Morgunblaðið - 09.11.2016, Side 8

Morgunblaðið - 09.11.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2016 Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Alhliða þjónusta fyrir vökvadælur og vökvamótora Sala - varahlutir - viðgerðir Kjararáð felldi úrskurð á kjör-dag um laun þingmanna og slíkra. Hefðbundin reiði blossaði upp. Þingmaður Pírata heimtaði að hækkunin yrði afnumin og laun- in látin fylgja vísitölu almennra launa. En Vef-þjóðviljinn bendir á:    Ef Jóni Þór verð-ur að þeirri ósk sinni að fyrri ákvarðanir Kjara- ráðs verði felldar úr gildi og þing- fararkaup látið fylgja almennri launaþróun frá árinu 2006 má vera ljóst að þeir sem setið hafa á þingi undanfarinn áratug eiga von á um 10 milljónum króna í eingreiðslu til að bæta þeim upp að hafa dreg- ist svo aftur úr hinni almennu þró- un kjaramála á vinnumarkaði sem lög um kjararáð mæla fyrir um að þeir eigi að fylgja.    Því má hins vegar fagna í þessusamhengi að Jón Þór Ólafsson alþingismaður skuli hafi mótað sér ákveðna afstöðu þessa máls. Hann náði nefnilega þeim einstæða ár- angri á síðasta þingi að sitja hjá í 75% þeirra atkvæðagreiðslna þar sem hann var á annað borð mættur í þingsal. Alls sat Jón Þór hjá 1.224 sinnum en tók afstöðu í 391 skipti á þeim rúmu tveimur árum sem hann sat á þingi.    Ef þingfararkaupi hans á síð-asta kjörtímabili er skipt nið- ur á þessa iðju þá fékk hann um 5 milljónir króna fyrir að kynna sér málin og taka afstöðu en 15 millj- ónir króna fyrir að mæna út í loft- ið.    Það fer því kannski bara best áþví eins og hér hefur áður verið nefnt að þingmenn fái engin laun fyrir störf sín og þingið komi saman í tvo mánuði á tveggja ára fresti. Jón Þór Ólafsson Á að hækka meira? STAKSTEINAR Veður víða um heim 8.11., kl. 18.00 Reykjavík 4 skúrir Bolungarvík 4 súld Akureyri 6 léttskýjað Nuuk -4 léttskýjað Þórshöfn 6 rigning Ósló 14 heiðskírt Kaupmannahöfn -2 skýjað Stokkhólmur -3 snjókoma Helsinki -6 snjókoma Lúxemborg 4 léttskýjað Brussel 5 léttskýjað Dublin 8 rigning Glasgow 4 rigning London 5 heiðskírt París 6 rigning Amsterdam 4 skúrir Hamborg 0 snjókoma Berlín 4 rigning Vín 4 rigning Moskva 1 snjókoma Algarve 19 heiðskírt Madríd 11 léttskýjað Barcelona 15 léttskýjað Mallorca 15 léttskýjað Róm 12 rigning Aþena 23 léttskýjað Winnipeg 3 léttskýjað Montreal 7 léttskýjað New York 12 rigning Chicago 13 rigning Orlando 26 þoka Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 9. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:39 16:45 ÍSAFJÖRÐUR 10:01 16:34 SIGLUFJÖRÐUR 9:44 16:16 DJÚPIVOGUR 9:13 16:11 Reykjavíkurborg mun fjárfesta fyr- ir rúmlega 14 milljarða króna á næsta ári skv. frumvarpi að fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir 2017. Í fréttatilkynn- ingu frá Reykja- víkurborg kemur fram að borgin muni leggja fimm og hálfan milljarð króna í ýmsar gatna- framkvæmdir á árinu. Þar af verður 1,8 milljörðum króna varið til gatna- framkvæmda í nýjum hverfum borg- arinnar eins og Hlíðarenda, Kirkju- sandi, Vesturbugt og Úlfarsárdal. Þá verða lagðar 1.750 milljónir króna í nýjan skóla og menningar- hús í Úlfarsárdal sem er stærsta ein- staka fjárfestingaverkefnið. Alls fjárfestir borgin í nýbygg- ingum fyrir 6,2 milljarða króna sam- kvæmt frumvarpi að fjárhagsáætl- uninni. Þá verður 770 milljónum króna varið til þess að klára útilaug Sund- hallar Reykjavíkur og 300 milljónum til að gera frjálsíþróttavöll hjá ÍR. Milljarðar í gatnafram- kvæmdir  Fjárfesta á fyrir 14 milljarða árið 2017 Götur Ráðist verð- ur í framkvæmdir. Viðhörfskönnun leiðir í ljós að meiri- hluti aðspurðra, eða 59%, vill að flugstarfsemi verði áfram í Vatns- mýrinni í Reykjavík. 27% vildu flytja starfsemina annað en 14% voru hlut- laus. Fyrirtækið Landráð sf. fram- kvæmdi þessa könnun fyrir Vega- gerðina síðasta vetur og var hún kynnt á rannsóknarráðstefnu Vega- gerðarinnar í Hörpu nýverið. Um var að ræða netkönnun sem MMR framkvæmdi og svöruðu um 950 manns stöðluðum spurningalista. Aðeins hefur dregið úr stuðningi við flugvöllinn en í sambærilegri könnun sem gerð var árið 2014 vildu 62% hafa hann áfram í Vatnsmýri. Yfirgnæfandi stuðningur var við flugvöllinn á landsbyggðinni, eða 88%. Stuðningur á höfuðborgar- svæðinu við að flugvöllurinn verði áfram á sínum stað var 47%. Ef ein- göngu er litið á afstöðu íbúa ná- grannasveitarfélaga Reykjavíkur vilja 55% ekki flytja flugvöllinn úr Vatnsmýrinni. Minnstur var stuðn- ingur við flugvöllinn meðal íbúa í Reykjavík vestan Kringlumýr- arbrautar, eða 38%. Það er athygl- isvert því samkvæmt könnuninni áttu einmitt flestir farþegar í innan- landsflugi erindi þangað, eða 43%. Þegar síðasta könnun var fram- kvæmd áttu 37% farþega í innan- landsflugi erindi í Miðbæinn. Því er um fjölgun að ræða frá fyrri könnun. sisi@mbl.is Vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýri  Stuðningur á landsbyggðinni er 88%  Stuðningur á höfuðborgarsvæði 47% Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Vatnsmýri Vilja flugvöllinn áfram.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.