Morgunblaðið - 21.10.2016, Side 86

Morgunblaðið - 21.10.2016, Side 86
86 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 AF HÚSMÁLMI Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Ég væri til í að hlusta á dauða-málmsplötu byggða á Hús-inu á sléttunni,“ sagði ær- inginn Zach Galifianakis við annan æringja, James Corden, í spjallþætti þess síðarnefnda vestur í Ameríku fyrir skemmstu. Corden fór hér um bil á hrygginn vegna hláturs. Að vonum. Og margir gestir í sjón- varpssal með honum. Svar Galifianakis virkaði óundir- búið en tilefni spurningar Cordens var það að annar gestur í þættinum, rokkgyðjan Stevie Nicks, hlóð víst nýverið í breiðskífu sem er innblásin af Twilight-kvikmyndunum. Þá spurði Corden Galifianakis sumsé hvort hann væri spenntur fyrir því að gerð yrði plata byggð á einhverri sérstakri kvikmynd eða sjónvarps- efni. Þá kom þetta makalausa svar. Margt gullkornið fellur í hálfkær- ingi og/eða hita augnabliksins og ég verð að viðurkenna að ég hef átt erf- itt með að slíta mig frá þessari stór- brotnu hugmynd. Sé Láru litlu Ing- alls stöðugt fyrir mér, í draumi sem vöku, hvítmálaða, húðflúraða og skröltandi í keðjum á drungalegu sviðinu. Að rymja einhvern óskiljan- legan brag. Og Karl gamla, föður hennar, dýrvitlausan á slagverkinu. Feykjandi flösu. Kappanum ætti ekki að verða skotaskuld úr því verki – enda var hann vel hárprúður í þáttunum.    Blinda systirin, María, gæti veriðá hljómborðinu, eins konar póstmódernísk kvenkyns útgáfa af Stevie Wonder. Hundurinn, Jack, myndi spangóla með. Af kappi. (Ég varð í senn undr- andi og glaður þegar ég áttaði mig á því að ég mundi nafnið á honum). Veit ekki hvort við ættum að hafa Nellie Oleson með; hún var alltaf svo andstyggileg við Ingalls-systurnar. Frekar myndum við stóla á föður hennar, Nels. Hann var falleg sál sem bjó við harðræði konu sinnar og dóttur. Við Íslendingar erum málmelsk þjóð og eigum að sjálfsögðu að ræna þessari hugmynd, rétt eins og húh- klappinu, hið snarasta og finna verk- efninu farveg hér heima, á lúpínu- breiðum dauðamálmsins. Ég sé Eddu í Angist strax fyrir mér rymja rullu Láru. Með flétt- urnar og allan pakkann. Engum myndi ég treysta betur til að halda utan um konseptið en Bibba í Skálmöld. Auk þess að vera með málm í æðum hefur Bibbi unnið í leikhúsi og með börnum og er alveg eins líklegur til að koma goðunum að í sögunni. Með einum eða öðrum hætti. Þess utan er Bibbi, aldurs síns vegna, líklegur til að hafa náð í skottið á Húsinu á sléttunni í sjón- varpinu og ætti því að hafa djúpa til- finningu fyrir því hvaða þýðingu þættirnir höfðu fyrir sálarlíf þess- arar þjóðar. Klukkan fjögur á sunnudögum var ekki hræða á ferli á götum landsins. Plötuna, Dauða húsið á sléttunni, mætti svo kynna á Eistnaflugi næsta sumar. Er sú fróma samkoma hvort eð er ekki orðin helsta fjölskyldu- hátíð þessarar þjóðar? Þar er líka harðbannað að vera fáviti.    Þannig tengja þau einmitt, húsið ásléttunni og dauðamálmurinn, í kærleika og flauelsmjúku viðhorfi til náungans. Dauðamálmhausar mega ekkert aumt sjá; ekki frekar en Karl og Lára Ingalls. Og ef til vill þarf ekki einu sinni að stela hugmyndinni; hver segir að Zach Galifianakis sé ekki tilbúinn að stefna skónum hingað upp í fásinnið og leggjast á árarnar með okkur? Nú þekki ég manninn ekki neitt en hann virkar alltént nógu galinn til þess. Er Galifianakis jafnvel upplagður Karl Ingalls? Kannski vildi hann frekar túlka hundinn. Hvort hann kann að rymja veit ég ekki. Enda aukaatriði í hinu stóra samhengi hugmyndarinnar. Því oftar sem ég pæli í þessari hugmynd þeim mun meira brenn ég í skinninu. Húsið á sléttunni með dauðamálmsívafi. Það yrði réttnefnt hús án eirðar! Dauða húsið á sléttunni Ljósmynd/NBC Samrýnd Ingalls-fjölskyldan á góðviðrisdegi við litla húsið sitt á sléttunni. Hvernig væri að málma hana upp? Bibbi í SkálmöldZach Galifianakis Edda í Angist Glæpasögurnar koma ört útum þessar mundir, margargóðar, og nýliðna mánuðihefur engin verið eins spennandi og Fórnarlamb án andlits eftir Svíann Stefan Ahnhem. Sagan gerist að mestu í Svíþjóð fyrstu tíu dagana í júlí 2010. Rann- sóknarlögreglumaðurinn Fabian Risk flytur með fjölskyldu sinni frá Stokkhólmi suður til æskuslóðanna í Helsingjaborg til þess að hefja nýtt líf, sem á að byrja með sex vikna fríi. Þau eru varla kominn inn úr dyr- unum á nýja húsinu þegar tilvonandi yfirmaður hans hringir, tilkynnir honum um morð og kallar hann til starfa. Ofan á líkinu er bekkjarmynd. Krossað er yfir andlit hins látna, sem er fyrir aftan Risk á myndinni. Sem fyrr segir er þetta ótrúlega mikil spennusaga frá byrjun til enda. Hún er líka ógeðsleg og lesandanum finnst hann hvergi vera öruggur. Ekki frekar en þeir sem við sögu koma. Hver er næstur? Við lesturinn kom Hannibal Lecter fyrst upp í hugann en það er kannski ekki heppilegur samanburður vegna þess að glæpamennirnir eiga fátt annað sam- eiginlegt en að vera viðbjóðslegir glæpamenn. Margir sem við sögu koma eiga við einhver vandamál að stríða og flest eiga þau það sameigin- legt að tengjast sögunni á einn eða annan hátt. Helstu persónur eru líka þess eðlis að ekki virðist vera hægt að treysta neinum. Fabian Risk er einn þessara rannsóknarlögreglumanna sem vilja helst gera allt sjálfir en er ekki alltaf með sjálfum sér; hann virkar óákveð- inn á stundum og það bitnar á öllu í kringum hann. Þegar tíminn er naumur er það ekki gott og getur smitað út frá sér. Danski vinkillinn er ekki síður áhugaverður og varpar ljósi á sam- skipti Dana og Svía. Ekki er allt sem sýnist í þeim efnum. Sumar sögur eru allt of langar og Fórnarlamb án andlits virðist vera of löng við fyrstu sín, en lengdin kemur ekki niður á þessari glæpasögu vegna þess að spennan tekur aldrei enda. Spennan tekur aldrei enda Skáldsaga Fórnarlamb án andlits bbbbn Eftir Stefan Ahnhem. Elín Guðmunds- dóttir þýddi. Kilja. 512 bls. Ugla 2016. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Hvanndalsbræður hafa ákveðið að heiðra minningu tónlistarmannsins Ingimars Eydals með því að endur- gera lagið María Isabel. Ingimar hefði orðið átt- ræður í gær. Lagið birtist fyrst á plötunni Í sól og sumaryl sem kom út árið 1972. Mynd- bandið er samsett úr mörgum göml- um og góðum myndböndum sem Ingimar Eydal og félagar gáfu út. Kristján Kristjánsson annaðist gerð myndbandsins. „Það var gaman að detta inn í stemminguna sem fylgdi þessu tíma- bili og má segja að maður hafi óvænt lyft sér örlítið upp, bæði við upptök- una á laginu sem og við vinnslu myndbandsins. Við vorum allir sam- mála um að við fundum svolítið fyrir tíðarandanum sem var á gullárum Ingimars og það færðist yfir okkur meiri ró og örlítið meiri þokki,“ segir Summi Hvanndal. „Leikstjórinn var líka oft að ham- ast við að beita myndavélinni á sama hátt og þeir gerðu á þessum tíma og t.d. kallaði hann einhvern tímann á okkur að við þyrftum að skjóta ákveð- ið atriði aftur þar sem það var ekki nógu illa panað, hvað sem það þýðir,“ segir Valur Hvanndal. Heiðra minn- ingu Ingimars Ingimar Eydal Uggla spilar á Dillon annað kvöld og hefjast tónleikarnir klukkan 22. Uggla er tveggja ára hafnfirskt popp-/rokkband og hefur gefið út tvö lög. Annars vegar er um að ræða djassskotið popplag, Sit í svörtu húmi, við texta Páls Ólafssonar. Hins vegar er það lagið Leið A sem er undir áhrifum bandarískrar sveitatónlistar. Hljómsveitin hefur talsvert verið að spila að undanförnu á höfuð- borgarsvæðinu og vinnur nú að fyrstu plötu sinni. Hljómsveitina Ugglu skipa Kjart- an Orri Ingvason (gítar/söngur), Valdimar Þór Valdimarsson (gítar/ söngur), Kjartan Þórisson (tromm- ur) og Viðar Hrafn Steingrímsson (bassi/söngur). Uggla á Dillon – fyrir dýrin þínSmáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is Ferskt og hreint vatn fyrir heilbrigðari ketti 220v 7.273,-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.