Morgunblaðið - 21.10.2016, Qupperneq 79
DÆGRADVÖL 79
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Stundum verða alls kyns tafir á
hlutunum og þá er nauðsynlegt að gera sér
grein fyrir orsökum þeirra. Eðlishvötin hefur
ekki brugðist þér hingað til, svo þú getur
treyst henni.
20. apríl - 20. maí
Naut Notaðu tímann til þess að annast
sameiginlegar eignir og annað sem þú deilir
með öðrum. Seinna í dag leggjast allar
þessar góðu fyrirætlanir á eitt og verða að
einhverju raunverulegu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Láttu ekki ýmsa smámuni vefjast
svo fyrir þér að þú getir ekki sinnt því sem
máli skiptir. En það ástríkasta sem maður
getur gert er ekki endilega alltaf það auð-
veldasta.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft virkilega á einveru að halda
svo að þú getir fullkomnað ætlunarverk þitt.
Það kemur á óvart en er ekki augljóst.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er engin ástæða til þess að liggja
á skoðunum sínum, þótt alltaf sé nauðsyn-
legt að orða þær þannig að engan særi. Fyr-
ir alla muni ekki byrgja þær inni, það endar
með ósköpum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er oft gaman að kynnast nýju
fólki, sérstaklega þegar það getur kynnt
manni nýjar hugmyndir og framandi lönd.
Himintunglin segja að tími sé kominn fyrir
ást.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þótt allir megi eitthvað til málanna
leggja er lokaákvörðunin þín og einskis ann-
ars. Farðu öfugt að núna miðað við venju-
lega, það gæti vel skilað skemmtilegum
niðurstöðum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hugsaðu þig tvisvar um áður
en þú samþykkir að skila tilteknu verkefni
innan ákveðins tímaramma. Annars nærðu
engu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Sýndu aðgát og sparsemi við
gerð ferðaáætlana í dag. Ef þú legðir veðmál
fyrir sig myndir þú leggja fé undir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér vinnst vel og þú stefnir
ótrauður að settu marki. Hringdu í ættingja
þína eða keyptu gjöf handa einhverjum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu ekki hlutina fara í taug-
arnar á þér og líttu framhjá uppátækjum
vinnufélaga þinna. Traust skiptir öllu máli.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft á hreyfingu að halda til að
losa um spennuna sem hefur safnast upp í
þér. Gefðu þér tíma til þess.
Páll Imsland heilsaði Leirliði uppúr miðnættinu með þeim orð-
um, að stundum sé hægt um í sveit-
unum og ekki margt að segja af
bændum:
Vígþór svo mikill á velli
sat vildarjörð austur að Felli.
Þar eitt þúsund ær
hann átti í gær
og hýsti þær allar í helli.
Ekki fór hjá því að það rifjaðist
upp fyrir mér gömul limra eftir
Kristján Karlsson:
Mælti Vilhjálmur bóndi á Velli:
„Ég veld ekki stærri belli
og geng ekki með ‘ann
nema geti ég séð ‘ann
mér til gamans í hárri elli.“
Enn er Páll á ferðinni:
Bráðsmit braust út á Hlemmi
og bráðlega dauður var Klemmi.
Það fór hrollur um menn
og þeir hrisast víst enn.
Þessi drepsótt var Delerí tremmi.
Á mánudaginn sá Sigurlín Her-
mannsdóttir „krúttlegt fjöl-
skyldusport í Fréttablaðinu“:
Krúttlegt fyrir krakkaskinn,
kennslu slíka hyllum,
með byssu að skjóta bra-bra sinn
og bolta kasta í millum.
Í sólarlöndum verður Ólafi Stef-
ánssyni hugsað hingað heim og til
kjördags
Örlagasverðið er yfir þjóðinni í dag
ekki má skeika hársbreidd hvar blaðið lendir
snöggsoðnir flokkar snoðlíkan kyrja brag
snúinn sá fingur sem þjóðinni leiðina bendir
En valið er okkar er innfyrir kjörklefans tjald
erum við komin með blýant grannan að
vopni
og skyldi okkur feila að nota að viti það vald
er við því að búast að Pandora boxið sitt
opni.
Skagfirðingurinn Kristján Björn
Snorrason yrkir á Facebook:
Ef þið finnið andans vin
ykkar hugsun letrið.
Látum ekki leiðindin
leita á sálartetrið.
Hreinn Þorkelsson er í háleitari
hugleiðingum á Boðnarmiði:
Hissa á heimsins gamni
hefur upp augabrýn
Venus á vesturhimni
við okkur fálát skín
Páll Eyþór Jóhannsson talar um
„klókt útspil hjá Pírötum“:
Píratanna plottið rokkar
í pólitík er brautin hál
ætlast til að aðrir flokka
útvegi þeim stefnumál.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Pandoraboxið og
góðbændur á Velli
Í klípu
„HITT ER Í LAGI HJÁ ÞÉR. ÞAÐ ER
ÞETTA SEM ÉG HEF ÁHYGGJUR AF.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVERNIG GEFUR MAÐUR TIL KYNNA
MEÐ HÖNDUNUM AÐ MAÐUR SÉ AÐ
BAKKA INN Á HRAÐBRAUT?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að búa til snjókarl
sem lítur út eins og
hann.
SKOKK
SKOKK
SKOKK
SKOKK
SKOKK
ÞAÐ ER GOTT AÐ
TAKA PÁSU ENDRUM
OG EINS.
HVERNIG
GET ÉG
SIGRAST Á
BARDAGA-
STREITU?
ÉG HEF
HEYRT AÐ HREYF-
ING DRAGI ÚR
STREITU...
ÞAÐ ER
SATT!
MÉR LÍÐUR
BETUR VIÐ
ÞAÐ AÐ
HLAUPA!
KOMDU
AFTUR
!
ÖKUSKÓLI
Fyrir margt löngu útskrifaðist hóp-ur manna í viðskiptafræði og fé-
lagarnir fóru hver í sína áttina. Á
einhverjum tímapunkti nokkrum ár-
um síðar var haldin veisla og sá
verðlaunaður sem þótti hafa staðið
sig best í vinnunni.
x x x
Margir voru kallaðir en aðeinseinn útvalinn. Það var einróma
álit fræðinganna að enginn hefði
staðið sig betur en sá sem hafði hafið
innflutning á vatnsvélum og selt í
bílförmum til fyrirtækja og stofn-
ana, sem stilltu þeim gjarnan upp
við vask í kaffikrókum og buðu
starfsmönnum og öðrum upp á vatn
úr vél, sama vatnið og hægt var að fá
úr krananum við hliðina.
x x x
Víkverji minntist þessa þegarfréttamaður í sjónvarpi hélt
ekki vatni í vikunni yfir þeirri ósvífni
verslunareigenda að bjóða viðskipta-
vinum upp á innflutta ísmola á
margfalt lægra verði en innlenda ís-
mola. Sérfræðingur var fenginn til
þess að botna óánægjuna, sem sneri
einnig að því að innlendu ísmolarnir
voru ekki eins aðgengilegir í versl-
uninni og þeir innfluttu. Verslunin
leyfði sér það að ota innfluttu vör-
unni að kúnnunum og það á miklu
lægra verði.
x x x
Í stað þess að andskotast út í versl-unina væri nær að verðlauna þá
sem hafa hugmyndaflug til þess að
flytja inn ísmola. Víkverja kæmi
ekki á óvart ef einhver annar hefði
fyrst flutt vatnið út en það er önnur
saga.
x x x
Í verslun skiptir miklu máli að veraá tánum og lesa markaðinn rétt.
Þegar Víkverji var yngri voru grýlu-
kerti stundum sogin og nöguð en ís-
molar þekktust ekki og reyndar var
ekki til ísskápur heima hjá Víkverja
fyrstu tíu árin sem hann lifði. Þá
hefði ekki þýtt að bjóða ísmola til
sölu en nú er öldin önnur og ísmolar,
einkum erlendir á gjafverði, að því
að sagt er, renna út í plastpokum,
hvað sem sérfræðingar í sjónvarpi
segja. víkverji@mbl.is
Víkverji
En ávöxtur andans er: kærleiki, gleði,
friður, langlyndi, gæska, góðvild, trú-
mennska, hógværð og sjálfsagi.
(Gal. 5:22)
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Ert þú búin að prófa
súrdeigsbrauðin okkar?
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.