Morgunblaðið - 21.10.2016, Side 62

Morgunblaðið - 21.10.2016, Side 62
BÆKUR Hér segir frá Páli Guðjónssyni (1904-1959) rútubílstjóra og barátt- unni um ferðamennina. Tilvísunum og neðanmálsgreinum er sleppt: „Hún Valgerður sendi þér þetta“ Kært var og jafnan mikill sam- gangur milli bræðranna Sigurgests og Páls. Sá fyrrnefndi lýsti bróður sínum þannig síðar: Hann var ákaflega skemmtilegur maður og vinsæll. Hann var yfirleitt alltaf í góðu skapi, glaðvær og af- skaplega lipur og þægilegur við fólk, vildi allt fyrir alla gera og allra götu greiða. Hann var líka ágætur söng- maður og hafði mjög gaman af að skemmta sér í vinahópi. Sem lítið en lýsandi dæmi um mannkosti Palla sagði mér um hann sögu kona nokk- ur sem var farþegi hjá honum til Reykjavíkur, þá 14 ára gömul stúlka. Þá var Kolviðarhóll meðal áningarstaða á leiðinni og farþeg- arnir fóru þangað inn til þess að fá sér hressingu hjá Valgerði húsfreyju sem seldi þar mat. Stúlkan var hins vegar ekki með neina peninga og fór því ekki inn, beið úti í rútu. En þegar Palli og farþegar hans komu aftur út í bíl rétti hann stúlkunni stóra brauðsamloku og sagði: „Hún Val- gerður sendi þér þetta.“ Þá hafði hann beðið Valgerði um eitthvað í svanginn handa stúlkunni og sýndi henni þessa umhyggju, án þess þó að eigna sér hana sjálfur. Gvendur í Hól [...] Skal nú nefndur til sögunnar Guðmundur Helgason, þekktur Stokkseyringur sem kenndur var við býli sitt og kallaður Gvendur í Hól. Hann var góður kunningi Guðjóns og Jóhönnu á Hólmi og var þar jafn- an aufúsugestur í mat og kaffi. Guðmundur var einkum þekktur fyrir að vera afburða sögumaður, orðsins listamaður af munni fram svo unun var á að hlýða. Eitt sinn var Guðmundur á leið frá Stokkseyri upp í Sandvíkur- bæina sem standa við Eyrar- bakkaveg, um það bil fimm kíló- metra sunnan við Selfoss. Þangað höfðu heimabændur ráðið hann til þess að skera heytorf sem svo var nefnt. Það var þannig skorið að breiða mátti það ofan á heystakk til að verja hann fyrir veðri og vindum yfir vetrartímann. Til þessa verks var notað sérstakt skurðaráhald, torfljár, og vegna þess hve Guð- mundur þótti laginn við slíka iðju réðu bændur hann einatt til sín í því skyni. Torfskurðurinn var erfið og óþrifaleg vinna enda gjarnan skorið úr mýri. Því hafði Guðmundur með sér skinnhald, þ.e. skinnbuxur, og var einnig að öðru leyti klæddur til slíkrar vinnu. Þetta var á sunnudegi og blíðviðri á suðvesturhorni lands- ins. Guðmundur fékk far með Páli Guðjónssyni upp að Sandvíkurbæj- unum. Ekki leið á löngu þar til hann var farinn að segja samferðarfólki sínu sögu. Og svo var komið á áfangastað Guðmundar, eftir stundarfjórðungs akstur eða svo, að sögunni var ekki nærri lokið. En far- þegarnir voru komnir á bragðið og vildu ekki sleppa sagnamanninum fyrr en sagan væri öll. Heyrðist þá einhver kalla: „Komdu bara með okkur til Reykjavíkur, við sláum saman í far- gjaldið.“ Þessi hugmynd hlaut góðar undirtektir og svo fór að Guð- mundur hélt áfram með bílnum, lauk sögunni og sagði fleiri. Páll skemmti sér jafn vel og aðrir, og bauð honum ókeypis far tilbaka.[ ...] Krókur á móti bragði Áður en sett voru sérleyfislög um áætlunarferðir börðust eigendur áætlunarbíla af hörku um farþegana og neyttu ýmissa bragða. Það átti meðal annars við um Bifreiðastöð Steindórs og Pál Guðjónsson í ferð- unum milli Stokkseyrar, Eyrar- bakka og Reykjavíkur. Sem vænta má skapaðist spenna milli keppi- nautanna og þeir fylgdust grannt hvor með öðrum. Eftirfarandi frásögn Hilmars Pálssonar segir sína sögu í þeim efn- um: Það var eitt sinn að aflokinni þjóðhátíð að Sigurjón var að koma með Gísla J. Johnsen fullan af far- þegum frá Vestmannaeyjum, senni- lega aðfararnótt mánudagsins. Það var farið að dimma en pabbi verður var við heilmikla bílaumferð þarna um nóttina. Þegar að var gáð hafði Steindór sent eina fjóra rútubíla til þess að flytja farþegana úr bátnum til Reykjavíkur eða þangað sem þeir vildu komast. Bílarnir komu tveimur tímum áður en von var á bátnum, bökkuðu niður bryggjuna og fylltu hana þannig að þessir tveir bílar pabba komust þar ekki fyrir. Pabbi varð var við þetta og gerði sínar ráðstafanir. Hann fékk lán- aðan árabát, jullu sem svo var nefnd, sem var þarna í höfninni, reri út á sundið fyrir utan og beið þar eftir bátnum. Sigurjón áttaði sig á því hvað um var að vera, grillti í bílana frá Steindóri og sá Pál mág sinn á árabátnum. Því stöðvaði hann bátinn þegar hann kom inná á sundið og tók pabba um borð. Og næst gerist það að pabbi situr á miðri lestarlúgunni á Gísla J. Johnsen með töskuna sína og selur farþegunum miða til Reykjavíkur eða hvert sem þeir vilja halda. Á meðan bíður Sigurjón með bátinn á sundinu og leggur ekki að bryggju fyrr en pabbi er búinn að selja miða til þess að fylla báða bílana! Steindór reiddist þessu bragði Páls og hafði eftir það stundum á orði þegar bílstjórar hans komu frá Stokkseyri: „Heyriði strákar, var Palli kominn að á jullunni?“ [...] Bóndi, sjómaður og einstæð móðir Farþegaskip Gísli J. Johnsen í farþegaflutningum milli lands og Eyja. Rútur Páls Guðjónssonar og Bifreiðastöðvar Steindórs á Selfossi 1948. Hólmfríðar saga sjókonu segir ættarsögu rangæskrar valkyrju sem var bóndi, sjómaður og einstæð móðir um miðbik 19. aldar. Frá einkasyni hennar Guðjóni brúarverði er kominn mikill afkomendahópur og er hann afi höfundanna, Sigrúnar og Ásgeirs Sigurgestsbarna. Hér er ættarsaga sem hefst undir Heklurótum og endar í Reykjavík og varpar ljósi á sögu alþýðufólks á Íslandi á 19. og 20. öld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.