Morgunblaðið - 21.10.2016, Side 51

Morgunblaðið - 21.10.2016, Side 51
UMRÆÐAN 51 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 Við skiljum eftir drauma í Póstboxi fyrir þá sem ætla sér stóra hluti VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA Flugvöllurinn í Reykjavík hefur verið mikið til umræðu upp á síðkastið. Fyrir ein- hverja óskiljanlega ástæðu hefur fámennu skrifstofubákni næst- um tekist það ætl- unarverk sitt að bola vellinum burtu þrátt fyrir að mikill meiri- hluti þjóðarinnar sé margbúinn að lýsa því yfir að hann vilji hafa völl- inn þar sem hann er. Borgarstjóri hamrar á ógildri kosningu frá árinu 2001, en í öllum síðari könnunum hafa 70-90% sagst vilja hafa völlinn þar sem hann er. Nú er hin svonefnda neyðarbraut líklega tröllum gefin, en ákall vegna sjúkraflutninga og möguleikans á mannskaða fær engan hljómgrunn. Líklega hugsa flestir það sama. „Ég þarf ekkert á sjúkraflugi að halda, bara fólkið utan af landi“, enda 2/3 hluti þjóðarinnar í ökufæri við Landspítalann. Þýðir það að okkur standi á sama um þriðjung þjóðarinnar? En hvernig má það vera að þjóð sem á allt sitt undir flugi ætli að láta það ofbeldi yfir sig ganga að taka af okkur eina varaflugvöllinn sem við eigum, ef svo vildi til að ein- hvers konar hamfarir ættu sér nú stað og tækju Keflavíkurflugvöll tímabundið úr leik? Hvað með Akureyri og Egilsstaði? Flughlöð þessara valla rúma að- eins fjórar vélar hvort og gætu því engan veginn tekið við öllum þeim vélum sem fljúga daglega til lands- ins. Til að geta lent til vara á Akur- eyri þarf meðalfarþegavél að bera aukalega 1,7 tonn af eldsneyti. Ef hún þarf að fara til Skotlands, næsta varaflugvallar í tveggja tíma fjarlægð, þarf hún að bera 6,2 tonn aukalega af eldsneyti. Hér eru nokkrar staðreyndir: Á Íslandi búa 330 þúsund íbúar, þar af um 220 þúsund á suðvesturhorn- inu, eða nálægt tveir af hverjum þremur. Sem stendur erum við á góðri leið með að flytja árlega inn tvær milljónir erlendra ferðamanna. Það er ríflega sex sinnum íbúafjöldinn. Enn sér ekki fyrir endann á þeirri fjölgun. Þetta fólk kemur nánast allt með flugi. Það er stutt síðan flugfélögin sem hingað flugu voru teljandi á fingrum annarrar handar. Í dag skipta þau tugum. Fæstar þjóðir hafa þá sérstöðu sem Ísland hefur þegar kemur að flugi. Allar þær borgir sem við fljúgum til og frá eru með varaflugvöll/velli í hálf- tíma fjarlægð eða svo, þar með tal- ið á Írlandi sem er e.t.v. eina land- ið/eyjan sem við gætum mögulega borið okkur saman við. Allir íbúar þessara landa geta notað margs konar ferðamáta ann- an en flug. Við komumst nær eingöngu með flugi. Viku sigling er frá tímum Einars Ben. Engin þjóð er með obbann af þjóðinni samanþjappaðan á eins þröngu svæði og við. Á Íslandi gýs að meðaltali á fimm ára fresti Við kynntumst því í Heimaeyjar- gosinu og Eyjafjallajökulsgosinu að gos eru ekki alltaf túristagos. Virtir jarð- og jarðeðlisfræðingar hafa bent á að Reykjanesskaginn frá Hengli og suður að Reykjanestá er virkt gossvæði sem vaknar sögu- lega til lífsins á um 600 ára fresti, og um þessar mundir eru einmitt um 600 ár síðan þar gaus síðast. Og sagan segir að þá geti gosið í lang- an tíma. Hraun myndi væntanlega renna til sjávar og slíta lífæðina til Keflavíkur. Guði sé lof að við höfum ekki þurft að líða hörmungar fyrri ára svo sem Móðuharðindin, sem þó dundu á þjóðinni fyrir aðeins rúm- um 200 árum og felldu um 20% þjóðarinnar. Og fólksflutningar til Vesturheims vegna eldvirkni Öskju og Dyngjufjalla áttu sér stað fyrir rúmum eitt hundrað árum. Það er rétt rúmur mannsaldur, ekki meira. Ef við byggjum á flugvallarsvæðinu og fórnum vellinum erum við að svipta okkur mögulegri lífæð eða undankomuleið í staðinn fyrir nokkrar byggingar sem við getum svo hæglega komið fyrir annars staðar. Hvernig geta menn lokað aug- unum fyrir þeim möguleika að hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu geti átt sér stað ófyrirséðar hamfarir sem kalli á að ekki megi hrófla við flugvellinum í þeirri mynd sem hann er? Hvað með hryðjuverk? Við getum auðvitað lokað aug- unum fyrir möguleikanum á hryðjuverkum en það er þá í lík- ingu við annað í þessu ferli. Hvar stæðum við án Keflavíkurflug- vallar, t.d. vegna flugslyss eða hamfara eða hryðjuverka? Með 15- 20 vélar að lenda á svipuðum tíma, jafnvel fleiri? Látum vera að við lokum aug- unum fyrir sjúkrafluginu. Þeir sem deyja vegna þess að þeir komust ekki nógu snemma undir læknis- hendur verða hvort sem er ekki fréttamatur nema flugvél farist í leiðinni. Það virðist orðið ljóst að gegn gróðahyggju Valsmanna duga þessi rök ekki. En að borgaryfirvöld beiti hreinu ofbeldi gegn þjóðinni fyrir skamm- tíma gróðahyggju sams konar afla sem greinilega er skipulögð til að fórna flugvellinum er algerlega óskiljanlegt. Staðreyndin er sú að það er eng- inn annar valkostur, eins og reynd- ar allir vita sem vilja vita. Reykja- víkurflugvöllur er fráleitt einkamál Reykjavíkur. Það má aldrei verða að notuð verði aðferðafræðin sem notuð var við Grensásveginn (framkvæmd sem nánast allir fordæmdu), þar sem framkvæmdinni var flýtt til þess að meirihlutinn gæti ekki komið í veg fyrir þá fáránlegu framkvæmd. Reykjavíkurvöllur er þjóðareign. Grensásleiðin væri stríðsyfirlýs- ing við þjóðina. Það er því í raun lífsspursmál að ekki verðið framið það hryðjuverk í Vatnsmýrinni sem borgarstjórn ætlar sér þvert á margyfirlýstan vilja þjóðarinnar. Hryðjuverk í Vatnsmýrinni Eftir Heimi Sindrason og Baldur Sveinsson »Hvernig geta menn lokað augunum fyrir því að hér geti átt sér stað ófyrirséðar ham- farir sem kalli á að ekki megi hrófla við Reykja- víkurflugvelli? Heimir Sindrason Heimir er tannlæknir, Baldur er kennari og ljósmyndari. Baldur Sveinsson – með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.