun
ljósmyndavefjarins færi þar fram.
Við það tækifæri voru fjórir ein-
staklingar heiðraðir, sem hafa lagt
á sig töluverða vinnu við að und-
irbúa myndasafnið og halda því
gangandi.
Þetta voru þau Sveinn Arn-
órsson, Ingi Hans Jónsson, Guðjón
Elísson og Sunna Njálsdóttir. Sig-
ríður Hjálmarsdóttir og Elsa
Björnsdóttir, formaður menning-
arnefndar, afhentu þeim blóm-
vendi.
Sigríður segir þessa dugnaðar-
forka eiga heiður og þakklæti skil-
ið fyrir störf sín og hugsjónir í
þágu bæjarins, sögunnar og sam-
félagsins.
Sveinn og Guðjón skönnuðu inn
myndirnar í sjálfboðavinnu og Ingi
Hans hélt utan um hvað var
skannað, setti upp kerfi og raðaði í
albúm en hann kom verkefninu af
stað í upphafi. Við opnun ljós-
myndavefjarins rakti Ingi Hans
sögu safnsins í stuttu máli. Sunna
er bókasafnsfræðingur Grund-
arfjarðar og heldur utan um
myndasafnið í dag.
Enn sem komið er inniheldur
vefurinn um 1.500 ljósmyndir og
er því mikið verk fram undan að
fjölga myndum í safninu og setja
inn upplýsingar við hverja þeirra.
Jóhann Ísberg, ljósmyndari og
vefhönnuður, var fenginn til að
setja vefinn upp en hann hannaði
vefkerfi fyrir myndasöfn árið 1999
og hefur kerfið verið í stöðugri
þróun síðan. Áframhaldandi sam-
starf verður við Jóhann um þróun
og uppbyggingu á vefnum.
Bæringsstofa komin á netið
Grundfirðingar hafa komið ljósmyndum Bærings Cecilssonar á netið undir
nafni Bæringsstofu Tók tugþúsundir mynda fyrir dagblöðin og Sjónvarpið
Ljósmynd/Bæring Cecilsson
Á vettvangi Ein fjölmargra fréttaljósmynda sem Bæring Cecilsson sendi Morgunblaðinu. Veghefill varð fyrir
snjóskriðu í Ólafsvíkurenni árið 1980 og veghefilsstjórinn Ríkharður Hjörleifsson slapp með smá skrámur.
Ljósmynd/Grundarfjarðarbær
Opnun Við opnun Bæringsstofu á netinu voru fjórir bæjarbúar heiðraðir
sem áttu veg og vanda af því að koma myndum Bærings á vefinn.
Bæring
Cecilsson
fæddist 24.
mars árið
1923 á Búð-
um undir
Kirkjufelli í
Eyrarsveit.
Hann lést á
St. Frans-
iskusspítala
í Stykkishólmi 17. maí árið
2002. Hann var næstelstur fjög-
urra systkina en meðal þeirra
var Soffanías Cecilsson, útgerð-
armaður í Grundarfirði. Bæring
var ókvæntur og barnlaus.
Hann reri á eigin trillubáti frá
14 ára aldri, ásamt Soffaníasi.
Síðar sótti hann vélstjóra-
námskeið hjá Vélskóla Íslands
og starfaði sem vélstjóri bæði á
sjó og í landi. Eftir miðjan aldur
vann Bæring á eigin vélaverk-
stæði í Grundarfirði en ljós-
myndun og myndataka átti þó
hug hans allan.
Vélstjóri til
sjós og lands
BÆRING CECILSSON
Bæring Cecilsson
Golfsettið ferðast frítt!
+ Skráðu þig í Icelandair Golfers á www.icelandairgolfers.is
Aðild að Icelandair Golfers er innifalin fyrir korthafa
Premium Icelandair American Express®
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
IC
E
66
19
3
10
/1
3