Morgunblaðið - 21.10.2016, Page 64

Morgunblaðið - 21.10.2016, Page 64
64 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 BÆKUR Átthagar Husula eru í dalskornum og skógi vöxnum Karpatafjöllum aust- anverðum, þar sem kallast Trans- Karpatía. Þéttasta byggð þeirra er í og við Corna hora (Svarta fjall), á milli ánna Prut og Ceremos. Fram yfir heimsstyrjöld- ina fyrri taldist heimabyggð þeirra vera partur af Austur-Galisíu og heyrði þá undir Austurrísk- ungverska keis- aradæmið. Nú telst land Husula til Úkraínu. Um ná- kvæman fjölda þeirra er ekki vitað en á öndverðri 20. öld voru Husular taldir um það bil 100 þúsund ... Ferðamenn fyrri alda sem heim- sóttu Husula voru gjarnir á að draga upp ævintýralegar myndir af þeim og lífsháttum þeirra. Í slíkum sögum speglast stundum ótti sögumanns við hið óþekkta en jafnframt viðleitni hans til þess að mála þekkilega mynd af eig- in hetjuskap. Auðvitað geta sögur af þessum toga verið sannar að einhverju leyti, en það er einnig hugsanlegt að einangrun og framandleiki þjóða hafi komið af stað kynjasögum. Það sem við ekki þekkjum fær gjarna á sig ýkta mynd. Ýkjur ferðasagna voru regla fremur en undantekning og settu mark sitt á skrif evrópskra ferða- manna sem komu til Íslands eins og kunnugt er. Arngrímur Jónsson lærði brást við sögum af þessum toga með riti sínu Crymogæa sem var svar hans við spunasögum af lifnaðarháttum Ís- lendinga í upphafi nýaldar. Bók Arn- gríms er góð heimild um samfélag Ís- lendinga á 16. og 17. öld. Hún er þó enn betri heimild um það samfélag fá- mennrar eyþjóðar í miðju Norður- Atlantshafi, sem Arngrímur vildi kynna fyrir ókunnugum. Það var einkennandi fyrir karla af þjóð Husula að þeir höfðu axlasítt hár, oft smurt með smjöri, og báru barða- stóra flókahatta með litríku bandi fléttuðu úr látúnsvír sem studdi við pá- fuglseða arnarfjaðrir. Fatnaður var af- ar litríkur og bar vott um mikla færni og natni við vefnað og saumaskap. Karlar voru klæddir í skærrauðar bux- ur, prjónasokka í sama lit og leðurskó, og einkennandi fyrir klæði þeirra voru línskyrtur sem höfðu legið í blöndu af bræddu smjöri og brennisteini. Þessi einkennilega blanda var reyndar óbrigðult ráð til að halda mýflugum og öðrum óvelkomnum kvikindum frá. Karlarnir hafa sennilega þótt vörpu- legir þar sem þeir fóru um með sítt, smjörsleikt hár í frökkum gerðum úr flókaull eða sauðarfeldi með vel brýnda öxi í hendi og kuta hangandi í breiðu belti. Samfélagsgerð Husula var sögð strangt feðraveldi og konan „eign“ maka síns við giftingu. Norræn menn- ing var að þessu leyti lítt frábrugðin eins og orðin „brúðkaup“ og „gifting“ eru til marks um. Meðal Husula var hefð að brúðgumi flengdi væntanlega brúði sína í þrígang fyrir vígslu sem tákn um undirgefni hennar. Viðhorf karla í samfélagi Husula til ofbeldis gegn konum fær á sig skýra mynd í máltæki eins og þessu: „Eiginkona sem ekki er flengd er eins og óbrýndur ljár.“ Gift kona sveipaði hár sitt slæðu, oft rauðri, sem var bundin undir hök- una og aftur um háls sem Gustaf Bol- inder, sem ferðaðist um lönd Husula á fyrri hluta 20. aldar, taldi vera enn eitt tákn þess að hún væri ekki frjáls. Ógift stúlka átti að ganga berhöfðuð hvort sem var vetur eða sumar. Að sögn Bol- inder var eiginkonan, líkt og börnin, fyrst og fremst álitin ódýrt vinnuafl. Slíkar lýsingar eru vafalaust ekki gripnar úr lausu lofti en þó virðist hér vera þversögn. Husulakonur voru nefnilega sagðar óvenju sjálfstæðar og umtalaðar fyrir fegurð, pípureykingar og frjálslegt ástarlíf. Meðan Austur- ríkismenn fóru með völd yfir byggðum Husula voru þær stundum nefndar „Parísardömur Karpatafjalla“. Við há- tíðleg tækifæri skörtuðu þær enn- isbandi prýddu silfurpeningum eða lit- uðum glerperlum, kórónu eða ofnum linda settum eðalsteinum og pá- fuglafjöðrum, kórallahálsfesti, bróder- aðri blússu og rauðum, mjúkum sauð- skinnsstígvélum. Söngkonan Ruslana, sem söng fyrir Úkraínu í Söngva- keppni evrópska sjónvarpsstöðva (Eurovision) 2004, rekur ættir sínar til Husula. Klæðnaður hennar vakti at- hygli og þótti ekki beinlínis par- ísartíska. Þeir voru sennilega fáir sem vissu að með klæðnaði sínum, söng og takti vísaði hún til aldagamalla hefða þjóðar sinnar. Langlúðrarnir í upphafi eru eins og fjallalúðrar husulskra hirð- ingja. Þeir eru hluti gróinnar tón- listarhefðar þeirra og nefnast „trem- bita“. Trembita er allt að þriggja metra langur lúður, gerður úr grenitré og vafinn bjarkarberki. Trembita Hus- ula er ekki óskyld svissnesku alpa- horni, en heldur minni. Líkt og í Sviss er upphaflegur tilgangur hornsins að auðvelda fjárhirðum samskipti um langa vegu á milli fjalla og dala. Fegurð og sjálfstæði kvenna hafði líka sína skuggahlið sem lítt tamdir drykkjusiðir gerðu ekki bærilegri. Sýf- ilis var faraldur meðal þeirra um alda- mótin 1900. Í bók sinni segir Gustaf Bolinder, ekki laus við velþóknun, að Husulakonur hafi virst álíta það synd að hafna nánu samneyti við karla og að það virtist konum eðlilegt að gesturinn úr norðri veitti þeim unað í nokkra daga. Kona ætti að eignast barn hvort sem hún var gift eða ekki. Að öðrum kosti yrði henni refsað handan þessa heims með því að hún yrði neydd til að éta þau börn sem henni hefði verið ætl- að að eignast í jarðlífi sínu. [...] Um aldir reis frægð Hus- ulakarla hæst vegna stigamennsku, starfs sem margir þeirra sinntu af kunnáttu. Um þennan þátt lífs þeirra hafa skapast ótal þjóðsögur, frásagnir og söngvar. Í alþýðlegum munn- mælum var þeim lýst sem eins konar karpatískri útgáfu af Hróa hetti en ástæður þess að slíkir ræningjahópar urðu til virðast öllu flóknari. Á 15. og 16. öld leysti Tyrkjaveldi Býsansríkið af hólmi sem stjórnvald á Balkanskaga. Bæði þessi herraríki voru fjölþjóðleg og skiptu sér lítt af innri málefnum þjóðanna, svo fremi sem skattar og gjöld væru greidd snurðulaust. Lengst af ríkti því sæmi- legur friður afskiptaleysis á milli herra og hjúa, sérstaklega þeirra sem nutu skjóls af fjöllum, skógum, vötnum og djúpum dölum sem erfitt var að fara um. Um miðja 18. öld ríkti upplausnar- ástand í Póllandi, Ungverjalandi og Rúmeníu. Tyrkjaveldi fór halloka og með því hvarf sá stöðugleiki í stjórn- sýslu sem hafði um langt skeið ein- kennt samskipti Balkanþjóða og stjórnvalda. Með nýjum herrum komu nýir siðir og framrás Austurrísk-ungverska keisaraveldisins einkenndist ekki bein- línis af kristnu umburðarlyndi sem kom í stað íslamskrar harðstjórnar, öllu heldur þvert á móti. Þar við bætt- ist að á 18. öld gengu yfir plágur sem léku mörg samfélög á Balkanskaga grátt. Fátækt alþýðufólk varð enn fá- tækara og því erfiðara sem ástandið var, því fleiri flæmdust af kotum sín- um. Jafnvel þeir sem lengi höfðu notið skjóls af einangrun fjalla og dala hröktust frá átthögum sínum. Margir urðu daglaunamenn, farandverka- menn eða handverkssveinar en aðrir leyndust í óaðgengilegum skógum fjallanna og drógu fram lífið með því að ráðast á póstvagna, kaupmenn og bændur. Þegar þeir þóttust nægj- anlega sterkir áttu þeir það líka til að fara með ránum um þorp og bæi. Á sjöunda áratug 19. aldar reyndu Austurríkismenn að koma á herskyldu meðal Husula sem varð til þess að enn fleiri ungir menn flúðu til fjalla og fet- uðu í fótspor þeirra sem þegar höfðu lagst í ránskap. Sá síðasti frægi af þessari gerð ræningja var Nicola Sju- haj. Hann mætti örlögum sínum 1921 þegar hann var myrtur, ásamt bróður sínum, af eigin liðsmönnum sem höfðu gengið á mála hjá tékknesku her- lögreglunni. Þekktastur allra hus- ulskra ræningja var þó vafalaust Oleksa Doubouz sem fór fyrir ræn- ingjaflokki upp úr miðri 18. öld. Hann var álitinn ósigrandi en var þó drepinn þegar foringja annars ræningjaflokks tókst að skjóta hann úr launsátri. Við þetta verk notaði hann kúlu sem var sérstaklega steypt til verksins og blessuð af ekki færri en 12 prestum. Þótt fjárbúskapur með hirðingja- sniði hafi þótt einkenna atvinnuhætti Husula voru þeir þekktir fyrir hand- verk sitt, tréskurð, leðuriðju, keramik og vefnað. Auk þess þóttu þeir dug- miklir skógarhöggs- og fleytingamenn. Eftir fyrri heimsstyrjöld og fall Aust- urrísk-ungverska keisaradæmisins má segja að staða Husula hafi breyst frá því að vera lítill minnihlutahópur í austurhorni stórveldis til þess að verða minnihlutahópur í vesturjaðri enn víð- áttumeira stórveldis. Á valdaskeiði Sovétríkjanna neyddust þeir til að hverfa frá sínum hefðbundnu atvinnu- háttum og gangast undir nauðung samyrkjubúskapar jafnt í akuryrkju sem skógarhöggi. Hefðbundin hand- iðn, vefnaður, útsaumur, málmsmíði og tréskurður auk keramiks með sitt sérstaka skreyti, allt þetta var verksmiðjuvætt og þjóðnýtt. Sama má segja um hina aldagömlu dans-, söng- og klæðahefð. Listamenn á vegum rík- isins fengu það hlutverk að líkja eftir Husulum í söng, dansi og klæðaburði og skemmta ferðamönnum. Sovétveldið dó en hefðbundin húsa- gerð og sjálfsvitund Husula lifir. Trúarleg staða þeirra innan grísk- rómversku kirkjunnar hefur um lang- an aldur verið burðarvirkið í sjálfsvit- und þessarar þjóðar. Eftir heimsókn Mikhails Gorbatsjov til páfans 1991 var grísk-kaþólskri kirkju leyft að starfa frjálst innan Sovétríkjanna. Við þessi tímamót varð vakning um end- urgerð og varðveislu gamalla húsa í byggðum Husula. Kirkjum þeirra, sem minna á norskar stafkirkjur, hef- ur að nýju verið breytt í guðshús eftir að hafa um áratugaskeið staðið eins og óhrjálegir skúrar eða þegar best lét lúnar geymslur og söfn. Smjörgreiddir gæslumenn feðraveldisins Morgunblaðið/Golli Rithöfundur Þorleifur Friðriksson kynnti sér sögu hulduþjóða Evrópu. Í bókinni Hulduþjóðir Evrópu eftir Þorleif Friðriksson er lesendum boðið í ferðalag um Evrópu þar sem hátt í fjörutíu hulduþjóðir eru heimsóttar og fjallað um sögu þeirra. Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Miklumeira en bara ódýrt! Aux snúra 3M 595 frá 295 Mikið úrval af vasaljósum Ferðaveski Innanklæðaveski Lesgleraugu mikið úrval 985 Selfie stöng Naglaklippur Travel flösku- sett 4 stk. Upptakarar 395 Heyrnatóla- splitter Tímarofi USB hleðslu- kubbar USB snúrur Ferðavekjara- klukkaÁl-Kortaveski - RFID vörn Ferðaklær USA/ UK/Euro Töskulásar/ Hengilásar frá 195 Síma- hleðslu- snúrur frá 495 Töskustrappar frá 485 Töskuvogir margar gerðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.