Morgunblaðið - 04.11.2016, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 04.11.2016, Blaðsíða 68
68 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016 ✝ Reynir Ragn-arsson, löggilt- ur endurskoðandi, fæddist í Reykja- vík 6. desember 1947. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 22. október 2016. Foreldrar Reyn- is voru Ragnar Þorsteinsson, f. 6. febrúar 1923, d. 6. janúar 2000, og Guðrún Snjólaug Reyn- isdóttir, f. 13. janúar 1929, d. 22. september 1999. Reynir ólst upp á Hrísateig í Reykjavík og var elstur sjö systkina og eru þau í aldursröð: Anna Nína, f. 1950, Þorsteinn, f. 1951, Guðrún, f. 1953, Snorri, f. 1955, Elínborg, f. 1959, og Ingibjörg, f. 1961. Reynir kvæntist 15. júní 1968 eftirlifandi eiginkonu sinni, Halldóru Gísladóttur, f. 14. nóvember 1947. Börn þeirra eru: 1. Guðrún, f. 1.10. 1967, maki Robert James Kilian, f. Þorsteini Ragnarssyni og hafa þeir starfað saman alla tíð. Árið 2002 settist Reynir á skólabekk á nýjan leik og lauk MBA-prófi frá Háskóla Íslands vorið 2004. Reynir tók þátt í félagsstörf- um frá unga aldri innan skíða- deildar ÍR þegar hún hafði að- setur við Kolviðarhól og síðar í Hamragili. Reynir gegndi margvíslegum störfum fyrir skíðadeildina, var meðal ann- ars formaður um tíma og stóð fyrir byggingu skíðaskála og uppsetningu á lyftum ásamt fleiri sjálfboðaliðum á þessum tíma. Reynir settist í stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur árið 1988 og var kjörinn for- maður 1994 og gegndi því emb- ætti til 2009. Á þessu tímabili sat hann jafnframt í stjórn Ís- lenskrar getspár, vallarstjórn Laugardalsvallar og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum á vett- vangi Íþrótta- og ólympíusam- bands Íslands. Reynir var gerð- ur að heiðursfélaga Íþrótta- og ólympíusambands Íslands í apr- íl 2015 fyrir vel unnin störf inn- an íþróttahreyfingarinnar. Reynir var jafnframt virkur í Rótarýklúbbi Árbæjar í 25 ár. Útför Reynis fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 4. nóv- ember 2016, og hefst athöfnin klukkan 13. 24.3. 1968, og eru dætur þeirra Sóley Dóra, f. 19.8. 1998, og Maya Donna, f. 29.4. 2000. 2. Gísli, f. 24.3. 1972, maki Sigríður Bryndís Stefánsdóttir, f. 12.6. 1973, þeirra börn eru Halldóra, f. 29.8. 2000, og Stefán, f. 8.2. 2005. 3. Arnar Gauti, f. 24.3. 1981, maki Sigríður Vala Halldórsdóttir, f. 24.4. 1983, þeirra börn eru Thelma, f. 12.9. 2011, andvana fædd, Edda Björk, f. 20.10. 2012, og Hall- dór, f. 3.7. 2014. Reynir gekk í Laugarnes- skólann og síðan í lands- prófsdeildina við Vonarstræti en þaðan lá leiðin í Versl- unarskóla Íslands og útskrif- aðist hann vorið 1967. Reynir varð löggiltur endurskoðandi árið 1975 og hóf rekstur eigin skrifstofu. Reynir stofnaði Þrep endurskoðun árið 1987 ásamt Pétri Guðbjartssyni og Tengdafaðir minn, Reynir Ragnarsson, er látinn. Undan- farna mánuði höfum við horft á þennan glaðværa, hlýja mann hverfa fyrir augum okkar. Þetta voru erfið veikindi. Reynir gaf þó aldrei upp vonina um að hann mundi ná bata eða eiga í það minnsta betri daga. Það lýs- ir honum vel. Ég kynntist manninum mín- um, Gísla, fyrir 20 árum og þar með tengdafjölskyldu minni. Fjölskyldur okkar eru líkar um margt og foreldrar okkar tengd- ust ágætlega. Mæður okkar báð- ar kennarar og þau öll fædd á sama árinu. Það er erfitt að tala um Reyni án þess að minnast einnig á Dóru. Dóra og Reynir voru mjög samrýnd hjón og eru okk- ur Gísla góð fyrirmynd. Þau áttu marga góða vini og góð systkini sem hafa reynst þeim einstaklega vel. Reynir hafði hlýja og nota- lega nærveru. Hann var mikill fjölskyldumaður og náinn börn- um sínum og barnabörnum. Hann kom úr stórum systkina- hópi sem hélt vel saman og hitt- ist reglulega og greinilegt að Reynir var stóri bróðirinn sem litið var upp til. Reynir og Dóra voru mjög dugleg að ferðast með börnin sín. Þau ferðuðust mikið um há- lendið og sigldu á skútunni Uglu sem þau áttu hlut í. Gísli og systkini hans eiga margar góðar minningar um slíkar fjölskyldu- ferðir. Þegar ég kom í fjölskyld- una var það ljóst að ég þyrfti að læra á skíði. Það væri sameig- inlegt áhugamál fjölskyldunnar og þá íþrótt gætu allir stundað saman. Síðan ég kynntist þeim höfum við farið í mörg ferðalög saman, oft á skíði til Austurríkis og til Akureyrar en einnig höf- um við siglt með þeim á skút- unni. Fyrir nokkrum árum byggðu Dóra og Reynir sér fallegan bú- stað við Flúðir. Þar undu þau sér vel bæði tvö saman en líka oft í góðra vina hópi. Við fjöl- skyldan áttum fjölmargar góðar stundir í sumarbústaðnum. Saman settum við niður plöntur og stússuðum í sveitinni. Síðasta minningin úr bústaðnum er frá því um verslunarmannahelgina – auk okkar voru þar Gauti og fjölskylda og foreldrar mínir. Við fórum í smá ferðalag um sveitina, grilluðum í dalnum og sátum úti og spjölluðum, full- orðnir og börn. Börnin okkar Gísla, Halldóra og Stefán, voru hænd að afa sín- um. Þau minnast hans sem smá- stríðins, góðs og hvetjandi. Skíðaiðkunin tengdi þau vel saman og þeim þótti gott að hafa afa með til gefa góð ráð, hvetja, hrósa eða hugga, allt eft- ir því hvernig landið lá. Undanfarna daga höfum við skoðað gamlar myndir og minnst góðra stunda. Eftir sitja margar minningar um mann sem lifði lífinu lifandi. Hann var börnum sínum og barnabörnum fyrirmynd á svo margan hátt. Ég er þakklát fyrir að hafa átt góðan tengdaföður og mun sakna hans. Hvíl í friði. Sigríður Bryndís Stefánsdóttir. Stuttu eftir að leiðir okkar Gauta lágu saman var mér boðið í mat í Staðarselið til þess að hitta Dóru og Reyni. Blíðar móttökur og afslappað andrúms- loft einkenndi okkar fyrsta fund og hefur fylgt okkar samskipt- um og samveru æ síðan. Þar var ég heppin. Gleði, bjartsýni og yfirvegun einkenndi fas Reynis frá því að ég kynntist honum og þar er margt líkt með þeim feðgum. Þessi gleði og bjartsýni fyllir í dag heimilið okkar og betra umhverfis til þess að alast upp í og veganestis út í lífið gæti ég ekki óskað börnunum okkar. Samverustundir okkar hafa verið margar enda er fjölskyld- an náin og samrýnd. Þær stund- ir sem eru mér minnisstæðastar eru fríin okkar saman, hvort sem þau voru í skíðabrekkunum í Austurríki eða á golfvellinum á Flúðum. Reyni leiddist aldrei að leiðbeina mér og hvað þá að bíða eftir mér í brekkunum eða á teigunum þegar þess þurfti. Þannig maður var Reynir. Þegar við Gauti eignuðumst börnin okkar kynntist ég ann- arri hlið á Reyni, honum afa Reyni. Það duldist engum hvað hann naut þess að umgangast barnabörnin sín og hvað þau nutu þess að umgangast hann. Sterk minning er frá síðustu ferð okkar saman til Ameríku í júní sl. þegar sá minnsti leitaði ítrekað í fang afa síns á morgn- ana og sátu þeir saman heillanga stund að púsla. Þessi hlið hans var sú einlægasta og fallegasta sem ég kynntist. Í dag kveikjum við Edda Björk og Halldór á kerti fyrir afa Reyni af því að þá líður okk- ur svo vel í hjartanu eins og hún Edda Björk segir. Við erum þakklát fyrir allar stundirnar sem við áttum saman og ætlum í sameiningu að geyma þær í hjörtum okkar. Minningin um góðan mann, föður, tengdaföður og afa lifir. Hvíl í friði, elsku Reynir. Sigríður Vala. Elsku afi minn Reynir er dá- inn. Ég sit og reyni að skrifa um hann, en orð geta ekki lýst því hve yndisleg manneskja afi var. Ég sakna hans mikið en ég veit að honum líður betur núna. Mamma sagði við mig að það væri gott að ímynda sér hann sigla báti á lygnum sjó og nú væri hann komin á nýja strönd þar sem hann hittir gamla og nýja félaga. Mér finnst gott að hugsa um hann þannig. Ég á mjög margar góðar minningar um stundir sem við áttum saman og ég er þakklát að hafa fengið að eyða miklum tíma með afa. Skíðaferðir, golf og bústaðaferðirnar er aðeins brot af þeim stundum sem við áttum saman. Afi var mikill íþróttakarl og fannst gaman að stunda íþróttir og horfa á þær. Sjálf er ég að æfa skíði og sagði amma oft að afi væri besti skíðakennari sem hægt væri að finna. Án afa væri ég líklegast ekki að æfa skíði því hann kenndi pabba mínum. Afi var ekki bara góður kennari heldur var hann einnig frábær stuðningsmaður og hafði alltaf áhuga á því sem maður var að gera. Afi kom oft að horfa á mig keppa og síðastliðna þrjá vetur hafa hann og amma komið og horft á mig og Stefán bróður keppa á Andrésar andarleikun- um. Það hefur alltaf verið mikið stuð og gaman að hafa góðan stuðning á hliðarlínunni. Mín síðasta minning um afa var þegar ég heimsótti hann á líknardeildina. Pabbi hafði sagt mér áður en við komum að hann hefði ekki sýnt mikil viðbrögð undanfarna daga en þegar ég og Stefán komum þá brosti hann til okkar. Það var fallegt bros og ég fann væntumþykju í gegnum þetta bros. Ég er mjög heppin að hafa kynnst svona frábærum manni og enn þá heppnari að hafa átt hann fyrir afa. Með þessum orð- um kveð ég afa minn. Ég mun sakna hans sárt. Halldóra. Skjótt skipast veður í lofti. Hver hefði trúað því síðastliðinn desember, þegar við systkinin hittumst í árlegu aðventuboði á heimili Dóru og Reynis, að tíu mánuðum síðar væri okkar kæri bróðir allur, eftir erfið veikindi. Reynir var elstur okkar systk- inanna sjö, fyrirmynd okkar og sá sem við litum upp til. Reynir var fyrsta barnabarn ömmu Jónínu og afa Reynis og milli hans og þeirra var sérstakt samband enda var Reynir fædd- ur á heimili afa og ömmu. Sum- arbústaðurinn sem afi Reynir byggði við Hafravatn skipar stóran sess í æskuminningum okkar. Við minnumst fallegra sumarkvölda þar sem stór vina- hópur Reynis og Dóru er sam- ankominn til þess að stunda sjóskíði á vatninu. Í minning- unni eru kvöldin fjölmörg, vatn- ið spegilslétt, glatt á hjalla, mik- ið hlegið og amma og mamma með heitt á könnunni. Ósjaldan fengum við yngri systkinin að vera með, prófa sjóskíðin eða vera í hraðbátnum. Þarna sýndi sig strax hversu góður bróðir Reynir var en hann var alltaf reiðubúinn til þess að aðstoða okkur yngri systkini sín þegar við leituðum til hans. Steini og Reynir voru samstarfsmenn í tæpa fjóra áratugi og minnist Steini Reynis sem læriföður og góðs samstarfsmanns. Nú þegar við kveðjum Reyni er margs að minnast svo sem þegar hann kynnti okkur fyrir Dóru sem var lífsförunautur hans í 50 ár. Þau voru einstak- lega samhent hjón, hvort sem það var í uppeldi barnanna þriggja, í störfum sínum eða áhugamálum. Skíðaíþróttin sam- einaði fjölskylduna en þar voru börn og barnabörn virkir þátt- takendur og fór fjölskyldan saman í ótal skíðaferðir innan- lands og utan. Auk þess ferð- uðust þau mikið og þá var oft haldið til Minneapolis til þess að heimsækja Gunnu, Rob og dæt- ur. Ófáar stundir átti fjölskyldan líka saman í fallega sumarhús- inu þeirra, Vindási í hlíðum Langholtsfjalls. Frá bústaðnum er fallegt útsýni yfir Unnarholt, æskustöðvar Jónínu ömmu. Sjálf göntuðust Dóra og Reynir með að nú væru þau komin í heima- hagana enda bæði ættuð úr Hrunamannahreppnum. Meðal áhugamála Reynis voru skútusiglingar og ferðalög til fjarlægra staða, golf og ýmiss konar félagsmál. Reynir vann mörg trúnaðarstörf í þágu íþrótta- og Rótarý- hreyfingarinnar. Það lýsir dugn- aði Reynis vel að á sextugsaldri dreif hann sig í MBA-nám við HÍ. Það er því þyngra en tárum taki að þessi lífsglaði og kraft- mikli bróðir skuli falla frá alltof fljótt. Með fráfalli Reynis bróður er stórt skarð höggvið í frænd- systkinahópinn sem ólst upp í fjölskylduhúsinu við Hrísateig. Þar bjuggu í sama húsi um ára- tuga skeið þrjár kynslóðir föð- urfjölskyldu okkar. Hópurinn hefur alltaf verið samrýmdur og haldið vel saman. Reynis, sem alltaf var hrókur alls fagnaðar, verður nú sárt saknað. Að leiðarlokum viljum við þakka okkar kæra stóra bróður samfylgdina og votta Dóru, Guð- rúnu, Gísla, Gauta og fjölskyld- um þeirra okkar dýpstu samúð. Við biðjum góðan guð að varð- veita Reyni og geymum minn- ingu um góðan dreng í hjörtum okkar. Anna Nína, Þorsteinn, Guðrún, Snorri, El- ínborg og Ingibjörg. Það er erfitt að sjá á eftir góðum vini. Fráfall Reynis vek- ur upp margar endurminningar um góðar stundir sem við áttum saman bæði í vinnu og leik. Fundum okkar bar fyrst sam- an fyrir um það bil 40 árum. Reynir var á margan hátt ein- stakur maður. Hann var afar ráðagóður á sínu sérfræðisviði og mikill fagmaður. Honum var sérstaklega lagið að sjá ávallt aðalatriði hvers máls og að láta ekki smærri atriði flækjast fyr- ir. Við þetta bættist svo að Reynir var afar ljúfur og vel skapi farinn. Það þurfti því mik- ið til að koma honum úr jafn- vægi jafnvel þótt hart væri deilt. Þessa eiginleika Reynis kunni ég sérstaklega vel að meta. Reynir var mikill íþróttamað- ur og var til í flest ævintýri þar að lútandi. Minnast ber hér á ótal skíðaferðir og skútuferðir okkar hérlendis og erlendis. Ég hitti Reyni á skíðum síðastliðið vor á Akureyri. Hann naut þeirrar ferðar mjög en fram kom að veikindi hans höfðu þá þegar dregið úr honum fyrri atorku. Reynir var fjölskylduvinur. Hann var alltaf til taks fyrir stórfjölskylduna. Hann naut trausts okkar allra allt til ævi- loka. Missirinn er því sár og ég sakna mjög góðs vinar. Ég flyt eiginkonu hans, börn- um og öðrum aðstandendum kveðjur og samhryggist þeim vegna fráfalls Reynis. Stefán Már Stefánsson. Ég var 10 ára og ekkert mátti fara framhjá mínum vökulu aug- um. Ég gerði mér því eitthvað til erindis út á tröppur í Ferju- voginum til að geta virt fyrir mér strákinn sem kom að sækja Dóru systur. Rústrauður forn- bíll renndi upp að og út steig ungur maður í teinóttum jakka- fötum – samt bara 17 ára bólu- grafinn unglingur með strítt hár þegar betur var að gáð. Stuttu seinna fylgdist ég með þeim dansa í borðstofunni heima áður en hún sigldi til Danmerkur í lýðháskóla og hann kvaddi hana á hafnarbakkanum í teinóttu jakkafötunum. Allt frá þeim tíma, eða í hálfa öld, hafa þau dansað saman í ljúfum og góð- um takti. Reyni fylgdu nýir straumar. Skyndilega vorum við systkinin farin að reyna fyrir okkur á skíðum í Hamragili og jafnvel bruna á spíttbát og stunda sjóskíði á Hafravatni. Við kynnt- umst líka fólkinu hans Reynis á Hrísateignum; foreldrum hans Ragnari og Guðrúnu; systkinun- um Nínu, Steina, Gunnu, Snorra, Ellu og Imbu; Þorsteini afa og Möggu föðursystur í kjallaranum og dætrum hennar; Rósu föðursystur í risinu og hennar fólki og Reyni afa og Jónínu ömmu á Njarðargötunni. Öllu þessu góða fólki tengdumst við sterkum böndum sem hafa haldið alla tíð síðan. Reynir hafði sterka stöðu á Hrísateignum enda elsti strák- urinn í húsi þar sem stelpur voru í miklum meirihluta. Það gat dugað til að skapa strákum stöðu á þessum árum en fleira kom þó til. Ég hafði alltaf sterkt á tilfinningunni að Reynir væri Guðrúnu móður sinni mikil stoð og stytta og þau væru tengd sterkum böndum. Þó að Reynir væri enn ungur að árum var hann þá þegar bæði ábyrgur og skynsamur. Það var mikil kjöl- festa í honum og þegar hann hafði tekið stefnuna nennti hann ekki að hlusta á neitt fjas. Ég verð að játa að mér stóð aðeins stuggur af honum til að byrja með en það breyttist fljótt enda var Reynir alltaf boðinn og bú- inn að gefa mér góð ráð og að- stoða mig með hverjum þeim hætti sem hann gat. Sérstaklega reyndi á þetta eftir að ég fór út í pólitík og þurfti á talnaglöggum manni að halda sem gat hjálpað mér að lesa fjárhagsáætlanir og ársreikninga. Reynir var mikill útivistar- maður og ógleymanleg er ferðin í Friðmundarvötn á Gríms- tunguheiði sem við fórum nokk- ur saman á gömlum vípon áður en strangar reglur um örygg- isbúnað bíla tóku gildi. Það er líka ógleymanlegt þegar ákveðið var að kynna skíðaíþróttina fyrir Hjölla jólin 2005, en við syst- urnar fórum með fjölskyldur okkar á skíði til Flachau. Reynir tók m.a. að sér að segja Hjölla til en hann var kominn hátt á sextugsaldur og hafði nær aldrei stigið á skíði áður. Kennslan gekk þokkalega framan af en al- ger viðsnúningur varð ekki fyrr en Reyni fór að leiðast þófið og sagði mjög ákveðið: „Stígðu í helvítis löppina.“ Þetta varð Hjölla alger hugljómun og hann skildi á augabragði hvernig skíð- in virka. Lífsdansi Reynis og Dóru saman er nú lokið og Reynir hefur yfirgefið dansgólfið. Við Hjölli þökkum honum samfylgd og vináttu og sendum systur minni elskulegri, sem og Guð- rúnu, Gísla og Gauta og þeirra fjölskyldum, innilegar samúðar- kveðjur. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Kær vinur í yfir fimmtíu ár er fallinn frá eftir stutt en skæð veikindi. Fyrir aðeins ári síðan lékum við golf saman á Flórída og engan hefði órað fyrir því þá hvað beið þessa öfluga íþrótta- manns. Kynni okkar hófust reyndar er ég kynntist föður hans, sem starfaði mikið fyrir ÍR og íþróttahreyfinguna alla og sat í fyrstu stjórn ÍBR. Síðar störf- uðum við Reynir mikið saman fyrir skíðadeild ÍR og stund- uðum skíðaíþróttina alla tíð eftir það. Sem endurskoðandi sá hann alltaf um mín framtöl, jafnt persónuleg sem og fyrir fyrirtæki mitt. Reynir var af- skaplega töluglöggur maður, yf- irvegaður, traustur og vandvirk- ur, sem lét ekkert koma sér úr jafnvægi og því var gott að leita ráða hjá honum um öll mál, lítil sem stór. Það fór því svo að leitað var til hans um forystu í íþrótta- heiminum. Hann átti sæti í stjórn Skíðadeildar ÍR og var þar formaður á sjöunda ára- tugnum. Seinna áttum við sæti saman í aðalstjórn ÍR frá 1977 til 1985, eða samtals í átta ár. Á þingi Íþróttabandalags Reykja- víkur 1986, ákváðum við ÍR-ing- ar að stinga upp á Reyni í vara- stjórn og voru félagar hans þar fljótir að koma auga á hæfni hans og var hann kosinn í fram- kvæmdastjórnina tveimur árum síðar. Hann var síðan formaður bandalagsins frá 1994 til 2009 eða samtals í 15 ár. Hann átti einnig sæti í Getspá og í stjórn Laugardalsvallarins. Reynir var alltaf mjög samningalipur mað- ur, sem kom sér vel, í öllum þeim stjórnum sem hann kom að fyrir íþróttahreyfinguna og tók Íþróttabandalagið stórstíg- um framförum í formannstíð hans. Alla tíð var vinskapur okkar hjóna við Reyni og Halldóru mikill og margs er að minnast. Allar leikhúsferðirnar og oftar en ekki borðuðum við saman áð- ur en farið var í leikhúsið. Þá eru golfferðir okkar ógleyman- legar, sérstaklega þegar við heimsóttum hvort annað og spil- uðum ýmist á Flúðum eða Geysi og nutum samverunnar í bústöð- um hvort annars við góða máltíð eftir leik. Það fylgir því mikill tómleiki að missa svona góðan vin og við eigum eftir að sakna hans mikið. Elsku Dóra og þið börnin,G- uðrún, Gísli og Gauti, tengda- börn og barnabörnin, við biðjum Guð að styrkja ykkur í sorginni. Blessuð sé minning Reynis. Þórunn og Þórir. Æskuvinur minn, Reynir Ragnarsson, er fallinn frá, allt of snemma. Við kynntumst 10 ára við skíðaskálabyggingu ÍR á Hellis- heiðinni, þar sem feður okkar störfuðu mikið. Allar götur síðan höfum við verið vinir, þó við veldum okkur ólíkan starfsvettvang. Við vorum uppi í ÍR-skála öll Reynir Ragnarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.