Morgunblaðið - 21.10.2016, Síða 92

Morgunblaðið - 21.10.2016, Síða 92
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 295. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Nakin kona við hús á Barónsstíg 2. „Ég er orðinn bugaður“ 3. 3 vélum snúið frá Keflavík 4. Bláeygður tesali slær í gegn »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sýningu Unnars Arnar, Þættir úr náttúrusögu óeirðar, lýkur nú um helgina en sýningin er í sýningarrým- inu Harbinger, sem er til húsa á Freyjugötu, og verður opin milli kl. 14 og 17 alla helgina. Þáttum úr náttúru- sögu óeirðar að ljúka  Myndasögu- forlögin Gisp! og Froskur efna til útgáfufagnaðar á Kaffi Laugalæk/ Gallerí Laugalæk í gamla Verðlista- húsinu við Lauga- læk í dag klukkan 17.00 í tilefni af nýrri myndasögu eftir þá Bjarna Hin- riksson og Jón Karl Helgason, sem nefnist Hvað mælti Óðinn? Fagna útgáfu Hvað mælti Óðinn?  Jesper Pedersen býður til tónleika í Mengi í tilefni af fertugsafmæli sínu í kvöld. Þeremín, hljóðgervlar og önnur rafhljóðfæri, vídeó, harpa og slagverk koma mögulega við sögu að sögn Jespers en gestir hans á afmælis- tónleikunum verða Katie Buckley hörpuleikari og Frank Aarnink slagverks- leikari. Afmælistónleikar Jes- pers Pedersen í Mengi Á laugardag, sunnudag og mánudag Suðaustan 8-15 m/s og rigning, talsverð sunnan til en skýjað með köflum eða bjartviðri um landið norðaustanvert. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast norðaustan til. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning sunnan- og vestanlands, en skýjað með köflum og yfirleitt þurrt um landið norðaustanvert. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast á Norðurlandi. VEÐUR „Það er þess virði að fljúga alla þessa leið til Kína til að fá svona góða leiki og frá- bæra umgjörð,“ segir lands- liðsþjálfarinn Freyr Alex- andersson í Morgunblaðinu í dag, en íslenska kvenna- landsliðið gerði 2:2 jafntefli við Kína í fyrsta leik á fjög- urra þjóða móti sem hófst í gær. Gríðarlegur raki hafði sitt að segja í leiknum sem Freyr segir að hafi að mestu gengið framar vonum. »3 Jafntefli og flest til fyrirmyndar Morgunblaðið ræðir í dag við Jón Ax- el Guðmundsson, körfuboltamann frá Grindavík, sem er að koma sér fyrir í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum. Fram undan er spennandi vetur hjá Jóni þar sem hann reynir að vinna sér sæti í sterku liði Davidson-háskólans. Einn þekktasti íþróttamaður Banda- ríkjanna, Stephen Curry, lék með lið- inu á árum áður. »4 Jón Axel á slóðum Stephens Curry ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Kynningardagur íþrótta fatlaðra á Íslandi, Paralympic-dagurinn, verður í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal á morgun klukkan 14- 16 og eru allir boðnir velkomnir. Alþjóðaólympíuhreyfing fatlaðra hefur mælst til þess við sambönd innan hreyfingarinnar að þau kynni íþróttir og íþróttaiðkun fatl- aðra með ein- hverjum hætti. Jón Björn Ólafs- son, íþrótta- og þjónustustjóri hjá Íþrótta- sambandi fatl- aðra, segir að Bretar hafi farið þá leið að bjóða afreksfólki víðs vegar að úr heiminum til Bretlands til þess að taka þátt í keppnum en Íþróttasamband fatl- aðra hafi valið þá leið að vera með sérstakan kynningardag. „Með þessum hætti fá öll aðildarfélög Íþróttasambands fatlaðra tækifæri til þess að koma fram og kynna starfsemi sína auk þess sem íþróttanefndir sambandsins kynna íþróttir og útfærslu á þeim með það í huga að margar íþrótta- greinar fatlaðra eru með öðruvísi aðlögun en í íþróttum ófatlaðra.“ Í annað sinn Íþróttasamband fatlaðra á sér langa sögu en byrjað var með kynningardaginn í fyrra. Jón Björn segir að hann hafi heppnast sérlega vel og áfram verði haldið á sömu braut árlega. „Félögin og nefndirnar merktu það að þau og nýir iðkendur hefðu náð vel saman enda reynum við að skapa svona viðburðatilfinningu, að ein- staklingar sem eru óákveðnir og stunda ekki íþróttir geti komið og kynnt sér hvað er í boði,“ segir hann. „Þetta var léttleikandi og skemmtilegur dagur og þannig viljum við hafa daginn. Við bjóð- um öllum sem vilja að koma og líta inn, hvort sem um er að ræða fatlaða eða ófatlaða. Við notum tækifærið til þess að sýna starf- semi okkar, eins fjölbreytt og lit- skrúðug og hún er. Auðvitað er það áskorun að kynna grein eins og sund inni í frjálsíþróttahöll en við klórum okkur fram úr því eins og öðru.“ Liðlega 1.000 iðkendur eru skráðir í íþróttir fatlaðra hér- lendis. Jón Björn bendir á að hér fæðast fimm til 15 börn með helft- arlömun og aðrar hamlanir árlega og miklu máli skipti að kynna þeim íþróttastarfið. Það sé há- mark endurhæfingarinnar þegar einstaklingur, sem býr með fötlun, taki ákvörðun um að stunda íþróttir og almenna lýðheilsu. „Við erum sammála mörgum sérfræðingum um það að end- urhæfingin getur ekki orðið mikið skilvirkari en það og við gerum okkur grein fyrir því að við verð- um stöðugt að koma þeirri flóru, sem er í framboði hjá okkur, á framfæri,“ segir Jón Björn. „Við leggjum því mikið upp úr þessum kynningardegi og viljum með hon- um benda á mikilvægi þess að sem flestir stundi íþróttir og holla hreyfingu, þó ekki sé nema lýð- heilsu eða almenningsíþróttir.“ Sund í frjálsíþróttahöll  Kynning á íþrótt- um fatlaðra í Laug- ardalnum á morgun Afreksmaður á Paralympics Þorsteinn Halldórsson í bogfimi á Ólympíumótinu í Rio de Janeiro í september sl. Kynning Kynningardagurinn var fyrst í fyrra og var vel tekið. Jón Björn Ólafsson Það ætti að skýrast í byrjun næsta mánaðar hvort Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari danska lands- liðsins í handknattleik, framlengir samning sinn við danska handknatt- leiks- sambandið, en samn- ingur hans rennur út næsta sumar. »1 Framlengir Guðmundur við Danina?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.