Morgunblaðið - 21.10.2016, Page 50

Morgunblaðið - 21.10.2016, Page 50
50 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 VINNINGASKRÁ 25. útdráttur 20. október 2016 1049 10830 21735 30044 39640 51553 62858 72523 1312 10976 21767 30048 39938 51733 63178 72590 1393 11008 22064 30709 40224 51867 63206 73280 1822 11191 22353 30715 41199 52011 63444 73647 2048 11251 22397 30734 41392 52578 63865 74034 2066 11799 22464 30750 41482 52730 64639 74442 2326 12378 23019 30966 42318 53666 65035 74616 2383 12720 23497 31224 42563 53935 65351 74646 2792 13431 23711 31667 42732 54019 65607 74737 3067 13455 23764 31719 43124 55021 65862 75108 3087 13781 23881 31725 43323 55171 66004 75249 3307 14510 23891 31909 43715 55676 66077 75262 3518 15198 24578 31951 43853 55878 66630 75710 3817 15622 24733 32625 44095 55892 67054 76064 4091 15918 24810 32945 44633 56093 67313 76114 4230 16009 24922 33199 44672 56627 67362 76377 4594 16713 25331 33283 44689 56783 67897 76855 4713 16843 25428 33828 45347 57008 68014 77035 4816 17004 25575 34204 45381 57285 68631 77201 4833 17073 25741 34736 45710 57524 68644 77564 4886 17373 25806 34770 46062 57836 68856 78263 5080 17672 25825 35171 46124 58676 69107 78805 5297 17945 25996 35313 46734 59113 69109 78815 5404 18024 26294 35338 46918 59126 69120 79097 6073 18108 26318 35560 47280 59142 69248 79358 6878 18609 26715 35858 48068 59269 69590 79462 7127 19092 26804 35965 49013 59549 69682 79670 7214 19227 27389 36514 49057 59570 69745 79808 8075 19471 27424 37011 49090 60492 70043 79905 8632 19516 27478 37121 49277 61058 70152 79939 8708 19534 27572 37161 49311 61294 70652 79993 8788 19828 27785 37167 49428 61604 71085 9229 19918 28064 37519 49445 61809 71197 9357 20226 28116 38863 50110 62027 71358 9575 20814 28381 39018 50862 62073 71616 9634 21427 29785 39181 50912 62739 72030 10515 21631 29820 39233 51330 62838 72388 416 9886 25327 36888 45207 55187 63356 74679 1283 10787 26439 37226 45386 55454 64052 75254 1941 14341 26729 37957 47532 57531 66945 75266 2172 15956 27081 39194 47597 57545 67233 76175 2341 17382 27817 39317 47965 57832 67265 76336 3251 17888 30247 40038 48819 58560 67857 76607 4153 18383 30405 41983 49867 58852 70231 77591 5552 20418 30640 42262 50378 59938 70237 77642 6189 22692 31295 42871 51071 60236 70382 79474 6460 23131 31339 43191 51197 61469 70886 6844 23550 31452 43194 52714 61614 73355 6998 23579 33694 43782 53043 62407 73791 9138 23701 34741 45121 53102 63144 74090 Næsti útdráttur fer fram 27. október 2016 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 1634 10439 65887 79681 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 3198 12333 17479 35700 45202 67239 3746 14938 18161 36520 47452 70523 4002 16013 20619 43486 64979 71718 7189 16998 28793 44456 65601 78431 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 6 9 1 6 4 Móttaka aðsendra greina Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að við- komandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569- 1100 frá kl. 8-18. Árið er 2016. Það eru aðrir tímar nú en 1949 þegar við gengum í Atl- antshafsbandalagið. Það eru aðrir tímar en 1970 þegar við fórum í Fríverslunarsamtök Evrópu. Það eru aðrir tímar en 1994 þegar við urðum aðilar að innri markaði Evrópusam- bandsins. Frá því að seinni heimsstyrjöld- inni lauk hefur utanríkisstefna Ís- lands byggst á tveimur meg- instoðum; sameiginlegum vörnum innan Atlantshafsbandalagsins og þátttöku í samstarfi Evrópuþjóða um afnám viðskiptahindrana. Sam- fara Marshall-aðstoðinni þrýstu Bandaríkin á Evrópuþjóðirnar um að bindast samtökum um frjáls við- skipti. Öllum var ljóst að öryggi og hagsæld yrði að grundvalla á ábyrgri afstöðu um samstöðu í varnar- og ör- yggismálum og frjálslyndum hug- myndum um milliríkjaviðskipti. Hvorugt var unnt að skilja frá hinu. Vestræn samvinna er ofin úr þess- um tvíþætta þræði. Sá þráður er spunninn úr siðferðilegum og menn- ingarlegum hugsjónum sem vest- rænar þjóðir deila saman. Nú eru blikur á lofti. Bæði í Ameríku og Evrópu hafa þau stjórnmálaöfl styrkt stöðu sína sem vilja nýja múra þar sem áður voru hindrunarlaus landamæri. Þau vilja draga úr frjáls- um viðskiptum og stöðva frjálsa för fólks milli landa. Þetta er ógnun við aðra meginstoð vestrænnar sam- vinnu. Hin pólitíska hugmyndabarátta Um þetta stendur nú hin pólitíska hugmyndabarátta. Þó að áskoranirnar séu nýjar er hin tvíþætta hugmyndafræði frjálsra viðskipta og samstöðu um varnir jafn mikilvæg nú og í árdaga vestrænnar samvinnu. Hér þarf Ís- land að taka skýra af- stöðu. Eigum við að halda áfram á sömu braut eða leggjast á sveif með einangr- unaröflunum? Þegar utanríkisráðherra beitti lagaheimildum til þess að ákveða þátttöku Íslands í sameiginlegum aðgerðum vina okkar og vestrænna samstarfsríkja í þeim tilgangi að hindra peningaþvætti og vopna- viðskipti við Rússland vildu for- menn stjórnarflokkanna verða við kröfum nokkurra fyrirtækja sem kröfðust þess að skammtímahags- munir þeirra yrðu teknir fram yfir heildarhagsmuni þjóðarinnar. Þessi afstaða formanna ríkis- stjórnarflokkanna sýndi að varð- staðan um hugsjónir vestrænnar samvinnu er ekki jafn örugg og traust og áður var. Það er því mikil- vægt í þeim kosningum sem fram fara síðar í þessum mánuði að efla þau stjórnmálaöfl sem með ótvíræð- um hætti vilja standa saman um efnahags- og varnarsamvinnu vest- rænna þjóða. Landamæramúrar eða aukin alþjóðleg samvinna Alþjóðavæðingin hefur leitt til aukinnar hagsældar. Hún hefur dregið úr efnahagslegum mismun milli nýmarkaðsríkja og þróaðra ríkja. En henni hafa líka fylgt óæskilegar aukaverkanir. Þeim hef- ur ekki verið gefinn nægjanlegur gaumur. Það er ein af ástæðunum fyrir því að einangrunarstefnan á nú vaxandi fylgi að fagna víða í Evrópu og Ameríku. Óeðlileg og vaxandi efnahagsleg mismunun er sérhverju samfélagi hættuleg. Þeirrar tilhneigingar gætir æ meir að alþjóðleg stórfyr- irtæki nýti frjáls viðskipti til þess að setja sér sínar eigin leikreglur. Það getur átt við um skatta, umhverf- ismál, neytendavernd og samkeppn- isreglur. Þetta leiðir ekki aðeins til efnahagslegrar mismununar í hverju samfélagi heldur ógnar þetta beinlínis lýðræðinu. Ein leið til að stemma stigu við þessari þróun er að byggja nýja landamæramúra. Það er skref aftur á bak. Önnur leið er að auka og dýpka alþjóðlega samvinnu. Aðeins fjölþjóðasamtök geta sett reglur á þessum sviðum sem halda. Með þátttöku í slíkri samvinnu er því unnt að auka hagsæld og verja lýð- ræðið, þar sem fordómar og aft- urhaldssemi verða að víkja. Ísland á óhikað að sýna þjóðernis- legan metnað og stolt til að taka virkan þátt í vestrænni samvinnu jafnt á sviði efnahags- og viðskipta- mála sem öryggis- og varnarmála. Boðskapurinn um frjálslyndi og víð- tæka vestræna samvinnu á brýnna erindi í dag en nokkru sinni fyrr. Frjálslyndi og vestræn samvinna Eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur » Boðskapurinn um frjálslyndi og víð- tæka vestræna sam- vinnu á brýnna erindi í dag en nokkru sinni fyrr. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Höfundur skipar 1. sæti Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi. Stjórnmálaflokkar keppast allir sem einn í aðdraganda kosninga um atkvæði okkar landsmanna. Margir þeirra eru með á stefnuskrá sinni svo- kallaða uppboðsleið. Margir eru sam- mála, aðrir á móti en hvernig getur fólk og félög verið sammála eða á móti, það er eng- inn rökstuðningur og endanleg út- færsla á uppboðsleiðinni hjá neinu einasta framboði. Þetta er ekkert öðruvísi en að ég færi á sjó að reyndi að fiska með trolli en hefði pokann opinn, jú, það festast kannski einhverjir fiskar í trollinu en flestir fara bara í gegn. Hvernig fer fyrir svoleiðis útgerð? Hún fer á hausinn. Einhverjir hafa minnst á Fær- eyinga, það er þeirra aðferð og kom- ið með dæmi um að 66 kr./kg hafi fengist fyrir kg af makríl. Frábært ef þeir eru til í það, en hér á landi var verið að borga 60-70 kr./kg upp úr sjó til útgerða, auk þess að borga veiðigjöld. Hvernig á það að geta gengið upp? Talið um þessa upp- boðsleið með einhverjum vitrænum hætti og hættið öllum þessu stóru fyrirsögnum sem þið vitið að þið getið ekki staðið við. Flestir stjórn- málaflokkar hamra á að veiðigjöld hafi lækkað, jú krónulega séð hafa þau gert það, en sem hlutfall af verðmæti? Eru menn til í að ræða það? Nei, það hentar ekki þeirra málflutningi. Sjávarútvegur er á þeim stað í bókinni að ef kostnaður í landi hækkar, t.d. laun, þurfa fiskverk- endur að lækka fiskverð og að sama skapi þurfa þeir sem selja þjónustu að hækka hana. Fiskverð hefur lækkað mjög mikið og eru veiðigjöld reiknuð út frá afurð- arverði og því lækka þau milli ára, ef afurðarverð hefði nú hækkað væri staðan önnur og flest rök fyrir uppboðsleið stjórnmálaflokkana fallin. Svo er ein stór spurning: Af hverju á sjávarútvegur einn at- vinnugreina að borga auðlinda- gjöld? Er það af því að nokkur fyrirtæki í sjávarútvegi skila mikl- um gróða sem er útblásinn af fjöl- miðlum? Hvað um öll hin fyrir- tækin sem eiga erfitt þessa dagana vegna lækkandi fiskverðs og hækk- andi kostnaðar? Sem dæmi eru rúmlega 900 smábátar á landinu, sumir eiga eitthvað af kvóta, marg- ir ekkert, ekkert þeirra fyrirtækja sem að baki þeim stendur er að skila miklum hagnaði ef nokkrum. Samt tala allir stjórnmálaflokkar út frá þessum fáu sem skila þessum mikla gróða. Það er bara ekki sann- gjarnt gagnvart neinum að setja alla undir sama hatt í þessu málum. Sjávarútvegurinn er búinn að greiða 38 milljarða í auðlinda- gjöld á síðustu fjórum árum, hvað hafa hinar greinarnar borgað? Ég er með kvótalausa útgerð og ætti eflaust að líta jákvætt á möguleika að fá ódýrari kvóta en ég þarf að leigja á í dag, en ég get ekki stutt neinn ef þessum flokk- um á meðan trollið er galopið og engin endanleg lausn á því hvern- ig á að útfæra uppboðsleiðina. Að vera með þetta svona galopið kallar bara á óbreytt ástand, maður veit þó hvernig núverandi kerfi er, ég veit ekkert hvernig öll hin kerfin eiga að líta út ef ein- hver af þessum flokkum nær sínu fram. Því ætla ég að kasta fram þess- um spurningum til framboðana. Hvernig ætlið þið að útfæra og framkvæma ykkar hugmyndir um uppboðsleið? Hvernig ætlið þið að tryggja það að allir sitji við sama borð og hafi sömu mögu- leika á að fá kvóta? Finnst ykkur að sjávarútvegurinn eigi einn at- vinnugreina að borga auðlinda- gjöld? Og að lokum, finnst ykkur framkvæmd veiðigjalda eins og hún er í dag eðlileg, það er að greitt er fyrir það sem landað er en ekki fyrir úthlutað aflamark, sem þýðir að kvótalausir borga veiðigjöld fyrir þá sem fengu út- hlutað? Svör óskast Eftir Þórð Birgisson »Hvernig ætlið þið að tryggja það að allir sitji við sama borð og hafi sömu möguleika á að fá kvóta? Þórður Birgisson Höfundur er smábátasjómaður. mbl.is alltaf - allstaðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.