Morgunblaðið - 21.10.2016, Síða 76
76 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016
Ég ætla að halda rosa kvennapartí um helgina í tilefni dagsins,“segir Elín Jónína Bergljótardóttir sem á 40 ára afmæli í dag.„Það verða tveir karlar í skvísupartíinu, en þeir verða bara í
því að þjóna.“
Elín hefur ásamt manni sínum starfrækt hljómsveitina Bellstop í tíu
ár og eru þau að senda frá sér sína þriðju hljómplötu. „Við vorum að
klára að mixa og mastera hana og hún kemur út á næstu misserum.
Fyrsta lagið af plötunni kemur út á næstu vikum. Lagið Trouble af síð-
ustu plötu okkar „Karma“ gekk mjög vel sem og platan í heild sinni.
Netið er náttúrlega aðalmarkaður tónlistarmanna í dag og þar fer flest-
öll markaðssetning fram. Við erum einnig að vinna í að gefa út nýtt
myndband við lag af nýju plötunni.
Við bjuggum í Kína frá 2005 til 2011, fórum út til að upplifa eitthvað
nýtt og bjuggum til hljómsveitina og spiluðum út um allt. Við gáfum út
fyrstu plötuna þar 2009 og önnur plata okkar kom út 2013. Við höfum
hingað til ekki verið mikið á íslenskum markaði en mikið af hlustuninni
okkar kemur frá Kanada og Bandaríkjunum. Tónlistin okkar virðist
falla vel í kramið þar og við spiluðum á stórri tónlistarhátíð í Kanada í
fyrra sem heitir Folk & Blues festival. Við erum ýmist tvö ein eða með
hljómsveit, og á þessari nýjustu plötu okkar erum við með hljómsveit og
ætlum að spila með henni út um allt í kjölfar plötunnar.“
Eiginmaður Elínar er Rúnar Sigurbjörnsson, tónlistarmaður og múr-
ari, og synir þeirra eru Rúnar Breki 19 ára og Sindri Hrafn 12 ára.
Afmælisbarnið Tónlistarkonan verður glæsilegri með hverju árinu.
Stofnuðu hljóm-
sveitina í Kína
Elín Jónína Bergljótardóttir er fertug í dag
Ó
lafur Þór Thorlacius
fæddist í Reykjavík
21.10. 1936 og ólst þar
upp við Ránargötuna.
Ólafur var í Miðbæj-
arskólanum, í Gagnfræðaskólanum
við Hringbraut í JL-húsinu og loks
í Gaggó Vest í gamla Stýrimanna-
skólanum.
Ólafur æfði handbolta með FH,
lék 107 meistaraflokksleiki með fé-
laginu og varð sjö sinnum Íslands-
meistari með þeim. Hann keppti
einnig í körfubolta, fyrst með félag-
inu Gosa sem síðan hét KFR en það
lið gekk síðan inn í körfuboltadeild
Vals. Þar lék Ólafur fjölda meist-
araflokksleikja og var síðan þjálfari
deildarinnar. Þá lék hann með
fyrsta landsliði Íslands í körfubolta
og fór í fjölda keppnisferða, fyrst til
Danmerkur, árið 1959. Hann var
þjálfari körfuboltalandsliðsins um
skeið og leysti mág sinn, Jóhannes
Sæmundsson, af við leikfimikennslu
í MR.
Ólafur var nokkur sumur í sveit á
Smiðjuhóli á Mýrum: „Þetta var hjá
frændfólki okkar í móðurætt sem
var auðvitað besta fólk en sveitalífið
átti samt ekki við mig. Ég fór því
nánast beint úr sveitinni og á sjóinn
enda kominn af skipstjórn-
armönnum og öðrum sjómönnum í
báðar ættir. Ég var 15 ára er ég fór
fyrst til sjós og ævistarfið varð svo
viðloðandi sjómennsku nánast alla
tíð.“
Ólafur Þór Thorlacius kortagerðarmaður – 80 ára
Í góðum félagsskap Ólafur og Jóhanna með forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni sem er systursonur Ólafs.
Kortlögð strönd og mið
Eiginkona og dætur Ólafur og Jóhanna með þremur af fjórum dætranna.
Í dag er Hlöðver Guðmundsson bólstrari 90
ára. Af því tilefni býður hann vinum og
vandamönnum til samsætis og veitinga á
morgun, 22. október, í salnum Glæsigerði á
Hótel Örk í Hveragerði á milli kl. 15 og 18.
Allir velkomnir.
Árnað heilla
90 ára
Reykjavík Arney Emilía
Elithsdóttir fæddist 6. jan-
úar 2016 kl. 15.08. Hún vó
3.805 g og var 52 cm löng.
Foreldrar hennar eru Anna
Heiður Eydísardóttir og
Eliths Freyr Heimisson.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Hrein samviska í 25 ár
Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa@sorpa.is
B
ra
n
d
e
n
b
u
rg
|s
ía