Morgunblaðið - 04.11.2016, Blaðsíða 78

Morgunblaðið - 04.11.2016, Blaðsíða 78
78 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016 Við konan vorum áTenerife í af-mælisferð og komum heim í fyrra- dag,“ segir Sigurður Ingvarsson, rafverktaki í Garði, sem á 75 ára af- mæli í dag. „Það verður eitthvað á könnunni heima, konan og dæt- urnar sjá til þess að það verði líka eitthvað með kaffinu, en ég hef alltaf haldið upp á afmælið á tíu ára fresti.“ Sigurður er fæddur og uppalinn í Garði og hefur búið þar alla tíð. Hann ásamt fjölskyldu sinni rekur SI raflagnir ehf. og SI verslun í Keflavík. „Það eru að verða 50 ár síðan ég byrjaði sem rafverktaki en þá hét fyrirtækið Raflagningavinnustofa Sigurðar Ingvarssonar. Svo breyttist nafnið í SI raflagnir ehf. þegar börnin og tengdasynirnir komu inn í fyrirtækið, en þeir eru báðir rafvirkjar. Við höfum rekið verslunina í 35 ár og seljum Siemens-heimilistæki og Under armour- og Adidas-íþróttafatnað og Cintamani-útivistarfatnað. Didda konan mín hefur verið bókari alla tíð hjá fyrirtækinu og dætur mínar tvær eru einnig að vinna á skrifstofunni og sjá um verslunina. Ég sjálfur er enn á fullu og verð að því á meðan heilsan leyfir. Núna er ég aðallega að snúast í kringum hópinn, þetta er 25 manna hópur rafvirkja og þeirra sem vinna í versluninni.“ Sigurður var kosinn í hreppsnefnd í Garði 1974, sat í henni til árs- ins 2002 og var oddviti síðustu átta árin. Hann hefur einnig verið mik- ið í fótboltanum í Garði. Sigurður var lengi formaður Knattspyrnu- félagsins Víðis og einnig þjálfaði hann yngri flokka og meistaraflokk félagsins í mörg ár, en félagið spilaði í efstu deild fyrir rúmum aldar- fjórðungi. „Það var mikið ævintýri sem seint gleymist, en ég var þá aðstoðarþjálfari. Fjölskyldan hefur alltaf tekið virkan þátt í knatt- spyrnufélaginu og dóttir mín Guðlaug er núverandi formaður félags- ins. Fótboltinn hefur alltaf verið mikið áhugamál. Svo á fjölskyldan sumarbústað í Þórisstaðalandi í Grímsnesi og þar eyðum við miklum tíma, einnig á veturna.“ Eiginkona Sigurðar er Kristín Erla Guðmundsdóttir. Dætur þeirra eru Halldóra Jóna og Guðlaug Helga og einnig áttu þau soninn Sig- urð, en hann lést 15 ára gamall árið 1985. „Svo eigum við sex barna- börn og fimm barnabarnabörn og það nýjasta fæddist þegar við vorum á Tenerife.“ Hjónin Kristín Erla og Sigurður. Rafverktaki í Garði Sigurður Ingvarsson er 75 ára í dag S turla fæddist í Reykjavík 4.11. 1966 og ólst þar upp, fyrst hjá móður sinni og ömmu í Gnoðarvogi og í síðan hjá móður sinni í Breiðholtinu frá sex ára aldri. Hann flutti úr Breiðholtinu í Grafarvoginn árið 1998 og hefur átt þar heima síð- an: „Við vorum í Fannarfelli í Efra- Breiðholti frá því ég var sex ára, fluttum síðan í Möðrufellið og loks í Hólaberg. Þó ýmsir hafi talað illa um Breið- holtið var gott að búa þar og þaðan á ég góðar minningar. Þarna var mikill krakkaskari. Ég held að það hafi ver- ið um 1.400 krakkar í Fellaskóla á mínum árum þar. Þarna var náttúrlega allt í upp- byggingu á þessum árum og við strákarnir lékum okkur í hús- grunnum, hálfbyggðum byggingum og príluðum í byggingarkrönunum. Þetta var stórhættulegt en engu að síður ævintýralesgur leikvettvangur fyrir fríska stráka. Maður var furðu fljótur að læra á þetta umhverfi og taka ábyrgð á sjálfum sér. Auk þess var ég í sveit á sumrin, fyrst á Brandsstöðum í Blöndudal, síðan í Munaðarnesi í Borgarfirði og loks á Á á Skarðsströnd. Þetta voru allt prýðilegir bæir hjá góðu fólki. En þá þurfti að vinna í sveitinni og ég hafði í nógu að snúast allt sumarið. Sumardvölin í sveitinni var því engu minni skóli en sá sem maður fékk á skólabekk yfir veturinn.“ Sturla byrjaði að vinna fyrir sér er hann var 15 ára, á vélaverkstæði BM Sturla Jónsson framkvæmdastjóri – 50 ára Forsetakosningarnar Sturla og eiginkona hans, Arndís Erna Helgadóttir, á leið inni á kjörstað á liðnu sumri. Í baráttu við kerfið Talsmaður vörubifreiðastjóra Sturla situr á rökstólum við Ragnhildi Hjalta- dóttur ráðuneytisstjóra og Tómas Möller samgönguráðherra vorið 2008. Morgunblaðið/Eggert Morgunblaðið/Kristinn Rakel Sif Grétarsdóttir og Eydís Anna Hannesdóttir héldu tombólu til styrktar Rauða krossinum á Íslandi við Fiskbúðina á Sundlaugavegi og seldu ber og dót fyrir 5.246 kr. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Láttu drauminn rætast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.