Morgunblaðið - 21.10.2016, Síða 60
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Hótelin eru alls sex utan Reykja-
víkursvæðisins, staðsett frá Borg-
arfirði og eftir hringveginum til
Flúða, eins og Hildur Harðardóttir
hjá Icelandair Hotels segir frá, þeg-
ar við förum yfir sviðið, réttsælis frá
Reykjavík. „Hvarvetna er lögð
áhersla á að vera með veitingastað í
hæsta gæðaflokki ásamt því að hót-
elin prýða lifandi trélistaverk sem
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir – Alla
Sigga – á heiðurinn af. Um leið
leggjum við áherslu á að töfrar hvers
landshluta endurspeglist í hót-
elunum, hverju fyrir sig.“
18 holur og ævintýranáttúra
„Icelandair Hótel Hamar er á fal-
legum stað í sveitum Borgarfjarðar
og eitt helsta aðdráttaraflið þar, all-
tént á sumrin, er 18 holu golfvöllur
sem liggur að hótelinu,“ segir Hild-
ur. Blaðamaður virðir fyrir sér veð-
urspána á netinu og telur víst – með
hliðsjón af allt að 17 gráðu hita á
landinu síðla októbermánaðar – að
kylfingar geti slegið boltann eitthvað
fram í nóvember, ef því er að skipta.
„Frá hótelinu labbar maður bara
út í garðinn og þá ertu kominn á teig.
Staðsetningin er þess utan frábær
fyrir þá sem vilja njóta útivistar í
Borgarfirðinum. Hér eru Hraun-
fossar, sem eru einstakt náttúrufyr-
irbæri, og einnig Víðgelmir sem er
stærsti hellir landsins sem er í Hall-
mundarhrauni. Fyrir þá sem eru að
leita sér að ólgleymanlegu ævintýri
er stutt að fara yfir í Húsafell þaðan
sem fara má í skoðunarferðirnar
„Into The Glacier“ þar sem farið er í
ísgöngin í Langjökli.“
Alpastemning á Akureyri
Fyrir þá sem sækja í skíðaiðkun
þegar kemur að því að skipta um
umhverfi til hressingar og heilsubót-
ar bendir Hildur á að Icelandair-
hótelið á Akureyri sé framúrskar-
andi valkostur. „Þegar vetrarsport
er annars vegar hentar hótelið frá-
bærlega enda örstutt að keyra upp í
fjallið og upphituð geymsla fyrir
skíði og bretti á hótelinu fyrir gest-
ina,“ bendir hún á. „Að loknum
hressandi degi í fjallinu er svo kjörið
að fara út í hótelbakgarðinn, sem er
upplýstur og með logandi arin, og
tylla sér þar með loðfeld og heitan
drykk.“
Það er ekki laust við þó nokkra
Alpastemningu í lýsingu Hildar og
hún tekur brosandi undir það. „Til
að toppa notalegheitin þá er hin
glæsilega sundlaug Akureyrar hin-
um megin við götuna svo slökun og
vellíðan að loknum degi í fjallinu –
eða á labbinu um bæinn – er auðsótt
mál.“
Áhersla á hráefni úr Héraði
Á Austfjörðum er að finna Ice-
landair Hótel Hérað og þar sem ann-
ars staðar leggja matreiðslumeist-
arar veitingastaðarins höfuðáherslu
á hráefni úr Héraði. Hreindýrið er
þar vitaskuld ekki undanskilið.
„Einnig er gaman að geta þess að
starfsfólk hótelsins tínir sjálft ber
bæði og sveppi í nágrenninu til að
nota við matargerð í meistaraeld-
húsinu og allar mjólkurafurðir eru
fengnar beint frá býli.“
Möguleikar til útivistar eru enn-
fremur ýmiss konar. „Fyrir utan
hvað svæðið við Egilsstaði er fallegt
þá er stutt að fara til Seyðisfjarðar,
sem er jú alger perla, og svo er Hall-
ormsstaðaskógur skammt undan en
hann finnst mér vera magnaður
staður enda er stór hluti hans sí-
grænn og svæðið því einstakt allt ár-
ið um kring. Upplifunin minnir svo-
lítið á skógi vaxin svæði í
Skandinavíu.“
Kynngimagnað á Klaustri
Kirkjubæjarklaustur, staðsett
mitt á milli Mýrdalsjökuls og Vatna-
jökuls, er einkar vel staðsett með til-
liti til mikilfenglegrar náttúru. Þjóð-
garðurinn í Skaftafelli er skammt
undan sem og Jökulsárlón og hin
dulmagnaða Dyrhólaey, og nátt-
úruunnendur fá því mikið fyrir snúð
sinn að Klaustri. Þá er vert að nefna
að hæsta tré á Íslandi er sitka-
grenitré sem er að finna í skógarreit
á Kirkjubæjarklaustri.
„Einnig eru fjölmargar fallegar
gönguleiðir í nágrenni við Icelandair
Hótel Klaustur og Norður-
ljósadýrðin getur orðið alveg ótrú-
lega mögnuð á þessum slóðum. Það
er svo væntanlega óþarfi að taka það
fram að klausturbleikja er jafnan
áberandi á matseðlinum á veit-
ingastaðnum.“
Vinsælt hótel á Vík
Hildur segir að ferðamanna-
tímabilið hér á landi sé sífellt að
lengjast og þessa sjáist meðal ann-
ars merki á Icelandair Hótel Vík,
sem sé vinsælt allan ársins hring.
„Umhverfið og staðsetningin eru svo
mögnuð að þetta hótel selur sig bara
sjálft,“ segir hún og kímir við. „Ekki
nóg með að bæjarstæði Víkur í Mýr-
dal sér einstaklega vel heppnað, með
svarta fjöruna og tilkomumikla
drangana í sjónmáli, heldur er hót-
elið sjálft sérlega fallegt. Setustofan
og veitingastaðurinn Berg gera fólki
kleift að njóta stórkostlegs útsýnis
yfir bæinn og út á hafið, og svo er
auðvitað stutt að skjótast að Skóg-
arfossi og Seljalandsfossi. Þá er vin-
sælasta náttúrulaug landsins, Selja-
vallalaug, rétt innan seilingar. Ég
mæli með að fólk geri ráðstafanir í
tæka tíð því hótelið er vinsælt og eft-
ir því umsetið.“
Rómantík og
grænmeti á Flúðum
Það er stundum sagt að Flúðir séu
„Mekka grænmetisræktunar á Ís-
landi“ og það má til sanns vegar
færa. Eldhús veitingastaðarins á
Icelandair Hóteli Flúðum fer ekki
varhluta af því heldur gerir sér
þessa gúrmetisauðlind að góðu fyrir
gestina. „Glóandi gróðurhúsin blasa
við gestum hótelsins og mörgum
þykir þessi jarðvarmarækt mjög for-
vitnileg að skoða. Það er gnægð
spennandi gönguleiða í næsta ná-
grenni og annar hótelstjóranna, hún
Margrét Runólfsdóttir, fer sem leið-
sögumaður með hópum ef heppnin
er með.“
Af náttúruperlum í nágrenninu
liggur beinast við að nefna Gullfoss
og Geysi en Hildur bendir á eftirlæti
hótelstjóranna, Laxárgljúfur og
Stuðlabergsnámurnar á Flúðum.
„Gamla laugin á staðnum, sem
kallast Secret Lagoon á ensku, er
mjög vinsæl og þar er búið að byggja
upp fínustu skiptaaðstöðu ásamt því
að hægt er að kaupa veitingar þar. Í
lauginni er líka boðið upp á búnað til
leigu til að prófa flot sem er dásam-
legt undir berum himni.“
Að endingu minnir Hildur hina
fjölmörgu aðdáendur Kim Kardashi-
an á það að í næsta nágrenni eru
Friðheimar þar sem bragða má á
tómatsósusúpu, tómataís og fleira
góðgæti sem téð raunveruleikasjón-
varpsstjarna bragðaði á er hún
heimsótti staðinn í sumar og lét
feikivel af.
Upplifun og útivist um land allt
Icelandair Hotels eru
starfrækt hringinn í kring-
um landið Ákveðnir
þættir eru hótelunum
sameiginlegir en öll
draga þau þó dám af
sinni heimasveit.
Listfengi Alla Sigga á heiðurinn af
hinum sérstæðu og „lifandi“ tré-
listaverkum sem eru sem rauður
þráður í hótelum Icelandair Hotels
landið um kring. Þetta hreindýr er
að finna á Héraði – nema hvað!
Veitingasalur Icelandair Hótel Vík er vinsælt allt árið um kring og
falleg hönnun innanstokks á ekki minnstan þátt í aðdráttaraflinu.
Notalegt Hótelbakgarðurinn við Icelandair Hótel Akureyri er tilvalinn til að hvíla lú-
in læri eftir dag í Hlíðarfjalli, við arineld með loðfeld og rjúkandi drykk á krús.
Hildur Harðardóttir hjá
Icelandair Hotels.
Ljósadýrð Náttúran í umhverfi Icelandair Hótel Klausturs á fáa sína líka og
þegar brestur á með norðurljósasýningu er hreinlega himneskt að horfa á.
60 HÓTEL HRINGINN ÍKRINGUMLANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Japanskt
meistaraverk
Landsins mesta
úrval af píanóum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.