Morgunblaðið - 21.10.2016, Síða 44

Morgunblaðið - 21.10.2016, Síða 44
44 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 Vísbendingar eru komnar fram um að tengsl séu á milli hryðjuverka, sem framin voru í Frakk- landi og talið var að væru ótengd. Í júní voru lögregluforingi og unnusta hans myrt í París, í júlí var prestur skorinn á háls í kirkju í Saint- Étienne-du-Rouvray og í september fann lög- regla bíl með sprengju í grennd við kirkjuna Notre Dame í París. Nú er komið í ljós að skipu- leggjendur tilræðanna höfðu verið í sambandi við mann í Sýrlandi. Frá þessu var greint í frétt í dagblaðinu The Wall Street Journal í gær. Einkum beint til táninga Frönsk yfirvöld segja að maðurinn heiti Rach- id Kassim. Hann er 29 ára gamall franskur rík- isborgari og félagi í hryðjuverkasamtökunum Ríki íslams. Að sögn yfirvalda sendir hann skila- boð með aðstoð dulkóðaðra spjallforrita og ann- arra verkfæra samfélagsvefjanna frá svæðum á valdi Ríkis íslams í Írak eða Sýrlandi til ein- staklinga heima fyrir. Þeim mun einkum vera beint til franskra táninga, sem talið er að hafi áður verið í litlu eða engu sambandi við hryðju- verkasamtökin eða hver annan. Gefur hann þeim leiðbeiningar um hvernig eigi að gera árásir. Í fréttinni segir að yfirvöld í Evrópu hafi áhyggjur af uppgangi vígamanna á borð við Kassim, sem grunaður er um að hafa þróað að- ferð til að fjarstýra hryðjuverkum. Hingað til hefur verið gerður greinarmunur á hryðjuverka- mönnum, sem hafa hlotið þjálfun þar sem Ríki íslams er við völd, og svokallaðra einfara, sem talið var að létu til skarar skríða án leiðsagnar eða stuðnings hryðjuverkasamtaka. Virðast einir en stýrt úr fjarska „Við höfum áhyggjur af nýrri gerð árásar- manna sem aðeins virðast vera einir að verki,“ sagði Hans-Georg Maaßen, yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar. „Slíkum árásarmönnum er í raun stýrt frá útlöndum með skyndiboðum.“ Eftir að í ljós kom að sennilega hafi Kassim lagt á ráðin í þeim þremur tilvikum, sem nefnd eru hér að ofan, hefur lögregla verið í óða önn að rekja slóð hans á netinu og reynt að ráða í dul- kóðuð skilaboð á haldlögðum símum árásar- mannanna. Í The Wall Street Journal er rakið að um miðjan ágúst hafi stuðningsmenn Kassims feng- ið skilaboð á einkarás hans á spjallforritinu Telegram um hvernig eigi að kaupa gaskúta fyr- ir prímusa til að búa til bílsprengju. Til að vekja ekki grunsemdir ráðlagði hann þeim að segja: „Sæll, herra, ég er að skipuleggja útilegu […] Hvað þarf ég að kaupa marga [gaskúta] til að fá gott verð?“ Þremur vikum síðar kom hópur kvenna, sem lögregla segir að hafi verið í sambandi við Kass- im, gaskútum fyrir í bíl og lagði honum við dóm- kirkjuna Notre Dame í miðborg Parísar. Sprengjan sprakk ekki og lögregla fann bílinn skömmu síðar. Merki um fjarstýrð hryðjuverk AFP Vígamaður Rachid Kassim mundar hníf í áróðursmyndbandi frá Ríki íslams, samtökum íslamista. Hann er grunaður um að hafa fjarstýrt hryðjuverkum sem framin voru í Frakklandi.  Talið að sami liðsmaður Ríkis íslams hafi lagt á ráðin um þrjú tilræði í Frakk- landi  Sendi áhangendum dulkóðaðar leiðbeiningar frá Sýrlandi eða Írak Stjórnlagadóm- stóll Spánar hef- ur ógilt bann sem sett var við nautaati í sjálf- stjórnarhéraðinu Katalóníu og sagði að það samræmdist ekki stjórnarskrá landsins. Þing Katalóníu samþykkti bannið árið 2010 á þeirri forsendu að það samræmdist ekki katalónsk- um hefðum en dómstóllinn sagði að aðeins þing Spánar gæti sett slíkt bann. SPÁNN Banni við nautaati í Katalóníu hnekkt Bandaríski selló- leikarinn David Teie er með harla óvenjulega áheyrendur í huga á nýjasta diski sínum. Þeir eru ferfættir, loðnir og láta ánægju sína í ljós með því að mala. Teie sendi á dögunum frá sér fyrsta diskinn með tónlist sem er samin fyrir ketti. Tónlistin á diskinum „Music for Cats“ byggist í grunninn á mali og sambærilegum hljóðum og er inn- blásturinn sóttur í hljóð sem kett- lingar heyra líkt og fuglasöng og mal móður sinnar. „Ég er með ein 26 hljóðfæri sem gefa frá sér mis- munandi malhljóð,“ segir Teie. BANDARÍKIN Gefur út disk með tónlist fyrir ketti David Teie Hverfisgötu 105, Sími 551 6688, www.storarstelpur.is • Munið bílastæði á bak við hús Við erum á facebook STÓRAR STELPUR tískuvöruverslun Gott úrval af fallegum haustvörum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.