Morgunblaðið - 21.10.2016, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 21.10.2016, Blaðsíða 68
68 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 ÚTFARARÞJÓNUSTA Vönduð og persónuleg þjónusta athofn@athofn.is - www.athofn.is ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919 Inger Steinsson ✝ KatrínPálsdóttir fæddist í Reykjavík 14. júlí 1949. Hún lést 9. október 2016. Foreldrar hennar voru Ragnhildur Árnadóttir, f. 5. nóvember 1923 á Atlastöðum í Svarf- aðardal, d. 3. maí 2014, og Páll Hall- dórsson bifreiðar- stjóri, f. 9. ágúst 1923 í Haga í Holtum, Rangárvallasýslu, d. 1. júlí 2013. Systkini Katrínar eru 1) Árni hæstaréttarlögmaður, f. 7. mars 1952, maki Emilía Krist- ín Gunnþórsdóttir, f. 29. febrúar 1959. Börn þeirra eru Páll og Ragnhildur. 2) Rannveig læknir, f. 12. júní 1961, maki Guðbrand- ur Sigurðsson, f. 2. maí 1961. Börn þeirra eru Anna Katrín, Ragna Kristín og Ingi Hrafn. Maki Katrínar er Ágúst Að- alsteinn Ragnarsson leiðsögu- maður, f. 11. desember 1948. Sonur þeirra er Ragnar Árni, læknanemi og tónlistarmaður, f. 14. mars 1989. Katrín ólst upp í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands 1970, í 14 ár, blaðamaður á Dag- blaðinu, svo á Vísi til 1980 þegar hún varð ritstjóri tískublaðsins Líf. Þar var hún til ársins 1982 þegar hún varð fréttamaður hjá fréttastofu Ríkisútvarpsins og starfaði hjá stofnuninni til 2008. Þar var hún meðal annars dag- skrár- og deildarstjóri, sinnti stefnumótun fyrir Rás 2, átti sæti í dagskrárráði og gæða- nefnd RÚV, var fréttamaður á fréttastofu Sjónvarps og starfaði þá fyrir The New York Times á leiðtogafundinum í Reykjavík árið 1986. Katrín var fréttaritari WCBS-Radio um árabil og starf- aði um hríð sem fréttamaður á Fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgj- unnar. Hún var meðal stofnenda Félags fréttamanna og sat í stjórn þess. Hún var í stjórn Félags fjölmiðlakvenna og Íþróttafélagsins Gróttu á Seltjarnarnesi. 2007 til 2016 kenndi hún við Viðskiptafræði- deild HÍ, Viðskiptadeild HR og Háskólann á Bifröst. Frá 2011 var hún upplýsingafulltrúi hjá Sölufélagi garðyrkjumanna og sá um útgáfu fréttablaðs um ís- lenskt grænmeti. Hún var vara- maður í bæjarstjórn Seltjarn- arnesbæjar og formaður menningarnefndar frá 2011. Útför Katrínar fer fram frá Seltjarnarneskirkju í dag, 21. október 2016, klukkan 13. íþróttakennara- prófi frá Kennara- skóla Íslands 1971, BA-prófi í félags- og stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands 1976 og námi í rekstrar- og viðskiptafræði frá Endurmenntun HÍ 2002. Hún lauk meistaraprófi í mannauðsstjórnun frá Viðskiptafræðideild HÍ 2006 og hóf þar doktorsnám 2009. Sama ár lauk hún einkaþjálf- aranámskeiði frá World Class. Hún sótti námskeið í Bandaríkj- unum hjá The New York Times, WQXR Radio, WCBS Radio og WNCB TV. Þá sótti hún meðal annars sex vikna námskeið í boði Bandaríkjastjórnar um stjórn- kerfið og forsetakosningar, námskeið á vegum NATO í Bandaríkjunum og námskeið á vegum Evrópusambandsins í Brussel. Katrín var flugfreyja hjá Flugleiðum með háskólanámi og um hríð íþróttakennari. Hún var markaðsstjóri og umboðsmaður fyrir bandarísku fyrirsætuskrif- stofuna Ford Models í New York Veðrið hefur leikið við okkur undanfarna mánuði. Íslenska sumarið er einstakt með lit- brigðum sínum og birtu. Þetta sumar mun falla okkur seint úr minni því að það fór um okkur einstaklega mildum og þíðum höndum. Gróðurinn skartaði sínu fegursta og á hverjum degi sá maður ný og ný blóm springa út og teygja sig í sólskinið og birtuna. Árstíðirnar eru óhvik- ular og rétt eins og endranær leið þetta fallega sumar og haustið tók við. Mágkona mín Kata var mikil blómakona og sinnti garðinum sínum að Vík- urströnd af alúð. Hún þekkti vel gang árstíðanna. Eftir snarpa baráttu á þessa fallega sumri haustaði að hjá Kötu og lífsblóm hennar laut í lægra haldi fyrir þeirri meinsemd sem skaut sér niður hjá henni í byrjun sumars. Kata var heimskona sem fylgd- ist vel með á öllum sviðum þjóð- félagsins. Ritstjórinn, blaðamað- urinn og þjóðfélagsrýnirinn var jafnan skammt undan þegar Kata var annars vegar. Hún hafði næmt auga fyrir stílbragði og setti mál sitt fram á einfald- an, skýran og auðskilinn hátt. Í fjölskyldu okkar eru þau jafnan nefnd í sömu andrá Kata og Ágúst. Mér fannst þau sveipuð ævintýrablæ þegar ég kynntist þeim fyrir ríflega 30 árum. Á þeim tíma ritstýrði Kata tísku- blaði og kom víða við í leik og starfi. Síðar hóf hún störf hjá út- varpinu og færði sig þaðan í sjónvarpið þar sem hún sinnti erlendum fréttum. Kata var óhrædd að feta nýjar slóðir og þegar RÚV var breytt í opinbert hlutafélag notaði hún tækifærið og leitaði á ný mið. Hún settist að nýju á skólabekk og kláraði meistaragráðu í mannauðs- stjórnun og fór í framhaldinu að sinna kennslu og rannsóknar- störfum. Kötu var hugleikið hvernig fyrirtæki og stofnanir töluðu við viðskiptavini sína og samfélagið almennt. Þar var hún mikill viskubrunnur og kenndi háskólanemum hvernig væri best að undirbúa sig fyrir slík samskipti í framtíðinni. Það var mikil gæfa þegar Kata eignaðist Ragnar Árna, sem fæddist árið 1989 og var augasteinn hennar. Ragnar, sem leggur stund á læknisfræði í Ungverjalandi, hefur verið heima frá því í sum- ar og staðið sem klettur við hlið móður sinnar í veikindum henn- ar. Hann hefur sýnt ótrúlegt æðruleysi og staðfestu á erfiðum tímum. Ég votta Ragnari Árna og Ágústi innilega samúð og vona að minningin um góða móður og eiginkonu megi veita þeim líkn í sorg þeirra. Guðbrandur Sigurðsson. Kveðja frá sóknarnefnd Seltjarnarnes minnir á marg- an hátt á landsbyggðarþorp, þótt fjarlægð til miðbæjar höf- uðborgarinnar sé aðeins um fimm mínútur í akstri. Íbúarnir þekkja hver annan í meiri mæli en gerist víðast í höfuðborginni og helstu stofnanir eru nálægar. Óspillt náttúra er í fimm mín- útna göngufjarlægð víðast hvar. Mjög náið og gott samstarf er milli kirkju og bæjaryfirvalda á Seltjarnarnesi. Katrín Pálsdóttir var einn þeirra forystumanna bæjarins sem áttu þar drjúgan hlut að máli. Hún var um árabil formaður Menningarnefndar bæjarins og áttum við í sókn- arnefnd hið besta samstarf við þá nefnd, ekki síst formann hennar, við skipulagningu fjöl- margra listviðburða í kirkjunni. Ég veit að sóknarnefndarmenn hugsa til hennar með þakklæti og söknuði. Innan samfélagsins sem er Seltjarnarnesbær eru minni samfélög, m.a. íbúar við einstak- ar götur. Katrín Pálsdóttir átti heima við Víkurströnd, ásamt fjölskyldu sinni, en við sem bú- um við þá götu söknum nú vinar í raun. Við Dóra vottum Ágústi og Ragnari innilega samúð okkar. Megi Guðs blessun fylgja ykkur. Guðmundur Einarsson, formaður sóknarnefndar. Það er stundum sagt að raði maður saman einstaklingum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu í eitt rými geti orðið til magnaður kraftur og gleði. Þannig var með vinnurými fyrir meistara- og doktorsnema við Háskóla Íslands þar sem við Katrín sátum saman. Alltum- lykjandi var fólk með brennandi áhuga á ólíkum viðfangsefnum og með ólíkan bakgrunn; rithöf- undar, fólk úr viðskiptalífinu, uppfræðendur, listamenn og svona mætti lengi telja. Katrín naut sín vel í þessum hópi og var hrókur alls fagnaðar. Bak- grunnur hennar úr fjölmiðlum og reynsla var góð viðbót við þennan hóp. En fyrst og fremst er mér minnisstæð sú gleði sem hún bjó yfir. Hún var einhvern veginn alltaf að vinna að skemmtilegum verkefnum; stundum tengdum fjölmiðlum, stundum lífrænni garðyrkju og eiginlega allt þar á milli. Við vissum þó alltaf hvar hjarta hennar sló en það var fjölskyld- an, feðgarnir Ágúst og Árni Ragnar. Innileg samskipti milli þeirra fóru ekki framhjá okkur vinum hennar. Ég vil þakka vin- konu minni fyrir góða tíma og gefandi samstarf og bið góðan Guð að styðja þá feðga og fjöl- skylduna alla á þessum erfiðu tímum. Þór Sigfússon. Síðumúli í Reykjavík á átt- unda áratugnum. Oft kallaður Blaðsíðumúli af því að þar eru nokkur dagblöð til húsa. Vísir í nýtískulegum húsakynnum og skiptast á skin og skúrir í glugg- um. Glamur í ritvélum, óðamála raddir, kapphlaup við tímann og einn daginn er Kata þar. Ljós- hærð og brosneisti í augum sem eiga það til að horfa ögn rann- sakandi á fólk eins og hún sjái lengra. Rólyndislegar, yfirveg- aðar hreyfingar; ekkert sem heitir óðagot eða flaustur í fari hennar. Dagarnir vefja okkur ósýni- legum böndum. Það mun slakna á þeim og herðast á víxl í ólgu- sjó lífs og fjölmiðlunar en þau munu aldrei slitna. Nú lifna þeir á ný þessir liðnu dagar. Eins og óvenju veglegri helgarútgáfu gamla síðdegisblaðsins væri flett síðu eftir síðu, gegnum vor og sumar, vetur og haust. Fölleitir framan af. Svo skerpast þeir og taka á sig lit. Fullir af öryggi og vissu, efasemdum, væntingum og gleði, af spurningum og svör- um og eitt samtal í veggfasta síma þess tíma getur leyst vandamál. Allt sem er skemmti- legt getur verið erfitt, segir Kata. Skrafið í himinhárri blokkaríbúð þeirra Ágústs í Sól- heimum og drepfyndnar sögur hans krydd í tilveruna. Reykja- vík, útlönd, allt er undir, menn- ingin, listin, böll, partí, Moscow, Moscow; alls staðar eru tæki- færin; hvarvetna vinna. Við er- um blaðamenn, ritstjórar, frétta- menn og dagskrárgerðarmenn og örir dagarnir færa okkur skin og skúrir og stundum hellidemb- ur – en alltaf skal sólin koma upp á ný. Fæddur er lítill snáði, tilveran hefur færst á hærra og betra plan. Kata hefur eignast sinn eigin sólargeisla, hann heit- ir Ragnar Árni. Nú þarf hún naumast lengur á sólinni á him- inhvolfinu að halda. Tíminn líður ógnarhratt. En hver leiðir hugann að því? Seigl- an í Kötu sem bætir stöðugt við sig gráðum og titlum í námi og starfi. Tískublöðin á borðinu í sólskálanum í nýja húsinu úti á Nesi; Neskaffi í bolla, garðurinn fyrir utan, endalaust skrafið um allt og ekkert, September Issue í bíó, Ann Wintour – þetta þarf allt að hafa á hreinu. Borgarleik- húsið, Þjóðleikhúsið. Kata hugs- ar vel um sitt og sig. Æ betur með hverju ári. Hún ætlar að verða níutíu og sex. Fylgja sín- um eftir. Hún er ákveðin og hlý, klettur og kjölfesta. Dómgreind hennar skörp og beitt. Það má treysta ráðum hennar, hún talar svo umbúðalaust – hún Kata. Ashkenazy stjórnar sinfóní- unni á Listahátíð. Þetta er í lok maí. Ég sæki Kötu út á Nes – hún er svartklædd og stílhrein, í svartri flauelskápu. Glöð og ró- leg, hittir marga, örugg, upplýst og vel heima í öllu. Við erum staðráðnar í að gera meira af öllu og stefnum næst á dagsferð með Herjólfi til Eyja. En erindi okkar verða þá önnur og fá. Veikindi hennar skyndileg og baráttan snörp. Hvern gat grun- að að tíminn væri á þrotum? Sumarið líður svo ógnarhratt. Laufin eru gullmolar á trjánum um stund – og komið haust. Takk fyrir samfylgdina, kæra vinkona. Edda Andrésdóttir. Hún Katrín er dáin. Þessi frétt kom eins og þruma úr heið- skíru lofti. Getur það verið að þetta sé Katrín okkar sem við ætluðum að hitta í kaffi innan tíðar? Það er erfitt að átta sig á því að jarðvist góðrar vinkonu sé lokið. Eftir margra ára samveru í vinnurými Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands rifjast upp margar góðar minningar við andlát Katrínar Pálsdóttur. Hún setti sterkan svip á vinnusam- félag okkar enda litríkur og skemmtilegur persónuleiki. Við nutum góðs af einstakri frásagn- argleði og var umræðan oft um fjölmiðlaheiminn, upplýsinga- miðlun, stjórnun og heilbrigðan lífsstíl. Katrín lagði mikið upp úr því að lifa heilbrigðu lífi, hreyfa sig og borða hollan mat. Hún átti það til að vera afar hrein- skilin við samstarfsfólkið og lá ekkert á skoðunum sínum ef henni fannst það ekki huga að heilsunni. En aðalumræðuefnið var oftar en ekki úr nærum- hverfinu. Það duldist engum sem þekkti Katrínu að hún lifði fyrir velferð sonar síns. Ragnar Árni var heppinn að eiga hana að sem móður. Börn systkina hennar voru henni einnig afar kær. Það var kátt á hjalla yfir óteljandi kaffibollum í gegnum tíðina og mikið hlegið og skipst á skoðunum. Katrín var sann- arlega fylgin sér, hvetjandi, brosandi og ávallt tilbúin að að- stoða ef svo bar undir. Við minn- umst Kötu Páls með virðingu og þökk og vottum aðstandendum hennar okkar dýpstu samúð. Ásdís Emilsdóttir Petersen, Erla Sólveig Kristjánsdóttir. Á haustdögum ársins 1970 safnaðist saman ólíkur hópur á Laugarvatni: 12 ungir karlmenn, 12 ungar konur, til þess að verða íþróttakennarar. Kata var í þeim hópi. Hún vakti strax athygli okkar. Var einhvern veginn öðruvísi en við hin. Svo rólynd og yfirveguð. Svo falleg og brosmild. Mann- eskja sem spurði spurninga. Manneskja sem átti síðar eftir að spyrja svo margra spurninga í Sjónvarpi allra landsmanna. Kata var einfaldlega yndisleg- ur félagi. Fjölmenntuð, hugsandi kona, traustur vinur. Við sem nutum samvista við hana vet- urinn 1970-1971 á Laugarvatni og síðar þökkum þessari ynd- islegu skólasystur samfylgdina og sendum aðstandendum inni- legar samúðarkveðjur. Fyrir hönd bekkjarsystkin- anna, Björn Birgisson. Sumt fólk er þeirrar gerðar, að ylur fer um hjartarætur við að heyra nafn þess. Sumt fólk er þannig, að maður getur varla hugsað sér að eiga ljúfari og betri vin og deila með honum góðum minningum. Þannig per- sóna var Katrín Pálsdóttir. Blessuð sé minning hennar. Ómar Ragnarsson. Í dag kveðjum við góða sam- starfskonu okkar, Katrínu Páls- dóttur. Um haustið 2011 varð Sölu- félag garðyrkjumanna þeirrar gæfu aðnjótandi að fá Katrínu til liðs við sig. Hún var fengin til að sjá um almannatengsl fyr- irtækisins og önnur tengd mál. Katrín miðlaði sinni yfir- gripsmiklu reynslu og þekkingu til fyrirtækisins og starfsmanna þess. Það fór ekki fram hjá nein- um að þarna var kona á ferð sem var hokin af reynslu. Við fundum strax að hún hafði mikla ástríðu fyrir starfi sínu og hafði mikinn metnað í að sinna því vel. Eitt af þeim verkefnum sem var í hennar höndum var að ritstýra blaði sem Sölufélagið gaf út tvisvar á ári, frá árinu 2012, um íslenskt grænmeti, garðyrkju- bændur og störf þeirra. Katrín var síðan kosin í stjórn Sölu- félags garðyrkjumanna í mars á þessu ári. Það var okkur mikið áfall þegar við fréttum að Katrín hafi greinst með krabbamein í lok maí sl. Hún gerði ekki mikið úr veik- indum sínum og hugðist koma aftur til starfa fljótlega, það var því enn meira áfall þegar við fréttum af andláti hennar. Kæru Ragnar og Ágúst við sendum ykkur og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur, megi góður Guð veita ykkur styrk á þessari sorgarstundu. Elsku Katrín, við viljum þakka þér fyrir þennan dýr- mæta tíma sem þú starfaðir með okkur. Þín verður ávallt minnst og við búum vel að því sem þú kenndir okkur. Minning þín er ljós í lífi okkar. Fyrir hönd stjórnar og starfs- fólks Sölufélags garðyrkju- manna, Knútur Rafn Ármann. Hún Katrín, félagi okkar og vinur, hefur nú kvatt þennan heim og farið á vit nýrra heim- kynna, en hún féll frá eftir erfið en stutt veikindi þann 21. októ- ber síðastliðinn. Katrín var ein af þeim sem settu svip sinn á samfélagið á Seltjarnarnesi. Ég kynnist Katrínu þegar hún tók þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna haustið 2009. Eiginmaður henn- ar, Ágúst Ragnarsson, starfaði til margra ára fyrir Sjálfstæð- isflokkinn og þau hjónin tóku virkan þátt í starfi flokksins á Nesinu. Þau hjón, Katrín og Ágúst, bjuggu sér glæsilegt heimili á Víkurströnd, þar sem dekrað var við einkasoninn Ragnar Árna. Katrín lét málefni unga fólksins sig mikið varða, hún var ötull stuðningsmaður Tónlistar- skólans, þar sem sonur hennar lærði hljóðfæraleik til margra ára. Katrín var gegnheill Sel- tirningur og lagði sitt af mörk- um til að gera góðan bæ enn betri. Katrín reyndist okkur mjög góður vinur og ráðgjafi – persónueinkenni hennar voru góðmennska og ekki síst um- hyggja. Hún var formaður menning- arnefndar og varabæjarfulltrúi Seltjarnarness frá september 2010. Katrín hafði mikinn áhuga á skapandi greinum og opnaði augu okkar fyrir mikilvægi þeirra og nefndi oft við okkur félaga sína í bæjarstjórn að góð menntun og skapandi greinar væru það sem myndi knýja þetta þjóðfélag áfram inn í framtíðina. Ég verð Katrínu ævinlega þakklát fyrir hlýju hennar og vináttu, menningarmál hafa blómstrað hér á Nesinu og á hún mikinn þátt í því. Fyrir hönd bæjarstjórnar, um leið og ég kveð vinkonu okkar og samstarfsfélaga með þakk- læti fyrir allt og allt, votta ég Ágústi og Ragnari Árna og öll- um ættingjum Katrínar innilega samúð mína. Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri. Fréttin um fráfall Katrínar Pálsdóttur kom sem reiðarslag. Á vormánuðum greindi Katrín mér frá því að hún gengi ekki heil til skógar, en miðað við þær forsendur sem fyrir lágu bar okkur saman um að veikindin myndi hún yfirstíga og koma svo aftur sterk til leiks. Sú varð ekki raunin, meinið tók yfirhöndina með fyrrgreindum afleiðingum. Frá því ég hóf störf sem sviðsstjóri menningarmála á Sel- tjarnarnesi var Katrín formaður menningarnefndar bæjarins og tókst með okkur góður vinskap- ur. Ég áttaði mig fljótt á víðsýni hennar, reynslu og þekkingu. Hún hvatti mig til dáða, veitti mér innblástur og lauk iðulega lofsorði á verk mín, hversu smá- leg sem þau kunnu að vera. Katrín brann fyrir menning- armálin og var stolt af því að veita málaflokknum forgöngu. Við opinberar athafnir sætti hún iðulega færis og benti á hin miklu hagrænu áhrif sem menn- ingin hefur á þjóðarbúið. Við áttum ófáar stundir þar sem við lögðum drögin að metnaðarfull- um markmiðum í menningar- málum fyrir bæjarfélagið og þeirra stunda mun ég sakna. Hún lagði metnað sinn í að veita ungum listamönnum tækifæri til að þroskast og koma fram. Sá áhugi var ekki síst sprottinn af tengslum hennar við stóran hóp ungra tónlistarmanna sem námu og störfuðu með einkasyni þeirra hjóna, Ragnari Árna Ágústssyni. Ragnar Árni var augasteinn móður sinnar og ljóst að þeirra á milli var sterkur strengur. Hún var stolt af velgengni hans en ekki síður yfir mannkostum hans. Missir þeirra feðga er mikill og eftirsjá eftir góðri vin- konu í blóma lífsins er þungbær. Megi ljósið lýsa ykkur veginn. Hvíl í friði, kæra Katrín. Soffía Karlsdóttir. Katrín Pálsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.