Morgunblaðið - 04.11.2016, Side 53
53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016
Gaman að sjá þig! Kosningar eru að baki, veðrið leikur við landsmenn og gleðin skín úr hverju andliti. Þar sem fólk hittist er fagnaðarfundur, ekki síst á götu úti.
Eggert
Í kosningunum 29.
október hrundi fylgið
af Samfylkingunni,
jafnaðarmannaflokkn-
um á Íslandi. Sam-
fylkingin hefur verið
þátttakandi í alþjóða-
samstarfi jafnaðar-
manna. Hún er ekki
eini flokkur jafnaðar-
manna í heiminum
sem á undir högg að
sækja. Þó má fullyrða að enginn
bræðraflokka hennar hafi fengið
sambærilega útreið hjá kjósendum.
Á falli Samfylkingarinnar er engin
einhlít skýring. Fylgishrun jafn-
aðarmanna eða sósíalista í Frakk-
landi um þessar mundir er auðveld-
ara að skýra með vísan til þess hve
illa hefur gengið hjá François Hol-
lande Frakklandsforseta og stjórn
hans. Forsetakosningar verða í
Frakklandi á næsta ári.
Enn er óvíst hvort Hollande gefur
kost á sér til endurkjörs. Spenna
eykst innan flokks hans. Fyrir viku
lýsti Manuel Valls, forsætisráðherra
Frakklands, vanþóknun sinni á því
sem haft er eftir forsetanum í nýrri
bók þar sem hann gagnrýnir dóm-
ara, landslið Frakka í knattspyrnu
og jafnvel stefnu eigin ríkisstjórnar.
Bent er á að Valls vilji ekki drukkna
í óvinsældum með forsetanum.
Jafnaðarstefnan höfðar ekki til
Frakka frekar en Íslendinga. Jafn-
aðarmenn eru á mörkum þess að
þurrkast út í Frakklandi. Franskir
fjölmiðlar ættu frekar að ræða ör-
lög Samfylkingarinnar hér og skýra
þau fyrir lesendum sínum en inni-
stæðulausar tölur um vinsældir Pí-
rata.
Panama-spjald
Birgittu
Ákveðið var í byrjun
apríl 2016 að alþingi
skyldi rofið og gengið til
kosninga nú í haust.
Þetta gerðist eftir að
Panama-skjölin svo-
nefndu voru birt og mik-
il hneykslunarbylgja fór
um heim allan. Hún
skall af miklum þunga á
Sigmundi Davíð Gunn-
laugssyni forsætisráð-
herra. Hann missti traust þingflokks
síns og sagði af sér 5. apríl. Sig-
mundur Davíð lagðist gegn haust-
kosningum en varð undir í for-
mannskosningu í flokki sínum 2.
október.
Píratar undir forystu Birgittu
Jónsdóttur reyndu að halda lífi í um-
ræðum um Panama-skjölin með því
meðal annars að kalla á fyrrverandi
rannsóknardómara frá Frakklandi,
Evu Joly, til að benda á spillingu
meðal stjórnmálamanna og fleiri á
opinberum fundi 17. október, 12
dögum fyrir kosningar. Kastljós
sjónvarpsins tók Joly, ESB-
þingmann franskra græningja, einn-
ig upp á sína arma.
Þetta alþjóðlega átak til að blása
lífi í Panama-umræðurnar á loka-
dögum kosningabaráttunnar mis-
heppnaðist. Sást það best á því að
Birgitta treysti sér ekki til að hreyfa
málinu í loka-umræðuþætti stjórn-
málaforingja í sjónvarpinu að kvöldi
föstudags 28. október á annan hátt
en veifa þar litlu Panama-spjaldi þar
sem minnst var á Panama.
Spjaldið og misheppnaðar við-
ræður að frumkvæði Birgittu um
stjórnarmyndun fyrir kosningar
opnuðu augu fleiri en ella fyrir und-
arlegheitum flokksins. Fylgið
minnkaði dag frá degi. Alþjóða-
tilraun til að koma Pírötum í valda-
stöðu rann út í sandinn. Erlendir
blaðamenn sem ætluðu að verða
vitni að stórsigri Pírata sneru von-
sviknir til heimalanda sinna. Það
varð engin bylting.
Í samtölum við erlendu fjölmiðla-
mennina lýsti Birgitta sér sem Hróa
hetti. Hún hefði ekki gert upp við sig
hvort hún ætti að verða forseti al-
þingis til að knýja fram breytingu á
stjórnarskránni eða forsætisráð-
herra til að færa framkvæmdavaldið
í hendur alþingis. Hún mundi hins
vegar örugglega sitja skamman tíma
í háu embætti og síðan snúa sér að
ljóðagerð. Hér þyrfti hvorki Marine
Le Pen (leiðtoga Þjóðfylkingarinnar
í Frakklandi) né Donald Trump til
að hrista upp í hlutunum, Íslend-
ingar hefðu Pírata.
Yfirlýsingar af þessu tagi vöktu
forvitni og áhuga fjölmiðlamanna
sem nefndu þó flestir, að minnsta
kosti í framhjáhlaupi, að hér hefði
náðst undraverður árangur í efna-
hagsmálum og lítill áhugi væri á
ESB þótt einhverjir flokkar hefðu
aðildarmál á dagskrá sinni.
ESB, víti til að varast
Nú reynir á hvernig fer fyrir
ESB-aðildarmálinu að loknum kosn-
ingum. Sjálfur holdgervingur aðild-
arumsóknarinnar á alþingi, Össur
Skarphéðinsson, situr þar ekki leng-
ur eftir að hafa fallið í kosningunum
með öðrum frambjóðendum Sam-
fylkingarinnar á höfuðborgarsvæð-
inu.
Klukkan 21.00 föstudagskvöldið
28. október á meðan leiðtogar flokk-
anna ræddu saman í sjónvarpssal
setti Össur þetta á Facebook-síðu
sína:
„Sérkennileg opnun VG
Steinsofandi spyrlar tóku ekki eft-
ir stórtíðindum úr munni Katrínar
Jakobsdóttur í leiðtogaþættinum
rétt áðan.
Hún sagðist vilja þjóðaratkvæði
um framhald viðræðna við ESB en
tók svo óvænt skref í áttina til Sjálf-
stæðisflokksins með því að taka und-
ir með Bjarna um að um leið yrði
spurt um aðild.
Er VG að opna á ríkisstjórn með
Sjálfstæðisflokknum? Það sýnist
mér.“
Þetta er rétt hjá Össuri. Katrín
Jakobsdóttir steig hliðarskref með
þessum orðum sínum. Hún gerði það
til að friða stóran hóp VG-fólks sem
blöskrar hvernig flokksforystan hef-
ur svikið fyrirheitin frá því fyrir
kosningar vorið 2009 um að ekki
skuli rætt um aðild við ESB.
Yfirlýsing Katrínar var loðin. Hún
vildi ekki loka dyrum á Samfylking-
una fyrir kjördag. Áhyggjur af Sam-
fylkingunni sem pólitísku afli eru nú
úr sögunni. Formaðurinn hættur og
framkvæmdastjórinn. Spurning
hvort flokkurinn breytist í kaffihús
eins og Magnús Orri Schram, fram-
bjóðandi til formanns, vildi.
Færi Katrín með flokk sinn í
stjórnarsamstarf við Sjálfstæðis-
flokkinn tækist henni að rétta kúrs
VG í ESB-málinu. Steingrímur J.
Sigfússon, forveri Katrínar, tók
óheillavænlega U-beygju í ESB-
málum til að þóknast Samfylking-
unni og Jóhönnu Sigurðardóttur í
þágu eigin valda.
Pólitísk örlög Össurar Skarphéð-
inssonar ættu að verða þeim víti til
varnaðar sem hafa í huga að feta í
ESB-spor hans og reyna að þvinga
Íslendinga inn í ESB.
Össur taldi sig vera með ESB-
pálmann í höndunum sumarið 2009,
ekki tæki nema 12 til 18 mánuði að
semja um aðild Íslands að ESB með
aðstoð Carls Bildts, þáv. utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar. Í janúar 2013
neyddist Össur að fresta viðræðun-
um við ESB vegna ágreinings sem
hann vildi ekki að yrði ræddur þá
fyrir þingkosningarnar.
Samfylkingin hlaut illa útreið í
kosningunum 2013 en Össur náði þó
endurkjöri og hefur hamrað á nauð-
syn þess að taka upp ESB-þráðinn
að nýju. Laugardaginn 29. október
höfnuðu kjósendur ESB, Össuri og
Samfylkingunni.
Tilvistarkreppa ESB
Krísan innan ESB magnast og
enginn veit hvernig sambandið verð-
ur eftir brottför Breta. Þeir kveðja
ESB líklega á árinu 2020 eða um
sama leyti og nýbyrjuðu kjörtímabili
alþingis lýkur.
Sé ESB-aðild gerð að ágreinings-
máli við stjórnarmyndun nú með
kröfu um atkvæðagreiðslu um fram-
hald ónýtra aðildarviðræðna er ljóst
að kröfugerðarmennirnir eru jarð-
sambandslausir þegar ESB á í hlut.
Nærtækasta skýringin á falli
Samfylkingarinnar er að hún glataði
trausti kjósenda vegna boðskapar
flokksins um að leita yrði til Brussel
til að fá lausn allra innlendra mála.
Eftir Björn
Bjarnason » Á falli Samfylking-
arinnar er engin ein-
hlít skýring, ESB-
stefnan vegur þó þungt.
Pírötum mistókst að
blása lífi í umræður um
Panama-skjölin.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Fylgislaus Samfylking og misheppnaðir Píratar