Morgunblaðið - 21.10.2016, Qupperneq 82

Morgunblaðið - 21.10.2016, Qupperneq 82
82 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 TWIN LIGHT gardínum Betri birtustjórnun með Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. 40 ára Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku Hildur Loftsdóttir hildurl@mbl.is RaTaTam-leikhópurinn var stofn- aður í janúar 2015 og þá hófst strax undirbúningur að sýningunni Suss! sem er loksins að verða að veruleika eftir eins og hálfs árs vinnu. „Ég hélt alltaf að hugmyndin hefði fæðst heima í stofunni í litlu kvenna- boði yfir rauðvínsglasi. En á sama tíma kviknaði sama hugmynd hjá Hildi, sem var stödd í leiklistarnámi í London, auk þess sem aðrir í hópn- um voru einnig að hugsa svipaða hluti. Þannig varð hópurinn til; við vildum afhjúpa leyndarmálin og von- andi vekja samfélagið til vitundar um útbreiðslu ofbeldis í skjóli þögg- unar,“ útskýrir Halldóra Rut Bald- ursdóttir, sem er einn af höfundum verksins og leikendum í sýningunni ásamt Hildi Magnúsdóttur, Laufeyju Elíasdóttur, Guðmundi Inga Þor- valdssyni, Guðrúnu Bjarnadóttur, tónlistarstjóranum Helga Svavari Helgasyni, búninga- og sviðs- myndahönnuðinum Þórunni Maríu Jónsdóttur og Charlotte Bøving leik- stjóra. „Í boðinu hjá mér fór ein og ein kona að standa upp og segja okkur hinum reynslu sína af heimilisofbeldi. Sumar þessara kvenna voru að deila reynslusögum sínum í fyrsta skipti. Ég man hvað ég var hissa, mig óraði ekki fyrir því ofbeldi sem þær höfðu orðið fyrir. Af hverju voru þær ekki fyrr búnar að segja frá? Af hverju er umræðan ekki meiri í samfélaginu? Þolendur eiga að geta sagt sögu sína án þess að hika eða skammast sín.“ Ósköp venjulegt fólk „Ég held persónulega að oft og tíð- um sé skömmin svo mikil því við höldum alltaf að heimilisofbeldi eigi sér bara stað hjá öðru fólki en okkur eða okkar fólki, kannski leynast ein- hverjir fordómar þar og kannski hugsum við að ofbeldi eigi sér bara stað hjá ógæfufólki … öll viljum við við líta vel út á við. En það er alls ekki raunin. Allt það fólk sem við töl- uðum við var fólk eins og ég og þú,“ segir Halldóra Rut. „Við sendum út auglýsingu í febr- úar 2015 þar sem við óskuðum eftir reynslusögum af heimilisofbeldi. Það var svo margt fólk sem sendi inn sög- ur að við höfðum varla undan því að taka á móti. Þetta eru í kringum 70 sögur sem við tókum saman, skrif- uðum út handrit að hverri og einni sögu. Við sáum að það er sami takt- urinn í flestum þessum sögum, og þar sem við náum alls ekki að skila öllu þessu efni frá okkur tókum við kjarnann úr sögunum og mynd- birtum á sviðinu, hvort sem það er gert í gjörningum eða með orðum. Þetta er alls ekki stofudrama.“ Eitthvað til að spegla sig í „Þetta eru fyrst og fremst sögur fólks sem við erum að varpa ljósi á, og þær tilfinningar sem fylgja þessari reynslu,“ segir Charlotte leikstjóri. „Þetta er svo óhugnanlegur efniviður að stundum leyfum við fólki að hlæja aðeins af því að annars myndi það bara kafna, enda hafa flestir viðmæl- endur okkar hláturinn og húmorinn að leiðarljósi þegar þeir takast á við sögur sínar. Við tökum leikhúsið á þetta. Áhorfendur fá að upplifa allan tilfinningaskalann og eitthvað til að spegla sig í, því heimilisofbeldi hefur mörg andlit, það er ekki bara lík- amlegt ofbeldi heldur líka andlegt of- beldi sem flestir viðmælendur voru sammála um að væri versta form of- beldisins. En það sem einkennir of- beldið er að það gerist á bak við lukt- ar dyr, inni á heimilum fólks, þar sem enginn annar sér hvað gerist,“ segir Charlotte og útskýrir að leikmyndin sé öll gerð úr hurðum. „Við vitum ekki hvað er að gerast á bak við þær en ætlum að reyna að kíkja inn í þennan heim.“ Charlotte segir að það hafi verið mjög frelsandi að vinna úr þessu efni á listrænan hátt og að mikil sköpun hafi verið innan leikhópsins. „Við er- um með 200 klukkutíma efni sem við stefnum á að koma einnig til skila í útvarpinu. Þarna má finna mikið af frábærum sögum og frábærum pæl- ingum, t.d. frá fólki sem hefur lent í ofbeldi og komið sér út úr því. 70% barna sem verða fyrir ofbeldi annað- hvort beita eða verða fyrir ofbeldi sem fullorðnir einstaklingar. Ofbeldi er smitandi og keðjuverkandi,“ segir Charlotte. Út með skömmina! „Það hefur verið rosalega áhuga- vert að vinna við þetta en við erum bara rétt að byrja að opna dyrnar að þessum heimilum, til að halda þeim opnum og skila skömminni,“ vonar Charlotte. „Við segjum oft: Það sem drepur okkur ekki gerir okkur sterkari, en þá spyr ég: er það satt? Þar má nefna að þegar börn eru beitt harka- legu ofbeldi er það oftast sálarmorð.“ Að lokum má þess geta að hópur- inn hlaut um daginn fjögurra millj- óna króna styrk frá Nordisk Kultur- fond til að koma sýningunni á laggirnar ásamt öðrum styrktar- aðilum á Íslandi. Vorið 2017 heldur svo RaTaTam í ferð til Norður- landanna þar sem Suss! verður sýnt í Theater Far 302 í Danmörku, Theaterfestivalen í Fjaler í Noregi og í Norræna húsinu í Færeyjum og í Svíþjóð. Bak við luktar dyr  Leikhópurinn RaTaTam frumsýnir í kvöld kl. 20.30 í Tjarnarbíói nýtt heimildarleikverk eftir hóp- inn, Suss!  Verkið er byggt á reynslusögum þolenda, geranda og aðstandenda heimilisofbeldis Ljósmyndir/RaTaTam Suss! Aðstandendur sýningarinnar spyrja af hverju umræðan er ekki meiri í samfélaginu. Þolendur eigi að geta sagt sögu sína án þess að hika. Leikferð Til stendur að fara með sýninguna til Norðurlandanna. Charlotte Bøving Halldóra Rut Baldursdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.