Morgunblaðið - 04.11.2016, Blaðsíða 89

Morgunblaðið - 04.11.2016, Blaðsíða 89
MENNING 89 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016 Hjartasteinn, fyrsta kvikmynd Guð- mundar Arnars Guðmundssonar í fullri lengd, hlaut þrenn verðlaun á hinni nýafstöðnu Molodist-kvik- myndahátíð í Kiev í Úkraínu. Mynd- in fékk áhorfendaverðlaun hátíð- arinnar, FIPRESCI-verðlaun samtaka gagnrýnenda og hlaut Baldur Einarsson sérstaka viður- kenningu fyrir hlutverk sitt, en hann var eini leikarinn sem hlaut verðlaun á hátíðinni. Anton Máni Svansson, framleið- andi Hjartasteins, var viðstaddur há- tíðina og veitti verðlaununum við- töku. „Hjartasteinn var heimsfrum- sýnd, fyrst íslenskra kvikmynda, í keppni á kvikmyndahátíðinni í Fen- eyjum í september og hefur síðan þá tekið þátt á fjölda virtra alþjóðlegra kvikmyndahátíða og alls unnið til átta alþjóðlegra verðlauna,“ segir Anton Máni, sem er ásamt Guð- mundi leikstjóra á leið til Þýskalands fyrir þýska frumsýningu mynd- arinnar. Að hans sögn er um þessar mundir verið að sýna myndina í Dan- mörku og Brasilíu, en Hjartasteinn verður frumsýnd í kvikmyndahúsum hérlendis í kringum áramótin. Sigursæll Anton Máni Svansson, framleiðandi Hjartasteins, tók við verð- laununum á Molodist-kvikmyndahátíðinni í Kiev í Úkraínu. Hjartasteinn hlaut verðlaun í Úkraínu Tónlistarmað- urinn Shahzad Is- maily gengst fyrir tvennum spuna- tónleikum í Mengi, Óðinsgötu 2, í dag milli 18 og 20 og á morgun, laug- ardag milli 17 og 20. Shahzad og fé- lagar munu halda afar lágstemmda tónleika sem verða að mestu óraf- magnaðir. Á tónleikunum koma einnig fram tónlistarmenn sem munu spila á tónlistarhátíðinni Ice- land Airwaves. Aðgangur á hvora tveggja tónleikana er ókeypis og allir eru velkomnir. Tónlistarmaðurinn Shahzad Ismaily Lágværir spuna- tónleikar í Mengi Nú á hrekkjavökunni varferska íslensk-amerískahrollvekjan, Child Eater,frumsýnd í Bíó Paradís. Leikstjóri myndarinnar, Erlingur Óttar Thoroddsen, lauk nýverið námi í kvikmyndagerð frá Columbia- háskóla í New York. Lokaverkefni hans samanstóð af stuttmyndunum Child Eater og The Banishing sem báðar hafa hlotið góðar viðtökur og verið sýndar víða á kvikmyndahátíð- um. Child Eater er fyrsta mynd Er- lings Óttars í fullri lengd en hún er byggð á áðurnefndri stuttmynd og skartar sömu aðalleikkonunni. Mynd- in var framleidd óháð og fjármögnuð með söfnunarsjóði aðstandenda hennar. Child Eater gerist í hrörlegum smábæ í New York-ríki og segir frá Helen (Cait Bliss), ungri gengilbeinu sem er fengin til að passa drenginn Lucas (Colin Critchley) eina kvöld- stund. Lucas er nýfluttur með föður sínum í afskekkt draugahús sem stendur í skógivöxnum bæjar- jaðrinum. Um árabil hefur sú flökku- saga gengið manna á milli að í þess- um skógi búi sturlaður maður, Robert Bowery (Jason Martin), sem veiðir börn og borðar úr þeim augun svo hann sjálfur verði ekki blindur. Þegar Lucas fer í háttinn segir hann Helen frá því að hann hafi séð þennan skuggalega mann þá um daginn og að hann fylgist sífellt með Lucasi hvar sem hann er og hvert sem hann fer. Helen reynir að hughreysta Lucas en gerir það einungis af hálfum hug því á þeirri stundu bankar Tom (Dave Klasko) kærasti hennar upp á. Tom er sjálfumglaður og vill lifa og leika sér en Helen komst að því fyrr um daginn að hún er ófrísk og þau þurfa því að gera upp sín mál. Þegar Lucas kallar aftur og segir Bowery vera í fataskápnum sínum bregst Helen höstuglega við en á hana renna tvær grímur þegar Lucas hverfur spor- laust úr rúmi sínu skömmu síðar. Þá tekur við martraðarkenndur björg- unarleiðangur og blóðug barátta þar sem margir eiga eftir að liggja í valn- um áður en yfir lýkur. Erlingur er augljóslega vel skól- aður í eðli hrollvekja – sögu þeirra, baklandi og menningarlegu vægi. Í handritinu vinnur hann markvisst með væntingar áhorfenda og hefðina en afbyggir hana sömuleiðis og endurvinnur. Hann kryddar seið sinn með stefjum út bókmenntafræði svo úr verður afar marglaga táknsaga, óhóflega ofhlaðin vísunum sem í stað þess að drukkna í merkingar- fræðilegum pytti verður að gáska- fullri og hnyttinni ímyndaveislu. Í myndinni láta til að mynda á sér kræla norn með eitrað epli, skrímsli með augnablæti í anda Óla lokbrár, ófreskja í skáp/kjallara/skógi og vampírulegur uppvakningur. Við þetta allt spinnur Erlingur svo aðal- kenningu myndarinnar um að hvítir storkar færi verðandi foreldrum hvít- voðunga sína en að sama skapi geti svartir storkar numið brott og étið börn óhæfra foreldra. Handrit myndarinnar er úthugsað og frásögnin vel undirbyggð allt frá opnunaratriðinu sem segir í endurliti frá því hvernig stúlkubarn í skjanna- hvítum blúndukjól sleppur naumlega úr klóm ófreskjunnar Bowery, öðru auganu fátækari. Aldarfjórðungi síð- ar er þetta fórnarlamb, Ginger (Mel- inda Chilton), orðið að ekki síður sturluðu skrímsli sem telur sig vernd- ara glataðra barna en er í raun hefnd- arþyrst grýla. Söguþráður mynd- arinnar er djöfullega úthugsaður, ógnvekjandi og blóði drifinn en samt einnig sprenghlægilegur á köflum. Í raun má segja að myndin endurveki hrollvekjur níunda áratugarins líkt og Scream gerði á sínum tíma. Í handriti beggja mynda er lipurlega skotið inn kaldhæðnum vísunum í gamalgróna formúluna og háðskri samfélagsrýni. Í báðum myndum er ósæmilegu gríni einnig blandað við yfirgengilegt ofbeldi slæginga- raðmorðingjamynda til að skopstæla og í senn upphefja klisjur klassísku hryllingsmyndanna. Myndin er vel leikin og áhorfendur eru uggandi um velferð Lucasar allt til enda. Þeir hvetja Helen til dáða í björgunaraðgerðunum og hlæja að ábyrgðarleysi Toms. Ginger er svo krassandi að hún stelur nánast sen- unni á köflum og augnétandi skrímsl- ið Bowery er óhugnaðurinn holdi klæddur. Hann klífur strax metorða- stigann og tekur sér sinn sess meðal frægustu hryllingsmyndaraðmorð- ingja allra tíma: Freddy Krueger, Michael Myers og Jason Voorhees. Bowery er óljós og ódauðlegur fjandi, hvorki lífs né liðinn. Það er ekki nóg með að hann veiði börn til að éta úr þeim augun heldur neyðir hann þau fyrst til að fara með sér í feluleik þar sem þau eru blinduð með tusku- brúðulegri dauðagrímu. Nærvera hans ein og sér er ógnvænleg. Hann vofir yfir eins og stór, hæglátur og gleypandi skuggi þannig að áhorf- endur og persónur eru oft ekki viss um hvort hann standi álengdar eða hvort myrkrið villi þeim sýn. Það er þangað til hann hreyfir sig skyndi- lega, slær fórnarlömbin niður eða hrifsar þau til sín og étur augu þeirra eins og óseðjandi tryllt óargadýr. Hetjur myndarinnar eru ekki varn- arlaus fljóð eða minni máttar fórn- arlömb sem sterkar karlmannlegar hetjur þurfa að bjarga. Því er frekar á hinn veginn farið. Fórnarlömbin eru flest kokhraustir karlmenn og þeir eru stráfelldir um miðbik mynd- arinnar í farsakenndum kafla sem veitir örvingluðum áhorfendum kær- komið tækifæri til að springa úr spenningi og frussa af hlátri. Tækni- lega séð kemur myndin einnig á óvart og þar munar mest um skemmtilegan leik með gleiðlinsu í kvikmyndatöku. Hún afbakar fjarlægðir og ruglar jafnt persónur og áhorfendur í ríminu svo þær upplifa sig í senn innilokaðar og sturlaðar af víðáttufælni. Ægivald myrkursins nýtur sín einnig í sviðs- mynd og lýsingu svo allt leggst á eitt og úr verður vel heppnuð, bráðfyndin og ógnvekjandi hrollvekja. Hryllingur með ferskum augum Bíó Paradís Child Eater bbbbn Leikstjórn og handrit: Erlingur Óttar Thoroddsen. Stjórn kvikmyndatöku: John Wakayama Carey. Klipping: Robert Grigsby Wilson. Leikmyndahönnun: Ramsey Scott. Búningar: Annie Simon. Förðun: Fiona Tyson. Tónlist: Einar Sv. Tryggvason. Aðalhlutverk: Cait Bliss, Colin Critchley, Jason Martin, Dave Klasko og Melinda Chilton. 82 mín. Bandaríkin/Ísland, 2016. HJÖRDÍS STEFÁNSDÓTTIR KVIKMYNDIR Myrkur „Söguþráður mynd- arinnar er djöfullega úthugs- aður […] en samt einnig sprenghlægilegur á köflum.“ LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar HACKSAW RIDGE 5, 8, 10.45 (P) DR. STRANGE 3D 8, 10.30 TRÖLL 2D ÍSL.TAL 4 BRIDGET JONES’S BABY 5, 8, 10.25 STORKS 6 POWERSÝNING KL. 22.45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.