Morgunblaðið - 09.11.2016, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2016
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Formaður HSÍ Einar Þorvarðarson með kvenna- og karlabolta í hönd.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
N
okkur umræða hefur
skapast undanfarið
vegna misræmis á
milli þess sem dóm-
arar í körfuknattleik
og knattspyrnu fá greitt fyrir
störf sín eftir því hvort þeir eru
að dæma hjá körlum eða konum.
Öðruvísi er því farið hjá Hand-
knattleikssambandi Íslands (HSÍ)
þar sem tekin var ákvörðun um
það fyrir um áratug að greiða
dómurum jafnt hvort sem dæmt
var í karla- eða kvennaflokki. Um-
hverfið í handknattleik er svipað
því sem er í körfubolta þar sem
félögin sjá um greiðslur til dóm-
ara en Knattspyrnusamband Ís-
lands (KSÍ) sér um greiðslur til
handa dómurum.
Allt í jafnréttisátt
Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, segir það ekk-
ert launungarmál að auðveldara sé
að afla tekna í handknattleik
karla. Hins vegar hafi ákvörðun
um að greiða dómurum það sama
hvort kynið sem um hafi verið að
ræða í leik hafi verið jafnrétt-
isákvörðun sem sambandið sé stolt
af. Það snúi þó ekki eingöngu að
dómgæslunni. „Við breyttum öllu
okkar umhverfi í jafnréttisátt fyr-
ir um tíu árum. Við jöfnuðum líka
árangurstengdar greiðslur til fé-
laganna þannig að það sama er
greitt fyrir Íslands-, bikar- og
deildarmeistaratitla. Þá greiðum
við landsliðunum dagpeninga og
þær greiðslur voru jafnaðar á
þeim tíma líka,“ segir Einar.
Jafnréttisákvörðun
sem við erum stolt af
Ólíkt því sem er í tveimur öðrum stærstu boltaíþróttunum var tekin ákvörðun hjá
HSÍ um það að greiða dómurum sömu laun fyrir vinnu sína við dómgæslu á
handboltaleikjum karla og kvenna. Einar Þorvarðarson, formaður HSÍ, segir að
ákvörðunin hafi verið tekin fyrir um áratug. Hann segir að tekjuöflun í kringum
karlalandsleiki sé notuð til að halda uppi kvennahluta rekstursins.
Ólíkt mörgum öðrum vefsíðum sem
reyna að koma upplýsingum á
framfæri á sem knappastan máta
er hægt að nálgast mikið magn
fróðlegra greina og myndbanda á
vefsíðunni allday.com. Á vefsíðunni
vinna sjö blaðamenn og ritstjórar
sem að eigin sögn setja sér það
markmið að framreiða fróðlegt efni
á innihaldsríkan og frumlegan
máta.
Óhætt er að segja að nokkuð vel
hafi tekist til og hefur vefsíðan
m.a. ítrekað verið nefnd meðal
þeirra bestu á árinu 2016.
Fróðleiknum er skipt í sjö flokka,
sagnfræði, ferðalög, vísindi, mat-
argerð, heimsmálin, menning og
skemmtiefni. Bæði er reynt að
höfða til þeirra sem hafa áhuga á
léttmeti sem og þeirra sem vilja
fræðast nánar um tiltekin málefni,
bæði úr samtíð og fortíð.
Vefsíðan www.allday.com
Allday Vefsíðan er með um 20 milljónir fylgjenda á twitter og svipað á Face-
book. Hefur hún verið valin meðal bestu vefsíðna heims af ýmsum skríbentum.
Skemmtilegur fróðleikur
Rithöfundurinn og sagnamaðurinn
Einar Kárason mun segja hetjusögur
í Sagnakaffi sem fram fer í Menn-
ingarhúsi Gerðubergi. Í tilkynningu
segir að Einar sé þrælskemmtilegur
og líflegur sagnamaður. Gestir
kvöldsins fá einnig að koma fram og
spreyta sig undir stjórn Ólafar
Sverrisdóttur leikkonu sem staðið
hefur fyrir námskeiðum í sagna-
mennsku hjá Borgarbókasafninu.
Sagnakaffið fer fram í kaffihúsinu í
Gerðubergi og geta gestir fengið
sér kaffi og með því á meðan á dag-
skrá stendur. Gestir eru velkomnir á
meðan húsrúm leyfir. Húsið verður
opnað klukkan 20 og er aðgangur
ókeypis.
Gestir fá að spreyta sig í sagnamennsku
Hetjusögur Einars Kárasonar
í Menningarhúsi Gerðubergi
Morgunblaðið/Ómar
Sagnamaður Einar Kárason segir
hetjusögur í Gerðubergi í kvöld.
Í kvöld fer fram námskeið Birnu G.
Ásbjörnsdóttur næringarlæknisfræð-
ings þar sem hún fjallar um hvernig
fæðið sem við veljum okkur getur
stuðlað að bólgum í líkama. Í tilkynn-
ingu segir að farið verði yfir hvernig
hægt er að nota fæðið til að draga úr
bólgum og koma í veg fyrir langvinna
sjúkdóma og hvernig meltingarveg-
urinn spilar stórt hlutverk í þessu
samhengi. Rannsóknir sýna fram á
samhengi neyslu ákveðinna fæðuteg-
unda og auknum líkum á bólgum.
Rannsóknir sýna einnig fram á að
marga af þeim langvinnu sjúkdómum
sem eru að hrjá okkur í dag má
tengja við langvinnar bólgur. Lífsstíll
okkar ræður því miklu um hvort við
þróum með okkur bólgur og lang-
vinna sjúkdóma. Síðastliðna tvo ára-
tugi hefur Birna unnið við ein-
staklingsráðgjöf hérlendis og
erlendis ásamt því að veita reglulega
fræðslu fyrir fagfólk og almenning.
Birna hefur einnig ritað fjölda fræði-
greina og verið pistlahöfundur hjá
RÚV. Birna heldur úti heimasíðunni
jorth.is. Námskeiðið stendur frá kl.
19-23 og er á Gló í Fákafeni 11. Nám-
skeiðið kostar 6.900 krónur.
Birna G. Ásbjörnsdóttir heldur fyrirlestur á Gló
Námskeið um næringu, bólgur
og langvinna sjúkdóma
Næring Birna G. Ásbjörnsdóttir heldur fyrirlestur um mikilvægi næringar fyrir
meltingarveginn á Gló í Fákafeni í kvöld. Verð á fyrirlesturinn er 6.900.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.