Morgunblaðið - 21.10.2016, Page 52

Morgunblaðið - 21.10.2016, Page 52
52 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 CURCUMIN Gullkryddið Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla. Steinunn Kristjánsdóttir er sjúkraliði að mennt og starfar í Blue Lagoon versluninni á Laugavegi. Hún hefur átt við mikla verki að stríða um allann líkama í yfir 25 ár eftir að hún lenti í slæmu bílslysi og er komin með liðagigt. „Ég er búin að taka inn minn skammt af verkjalyfjum og var alveg að gefast upp á þeim. Nuddkonan mín sagði mér þá frá Curcumin sem hefur í sannleika sagt gefið mér nýtt líf. Ég var búin að taka inn Curcumin í einn og hálfan mánuð þegar égmissti út fjóra daga og það var þá sem ég uppgötvaði að Curcumin er það sem hjálpar mér að losna við alla verki.” LIÐIR – BÓLGUR – GIGT Nánar á balsam.is Bætt heilsa og betri líðan með Natural Health Labs 100% náttúruleg bætiefni Um síðustu mánaðarmót lagði Sri Chinmoy-heimseiningarfriðarhlaupið leið sína til Grænlands í fyrsta skipti. Greinarhöfundar skipulögðu frið- arhlaupið í samstarfi við heimamenn, en við höfum undanfarin ár tekið þátt í skipulagningu friðarhlaupa á Ís- landi, auk tveggja í Færeyjum. Nú þótti okkur tímabært að Grænlend- ingar yrðu þátttakendur í þessum skemmtilega viðburði sem um 150 lönd hafa tekið þátt í frá fyrsta frið- arhlaupinu árið 1987. Mikill áhugi var frá fólki um allan heim að leggja hönd á plóg og að lokum fór níu manna lið frá átta löndum víðs vegar að úr heiminum með logandi friðarkyndil- inn til nágranna okkar í vestri. Óhætt er að segja að viðtökur Grænlendinga hafi farið fram úr björtustu vonum, svo úr varð við- burðarík vika í höfuðstaðnum Nuuk. Allir grunnskólarnir í Nuuk voru heimsóttir og um 1.300 nemendur tóku þátt. Nuuk var útnefnd Sri Chinmoy-friðarhöfuðborg við hátíð- lega athöfn í Ráðhúsinu og skipaði sér þar með á bekk með Reykjavík, Ósló, Stokkhólmi, Ottawa og fleiri höfuðborgum sem einnig hafa verið tileinkaðar friði með þessum hætti. Auk þess fór fram hlaup og göngur um götur, fjöll og firnindi á svæðinu og fólk á öllum aldri tók þátt í al- menningshlaupi með logandi friðar- kyndilinn um gamla bæinn í Nuuk. Indverski friðarfrömuðurinn Sri Chinmoy stofnaði friðarhlaupið til að koma þeim boðskap á framfæri að hver og einn gæti lagt mikið af mörk- um í þágu heimsfriðar með því að rækta frið, vináttu og umburðarlyndi í sínu eigin lífi. Allir geta þannig haft jákvæð áhrif á umhverfi sitt og verið öðrum fyrirmynd; jafnt þjóðþekktir einstaklingar sem og skólakrakkar. Sjálfur var Sri Chinmoy óþreytandi að koma jákvæðum boðskap á fram- færi í gegnum list, skrif og aflraunir, svo nokkuð sé nefnt. Margir muna enn eftir því þegar hann setti íslenska friðarhlaupið árið 1989 og lyfti Stein- grími Hermannssyni, þáverandi for- sætisráðherra, sem stóð á þar til gerðum palli og hélt á logandi frið- arkyndlinum. Líf Sri Chinmoy og einstaklinga á borð við Nelson Mandela og Móður Teresu, sem studdu rækilega við frið- arhlaupið, varð hlaupinu hvatning til að skapa verðlaun sem nefnast „kyndilberi friðar“. Verðlaunin eru veitt einstaklingum sem vinna að bættu samfélagi og eru öðrum fyr- irmynd. Meðal þeirra sem hlotið hafa verðlaunin má nefna Desmond Tutu, Carl Lewis, Billie Jean King og Vig- dísi Finnbogadóttur. Við urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að veita þessi verðlaun þremur merkilegum einstaklingum á Grænlandi: Asii Chemnitz Narup, borgarstjóra Nuuk, sem hefur lagt mikla alúð í að skapa samfélag þar sem allir geta notið sín, óháð bakgrunni, og eins unnið mark- visst að jafnrétti allra hópa; Kim Godtfredsen, sem heldur úti verkefn- inu Timi Asimi, sem gengur út á að nota útivist og íþróttir til að hjálpa ungu fólki að fóta sig í lífinu; og Av- iaja Egede Lynge, talsmanni barna á Grænlandi, sem hefur haft sterk áhrif á grænlenskt samfélag með þrot- lausri vinnu sinni fyrir því að öll börn njóti réttar síns. Grænlendingar voru einstaklega opnir fyrir friðarhlaupinu og hlýir, og oftar en ekki komu börn sem við höfðum hitt í skólaheimsóknum hlaupandi til að faðma okkur þegar þau sáu okkur á gangi í bænum. Okk- ur var einnig boðið á heimili Aviaja Lynge, sem hélt veislu fyrir ættingja, vini og friðarhlaupið eftir að hún hafði tekið við verðlaunum sínum sem kyndilberi friðar. Í veislunni fluttu Aviaja og fjölskylda hennar fyrir okk- ur grænlenska söngva og trommu- tónlist og bauð okkur að máta þjóð- búninga fjölskyldu sinnar. Gátum við ekki annað en verið djúpt snortin af gestrisni þeirra. Einnig áttum við góðan fund með grænlenska þinginu, en 15 þingmenn af 33 hlupu með okkur og var Lars- Emil Johansen, forseti þingsins, fremstur í flokki. Lars-Emil gant- aðist með það að ástæðan fyrir því að það hefði tekið friðarhlaupið svona langan tíma að koma til Grænlands væri að friður væri nú þegar allsráð- andi á Grænlandi. Grænlendingar eru að sönnu þjóð sem aldrei hefur farið með ófriði að annarri þjóð og ekki er líklegt að það muni nokkurn tímann breytast. Friður er lífsgæði sem er mikilvægt að minna sig á og læra að meta, sagði Asii borgarstjóri í ræðu sinni. Þess vegna er heimsókn Sri Chinmoy-heimseiningarfrið- arhlaupsins og tileinkun Nuuk sem Sri Chinmoy-friðarhöfuðborgar jafnt viðurkenning sem og hvatning til Grænlendinga. Það er óhætt að segja að þessi Grænlandsferð hafi löngu verið tímabær og vonandi getur friðarhlaupið lagt í aðra slíka ferð áð- ur en langt um líður. Ítarlegri fréttir má lesa og fleiri myndir má sjá á heimasíðu hlaupsins: www.peacerun.org/gl Friðarhlaupið á Grænlandi Eftir Andrés Ramón, Laufeyju Haraldsdóttur og Torfa Leósson » Grænlendingar eru að sönnu þjóð sem aldrei hefur farið með ófriði að annarri þjóð og ekki er líklegt að það muni nokkurn tímann breytast. Andrés Ramón Höfundar eru meðal skipuleggjenda Sri Chinmoy-heimseiningarfrið- arhlaupsins á Grænlandi. Mynd/Apaguha Veselý Hlaupið Grænlenskir þingmenn í friðarhlaupinu. Lars-Emil Johansen, forseti þingsins, heldur á kyndlinum. Við hlið hans er Torfi Leósson. Aðrir þingmenn í 2. röð frá vinstri: Per Rosing-Petersen, Justus Hansen og Michael Rosing. Í 3. röð sést í Mimi Karlsen og aftast sést glitta í Iddimanngiiu Bianco. Laufey Haraldsdóttir Torfi Leósson Allir með Laufey Haraldsdóttir, einn af skipuleggjendum friðarhlaupsins, leiðir hóp nemenda úr Samuel Kleinschmidt-skóla í hlaupinu. Galvaskar Nemendur úr Nuussuup-skóla láta friðarkyndilinn ganga á milli sínGleði Nemendur úr Ukaliusaq-skóla halda kyndlinum á lofti í friðarhlaupinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.