Morgunblaðið - 09.11.2016, Page 4
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Samkvæmt lögum um almannavarn-
ir er það hlutverk almannavarna-
nefnda að vinna að gerð hættumats
og viðbragðsáætlana í samvinnu við
ríkislögreglustjóra. Stjórn Slökkvi-
liðsins á höfuðborgarsvæðinu (SHS)
fjallaði nýverið um verkáætlun fyrir
rýmingar á höfuðborgarsvæðinu og
samþykkti ákveðinn verkferil í þeim
efnum.
Jón Viðar Matthíasson slökkviliðs-
stjóri er jafnfram framkvæmdastjóri
almannavarnanefndar höfuðborgar-
svæðisins. Hann sagði í samtali við
Morgunblaðið að á síðasta fundi
stjórnar SHS, þann 28. október sl.
hefði verkáætlun um rýmingu verið
til umfjöllunar og hún samþykkt.
„Framkvæmd áætlunar um rým-
ingu er á ábyrgð okkar hjá almanna-
varnanefnd höfuðborgarsvæðisins.
Það sem við erum að ræða núna er
viðbragðsáætlun þegar upp kemur
sú staða að rýma þurfi ákveðin svæði
í borginni, götur, hverfi o.s.frv. Ég
nefni sem dæmi til hvaða aðgerða við
þurftum að grípa þegar kviknaði í
Hringrás. Þá fluttum við fjölda ein-
staklinga í næsta nágrenni til Rauða
krossins. Við höfum nokkrum sinn-
um þurft að rýma götur og hús en
höfum ekki verið með skriflega rým-
ingaráætlun. Við erum bara að
njörva þetta niður með skriflegri
áætlun um verkferla, þegar og ef
svona aðstæður koma upp. Segja má
að við séum að setja niður á blað með
skipulegum hætti það sem við höfum
framkvæmt í gegnum árin,“ sagði
Jón Viðar.
Hvaða atvik eða vá sem er
Fram kemur í minnisblaði um
verkáætlun að hún nái ekki yfir til-
teknar sviðsmyndir, eða ákveðna vá,
heldur geti hún verið virkjuð
vegna hvaða atviks eða vár sem er.
Fyrirhugað sé að vinna rýmingar-
kort líkt og gert hafi verið víða um
heim; áætlað sé að vinna einfalda við-
bragðsáætlun sem byggi á þremur
mismunandi stöðum sem fólk sé
flutt til komi til rýmingar. Staðirn-
ir eru Laugardalshöll/aðrar fjölda-
hjálparstöðvar, Smáralind/Egilshöll
og Kórinn í Kópavogi.
Upplýsingamiðlun þurfi að vera
skýr og fyrir fram skilgreind og muni
hún fylgja áætluninni. Með
rýmingaráætlun fylgi upplýsinga-
áætlun í myndformi sem lýsi aðferð-
arfræði þess hvernig eigi að upplýsa
þá sem þurfi að rýma.
Áætlunin á að vera tilbúin til kynn-
ingar í næsta mánuði og að því stefnt
að hún verði lögð fyrir almanna-
varnanefnd höfuðborgarsvæðisins í
janúar 2017.
Morgunblaðið/Júlíus
Hringrás Þegar eldur kviknaði í dekkjum við Hringrás í Klettagörðum 2011
var virkjuð sérstök rýmingaráætlun hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins vinnur að rýmingaráætlun í samvinnu við stjórn
Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu Áætlunin á að vera tilbúin til kynningar í janúar á næsta ári
Rýmingaráætlun í vinnslu hjá ASH
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2016
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Áform eru uppi um byggingu baðlóns
og hótels á Efri-Reykjum í Bisk-
upstungum, um miðja vegu á milli
Laugarvatns og Úthlíðar. Hugmynd-
irnar voru kynntar á fundi sveit-
arstjórnar Bláskógabyggðar á dög-
unum og samþykkt að gera ráð fyrir
þeim í endurskoðun á aðalskipulagi
sveitarfélagsins.
Samkvæmt fundargerð sveit-
arstjórnar er fyrirhugað að byggja
um tvö þúsund fermetra baðlón/laug í
landi Efri-Reykja, rétt við Brúará,
Reykjaveg og Laugarvatnsveg,
ásamt þjónustubyggingu og 100 her-
bergja hóteli, aðstöðuhúsi fyrir
starfsmenn og möguleika á stækkun
hótelsins. Þjónustubyggingin yrði
3.500-4.000 fermetrar, hótelið 5.500-
6.000 fermetrar og stækkunarmögu-
leikar á 3.000-4.000 fermetrum. Að-
stöðuhús fyrir starfsmenn yrði 400-
500 fermetrar að flatarmáli, ef af
þeim framkvæmdum verður.
Áhersla á umhverfismálin
„Í ljósi umfangs og staðsetningar
framkvæmdanna telur sveitarstjórn
Bláskógabyggðar að huga þurfi sér-
staklega vel að umhverfisáhrifum
m.a. fráveitu. Skipulagsnefnd vísaði
málinu til umræðu í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir
ekki athugasemdir við fyrirliggjandi
hugmyndir og samþykkir að gera ráð
fyrir þessari uppbyggingu í endur-
skoðuðu aðalskipulagi Bláskóga-
byggðar. Sveitarstjórn leggur
áherslu á að framkvæmdaaðilar hugi
vel að umhverfisáhrifum m.a. fráveitu
og fjarlægð frá Brúará,“ segir í fund-
argerð sveitarstjórnar.
Þróunarfélagið Reykir ehf. er með
þessi áform. Forsvarsmenn félagsins
mættu til fundar við sveitarstjórn og
kynntu verkefnið; þeir Kristján B.
Ólafsson rekstrarhagfræðingur,
Rúnar Gunnarsson á Efri-Reykjum,
Örn Jóhannsson, Orri Árnason, arki-
tekt hjá Zeppelin, og Jóhannes Lofts-
son, byggingarverkfræðingur hjá
Verkís.
Reynir Kristinsson hjá REK-
ráðgjöf hefur unnið fyrir þróun-
arfélagið. Hann segir hugmyndir um
frekari nýtingu jarðhitans á Efri-
Reykjum hafa verið uppi í mörg ár.
Um sé að ræða eitt stærsta lág-
hitasvæði landsins, með mikla nýting-
armöguleika. Vatnið sem kemur upp
úr jörðinni er um 140 gráðu heitt.
Reynir segir hugmyndirnar á
seinni árum hafa þróast út í baðlón og
hótel, ásamt tilheyrandi þjónustu við
ferðamenn. Svæðið sé við alfaraleið á
Gullna hringnum svonefnda, mitt á
milli Þingvalla og Geysis, og bjóði
upp á gríðarleg tækifæri.
Aðspurður segir Reynir að verk-
efnið geti tekið einhver ár. Fyrst
þurfi að huga að skipulagsmálum og
fá samþykki sveitarfélagsins, en
breyta þarf bæði aðal- og deiliskipu-
lagi.
Þörf á meiri afþreyingu
Fjármögnun meðal innlendra fjár-
festa er hafin, en að sögn Reynis er
heildarfjárfesting verkefnisins áætl-
uð 5-6 milljarðar króna. Starfsemin á
Efri-Reykjum gæti skapað 70-100
störf.
„Það er búið að huga mjög vel að
fráveitumálum og öðrum umhverfis-
málum. Þarna er góður aðgangur að
heitu vatni og reiknað er með að það
fari í hringrás. Við munum leggja
mikla áherslu á það, í samráði við
Bláskógabyggð, að huga vel að um-
hverfisáhrifunum,“ segir Reynir.
Hann telur að miðað við umferð á
svæðinu, fjölda sumarhúsa og fjölgun
ferðamanna á næstu árum sé gott
pláss á markaðnum fyrir baðlón og
hótel á þessum stað. Þörf sé á frekari
afþreyingu við Gullna hringinn, þann-
ig að öll umferðin beinist ekki ein-
göngu til Geysis og Gullfoss.
Að sögn Reynis verður verkefnið
unnið í áföngum, fyrst byrjað á bað-
lóninu og tilheyrandi aðstöðu og síðan
ráðist í byggingu hótelsins.
Lón og hótel fyrir milljarða
Þróunarfélagið Reykir ehf. áformar byggingu baðlóns og 100 herbergja hótels á
Efri-Reykjum í Biskupstungum Rétt við Gullna hringinn Skapar 70-100 störf
Heilsulind Ferðamenn munu geta slakað á í baðlóninu á Efri-Reykjum.
Teikningar/Zeppelin arkitektar
Efri-Reykir Svona gæti svæðið litið út á Efri-Reykjum þegar búið er að byggja hótel og baðlón, ásamt þjónustubygg-
ingu og aðstöðuhúsi, og koma upp gróðri. Hér er horft upp Biskupstungur til norðurs, í átt að Geysi og Gullfossi.
Hótel Fyrstu teikningar sýna hótelið lágreist og fellur það vel í landslagið.
Framkvæmdum við nýja bolfisk-
vinnslu HB Granda á Vopnafirði
miðar ágætlega. Á vef HB Granda
er haft eftir Bárði Jónassyni, tækni-
stjóra félagsins á Vopnafirði, að bol-
fiskvinnsla ætti að geta hafist í
næsta mánuði gangi allt að óskum
en framkvæmdum seinkaði aðeins
vegna skorts á iðnaðarmönnum.
„Það er þó komin góð mynd á
þetta og við ættum að geta hafið hér
bolfiskvinnslu í næsta mánuði að öllu
forfallalausu. Boðað verkfall sjó-
manna ræður það mestu og gæti sett
strik í reikninginn komi það til fram-
kvæmda,“ segir hann. Gert er ráð
fyrir að 35-40 manns starfi í vinnsl-
unni þegar vinna í uppsjávarfrysti-
húsi HB Granda liggur niðri á
Vopnafirði.
Vinnsla hefst
í desember
Frestur ríkisins til að taka afstöðu
til nýtingar forkaupsréttar á jörð-
inni Felli við Jökulsárlón hefur ver-
ið framlengdur til 10. janúar nk.
Sýslumaðurinn á Suðurlandi tók
ákvörðunina.
Hinn 4. nóvember sl. tók sýslu-
maður tilboði Fögrusala ehf. í Fell.
Tilboðið hljóðar upp á 1,5 milljarða
króna. Hluti landeigenda áskildi
sér þó rétt til að bera ákvörðun
sýslumanns undir dómstóla. Hafa
einhverjir þeirra gert athugasemd-
ir við málsmeðferðina og telja þeir
að hægt sé að skipta jörðinni.
Íslenska ríkið á forkaupsrétt og
var gefinn frestur til 11. nóvember
til að taka ákvörðun um nýtingu
hans.
Í svari fjármálaráðuneytisins við
fyrirspurn mbl.is kemur fram að,
líkt og áður segir, frestur ríkisins
hafi verið framlengdur til 10. jan-
úar 2017.
Forkaups-
réttur fram-
lengdur
Sýslumaður gefur
ríkinu lengri frest
Morgunblaðið/Ómar
Jökulsárlón Ríkið getur nýtt for-
kaupsrétt á Jökulsárlónsjörðinni.