Morgunblaðið - 21.10.2016, Síða 71
MINNINGAR 71
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016
✝ SigríðurBjörnsdóttir
(Sidda) fæddist í
Reykjavík 30. apríl
1938. Hún lést á
hjúkrunarheimil-
inu Skógarbæ 6.
október 2016.
Foreldrar henn-
ar voru Guðrún
Pétursdóttir hús-
móðir, f. í Reykja-
vík 2. ágúst 1916, d.
8. nóvember 2007, og Björn
Björnsson skrifstofustjóri, f. á
Ísafirði 12. maí 1912, d. 10. mars
1989. Systkini Sigríðar eru: 1)
Dagný Björnsdóttir, f. 1939, gift
Ragnari Þ. Guðmundssyni, f.
1937, og eiga þau börnin Guð-
rúnu Helgu, Ragnhildi og Ragn-
ar Björn. 2) Pétur Hafsteinn
Björnsson, f. 1943, kvæntur
Sigurdísi Sigurbergsdóttur, f.
1945, og eiga þau tvö börn,
Hönnu Kristínu og Pétur Stein.
Fyrir átti Sigurdís dótturina
Heiðar árið 2000. Leiðir þeirra
skildi.
Sigríður ólst upp á Grenimel í
Vesturbæ Reykjavíkur, gekk í
Melaskóla og lauk síðan gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla
Austurbæjar. Hún starfaði við
skrifstofustörf hjá ýmsum fyrir-
tækjum í Reykjavík, sótti ensku-
námskeið í Englandi og stundaði
nám í húsmæðraskóla í Vording-
borg í Danmörku. Hún starfaði
um átta ára skeið sem flugfreyja
hjá Loftleiðum og síðar sem
starfsmaður Loftleiða í flugstöð-
inni í Keflavík. Hún tók mikinn
þátt í félagsstarfsemi flugfreyja,
starfaði m.a. með Svölunum að
ýmsum góðgerðarmálum.
Eftir að Tómas fæddist keypti
Sigríður íbúð að Hjaltabakka í
Breiðholti þar sem hann ólst upp
við nám og íþróttaiðkun og lauk
síðan prófi í rekstrarhagfræði
við Tækniskólann í Reykjavík.
Eftir að Tómas fór að heiman
flutti Sigríður í Asparfell 12 og
þaðan í Kleifarsel 14 þar sem
varð heimili hennar þar til hún
flutti í Skógarbæ.
Útför Sigríðar verður gerð
frá Seljakirkju í dag, 21. október
2016, og hefst athöfnin klukkan
15.
Maríu Björk sem
Pétur gekk í föð-
urstað. 3) Helga
Björnsdóttir, f.
1947, og 4) Björn
Logi Ísfoss (áður
Björnsson), f. 1956,
kvæntur Katarínu
Ísfoss, f. 1970, og
eiga þau tvö börn,
Örnu Elísabetu og
Gunnar Loga. Fyrir
átti Björn tvö börn
úr fyrri hjónaböndum, Brynhildi
með Steinunni Birnu Ragn-
arsdóttur og Björn Flóka með
Petrínu Sæunni Nathanaels-
dóttur. Björn og fjölskylda búa í
Noregi.
Sigríður eignaðist soninn
Tómas Björnsson, f. 4. ágúst
1969, d. 29. júlí 2007. Faðir Tóm-
asar er Ronald D. Dowell, bú-
settur í Bandaríkjunum. Eig-
inkona Tómasar var Heiðdís
Lilja Magnúsdóttir, f. 1972, og
eignuðust þau soninn Daníel
Sidda var nánasta systkin
mitt, þótt aldursmunurinn hafi
verið heil nítján ár. Hún mun að
sumu leyti hafa verið mér sem
önnur móðir fyrstu árin þegar
mamma hafði takmarkaða
heilsu en með fimm börn.
„Fyrirgefðu að ég er ekki
eins og ég var,“ sagði Sidda við
mig fyrir nokkrum árum. Fal-
lega sagt og ber vott um tillits-
semi og umhyggju, kostir sem
voru hennar aðalsmerki. Hún
vissi hvað hún var að segja, því
á árum áður var hún glöð og
glæsileg og tók mikið frum-
kvæði, en um þetta leyti ein-
kenndist líf hennar af hrakandi
heilsu og sorg. Allan tímann
höfðum við Sidda sama bilaða
skopskynið. Ég man eftir hlátr-
inum þegar við göntuðumst
hvort við annað á þann hátt sem
ekki allir skilja. Við sögðum
alltaf hug okkar hvort við ann-
að.
Sterkustu minningar mínar
um Siddu eru síðan ég var á að
giska 6-10 ára. Flugfreyjuárin
voru í mínum augum óskapleg
gæfa sem hafði lent á fjölskyld-
unni. Í ferðatöskunni var ým-
islegt spennandi að finna, ef
maður fékk leyfi til að leita:
Mars-súkkulaði! Amerískt
tyggigúmmí! Smarties! Það er
ekki hægt að gleyma svona.
Sidda var gjafmild, sankaði ekki
að sér munum en gaf gjarnan.
Uppstoppaðan allígator fékk ég
frá henni þegar hún kom frá Pú-
ertó Ríkó. Það var status. Öðru
sinni kom upp úr ferðatöskunni
nokkuð sem mun endast mér líf-
ið út: plötur með Dizzy On The
French Riviera (1962), frábær
Stan Getz og Bossa Nova, þá
allt splunkunýtt. Í dag hef ég
þessa tónlist með mér á ferða-
lögum, minnir mig á „jazzy“
systurnar Siddu og Dagnýju.
Það verður aldrei ofsagt hversu
mikið Dagný og Ragnar hafa
hlúð að Siddu síðustu árin.
Sidda var einstök að því leyti
að hún mundi ekki aðeins eftir
afmælisdögum heldur sendi hún
minnstu börnunum mínum í út-
landinu afmælisgjafir og páska-
egg-brotin-í-pósti alveg þangað
til hún gat ekki lengur skrifað á
umslag. Hún baðst afsökunar á
skriftinni síðustu árin og bréfin
urðu styttri. Þau voru að sjálf-
sögðu handskrifuð. Hún sagðist
ekki hafa tölvu en hún hefði
„hins vegar bakarofn“. Þegar ég
var í sérnámi erlendis komu
pakkar með samanhnýttum
bunkum af Morgunblaðinu. Síð-
ar komu blaðaúrklippur, fréttir
sem tengdust því sem ég var að
aðhafast og af öðru því sem
henni fannst að ég ætti að vita
(síðast 2012 um ríkisfjármál).
Vísindarannsóknirnar mínar
ætlaðist hún til að ég gæti út-
skýrt þannig að hún skildi. Hví-
lík Guðs gjöf að hafa grúskara í
fjölskyldunni. Það minnti á
mömmu heitna sem las og til-
einkaði sér margt nýtt.
Þegar ég stofnaði til nýrrar
fjölskyldu á Norðurlöndum
heimsótti Sidda okkur á mikil-
vægum tímamótum, þrátt fyrir
þau kröppu kjör sem hún bjó
við. Einnig var hún gestrisin
þegar hún rak mötuneyti á hót-
eli úti á landi – hún kenndi til
dæmis sænskri konu minni að
baka íslenskt rúgbrauð við góð-
ar undirtektir. Litlu börnin mín
hér úti, Arna og Gunnar, elsk-
uðu Siddu, þau segja að hún hafi
verið góð manneskja og eru
sorgmædd yfir brotthvarfi
hennar. Sidda gaf mér gott
veganesti í lífinu. Ég verð alltaf
litli bróðir hennar. Megi hún nú
vera sæl með Tomma sínum.
Björn Logi Isfoss (áður
Björnsson), Noregi.
Góð vinkona okkar, Sigríður
Björnsdóttir (Sidda), er látin og
er þar brostinn hlekkur í
saumaklúbbskeðjunni okkar,
sem við stofnuðum 1956, svo að
vinskapurinn nær yfir sextíu ár.
Sidda er önnur vinkona okkar
úr klúbbnum sem fellur frá. Hin
var Rósa Þorsteinsdóttir sem
lést fyrir allmörgum árum.
Sidda var dugnaðarforkur og
kom víða við, vann t.d. sem
einkaritari, flugfreyja, matráðs-
kona auk ýmissa annarra starfa
sem hún gegndi. Hún hafði
mjög skemmtilegt skopskyn
sem við nutum oft vel.
Síðustu árin voru Siddu okk-
ar erfið og átti hún við vanheilsu
að stríða.
Við minnumst hennar með
virðingu og þökk og vottum
Daníel, sonarsyni hennar, og
fjölskyldunni allri samúð okkar.
Við þökkum samfylgd á lífs-
ins leið
Þar lýsandi stjörnur skína
og birtan himnesk björt og heið
hún boðar náðina sína
en Alfaðir blessar hvert ævinnar
skeið
og að eilífu minningu þína.
(Vigdís Einarsdóttir)
Hvíl í friði kæra vinkona
Ásdís, Guðný, Herdís,
Hulda, Inga, Sigrún og
Valgerður (Valgí).
Sigríður
Björnsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Við kveðjum þig elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
(Halldór Jónsson frá
Gili.)
Daníel Heiðar Tómasson.
✝ Guðrún Hólm-fríður Björg-
ólfsdóttir fæddist í
Reykjavík 23. júní
1955. Hún lést á
líknardeild LSH í
Kópavogi 16. októ-
ber 2016.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Björgólfur Sig-
urðsson, f. 31.
ágúst 1915, d. 22.
mars 1972, og Kristín Helga
Sigmarsdóttir, f. 7. apríl 1923,
d. 26. febrúar 2010. Saman
áttu Björgólfur og Kristín einn-
janúar 1931, d. 9. desember
1968, og Hlíf Petra Valdimars-
dóttir, f. 3. júlí 1932, d. 29.
mars 2015.
Allan sinn búskap bjuggu
þau Valdimar í Reykjavík. Guð-
rún og Valdimar eignuðust tvö
börn. Þau eru 1) Gunnar Ingi,
f. 1. janúar 1987. Unnusta hans
er Katrín Harpa Ásgeirsdóttir
og saman eiga þau Kristin Pál,
en Gunnar á Hrafnhildi Sif frá
fyrra sambandi. 2) Kristín
Helga, f. 10. mars 1992.
Guðrún kláraði gagnfræði-
próf frá Ármúlaskóla árið
1971. Guðrún starfaði m.a. hjá
Tryggingastofnun ríkisins,
Samvinnutryggingum og Land-
spítalanum – háskólasjúkra-
húsi.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 21. októ-
ber 2016, klukkan 15.
ig Inga Þór, f.
1946, Guðbjörn, f.
1952, og Björgólf,
f. 1961. Þar að
auki átti Björg-
ólfur Þórunni, f.
1938, en hún lést
árið 1999. Seinni
maður Kristínar
var Herluf Clau-
sen, f. 1926, d.
2011. Árið 1983
kynntist Guðrún
eftirlifandi eiginmanni sínum,
Valdimar Gunnarssyni, f. 15.
janúar 1951. Foreldrar hans
voru Gunnar B. Jónsson, f. 3.
Elsku Gunna, nú eru liðin
rúm 50 ár frá því að leiðir okk-
ar lágu fyrst saman er þú flutt-
ir með fjölskyldu þinni að
Laugarnesvegi 100 en ég bjó á
Laugarnesvegi 102 í sömu
blokk. Þú varst þá 10 ára en ég
13 ára. Þú og Þorbjörg systir
mín voruð á svipuðum aldri og
urðuð fljótlega góðar vinkonur.
Þið vinkonurnar brölluðuð
margt saman og þegar fram
liðu stundir þá fannst ykkur al-
veg upplagt að reyna að koma
mér og Bjössa bróður þínum
saman en við vorum á sama
aldri. Ykkur varð svo sannar-
lega að ósk ykkar því að við
Bjössi kynntumst og fórum að
vera saman rúmum tveimur ár-
um síðar og erum gift í dag.
Það má því segja að þú hafir
verið nokkurs konar örlaga-
valdur í lífi mínu.
Þú ólst upp með þremur
bræðrum þínum og varst eina
systirin og það var örugglega
ekki alltaf auðvelt en þú varst
jafnframt augasteinn pabba
þíns og misstir því mikið þegar
hann dó fyrir aldur fram árið
1972. Þú varst alltaf mikið fyrir
fjölskylduna og þegar við
Bjössi eignuðumst okkar fyrsta
barn, Valgerði Kristínu, eða
Völlu Stínu eins og hún var
alltaf kölluð, árið 1974 þá varst
þú ekki komin með nein börn
og Valla Stína naut svo sann-
arlega þess að eiga Gunnu
frænku því þú dekraðir við
hana og gafst henni gjafir þeg-
ar þú komst í heimsókn og ekki
var það leiðinlegt að fara í bæ-
inn eða niður að tjörn með
Gunnu frænku. Svo þremur ár-
um seinna þegar Sonja Björg
okkar fæddist þá naut hún
einnig gjafmildi Gunnu frænku.
Síðan liðu árin og þú kynnt-
ist Valdimari og eignaðist þína
eigin fjölskyldu og Gunnar Ingi
og Kristín Helga nutu þess að
eiga mömmu sem var vakin og
sofin yfir velferð þeirra. Einnig
nutu litlu barnabörnin, þau
Hrafnhildur Sif og Kristinn
Páll, þess að eiga góða ömmu
sem vildi gera allt fyrir litlu
augasteinana sína.
Elsku Gunna, þú varst ekki
mikið fyrir að berast á og settir
sjaldan sjálfa þig í forgrunninn
þó svo að þú værir ákveðin og
vildir hafa stjórn á hlutunum
þá hugsaðir þú fyrst og fremst
um fjölskylduna og það kom
mjög skýrt í ljós í veikindum
þínum. Þú varst alltaf svo sterk
og æðrulaus og það var alveg
aðdáunarvert að sjá hversu já-
kvæð þú varst og gast alltaf séð
það jákvæða í öllu, jafnvel
þannig að maður gleymdi því
hversu veik þú varst.
Hvíl þú í friði, elsku Gunna
mín, og ég bið þess að algóður
Guð vaki yfir fjölskyldu þinni
og veiti þeim styrk.
Þín mágkona,
Selma.
Guðrún Hólmfríð-
ur Björgólfsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Elsku besta amma okk-
ar.
Takk fyrir allar góðu
stundirnar sem við áttum
saman, minning þín lifir í
hjörtum okkar.
Sæt er heit og saklaus ást,
sárt er hana að dylja.
Eins og það er sælt að sjást,
sárt er líka að skilja.
(Páll Ólafsson)
Þín barnabörn,
Hrafnhildur Sif
og Kristinn Páll.
EGGERT JÓNSSON,
fv. borgarhagfræðingur,
sem lést 11. október, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 24.
október klukkan 13. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á Mæðrastyrksnefnd.
.
Tómas Guðni Eggertsson,
Eiríkur Áki Eggertsson
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, dóttir og systir,
ALDA RÓS ÓLAFSDÓTTIR,
kennari og bókhaldari,
lést 17. október 2016 á Landspítalanum við
Hringbraut eftir langvarandi veikindi.
Alda verður jarðsungin frá Vídalínskirkju fimmtudaginn 27.
október klukkan 15.
.
Elías Guðmundsson,
Elín Rut Elíasdóttir, Birnir Sveinsson,
Ragnhildur D. Elíasd., Ásgeir Halldórsson,
Halldór Ingi Elíasson,
Karítas Alda Ásgeirsd.,
Karítas Haraldsdóttir, Ólafur I. Rósmundsson,
Ólafur Már Ólafsson, Sigríður S. Óskarsdóttir,
María Erla Ólafsdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐVEIG BJARNADÓTTIR
frá Skaftafelli í Öræfum,
lést á dvalarheimilinu Grund að morgni
miðvikudags 19. október. Jarðarför auglýst
síðar.
.
Sigurður, Þorsteinn, Bjarni, Heiðar, Guðlaug
og fjölskyldur.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR,
Roðasölum 1, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
19. október. Jarðarförin verður auglýst
síðar.
.
Einar Stefánsson,
Tryggvi Stefánsson, Margret G. Flóvenz,
Erna Stefánsdóttir, Hrafn Hilmarsson,
Guðbjörg Sigrún Stefánsdóttir, Oddur Árnason
og fjölskyldur.
Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka,
ÞORBJÖRG BERGSTEINSDÓTTIR
frá Ási,
(Tobba),
sem lést á hjúkrunarheimilinu Dyngju
mánudaginn 3. október verður jarðsungin
laugardaginn 22. október klukkan 11. Athöfnin fer fram frá
Egilsstaðakirkju en jarðsett verður á Ási. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á styrktarsjóð HHF vegna Dyngju eða Hollvina-
samtök Sjúkrahússins á Seyðisfirði (HSSS).
.
Þorbjörn Bergsteinsson,
Jón Bergsteinsson, Birna Stefánsdóttir,
Ásta Magnúsdóttir,
systkinabörn og fjölskyldur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
SIGURÐUR JÓHANNESSON,
Skúlagötu 20,
áður Litlagerði 11,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir 19. október.
Útför auglýst síðar.
.
Erla Jóna Sigurðardóttir,
Kristrún Sigurðardóttir,
Hannes Gunnar Sigurðsson
og fjölskyldur.