Morgunblaðið - 21.10.2016, Qupperneq 89

Morgunblaðið - 21.10.2016, Qupperneq 89
MENNING 89 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 Kexland og Kex Hostel munu hita upp fyrir Iceland Airwaves ásamt hljómsveitunum Kött Grá Pjé, Sykri, Hórm- ónum og Wesen á morgun og hefj- ast tónleikar klukkan 18.00. Frítt er inn og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Kexland mun í samvinnu við KEXP í Seattle halda úti þéttri dag- skrá alla Airwaves-hátíðina og senda beint út í útvarpi. Hitað upp fyrir Iceland Airwaves Kött Grá Pjé Sýningin ATHANOR, sem fjallar um tengsl alkemíu og nútímamynd- listar, verða opnuð í listamiðstöð- inni í Sete í Suður-Frakklandi í dag, en íslenski listamaðurinn Halldór Ásgeirsson mun taka þátt í sýning- unni auk þess að flytja gjörning á morgun, laugardaginn 22. október, sem ber titilinn Að vekja upp eld- fjallið og vökva blómin. Í tilkynningu frá Halldóri segir að eldurinn galdri fram hinar ótrú- legustu myndir sem streymi út úr bræddum hraunsteini og búi til sjálfstætt myndmál. „Myndmálið höndla ég síðan eftir eigin leikreglum. Hraunsteinn úr kulnuðu eldfjalli frá Auvergne- héraði í Mið-Frakklandi hangir í loftinu og beint fyrir neðan hann liggur stór ísklumpur þar sem greypt hefur verið ofan í fryst rauðvínskúla, en þess má geta að í listasetrinu var áður kæligeymsla fyrir sardínur þar sem framleiddur var ís,“ segir hann um verk sitt. „Ég stíg inn í hringinn og byrja að bræða steininn með logsuðu. Eftir nokkrar sekúndur verður steinninn rauðglóandi og fer að drjúpa úr honum ofan í ísinn, sem bráðnar við það. Hraunið ummyndast í svartan glerung vegna snöggkólnunar í andrúmsloftinu og einnig verða til örfínir þræðir sem kallast á jarð- fræðimáli nornahár. Droparnir sem leka niður eru í raun safinn innan úr storknuðu hrauninu sem um- breytist síðan í litlar verur, eins konar álfa. Á sama tíma birtist kona með sítt svart hár klædd hvít- um kjól sem gengur hægum skref- um og kastar blómum sem hún hef- ur tínt úr umhverfinu, eða réttara sagt fórnar þeim, inn í hringinn. Samtalið hefst.“ Morgunblaðið/Einar Falur Bræðingur Halldór Ásgeirsson sýnir bráðið hraun í Frakklandi. Samtal í Suður-Frakklandi Árni Matthíasson arnim@mbl.is Tónlistarmaðurinn Geir Ólafsson situr ekki auðum höndum, því hann gaf á dögunum út nýja breiðskífu með jólalögum og er með í undirbúningi tónleika í Gamla bíói í desemberbyrjun, jólatónleika til að kynna jólaplötu. Undirleikarar á plötunni eru banda- ríski tónlistarmaðurinn Don Randi og hljómsveit hans og Randi og félagar eru einmitt væntanlegir hingað til lands til að leika á jólatónleikunum í Gamla bíói. Tónleikarnir verða undir stjórn Dons Randis, sem kemur hingað með hljómsveit sinni og haldnir í Gamla bíói 9. desember. „Ég hef ekki haldið mikið af tónleikum, enda er framborðið svo mikið, en taldi að nú væri heppilegt að vera með tónleika og gef mig all- an í það,“ segir Geir og bætir því við að ekki sé bara að framúrskarandi tónlistarmenn leiki á tónleikunum, heldur verði hann með með einvalalið söngvara sér til aðstoðar „Ingó veðurguð kemur fram og einnig Edda Borg og Fabúla. Sérstakur heiðursgestur verður Richard Scobie, sem hefur ekki komið fram á tónleikum á Íslandi í mörg, mörg ár. Svo verður Flugfreyjukór Icelandair með okkur. Hljómsveit í toppformi Svo bað Don um að við myndum kynna á tónleikunum nýjan söngvara og ég er mjög stoltur að geta kynnt til leiks Má Gunnarsson sem er stór- kostlegt efni sem söngvari og píanó- leikari og gríðarlega flottur lagahöf- undur. Þetta verður heljarinnar stemmning, en hljómsveitin verður tólf manna, Don kemur með sex menn með sér og svo slást íslenskir hljóðfæraleikarar í hópinn.“ Don Randi er þekktur píanóleikari og upp- tökustjóri og hefur starfað með mörgum sögu- frægum tónlistarmönnum, til að mynda Frank Sin- atra, Nancy Sinatra og Elvis Presley. Hann rekur djassklúbbinn The Baked Potato í Los Angeles og er geysiduglegur við spilamennsku með hljómsveit sinni að sögn Geirs. „Ég ætla að bjóða upp á hljómsveit sem er í besta músíkformi sem hugsast getur, með frábæra söngvara og plötu sem er öðruvísi, en svo er fyrst og fremst að reyna að hafa gaman af þessu.“ Tileinkar plötu og tónleika dóttur sinni Undirleikur á plötunni er eftir Don Randi og fé- laga og Randi útsetti lögin. „Áður en hún fæddist hringdi Don í mig og sagði: Geir, nú verðum við að gera jólaplötu saman. Hann bauð mér það að bandið myndi taka upp plötu fyrir mig með því skilyrði að ég myndi setja saman konsert og þeir kæmu til Ís- lands að spila. Þetta eru amerískir standardar, klassík amerísk jólalög sem allir þekkja í nýjum útsetn- ingum.“ Platan og tónleikarnir eru tileinkuð dóttur Geirs, Önnu Rós, sem hann segir hafa gerbreytt lífi sínu. „Þessi fallega stúlka sem kom inn í líf mitt gjörbreytti því og ég hugsa allt öðruvísi um líf- ið en ég gerði. Ég finn það í fyrsta skipti að ég er ekki að setja mig í fyrsta sætið og nú finnst mér ég vera að setja konuna mína og barnið í fyrsta sæti og það er eðlilegt. Ég hefði ekki viljað eignast barn og konu og hugsa eins og ég gerði áður. Ég er rosalega ánægður og þakklátur fyrir það sem guð hefur gefið mér. Allt sem ég geri í dag þá er ég með þessa fallegu stúlku í huga.“ Fyrst og fremst að reyna að hafa gaman af þessu  Geir Ólafsson gefur út jólaplötu og undirbýr jólatónleika  Hljómsveit frá Los Angeles spilar undir  Tólf manna hljómsveit og gestasöngvarar Jólaskap Geir Ólafsson gaf á dög- unum út breiðskífu með jólalögum og er með í undirbúningi tónleika í Gamla bíói í desemberbyrjun. Morgunblaðið/RAX Nýjar týpur af vinsælu KAFFE-buxunum komnar í verslanir Útsölustaðir: • Momo.is – Garðabæ • Cocos – Grafarvogi • Kroll – Laugavegi • Share – Kringlunni • Fröken Júlía – Mjódd • Stíll – Síðumúli • Rita - Kópavogi • Dion.is – Glæsibæ • Corner - Smáralind • Smartey.is – Vestmannaeyjum • Rexin – Akureyri • Gallery Ozone – Selfossi • Palóma – Grindavík • Sentrum – Egilsstöðum • Blómsturvellir – Hellissandi • Verslunin Nína – Akranesi • Kóda – Keflavík • Töff föt – Húsavík • Mæðgur og Magasín – Stykkishólmi • SiglóSport – Siglufirði • Pex – Neskaupsstað/Reyðarfirði • Efnalaug Dóru – Höfn • Skagfirðingabúð – Sauðárkróki run@run.is • www.run.is 30 ÁRARÚN HEILDVERSLUN JACK REACHER 2 8, 10:30 TRÖLL 2D ÍSL.TAL 4, 6 GRIMMD 5:45, 10:30 INFERNO 8, 10:30 BRIDGET JONES’S BABY 5, 8 STORKAR 2D ÍSL.TAL 3:45 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar TILBOÐ KL 4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.