Morgunblaðið - 21.10.2016, Síða 80

Morgunblaðið - 21.10.2016, Síða 80
80 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 VIÐTAL Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Ég er mjög spenntur fyrir Mars- hall-húsinu og þeirri aðstöðu sem ég get komið mér þar upp en ég er ekki síður ánægður með það hvað Ný- listasafnið og Kling og Bang fá þar falleg og verðskulduð sýningarrými. Hvorutveggja er afar mikilvæg listamannarekin starfsemi og ég samgleðst þeim,“ segir Ólafur Elías- son. Eins og fram hefur komið verður Ólafur með vinnustofu á efstu hæð Marshall-hússins á Granda, en þessi fyrrverandi fiskiðja verður senn opnuð að nýju með nýrri og gjör- breyttri starfsemi, sýningarsölum fyrir myndlist og veitingastað. Ólaf- ur segist hafa í nokkur ár litast um eftir húsnæði hér á landi, „bæði til að vinna í og til að sýna verk eftir mig. Ég hef skoðað ýmislegt en núna gefst þetta tækifæri og ég er í því ferli að ákveða nákvæmlega hvernig ég ætla að nýta mitt rými í húsinu. Hluta þess mun ég nota sem vinnustofu og hluta sem sýning- arrými. Mjög margir hafa spurt hvers vegna ekki sé hægt að ganga að fleiri verkum eftir mig hér á landi. Núna vona ég að það muni breytast. Og ég vinn að verkum sem ég mun hafa þarna til sýnis og finnst það mjög spennandi,“ segir hann. Ólafur var hér á dögunum að taka við hinum virtu Lennon Ono- friðarverðlaunum úr hendi Yoko Ono í Hörpu, tónlistarhöllinni fjöl- sóttu sem er klædd stærsta var- anlega listaverki hans, glerhjúpnum með síbreytilegri LED-lýsingunni. Ono kaus að þessu sinni að verð- launa fjóra listamenn, auk Ólafs hina víðkunnu Ai Weiwei frá Kína, hinn bresk-indverska Anish Kapoor og fjöllistakonuna ungversku Katal- in Ladik. Verðlaunahafarnir gáfu verðlaunaféð áfram til viðurkenndra góðgerðarstofnana. Fjölbreytileg verk Ólafs eru um þessar mundir, rétt eins og mörg undanfarin ár, áberandi á hinni al- þjóðlegu myndlistarsenu. Sumar- sýningin í görðum og sölum Versala var að þessu sinni hans; tröllvaxinn foss féll meðal annars af himni ofan og þokuverk hjúpaði hluta garðs Loðvíks sólkonungs – sumarið áður sá annar verðlaunahafa Ono, Anish Kapoor, um að setja upp verk í garð- inum. Ólafur hannaði nýverið at- hyglisverða brú yfir eitt síkið í Kaupmannahöfn og meðan á Par- ísarráðstefnunni um loftslagsmál stóð í fyrravetur bráðnaði Ísklukka hans á torgi í borginni og vakti mikla athygli; verk hans hafa verið á fjölda safnasýninga og þá hefur hann unnið að samstarfsverkum með listamönnum og hugsuðum, meðal annars Ai Weiwei. Sól- arrafhlöðuknúið ljós þeirra verk- fræðingsins Frederik Ottesen, Little Sun, hefur líka vakið mikla at- hygli, en því er ætlað að bæta líf fólks í þriðja heiminum. Í gegnum árin hefur Ólafur unnið fjölda verka beint um og út frá íslenskri náttúru; nægir að nefna ólíkar ljósmyndarað- irnar frá hálendinu og verk þar sem hann vinnur með hraun, jökla og jarðveg, auk þess sem ýmis nátt- úruleg fyrirbæri landsins birtast í innsetningum hans af ýmsu tagi. Ólaf má með réttu kalla einn af mik- ilvægustu og þekktustu sendiherr- um Íslands og íslenskrar náttúru. „Ég hef mikinn áhuga á að velta því fyrir mér hvernig fólk getur sameinast um að bæta lífsgæði í samfélögum,“ segir Ólafur og setur það í samhengi við friðarverðlaunin sem Yoko Ono veitir hér annað hvert ár. „Sá styrkur sem sprettur af öflugu menningarlífi eins og við þekkjum á Norðurlöndum er til að mynda öflugur friðarboði. Hér á Norðurlöndum sprettur slík borgaraleg samstaða mikið frá menningargeiranum og þá á ég við hann í sinni víðustu mynd; listirnar jafnt og skólakerfið og íþrótta- félögin. Fólk með fjölbreytilegan menningarlegan bakgrunn mætist og sameinast umburðarlynt um sammannleg gildi; við getum horft saman á málverk og verið ósammála um það hvað við sjáum, ég hendi þér ekki út þótt við séum ósammála um liti í verki eftir Kjarval. Það gerir okkur ekki að óvinum. Algjörar andstæður þessa má sjá í tilhneigingu til popúlisma sem víða skýtur upp kollinum, en í kjarna slíkra hugmynda er að einangra fólk og skapa ótta.“ Sjálfsagt að beita menningunni Ólafur segir að fólk sem starfi inn- an menningargeirans velti því iðu- lega fyrir sér hvort það eigi að beita menningunni meðvitað, eins og í baráttu fyrir friði og í stjórnmálum. Sjálfum finnst honum það sjálfsagt mál, því menningargeirinn sé svo sterkur að honum megi auðveldlega beita án þess að hann líði fyrir það. En finnst Ólafi að listamenn eigi að stíga fram og tjá sig opinberlega eða eiga verk þeirra ein að tala? Oft heyrist krafa um að listamenn eigi að vera virkari í opinberri umræðu. „Við skulum fara varlega í að setja reglur um slíkt, að eitt sé rétt en annað rangt. Það að skapa list er í grunninn aðferð til að tala og tjá sig. En það væru mistök að halda að verkið eitt, hvar sem það er sett upp eða kynnt, geti bara talað fyrir sig. Stundum eru frábær listaverk í óvirkri liststofnun og stundum getur listamaðurinn sjálfur brúað bilið milli möguleikanna sem felast í lista- verki og mögulegra áhorfenda, með því að bæta fleiri lögum við það. Það getur skipt sköpum og sumir lista- menn eru betri í slíku en aðrir. Því er rétt að setja engar reglur um hvað listamenn eigi eða geti gert. Þó er ein regla til staðar: ef verkið er slæmt frá byrjun er afar fágætt að hægt sé að tala það upp í að verða gott! Ef verk er á hinn bóginn gott og enginn talar fyrir það mun það samt alltaf vera gott listaverk.“ Náttúran er mér afar mikilvæg Mörg verka Ólafs hafa sterka náttúruvísun eða fjalla beinlínis um náttúruna, oft íslenska. Lítur hann á sig sem talsmann náttúrunnar? „Ég er mjög meðvitaður um að náttúran er mér afar mikilvæg,“ svarar hann.“ Og ég er sannfærður um að í framtíðinni verði náttúran samfélögum meira virði en við get- um mögulega áttað okkur á í dag. Við sjáum allrahanda vísbendingar um það út um löndin, í ólíkum sam- félögum, að náttúran verði þeim sí- fellt mikilvægari. Svo er alltaf spurning hvort mað- ur kjósi að taka þátt í einhvers kon- ar baráttu eða umræðu um málefni náttúrunnar, og þá hvaða stefnu eigi að fylgja. Ég met Björk mikils og tel hana hafa bætt mjög mikilvægum þáttum í umræðuna um íslenska náttúru. Ég tel Andra Snæ Magna- son líka hafa algjörlega rétt fyrir sér þegar hann fjallar um þessi mál, en ég get líka séð hvernig slík afstaða, sem ég samsama mig með, skiptir fólki í fylkingar, með og á móti. Ég velti því fyrir mér hvernig við getum rætt um málefni íslenskrar náttúru þannig að öllum finnist þeim geta tekið þátt, jafnt Andri Snær og þeir sem eru ósammála einhverju sem hann hefur fram að færa; sann- leikurinn er sá að þetta er náttúra okkar allra og framtíð allra byggir saman á henni. Ég hef því mikinn áhuga á að finna út hvernig eigi að sýna fram á að náttúran sé í raun lykillinn að framtíðarsveigjanleika íslensks samfélags. Það væri af- skaplega sorglegt ef náttúran væri ástæða þess að fólk skipaði sér í andstæðar fylkingar.“ Ólafur tekur fram að hann sé ekki langdvölum á Íslandi þótt hann komi hingað reglulega; hann starfrækir fjölmenna vinnustofu og kennir í Berlín en er hins vegar búsettur með fjölskyldu sinni í Danmörku. Hann veltir fyrir sér hvaða leið hann færi í náttúruverndarbaráttu ef hann byggi hér, hvort baráttan snerist um að löggjöfin yrði bætt og náttúruskattar styrktir. Það yrði að snúast um hvað kæmi í fyrsta lagi náttúrunni best og í öðru lagi hvað gæfi samfélaginu sem mestan sveigjanleika. „Hvað þessi mál varðar þurfa allir að stefna að sameiginlegum mark- miðum og geta séð mikilvægi nátt- úrunnar til langs tíma litið,“ segir hann. „Og ég tel að menn hljóti að sjá nú, ef litið er á ástand jarðar, hvað íslensk náttúra hlýtur að vera gríðarlega mikilvæg fyrir fram- tíðina.“ Sýnir síaukinn og að margra mati nánast óviðráðanlegur straumur ferðamanna hingað til lands það ekki glögglega? „Mér heyrist allir vera að velta fyrir sér hvernig eigi að takast á við þessa að sumu leyti óvæntu ferða- mannasprengingu. Vissulega er áhugavert að velta ástæðum hennar fyrir sér en mikilvægari eru þó svör- in við spurningunni hvernig megi koma í veg fyrir, eins og margir hafa bent á, að ferðamenn taki landið hreinlega yfir og landið verði fyrir skaða. Slíkt hefur gerst í mörgum löndum. Vitaskuld er stundargróð- inn sem hafa má af ferðamönnum spennandi í byrjun en ég held að all- ir hljóti líka að sjá hættuna sem felst í því ef ferðamannastraumurinn fær að aukast án nokkurs regluverks og aðhalds. Sem stendur sýnist mér Ís- lendingar láta ferðamenn komast „Íslensk náttúra gríðarlega mikilvæg fyrir framtíðina“  Ólafur Elíasson hlakkar til að starfa og sýna í Marshall-húsinu  Segir öflugt menningarlíf góðan friðarboða  Finnst vanta bætt regluverk fyrir ferðamannaflóðið og finnst landið selt of ódýrt Morgunblaðið/Kristinn Listamaðurinn Ólafur Elíasson í Hörpu og í baksýn víðkunnur glerhjúpurinn sem hann skapaði. „Vitaskuld er stundargróðinn sem hafa má af ferðamönnum spennandi í byrjun en […] sem stendur sýnist mér Íslendingar láta ferðamenn komast upp með að taka meira en þeir skilja eftir,“ segir hann um ferðamannastrauminn um náttúruna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.