Morgunblaðið - 04.11.2016, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 04.11.2016, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016 Man ekki hvar börnin eru Æxlin í höfðinu hafa mikil áhrif á allt líf Hjördísar og líðan hennar. „Ég er alltaf syfjuð, alltaf þreytt og máttlaus. Ég á stundum erfitt með að tala og víxla orðum eða stama. Ég tala stundum vitlaust. Ég má ekki keyra núna af því að ég er á svo miklum lyfjum,“ segir hún. Einnig hefur æxlið slæm áhrif á minnið og finnur hún fyrir því dag- lega. „Ég man aldrei hvar ég set hlutina og ég man ekki nafnið þitt núna, en ég veit að þú sagðir mér það. Ég kíki alltaf nokkrum sinnum á dag á dagskrá dagsins. Ég man oft ekki hvar stelpurnar eru og spyr mömmu hvar þær séu, og spyr hana svo aftur hálftíma seinna. Ég man aldrei neitt.“ Hjördís fær mikla aðstoð frá móð- ur sinni og öðrum fjölskyldu- meðlimum. „Mamma kemur og hjálpar þegar þess þarf og sefur oft- ast inni hjá stelpunum en fer heim til sín um helgar. Bróðir minn er nú hér og hjálpar með skutl og annað, að passa.“ Alls ekki leyndarmál Hjördís segist hafa talað opin- skátt við börnin frá upphafi og út- skýrt fyrir þeim hvað væri að gerast. „Þau vissu hvað krabbamein var af því að amma þeirra var nýbúin að vera með krabbamein. Ég settist niður með þeim og útskýrði að ég væri komin með krabbamein og að ég yrði veikari. Ég sagði þeim að þetta væri ekki leyndarmál, alls ekki. Það mættu allir tala um þetta og þær mættu tala um þetta við vin- konur sínar. Litli strákurinn er lang- veikur og skilur meira en maður gerir sér grein fyrir. Hann spyr mig alltaf hvort læknarnir séu búnir að laga hausinn á mér. Hann skilur eitt- hvað,“ segir Hjördís. Aron fór í átta aðgerðir Sonur hennar Aron fæddist með þarma og líffæri fyrir utan líkam- ann. „Aron fæddist með gastrosch- isis, en það er þegar þarmarnir eru að utanverðu,“ segir Hjördís en það kom í ljós í tuttugu vikna sónar. Hún útskýrir að í flestum tilvikum er þörmunum ýtt aftur inn í kviðarhol og lokað fyrir án mikilla vandkvæða. Í tilviki Arons gekk það ekki svo vel. „Þetta var meira, það leit út fyrir að lifrin væri úti og meira af innyflum. Efri garnirnar voru stíflaðar og voru því alltof breiðar og neðri garnirnar voru tómar og því alltof þröngar og með stíflum og hálfur ristillinn var ónýtur. Þannig að hann fór í átta að- gerðir til að púsla þessu öllu saman,“ segir Hjördís sem eyddi næstum heilu ári á spítalanum. Aron fæddist mánuði fyrir tímann á eðlilegan máta en í herberginu beið her manns að taka á móti hon- um. „Það var pökkuð stofa og hann var teipaður saman og þarmarnir settir beint í plastpoka. Það var svo ekki hægt að setja þarmanna strax inn og hann var með þá utanáliggj- andi í poka í tvær vikur. Svo var þeim þrýst hægt og rólega í kvið- inn,“ segir hún en næstu þrjá mán- uði var hann á vökudeild og þar næst var hann sjö mánuði á barnadeild. Annað verkefni til að klára Hjördís segir það mikla lífreynslu að horfa upp á litla barnið sitt veikt og sjá á eftir honum í átta skurð- aðgerðir. „Sú reynsla, með Aroni, hjálpaði mér og mömmu í gegnum hennar reynslu,“ segir hún en móð- ir hennar greindist með brjósta- krabba árið 2013. „Ég sagði við mömmu, þú tekur þessu bara sem verkefni, þú klárar þetta. Það verð- ur þannig, maður fer í einhvern gír. Við mamma fórum í gír til að sigrast á hennar krabbameini. Og svo allt í einu er ég komin með krabbamein og maður fer aftur í sama gírinn. Ég fór ekki í sorg heldur hugsaði bara, annað verkefni, við bara klár- um þetta,“ segir Hjördís en móðir hennar þurfti að fara í skurðaðgerð þar sem brjóstið var fjarlægt og annað byggt upp, geisla- og lyfja- meðferð. Hvar finnurðu styrk til að takast á við þessi verkefni? „Ég veit það ekki, það er svo mik- ið af góðu fólki í kringum mig. Og svo er bara ekkert annað í boði. Þetta verður líf manns,“ segir Hjör- dís sem segist leita til annarra sem hafa sömu lífsreynslu að baki. Hún segist finna mikinn styrk í því að tala við fólk sem veit hvað hún er að ganga í gegnum. Aron litli, sem er nýorðinn fimm ára, er á lyfjum alla daga og fær sér- staka næringu í formi dufts sem blandað er í vökva. Hann borðar einnig sumt af venjulegum mat en á oft erfitt með að melta hann. „Hann er bara með helming af görnunum eftir og hann stíflast auðveldlega, fær illt í magann og ælir stundum og fær mjög oft niðurgang,“ útskýrir Hjördís en hún segir að þetta muni líklega skána með aldrinum þó að þetta muni fylgja honum út ævina. Stelpurnar eru litlar mömmur Líf barna Hjördísar hefur ekki verið áhyggjulaust. Stelpurnar hafa upplifað á sinni stuttu ævi veikindi ömmu, mömmu og litla bróður. „Það er alltaf einhver lasin. Stelpurnar eru mjög fullorðinslegar og ábyrgð- arfullar, maður sér það þegar þær eru með vinkonum sínum. Þær eru orðnar eins og litlar mömmur og passa upp á mig. Ég er með enda- laust samviskubit yfir að þeim finn- ist þær þurfa að passa mömmu sína,“ segir Hjördís. „Þær fara í Ljósið á námskeið fyr- ir börn sem eiga foreldra með krabbamein. Þar var ein sem átti mömmu sem var að deyja úr krabba- meini og þær komu rosalega litlar í sér heim. Við ræddum það bara. Ég sagði við þær að læknirinn væri ekki búinn að segja neitt svoleiðis við mig. Það væri allt að ganga vel hjá okkur. Við bara klárum meðferðina. Ég sagði þeim líka að ef að lækn- irinn myndi segja eitthvað slíkt við mig myndi ég segja þeim það strax. Ég myndi ekki leyna þær neinu,“ segir hún. „Þá leið þeim betur.“ Hún segir að Aron viti að hún sé veik í höfðinu og að hann verði að stilla sig um að vera með læti. „Ég var inni á líknardeildinni í haust af því að ég var of þreytt og orðin mjög lasin aftur,“ segir hún og útskýrir að ef hún verði of þreytt fái hún mikinn höfuðverk. „Miðað við að hann er bara fimm ára þá skynjar hann þetta að einhverju leyti.“ Það tekur á Hjördísi að geta ekki sinnt börnunum sínum sjálf, ein og óstudd. „Ég get ekki beðið eftir að fá að sjá um börnin mín sjálf. Það særir mig mest af öllu að geta það ekki sjálf. Ég á það alveg til að gráta yfir því. Að finna að ég get ekki verið ein með börnunum mínum er agalegt. Það er erfiðast.“ Þetta verður ekki læknað Hjördís tekur í kringum þrjátíu töflur á dag sem er vandlega raðað í box. Hún segir að dagurinn gangi þannig fyrir sig að hún reyni að fara út að ganga með hundinn, hún held- ur heimilinu hreinu og svo hvílir hún sig gjarnan yfir sjónvarpinu. Hún sækir einnig stuðning í Ljósinu og fer á Grensás í endurhæfingu tvo daga í viku. „Það er mjög gott, þá verð ég að fara á fætur og gera eitt- hvað.“ Hvað segja læknarnir? „Þeir segja að þetta sé meðferðin, geislar og lyf. Og það virkar. Ég fer núna í nóvember í segulómum og eftir það er eftirlit. Þeir segja mér ekkert meira. Ég veit að þetta verð- ur aldrei læknað. Það hefur komið fram.“ Hressleikar styrkja Hjördísi Hjördís segir að veikindin hafi mjög slæm áhrif á fjárhag sinn. „Þetta hefur tekist með hjálp allra,“ segir hún en viðurkennir að þetta sé búið að vera erfitt. „Þetta hefur tek- ið á. Ég get ekkert unnið og þar af leiðandi ekki þénað almennilega.“ Á laugardaginn verða haldnir Hressleikarnir í heilsuræktinni Hress en leikarnir eru haldnir ár- lega til styrktar einni hafnfirskri fjölskyldu sem þarf á hjálp að halda. Allur ágóði af leikunum rennur til Hjördísar og barna hennar en hver keppandi borgar 2.500 krónur en einnig eru seldir happdrættismiðar. Hægt er að styrkja Hjördísi með beinum hætti og hefur styrkt- arreikningur verið opnaður. Jákvæðni Hjördís segist takast á við verkefnin með jákvæðni og æðruleysi. Langveikur Aron er langveikur en hann fæddist með utanáliggjandi þarma. Hressleikarnir í Hafnarfirði eru haldnir á laugardag í níunda skipti og er þetta í áttunda sinn sem hafn- firsk fjölskylda fær að njóta góðs af þessum góðgerðarleikum. „Þetta hófst allt í kreppunni þegar allir voru svo leiðir. Starfsfólkið kom með þá hugmynd að gera eitthvað til að hressa alla við. Það gengur ekki upp að vera óhress í Hress,“ segir Linda Hilmarsdóttir, eigandi heilsuræktarstöðvarinnar Hress í Hafnarfirði. „Eftir fyrstu leikana var ákveðið að gera þá að góðgerðarleikum og síðan þá hefur ein hafnfirsk fjölskylda hlotið styrk. Við höfum náð að létta undir með fólki á erfiðum stundum í lífi þess. Það er allt ótrúlega fallegt í kringum þetta. Þetta lað- ar fram það góða í starfsfólkinu og viðskiptavinunum,“ segir Linda en hún hefur ekki haft undan að taka við gjöfum sem annað hvort verða happdrættisvinningar eða verða gefnar fjölskyldunni. „Ég finn fyrir mik- illi velvild í Hafnarfirði. Og starfsfólkið gefur vinnunna sína þennan dag. Þetta er ánægjuleg upplifun fyrir alla. Fólk er að skemmta sér vel á leik- unum; við erum að styrkja kroppinn og gott málefni í leiðinni,“ segir Linda. Von er á 250 manns á laugardagsmorgun sem skiptast í lið. Hver þátt- takandi borgar sig inn og einnig eru seldir happdrættismiðar. Hægt er að styrkja Hjördísi á reikningi 135-05-71304, kt. 540497-2149. Hress styrkir Hjördísi Ósk HRESSLEIKAR Í 9. SINN NILFISK háþrýstidælur Fyrirtækjasvið Olís • Sími 515 1100 • pontun@olis.is • olis.is Hjá Olís færðu Nilfisk gólfþvottavélar, háþrýstidælur, atvinnuryksugur og ýmis tæki til iðnaðarnota. PIPA R\TBW A • SÍA • 16 4 567
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.