Morgunblaðið - 21.10.2016, Page 47

Morgunblaðið - 21.10.2016, Page 47
FRÉTTIR 47Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 Myndskeið um brjóstaskoðun frá sænska krabbameinsfélaginu var fjarlægt af samskiptavefnum Face- book vegna þess að það þótti óviðurkvæmilegt. Í myndskeiðinu eru teiknaðar myndir notaðar til að kenna konum að leita að hnútum í brjóstum sínum. Krabbameinsfélagið sagðist hafa reynt að hafa samband við Face- book til að fá skýringar á málinu en það hefði ekki tekist. Fréttastofan AFP náði ekki heldur sambandi við fyrirtækið. „Það er óskiljanlegt að ein- hverjum þyki læknisfræðilegar upplýsingar vera dónalegar,“ sagði Lena Biornstad, upplýsingafulltrúi krabbameinsfélagsins, við AFP. „Þessar upplýsingar geta bjargað mannslífum.“ Facebook sætti nýlega miklu ámæli þegar póstur frá Ernu Sol- berg, forsætisráðherra Noregs, var fjarlægður vegna þess að sögufræg mynd af nöktu barni á flótta undan napalmsprengju í Víetnam, sem fylgdi póstinum, þótti óviður- kvæmileg. Facebook breytti þeirri afstöðu síðar. Kennslu- myndband fjarlægt af Facebook Brjóstaskoðun Mynd úr mynd- skeiðinu sem Facebook fjarlægði. Allt bendir til þess að evrópska lendingarfarið Schiaparelli hafi brotlent á reikistjörnunni Mars í gær. Merki frá farinu hættu að ber- ast til Evrópsku geimferðastofn- unarinnar (ESA) rétt áður en það átti að lenda. Starfsmenn stofn- unarinnar segja að svo virðist sem fallhlíf sem nota átti við lendinguna hafi losnað of snemma frá farinu. Þá er ekki talið að kveikt hafi verið nógu lengi á eldflaugum sem farið átti að nota til að stöðvast rétt yfir yfirborði Mars. Sérfræðingar munu reyna áfram að hafa samband við Schiaparelli í þeirri veiku von að það hafi lent í heilu lagi á yfirborði plánetunnar. Sjö ára ferðalag Hafi farið brotlent er það í annað skipti sem ESA mistekst að láta ómannað far lenda á Mars. Árið 2003 hvarf farið Beagle 2 eftir að það fór frá móðurskipinu Mars Ex- press inn til lendingar. Leifar af farinu sáust síðan á mynd sem barst til jarðar í fyrra. Rannsóknarfarið Trace Gas Orbiter (TGO) flutti Schiaparelli til Mars og tók ferðalagið sjö ár. Um er að ræða sameiginlegt verkefni ESA og Rússa. Tilgangurinn er að leita að vísbendingum um hugsan- legt líf á reikistjörnunni. Schiaparelli átti aðeins að endast í nokkra daga á yfirborði Mars. Það er tilraunafar, ætlað til að prófa tækni sem þarf til að lenda stærri geimförum á reikistjörnunni. Til stendur að senda stærri geimvagn til Mars árið 2020. Líkleg brotlending á Mars AFP Við Mars Teikning sem sýnir þegar lendingarfarið losnar frá móðurfarinu og leggur af stað áleiðis til Mars. Óttast er að farið hafi brotlent.  Ekki vitað um afdrif evrópsks lendingarfars Neðri deild breska þingsins samþykkti sam- hljóða í gær til- lögu um að mæla með því að kaup- sýslumaðurinn Philip Green yrði sviptur ridd- aratign. Green hefur sætt miklu ámæli eftir að verslanakeðjan BHS, sem hann átti um tíma, varð gjald- þrota fyrr á þessu ári. Er Green sakaður um að hafa blóðmjólkað fyrirtækið áður en hann seldi það. Green átti á sínum tíma í við- skiptum við Baug í Bretlandi. Eftir bankahrunið á Íslandi lýsti hann yfir áhuga á að kaupa skuldir Baugs við Kaupþing með 95% af- slætti. Mæla með að Green verði sviptur nafnbót Philip Green Áréttri leið ■ Kaupmáttur launa aldrei veriðmeiri ■ Innkaupakarfan ódýrari ■ Kjör aldraðra stórbatnað ■ Skuldir heimilanna lækkað ■ Endurreisn heilbrigðiskerfisins hafin ■ Bygging nýs Landspítala hafin ■ Tollar og vörugjöld felld niður ■ Skattar lækkaðir ■ Rannsóknir og nýsköpun efld ■ Dregið úr ríkisafskiptumogmiðstýringu ■ Atvinnuleysi og verðbólga í lágmarki ■ Endurbætur á vegakerfinu hafnar Sjálfstæðisflokkurinn einn tryggir að við höldum áfram á réttri leið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.