Morgunblaðið - 21.10.2016, Page 72

Morgunblaðið - 21.10.2016, Page 72
72 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 ✝ Auður Þórðar-dóttir fæddist í Flatey á Breiða- firði 19. júní 1925. Hún lést í Kópa- vogi 11. október 2016. Foreldrar henn- ar voru hjónin Þorbjörg Sigurð- ardóttir, f. á Brjánslæk í V-Barðastrandar- sýslu 26.10. 1899, d. 27.3. 1987, og Þórður Valgeir Benjamíns- son, f. í Flatey á Breiðafirði 2.8. 1896, d. 10.10. 1985. Þórð- ur og Þorbjörg bjuggu lengst af í Hergilsey og ólst Auður þar upp. Árið 1946 fluttu þau í Flatey en síðast bjuggu þau í Stykkishólmi. Auður var fimmta barn í hópi sextán systkina en hin voru: Valborg Elísabet, f. 1918, d. 2008; Sigurður, f. 1920, d. 1975; Dagbjört Guðríður, f. 1921, d. 2013; Björg Jóhanna, f. 1923; Benjamín f. 1927, d. 2013; Guðmundur Sigurður, f. 1928, d. 2004; Ari Guðmundur, f. 1929; Sigríður Hrefna f. 1931, d. 1945; Jóhannes, f. 1932, d. 2010; Guðbrandur, f. 1933; Ásta Sigrún, f. 1937; Ing- unn, f. 1939; Gunnar, f. 1940, d. sama ár; Gunnar Þórbergur, f. 1942, d. 1969, og Sigurbjörg, f. 1945. Á átjánda ári fór Auður fyrst til Reykjavíkur og var þar í vist Guðjónsson og eiga þau tvö börn, en af fyrra hjónabandi á Sigurbjörn tvö börn með Þóru Guðbjartsdóttur. 6) Björk Svanfríður, f. 29.9. 1966. Björk á tvö börn með fyrrverandi eiginmanni sínum, Marteini Sverrissyni, en með fyrri maka, Lárusi Sigmundssyni, átti hún dóttur. Auður og Guðjón bjuggu á Flateyri eftir að Guðjón lauk námi en fluttu árið 1951 til Hafnarfjarðar og hóf Guðjón verslunarrekstur í Reykjavík. Vegna starfa Guðjóns fluttu þau árið 1953 í Búðardal þar sem hann tók við stöðu kaup- félagsstjóra. 1959 fluttu Auður og Guðjón í Kópavog og bjuggu þar í eitt ár en árið 1960 flutti fjölskyldan austur á Vopna- fjörð þar sem Guðjón varð kaupfélagsstjóri. Guðjón tók síðan við stöðu kaupfélags- stjóra á Akranesi árið 1964 en árið 1966 fluttu þau til Reykja- víkur og bjuggu þar eftir það. Auður sinnti ætíð heimili og húsmóðurstörfum en eftir að yngstu börnin voru komin á legg fór hún einnig að vinna utan heimilis, fyrst í þvottahúsi Ríkisspítalanna en síðan hjá Sjálfsbjörgu í Reykjavík. Guð- jón lést tæplega 51 árs að aldri, þá voru fjögur yngstu börnin enn í foreldrahúsum. Auður bjó áfram í Reykjavík og sinnti heimili og vinnu en flutti síðar í Kópavog. Síðustu æviárin bjó Auður á Boðaþingi 5-7, Hrafnistu, í Kópavogi. Útför Auðar verður gerð frá Kópavogskirkju í dag, 21. októ- ber 2016, og hefst athöfnin klukkan 15. á veturna en fór vestur í eyjar á sumrin til að að- stoða foreldrana. Síðar lærði hún og starfaði m.a. á klæðskerastofu föðurbróður síns, Guðmundar Benja- mínssonar í Reykjavík. Auður giftist 17.4. 1949 Guðjóni Ólafssyni, f. 1. nóvember 1925, d. 3. júlí 1976. Foreldrar hans voru hjónin Ólafur G. Sigurðs- son, f. 30.8. 1879, d. 7.5. 1948, kennari að Hjarðarholti í Döl- um, lengst af hreppstjóri og fulltrúi sýslumanns á Flateyri við Önundarfjörð, og Valgerð- ur Guðmundsdóttir, f. 26.9. 1893, d. 1.11. 1968. Auður og Guðjón eignuðust sex börn: 1) Ólafur Guðmund- ur, f. 15.10. 1948, maki Ragn- heiður Baldvinsdóttir, þau eiga þrjú börn og tvö barnabörn. 2) Þórir, f. 8.12. 1950, maki Sig- ríður Ólafsdóttir og eiga þau tvær dætur og þrjú barnabörn, með fyrri maka, Ernu Reinhardtsdóttur, átti Þórir son og á hann eina dóttur. 3) Lúðvík, f. 19.8.1954, maki Jó- hanna Bjarnadóttir og eiga þau fimm börn og fjögur barna- börn. 4) Valgerður Þorbjörg Elín, f. 18.4. 1958, maki Kristín Sævarsdóttir. 5) Sigurbjörn, f. 31.10. 1959, maki Benedikte Elskulega móðir mín, alþýðu- stúlkan frá Hergilsey, er horfin úr þessu lífi. Fimmta í röð sex- tán systkina sem foreldrar henn- ar eignuðust á um 27 árum. Það var líklega ekki mjög flókið lífið í Hergilsey en lífsbaráttan var hörð og öll þurftu þau að taka þátt í störfum fyrir heimilið, úti eða inni. Þegar hún fór að heim- an þá hófst það eins og hjá mörgum hennar systkina með vetrarvinnu í Reykjavík en hún gat ekki bundið sig yfir sumarið, því þá þurfti hún vestur til að að- stoða við störfin. Hugur og hönd störfuðu vel saman við hvaðeina sem mamma tók sér fyrir hendur. Svo sérdeil- is vandvirk var hún við allt. Henni fannst ekki taka því að byrja á einhverju ef ekki átti að skila vel unnu verki. Þannig kenndi hún líka okkur systkinum að vinna. Traust í orði og verki. Minningarnar eru margar lýs- andi. Lundaveiðitími í Flatey, krökkum hafði verið sagt að þau fengju bátstúr er veiðifólkið kæmi til baka. Þegar til kom ætl- aði ekkert að verða af því að börnin fengju sína bátsferð. Auð- ur tók sig þá til og fór með hóp- inn á trébátnum vel út fyrir höfn og við dorguðum og skemmtum okkur. Ég hef ekki skilið í því hvernig hún, sem ekki var vön slíkum átökum að róa í straumi, gat gert svo fínan túr fyrir okkur öll sem vorum með. Hún hafði hugrekki og dirfsku. Mamma var mikil dama í sér og naut þess að klæða sig upp á og með sitt dökka hörund og dimmbrúnu augu, fór það henni sérlega vel að skarta gylltu. Ég leyfði mér stundum að gantast með það við hana að hún væri glysgjörn svipað og hrafninn. Samt var hún svo hógvær og gerði ekki kröfur fyrir sjálfa sig, þó að hún kynni sannarlega að njóta gæðanna þegar þannig bar undir. Í uppvextinum ferðaðist fjöl- skyldan töluvert um landið á sumrin og skyldi ég síst í öllum þeim fróðleik sem þulinn var upp fyrir okkur í aftursæti bílsins. Bæði voru foreldrar mínir vel að sér og þeim þótti líklega ljúft og skylt að fræða börnin og víkka sjóndeildarhring þeirra. Heimil- ið var rólegt og yndislegt sem foreldrar mínir áttu og þó hugs- anlega megi segja að það hafi verið mulið undir okkur systkin, þá gerðu þau kröfur um að við stæðum okkur jafnt í leik og starfi. Það þurfti engan hávaða til að skilaboðin næðu fram. Pabbi lést það ungur að ég hafði ekki hugsað til þess þá en hef séð það síðar, að samlyndi þeirra mömmu hefur verið gott því aldrei heyrði ég þau þræta. Hafi einhvern tíma verið um ágrein- ing að ræða héldu þau öllu slíku eingöngu sín á milli. Mamma hefur verið einhver sú besta fyrirmynd sem hægt er að hugsa sér, ávallt kurteis og hógvær, hallaði aldrei orði á nokkra manneskju svo ég viti til. Traust, dagfarsprúð og hugljúf, vildi öllum vel og sú fordóma- lausasta manneskja sem ég hef fyrir hitt. Síðustu árin naut hún þess að við gerðum hversdagslega hluti saman og ef hún gat haft eitt- hvað fyrir stafni og gert gagn í leiðinni. Eða jafnvel bara að fá félagsskap í formi heimsókna þá þótti henni ljúft að við gátum les- ið saman góðar bækur, hvort sem það voru ævisögur eða frá- sagnir úr Breiðafjarðareyjum. Síðasta skip suður var í sérstöku uppáhaldi. Móðir hefur líklega einn mik- ilvægasta sess í lífi hverrar manneskju, sá sess verður enda- laust tómur eftir fráfall hennar og engin fyllir það skarð. Minn- ingin lifir áfram og veitir birtu og yl, þótt sorgin knýi nú dyra. Elsku mamma, takk fyrir allt sem þú gafst mér og allt sem þú varst mér. Valgerður Þorbjörg Elín. Í dag kveð ég tengdamóður mína Auði Þórðardóttir sem lést á hjúkrunarheimilinu Boðaþingi þann 11. október síðastliðinn á 92. aldursári. Hún var örugglega frelsinu fegin og södd lífdaga. Hún nefndi það oft við mig að það væri agalegt að verða svona gamall. Hún bar sig þó alltaf vel. Það kemur margt upp í huga mér eftir tæplega 50 ára sam- fylgd með Auði. Ég bjó á heimili Auðar og Guðjóns á fyrstu hjúskaparárum okkar Óla og vorum við þá komin með okkar fyrsta barn. Það var bara sjálfsagt í þá tíð ef ég vildi gera mér það að góðu á meðan Óli var að klára sitt nám. Fyrir var átta manna fjölskylda. Ég átti ágæta sambúð með þeim hjónum og þótti ekki til- tökumál þótt bættust tveir í hóp- inn enda oft gestkvæmt hjá þeim og þau höfðingjar heim að sækja. Á þessum tíma bjuggu þau á Otrateigi 2. Vegna atvinnu Guð- jóns höfðu þau búið á ýmsum stöðum á landinu. Auði fannst komið nóg af búferlaflutningum. Þó svo að heimilið væri stórt gáfu þau sér tíma til að fara í leikhús og eins þótti þeim gott að fara til sólarlanda. Það var Auði erfiður tími þegar Guðjón lést eftir erfið veikindi aðeins 51 árs að aldri. Þá reyndi mikið á og við Óli vorum henni innan handar. Auður sá vel um heimilið sitt. Allt sem Auður gerði var af myndarskap, vandvirkni og ná- kvæmni. Hún var hæglát og fróðleiksfús, flýtti sér aldrei að hlutunum og horfði oft vel á fólk áður en hún sagði eitthvað. Hún hafði léttan húmor og þótti mér gaman þegar hún laumaði ein- hverju út úr sér. Minnisstætt er mér broslegt atvik þegar ég var að hjálpa Auði við kleinubakstur og sagði við hana: „Mikið eru þær litlar og fínar, kleinurnar þínar.“ Hún leit á mig, litla og frekar þybbna, og sagði: „Já, hann Ólafur vill hafa þær litlar og þybbnar“ og brosti. Oft var líka gaman að sitja með systrunum Dæju, Auði og Valborgu og hlusta á tal þeirra um gamla daga. Við fórum oft saman í Flatey og eitt sinn voru Dæja og Björg að þurrka dún. Þær fóru nú hraðar en Auður og kappið var mikið. Auður sagði þeim að þær yrðu bara geðvond- ar á að fara svona snemma á fæt- ur. Þeim hugnuðust ekki þau orð Auðar en hún hló bara við. Það var dásamlegt að sjá hve vel fór um ungbörn í faðmi Auð- ur. Það var mjög sérstakt. Þá eiga vel við ljóðlínur úr kvæði Davíðs Stefánssonar: Við móðurbrjóstið börnin fá Þá bestu gjöf sem lífið á. Það eru margar og góðar minningar og margs er að minn- ast með henni Auði. Hún vildi alltaf vel og var friðsöm mann- eskja. Ég þakka þér af alúð fyrir samfylgdina og bið þér blessun- ar. Ragnheiður (Heiða). Mig langar í nokkrum orðum að minnast tengdamóður minn- ar, Auðar Þórðardóttur, sem nú hefur kvatt okkur. Ég kynntist Auði fyrir rúmum tuttugu árum þegar ég kom inn í fjölskyldu hennar. Hún fór sér að engu óðs- lega í að kynnast mér og sagði ekki margt en þannig var hún, hún var ekki kona margra orða. Hún sýndi hins vegar væntum- þykju og hlýju í gjörðum sínum með því að rölta við hjá okkur, dóttur sinni og mér, eða með því að bjóða okkur í mat eða kaffi þegar við bjuggum í göngufjar- lægð frá hvor annarri, fyrst í Vogunum í Reykjavík og síðar í Suðurhlíðum Kópavogs. Með ár- unum styrktist samband okkar og vináttan varð dýpri og það er óhætt að segja að við höfum brallað margt saman á undan- förnum árum og átt margar stundir þar sem við höfum rætt um mikilvæga þætti í lífi okkar beggja og um fólkið hennar. Hún sagði mér margt frá lið- inni tíð þegar ég rakti úr henni garnirnar en almennt var hún ekki mikið að velta sér upp úr fortíðinni. Hún lifði í núinu. Svo áttum við það auðvitað sameig- inlegt að vera jafnaðarkonur og fórum stundum saman í kosn- ingakaffi og aðventukaffi og þá var oft gaman að gæða sér á bakkelsinu og spjalla um pólitík- ina. Við fórum saman til útlanda fyrir nokkrum árum og þá þótti henni þægilegt að geta verið í hjólastól á flugvöllunum þar sem eru langir gangar sem þreyta lúna fætur. Ég brosi enn þegar ég minnist þess þegar Auður, í stað þess að biðja mig að stoppa hjólastólinn, greip í eina hilluna um leið og ég ýtti stólnum áfram því þar var eitthvað sem hún vildi krækja sér í. Hún var nota- legur ferðafélagi og hafði sér- staka ánægju af því að fara til sólríkari landanna til að baða sig í sólinni og njóta lífsins, innan um liti og skraut sem hún kunni að meta. Eftir að sjónin var orðin of lítil til lestrar hafði Auður gaman af því að hlusta á hljóðbækur og horfa á tónleika og henni fannst sérstaklega notalegt þegar við nenntum að lesa upphátt fyrir hana upp úr bókum. Á meðan Dæja systir hennar lifði lásum við fyrir þær systur og það voru dýrmætar stundir fyrir okkur allar. Auður var einstök, hún hallaði aldrei orði á nokkra manneskju og tók fólki eins og það var. Það versta sem ég heyrði hana segja um annað fólk var: „Ég hef aldr- ei kunnað vel við hana.“ og það var aðeins einu sinni. Auður var helst til of lítillát, gerði ekki miklar kröfur á samferðafólk eða á lífið almennt en var ávallt reiðubúin að hlusta eða hjálpa ef eitthvað bjátaði á hjá fólkinu hennar. Auður hefur dvalið hjá okkur Valgerði á jólunum í a.m.k 12 ár og saman höfum við Auður stað- ið vörð um ákveðnar hefðir sem tengdust jólamatnum því við átt- um það sameiginlegt að vera miklir sælkerar og tókum enga áhættu þegar jólamáltíðin átti í hlut. Það verður sérstakt og tóm- legt að halda jól án hennar ljúfu samveru og víst er að hennar verður sárt saknað. Ég kveð ekki aðeins tengda- móður, heldur líka kæra vinkonu og þakka fyrir dýrmætar sam- verustundir, góðvild og vináttu. Minningin mun lifa. Kristín Sævarsdóttir. Ein af bestu minningum mín- um frá barnæsku var í Flatey á Breiðafirði, þar sem amma mín Auður ólst upp, í Vesturbúðum. Því fleiri sem voru í húsinu á sama tíma, þeim mun skemmti- legra var þar að vera. Við fórum á nær hverju sumri í leitir, þar sem við söfnuðum saman æðar- dún úr eyjunum í kring og þegar í Flatey var aftur komið höfðu amma og Dæja frænka eldað fyrir okkur dýrindis máltíð eða bakað fyrir okkur ritueggja- pönnukökur. Við amma röltum stundum niður í Vog eða út á bryggju, þó ekki endilega til að taka á móti neinum, heldur bara til að stytta okkur stundir. Frá- sögn hennar af æskunni og dvöl hennar í Flatey á árum áður þykir mér enn í dag svo merkileg Amma bjó í Laugarnesinu þegar ég var lítil og man ég eftir húsinu hennar í smáatriðum. Þarna hélt amma jólaboð hvern jóladag fyrir stórfjölskylduna og þegar flest var vorum við um 20 talsins. Jólin voru og eru enn uppáhaldstími minn og held ég að hann hafi einnig verið uppá- haldstíminn hennar ömmu. Hún byrjaði að baka snemma í des- ember upp undir sjö sortir af smákökum. Betri smákökur hef ég ekki bragðað. Vanilluhringir, spesíur, súkkulaðibitakökur, pip- arkökur, gyðingakökur og svo lengi mætti telja. Amma bakaði einnig mikið af kleinum, soðkök- um og laufabrauð með kúmeni sem eiga enga sinn líka. Ég gerði mér oft ferð til ömmu í desember þegar hún flutti í Ljósheimana og hjálpaði henni að baka. Oftar en ekki sendi hún mig heim með box af öllum sortum. Allt sem hún amma gerði, gerði hún vel. Hvort sem það var að baka, elda eða sauma út. Ég á nokkra hannyrðagripi frá henni sem mér þykir afskaplega vænt um. Hver hlutur er unninn af svo mikilli natni og þolinmæði að ég skynja þá ró sem hún bjó yfir við það eitt að horfa á þá. Snyrtimennska var í hávegum höfð hjá henni ömmu og minnist ég einna helst allra pelsanna sem hún átti og bar svo vel, fallegu silkiklútana í stíl við fagurbleiku lökkuðu neglurnar sem hún hugsaði svo vel um. Ég man allt- af þegar hún og Dæja frænka komu í brúðkaupið mitt árið 2008, hún í fallegasta minka- pelsnum sínum og Dæja með stóran hvítan hatt í hvítri dragt. Þær voru svo yndislegar báð- ar tvær. Ég er svo þakklát fyrir það að maðurinn minn og börnin mín hafi fengið að kynnast þeim báðum. Ég vill trúa því að nú fáið þið systur ykkur spesíur og kaffibolla saman ásamt systkin- um ykkar, mökum og foreldrum sem þegar hafa fallið frá. Ég trúi því að nú líði ömmu vel og vænti þess að hún fylgist með okkur hinum fara að hennar fordæmi þegar kemur að um- hyggju og þolinmæði. Þar til við hittumst næst mun ég alltaf sakna þín. Undir háu hamrabelti höfði drúpir lítil rós. Þráir lífsins vængja víddir vorsins yl og sólarljós. Ég held ég skynji hug þinn allan hjartasláttinn rósin mín. Er kristallstærir daggardropar drjúpa milt á blöðin þín. Æsku minnar leiðir lágu lengi vel um þennan stað, krjúpa niður kyssa blómið hversu dýrðlegt fannst mér það. Finna hjá þér ást og unað yndislega rósin mín. Eitt er það sem aldrei gleymist, aldrei, það er minning þín. (Guðmundur G. Halldórsson.) Hrafnhildur Þórisdóttir. Amma Auður, eða amma á Otró eins og við kölluðum hana í gamla daga er fallin frá eftir langa ævi. Við systkinin vorum þeirrar gæfu aðnjótandi að búa í Laug- arnesinu eins og amma, það var alltaf stutt að hlaupa til hennar á Otrateiginn. Það var líka mjög gott að koma við á Otrateig eftir sundferð í Laugardagslaugina og fá smákökur og mjólk. Amma átti iðulega smákökur, jólasmá- kökur, sama á hvaða árstíma maður kom til hennar. Amma naut þess að vera í sól- inni og mikið öfundaði ég hana alltaf af hvað sólin náði að gera hana brúna, hvort sem hún sat á svölunum, í sundlaugunum eða fór til Spánar. Spánarferðir ömmu eða öllu heldur heimkom- urnar eftir Spánardvöl voru til- hlökkun og eru minnisstæðar. Spennan við að sjá hvað kæmi upp úr töskunum var mikil. Amma lét oftast gamminn geysa í postulínsbúðunum á Spáni og kom heim með hverja styttuna af fætur annarri og alls konar glingur og dinglumdangl. Það var líka þá sem spennan var mik- il eftir að fá nammi, þá sérstak- lega Mackintosh-konfektið. Amma var mikið fyrir góðan mat og sætabrauð. Hún hélt sig við gamlar hefðir en hafði einnig gaman af að prófa nýjungar. Á gamlárskvöld eitt sinn í Sigtúni bauð ég henni upp á lasagne sem hún kunni afskaplega vel við. Held það hafi verið sama kvöldið og ég blandaði fyrir okkur nöfn- urnar romm og kók. Amma var nokkur gamlárskvöld hjá okkur fjölskyldu minni í Grafarvogin- um. Gaui bróðir bauð upp á sushi í forrétt með öllu tilheyrandi, amma hafði gaman af að borða það og hlæjum við enn að því þegar hún smurði svo wasabi á kalkúninn líka án þess að blikna. Amma var ansi flink í hönd- unum. Hún saumaði fermingar- fötin mín, prjónaði ungbarna- teppi og sokka á börnin mín, málaði á dúka sem ég á enn og gaf okkur hjónunum handmálað- an postulínsvasa í brúðkaupsgjöf sem sómir sér vel hjá okkur. Í Boðaþingi lærði hún að tálga og gerði það listavel en varð svo að hætta því þegar sjónin gaf sig. Síðustu æviárin bjó amma á hjúkrunarheimilinu Boðaþingi. Þangað heimsótti ég hana reglu- lega og oftar síðustu ár og ekki bar á öðru en að henni liði vel þar og alltaf var tekið vel á móti nöfnunni þar. Ég veit að amma er hvíldinni fegin. Hún hefur sinnt sínu. Minningin lifir um góða, hæg- láta ömmu. Hvíldu í friði, elsku amma Auður, Auður Bára Ólafsdóttir. Auður Þórðardóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÖRN GEIRSSON, Gullsmára 9, Kópavogi, lést á líknardeild LSH í Kópavogi. Jarðarförin fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 24. október klukkan 13. . Kristjana Arnardóttir, Guðmundur Hagalín, Kristín Arnardóttir, Smári Björgvinsson, Örn Arnarson, Margrét Stefánsdóttir, Björk Arnardóttir, Hlíðar Kristjánsson, Sigfríð Eik Arnardóttir, Ómar Svavarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.