Morgunblaðið - 04.11.2016, Side 89
MENNING 89
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016
Hjartasteinn, fyrsta kvikmynd Guð-
mundar Arnars Guðmundssonar í
fullri lengd, hlaut þrenn verðlaun á
hinni nýafstöðnu Molodist-kvik-
myndahátíð í Kiev í Úkraínu. Mynd-
in fékk áhorfendaverðlaun hátíð-
arinnar, FIPRESCI-verðlaun
samtaka gagnrýnenda og hlaut
Baldur Einarsson sérstaka viður-
kenningu fyrir hlutverk sitt, en hann
var eini leikarinn sem hlaut verðlaun
á hátíðinni.
Anton Máni Svansson, framleið-
andi Hjartasteins, var viðstaddur há-
tíðina og veitti verðlaununum við-
töku. „Hjartasteinn var heimsfrum-
sýnd, fyrst íslenskra kvikmynda, í
keppni á kvikmyndahátíðinni í Fen-
eyjum í september og hefur síðan þá
tekið þátt á fjölda virtra alþjóðlegra
kvikmyndahátíða og alls unnið til
átta alþjóðlegra verðlauna,“ segir
Anton Máni, sem er ásamt Guð-
mundi leikstjóra á leið til Þýskalands
fyrir þýska frumsýningu mynd-
arinnar. Að hans sögn er um þessar
mundir verið að sýna myndina í Dan-
mörku og Brasilíu, en Hjartasteinn
verður frumsýnd í kvikmyndahúsum
hérlendis í kringum áramótin.
Sigursæll Anton Máni Svansson, framleiðandi Hjartasteins, tók við verð-
laununum á Molodist-kvikmyndahátíðinni í Kiev í Úkraínu.
Hjartasteinn hlaut
verðlaun í Úkraínu
Tónlistarmað-
urinn Shahzad Is-
maily gengst fyrir
tvennum spuna-
tónleikum í Mengi,
Óðinsgötu 2, í dag
milli 18 og 20 og á
morgun, laug-
ardag milli 17 og
20. Shahzad og fé-
lagar munu halda afar lágstemmda
tónleika sem verða að mestu óraf-
magnaðir. Á tónleikunum koma
einnig fram tónlistarmenn sem
munu spila á tónlistarhátíðinni Ice-
land Airwaves. Aðgangur á hvora
tveggja tónleikana er ókeypis og
allir eru velkomnir.
Tónlistarmaðurinn
Shahzad Ismaily
Lágværir spuna-
tónleikar í Mengi
Nú á hrekkjavökunni varferska íslensk-amerískahrollvekjan, Child Eater,frumsýnd í Bíó Paradís.
Leikstjóri myndarinnar, Erlingur
Óttar Thoroddsen, lauk nýverið námi
í kvikmyndagerð frá Columbia-
háskóla í New York. Lokaverkefni
hans samanstóð af stuttmyndunum
Child Eater og The Banishing sem
báðar hafa hlotið góðar viðtökur og
verið sýndar víða á kvikmyndahátíð-
um. Child Eater er fyrsta mynd Er-
lings Óttars í fullri lengd en hún er
byggð á áðurnefndri stuttmynd og
skartar sömu aðalleikkonunni. Mynd-
in var framleidd óháð og fjármögnuð
með söfnunarsjóði aðstandenda
hennar.
Child Eater gerist í hrörlegum
smábæ í New York-ríki og segir frá
Helen (Cait Bliss), ungri gengilbeinu
sem er fengin til að passa drenginn
Lucas (Colin Critchley) eina kvöld-
stund. Lucas er nýfluttur með föður
sínum í afskekkt draugahús sem
stendur í skógivöxnum bæjar-
jaðrinum. Um árabil hefur sú flökku-
saga gengið manna á milli að í þess-
um skógi búi sturlaður maður,
Robert Bowery (Jason Martin), sem
veiðir börn og borðar úr þeim augun
svo hann sjálfur verði ekki blindur.
Þegar Lucas fer í háttinn segir hann
Helen frá því að hann hafi séð þennan
skuggalega mann þá um daginn og að
hann fylgist sífellt með Lucasi hvar
sem hann er og hvert sem hann fer.
Helen reynir að hughreysta Lucas en
gerir það einungis af hálfum hug því
á þeirri stundu bankar Tom (Dave
Klasko) kærasti hennar upp á. Tom
er sjálfumglaður og vill lifa og leika
sér en Helen komst að því fyrr um
daginn að hún er ófrísk og þau þurfa
því að gera upp sín mál. Þegar Lucas
kallar aftur og segir Bowery vera í
fataskápnum sínum bregst Helen
höstuglega við en á hana renna tvær
grímur þegar Lucas hverfur spor-
laust úr rúmi sínu skömmu síðar. Þá
tekur við martraðarkenndur björg-
unarleiðangur og blóðug barátta þar
sem margir eiga eftir að liggja í valn-
um áður en yfir lýkur.
Erlingur er augljóslega vel skól-
aður í eðli hrollvekja – sögu þeirra,
baklandi og menningarlegu vægi. Í
handritinu vinnur hann markvisst
með væntingar áhorfenda og hefðina
en afbyggir hana sömuleiðis og
endurvinnur. Hann kryddar seið sinn
með stefjum út bókmenntafræði svo
úr verður afar marglaga táknsaga,
óhóflega ofhlaðin vísunum sem í stað
þess að drukkna í merkingar-
fræðilegum pytti verður að gáska-
fullri og hnyttinni ímyndaveislu. Í
myndinni láta til að mynda á sér
kræla norn með eitrað epli, skrímsli
með augnablæti í anda Óla lokbrár,
ófreskja í skáp/kjallara/skógi og
vampírulegur uppvakningur. Við
þetta allt spinnur Erlingur svo aðal-
kenningu myndarinnar um að hvítir
storkar færi verðandi foreldrum hvít-
voðunga sína en að sama skapi geti
svartir storkar numið brott og étið
börn óhæfra foreldra.
Handrit myndarinnar er úthugsað
og frásögnin vel undirbyggð allt frá
opnunaratriðinu sem segir í endurliti
frá því hvernig stúlkubarn í skjanna-
hvítum blúndukjól sleppur naumlega
úr klóm ófreskjunnar Bowery, öðru
auganu fátækari. Aldarfjórðungi síð-
ar er þetta fórnarlamb, Ginger (Mel-
inda Chilton), orðið að ekki síður
sturluðu skrímsli sem telur sig vernd-
ara glataðra barna en er í raun hefnd-
arþyrst grýla. Söguþráður mynd-
arinnar er djöfullega úthugsaður,
ógnvekjandi og blóði drifinn en samt
einnig sprenghlægilegur á köflum. Í
raun má segja að myndin endurveki
hrollvekjur níunda áratugarins líkt
og Scream gerði á sínum tíma. Í
handriti beggja mynda er lipurlega
skotið inn kaldhæðnum vísunum í
gamalgróna formúluna og háðskri
samfélagsrýni. Í báðum myndum er
ósæmilegu gríni einnig blandað við
yfirgengilegt ofbeldi slæginga-
raðmorðingjamynda til að skopstæla
og í senn upphefja klisjur klassísku
hryllingsmyndanna.
Myndin er vel leikin og áhorfendur
eru uggandi um velferð Lucasar allt
til enda. Þeir hvetja Helen til dáða í
björgunaraðgerðunum og hlæja að
ábyrgðarleysi Toms. Ginger er svo
krassandi að hún stelur nánast sen-
unni á köflum og augnétandi skrímsl-
ið Bowery er óhugnaðurinn holdi
klæddur. Hann klífur strax metorða-
stigann og tekur sér sinn sess meðal
frægustu hryllingsmyndaraðmorð-
ingja allra tíma: Freddy Krueger,
Michael Myers og Jason Voorhees.
Bowery er óljós og ódauðlegur fjandi,
hvorki lífs né liðinn. Það er ekki nóg
með að hann veiði börn til að éta úr
þeim augun heldur neyðir hann þau
fyrst til að fara með sér í feluleik þar
sem þau eru blinduð með tusku-
brúðulegri dauðagrímu. Nærvera
hans ein og sér er ógnvænleg. Hann
vofir yfir eins og stór, hæglátur og
gleypandi skuggi þannig að áhorf-
endur og persónur eru oft ekki viss
um hvort hann standi álengdar eða
hvort myrkrið villi þeim sýn. Það er
þangað til hann hreyfir sig skyndi-
lega, slær fórnarlömbin niður eða
hrifsar þau til sín og étur augu þeirra
eins og óseðjandi tryllt óargadýr.
Hetjur myndarinnar eru ekki varn-
arlaus fljóð eða minni máttar fórn-
arlömb sem sterkar karlmannlegar
hetjur þurfa að bjarga. Því er frekar
á hinn veginn farið. Fórnarlömbin
eru flest kokhraustir karlmenn og
þeir eru stráfelldir um miðbik mynd-
arinnar í farsakenndum kafla sem
veitir örvingluðum áhorfendum kær-
komið tækifæri til að springa úr
spenningi og frussa af hlátri. Tækni-
lega séð kemur myndin einnig á óvart
og þar munar mest um skemmtilegan
leik með gleiðlinsu í kvikmyndatöku.
Hún afbakar fjarlægðir og ruglar
jafnt persónur og áhorfendur í ríminu
svo þær upplifa sig í senn innilokaðar
og sturlaðar af víðáttufælni. Ægivald
myrkursins nýtur sín einnig í sviðs-
mynd og lýsingu svo allt leggst á eitt
og úr verður vel heppnuð, bráðfyndin
og ógnvekjandi hrollvekja.
Hryllingur með ferskum augum
Bíó Paradís
Child Eater bbbbn
Leikstjórn og handrit: Erlingur Óttar
Thoroddsen. Stjórn kvikmyndatöku:
John Wakayama Carey. Klipping: Robert
Grigsby Wilson. Leikmyndahönnun:
Ramsey Scott. Búningar: Annie Simon.
Förðun: Fiona Tyson. Tónlist: Einar Sv.
Tryggvason. Aðalhlutverk: Cait Bliss,
Colin Critchley, Jason Martin, Dave
Klasko og Melinda Chilton. 82 mín.
Bandaríkin/Ísland, 2016.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Myrkur „Söguþráður mynd-
arinnar er djöfullega úthugs-
aður […] en samt einnig
sprenghlægilegur á köflum.“
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
HACKSAW RIDGE 5, 8, 10.45 (P)
DR. STRANGE 3D 8, 10.30
TRÖLL 2D ÍSL.TAL 4
BRIDGET JONES’S BABY 5, 8, 10.25
STORKS 6
POWERSÝNING
KL. 22.45