Morgunblaðið - 21.10.2016, Síða 42

Morgunblaðið - 21.10.2016, Síða 42
42 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 NAV Vertu í skýjunummeð okkur í mánaðarlegri áskrift að bókhaldskerfinu Microsoft Dynamics NAV + kynntu þér málið á www.navaskrift.is Aðgangur að Office 365 fylgir með!* Lágmarkaðu kostnaðinn og Borgartún 26, 105 Reykjavík » Hafnarstræti 93-95, 600 Akureyri sími: 545 3200 » wise@wise.is »www.wise.is 9.900Kr. pr. mán.án VSK * gildir til 30. júní 2018 þegar keypt er fyrir 30. september 2016 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Seðlabanki Íslands áformar að láta vinna skýrslu um aðdraganda og eftirmál þess að bankinn veitti Kaupþingi þrautavaralán að fjárhæð 500 milljónir evra 6. október árið 2008. Mun skýrslan einnig taka til söluferlis á hinum danska FIH- banka sem Seðlabankinn tók alls- herjarveð í á grundvelli lánveiting- arinnar. Samkvæmt upplýsingum frá bankanum verður skýrslan gerð opinber. Mun Seðlabankinn hafa tekið ákvörðun um gerð skýrslunnar snemma á síðasta ári. „Gerð skýrsl- unnar hefur dregist vegna mikilla anna þeirra sem til málsins þekkja,“ segir Stefán Jóhann Stefánsson, rit- stjóri á skrifstofu seðlabankastjóra. Þá segir hann að sá þáttur sem sér- staklega lýtur að sölu FIH-bankans sé enn ekki að fullu til lykta leiddur. Segir Stefán Jóhann að horft verði til þess hvort niðurstaða söluferlis bankans geti skýrst frekar frá því sem nú er. „Seðlabankinn leggur áherslu á að skýrslan verði vönduð og þar verði birtar þær upplýsingar sem máli skipta í eins ríkum mæli og unnt er, þar með talið vegna trún- aðarreglna,“ bætir hann enn fremur við. Morgunblaðið hefur á undan- förnum árum fjallað ítarlega um söluferlið á FIH-bankanum sem leiddi til þess að endurheimtur Seðlabankans urðu mun minni en talið var að yrði þegar þrautavara- lánið til Kaupþings var veitt. Í um- fjöllun blaðsins hefur meðal annars verið stuðst við ítarlega rannsókn danska viðskiptablaðamannsins Jak- ob Martini hjá viðskiptablaðinu Fin- anas, á málefnum bankans. Þar hef- ur verið sýnt fram á að dönsk stjórnvöld settu mikinn þrýsting á Seðlabanka Íslands að selja FIH- bankann undir árslok 2010. Í samningi milli Seðlabankans og þeirra sem keyptu bankann var kveðið á um að niðurfærslur á eigna- safni bankans yrðu dregnar frá kaupverðinu sem sátt náðist um. Um samningsákvæðin segir Jakob Martini: „Hið sniðuga var að Íslend- ingarnir fengu ekki hlutdeild í vöxt- unum sem FIH endurheimti af hin- um niðurfærðu lánum.“ Þannig tókst nýjum eigendum bankans að afskrifa lánasöfn hans en hafa af þeim tekjur um leið. Þannig drógu þeir ekki úr tekjum bankans en náðu að koma í veg fyrir að þeir þyrftu að greiða 62% af upprunalegu kaup- verði bankans. Þeir aðilar sem keyptu bankann árið 2010 munu að öllum líkindum hagnast um áttatíu milljarða ís- lenskra króna á sölu hans fyrir lok þessa árs. Boða skýrslu um FIH  Seðlabankinn vinnur skýrslu um þrautavaralánið til Kaupþings í október 2008  Í sömu skýrslu verður grein gerð fyrir söluferlinu á FIH-bankanum í Danmörku Ljósmynd/Adam Mørk/3XN Sala Ekki hafa fengist skýringar á því af hverju Seðlabankinn gekk að skil- málum árið 2010 sem leiddu til þess að stórtjón hlaust af sölu FIH-bankans. ● Enginn nefndarmanna peninga- stefnunefndar Seðlabankans taldi ástæðu til að breyta stýrivöxtum við síðustu vaxaákvörðun 5. október. Þetta kemur fram í fundargerð nefndarinnar sem birt er á vefsíðu bankans. Einhugur um stýrivexti STUTT 21. október 2016 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 113.87 114.41 114.14 Sterlingspund 139.65 140.33 139.99 Kanadadalur 86.52 87.02 86.77 Dönsk króna 16.784 16.882 16.833 Norsk króna 13.918 14.0 13.959 Sænsk króna 12.87 12.946 12.908 Svissn. franki 115.13 115.77 115.45 Japanskt jen 1.0976 1.104 1.1008 SDR 156.82 157.76 157.29 Evra 124.9 125.6 125.25 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 156.0889 Hrávöruverð Gull 1269.75 ($/únsa) Ál 1663.5 ($/tonn) LME Hráolía 52.13 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Sigurður Nordal sn@mbl.is Hagdeild Alþýðusambands Íslands telur útlit gott í efnahagslífinu til næstu ára og gerir ráð fyrir ágætum hagvexti, góðu atvinnuástandi og hóflegri verðbólgu. Núverandi að- stæður gefi einstakar forsendur til þess að styrkja undirstöður þjóðar- búsins. Þetta kemur fram í nýrri hagspá ASÍ fyrir árin 2016 til 2018. Hagdeild ASÍ bendir meðal ann- ars á að rekstrar- og skuldastaða ríkissjóðs sé góð um þessar mundir. Hins vegar myndi slaki í ríkisfjár- málum og skattalækkanir á tekju- hærri hluta þjóðarinnar, samhliða vanfjármögnuðu velferðarkerfi og veikingu barna- og húsnæðisbóta- kerfa, ýta undir ofþenslu og óstöð- ugleika og auka ójöfnuð. Fjárhagsstaða heimila styrkist ASÍ bendir á að laun hafa hækkað umtalsvert á liðnu ári og töluvert meira en á árunum fyrir hrun, þegar veruleg spenna ríkti á vinnumarkaði. Launavísitala hafi á fyrstu átta mán- uðum þessa árs hækkað að jafnaði um 12,1%. Auk þess hafi hagfelld verðlagsþróun leitt til kröftugs vaxt- ar kaupmáttar launa og ráðstöfunar- tekna heimilanna. Á fyrstu átta mán- uðum ársins hafi kaupmáttur launa aukist um 10,4% en vísitala kaup- máttar launa hefur aldrei mælst hærri. Auknar ráðstöfunartekjur séu því ekki til komnar vegna auk- inna eignatekna líkt og á árunum fyrir hrun, segir í spánni. Hagdeild ASÍ telur því forsendur fyrir umtalsverðum vexti einka- neyslu á spátímanum og er vænst 7,6% vaxtar í einkaneyslu á þessu ári. Haldi neyslan áfram að þróast í takt við kaupmátt, líkt og reyndin hefur verið undanfarin ár, telur ASÍ að vöxturinn nái hámarki á þessu ári en verði að jafnaði 4,6% á árunum 2017 og 2018. Horfur á hækkun íbúðaverðs Samkvæmt spá hagdeildar ASÍ eykst fjárfesting um 22,2% á þessu ári, gert er ráð fyrir 10,3% vexti á næsta ári og að hún standi í stað á árinu 2018. Gert er ráð fyrir að fjár- festingar verði drifnar áfram af atvinnulífinu en ASÍ telur áhyggju- efni hversu litlu hið opinbera hyggst verja til fjárfestinga. Þá sé útlit fyrir 15,9% vöxt íbúða- fjárfestinga í ár og að meðaltali 15,8% á árunum 2017 og 2018. Þótt sú þróun sé í rétta átt er mikil upp- söfnuð eftirspurn til staðar á hús- næðismarkaði að mati ASÍ og útlit fyrir umtalsverða hækkun húsnæð- isverðs á næstu árum. Í samræmi við framangreint gerir hagdeild ASÍ ráð fyrir umtalsverð- um hagvexti á þeim þremur árum sem spáin nær til. Í ár er í hagspánni áætlað að hagvöxtur verði 4,7% og hann fari upp í 5,4% á næsta ári. Á árinu 2018 er svo spáð 2,5% hag- vexti. Þá er því spáð að verðbólga haldist kringum verðbólgumarkmið Seðlabankans mestallt spátímabilið. Vara við vaxandi ójöfnuði Hagdeild ASÍ bendir á að ójöfn- uður teljist lítill hér á landi í alþjóð- legum samanburði og að hann hafi dregist saman á árunum eftir hrun, m.a. vegna samdráttar eignatekna, skattbreytinga og tekjutilfærslna. Hins vegar bendi nýlegar tölur um tekju- og eignaskiptingu til þess að ójöfnuður fari vaxandi á ný. Hag- deild ASÍ telur þetta óheillaþróun sem hægt sé að snúa við með réttlátu skattkerfi sem dreifir byrðunum með sanngjörnum hætti. Einstakar forsendur til að styrkja undirstöður Morgunblaðið/Þórður Framkvæmdir Hagdeild ASÍ spáir því að fjárfestingar verði drifnar áfram af atvinnulífinu en telur litlar fjárfestingar hins opinbera vera áhyggjuefni.  ASÍ varar við slaka í ríkisfjármálum og skattalækkunum Hagspá ASÍ 2016-2018 » Spáð er 5,4% hagvexti á næsta ári og 2,5% árið 2018. » Merki séu um ofhitnun á vinnumarkaði og vaxandi skort á starfsfólki. » Fjölgun starfa kunni að vera vanmetin sökum tímabundinna erlendra starfsmanna. » Aukin spenna geti ýtt undir launaskrið.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.