Morgunblaðið - 09.11.2016, Síða 13

Morgunblaðið - 09.11.2016, Síða 13
Spurður hvað honum finnist um fyrirkomulagið í körfuknatt- leik og knattspyrnu, þá hefur Ein- ar á því skilning. „Það verður að segjast eins og er að sala í kring- um kvennalandsliðið er minni en við náðum að tengja þetta saman og stórir samstarfsaðilar eins og t.d. Arion banki komu að því að þetta var allt samræmt. Þetta tókst vel en aðgöngumiða- og aug- lýsingasala á kvennalandsleiki er miklu minni og ekki hægt að líkja því saman. Það er ljóst að hluti tekna karlalandsliðsins fer yfir til kvennalandsliðsins. Í þessu sam- hengi má líka benda á árangur. Karlarnir hafa verið á 19 stórmót- um síðan árið 2000 meðan kvenna- landsliðið hefur komist inn á þrjú stórmót á sama tímabili og hefur það áhrif á tekjuöflun. Í dag erum við að horfa til lengri tíma og er- um m.a. að samræma enn betur afreksumhverfi okkar þannig að landsliðsþjálfarar karla og kvenna vinna mikið saman og eru með sömu stefnu. Við höfum náð frá- bærum árangri hjá körlunum og vonumst eftir að okkur takist að gera það sama hjá konunum og þá eru spennandi tímar framundan í handboltanum,“ segir Einar. Aðspurður hvort eitthvað meira sé hægt að gera í átt að jafnrétti innan handboltahreyfing- arinnar segir Einar að erfitt sé að svara því. „Auðvitað skiptir máli að kvennahandboltinn sé inni á stórmótum í framtíðinni. Það myndi auðvelda okkur mikið reksturinn í kringum kvenna- landsliðið en við erum ánægðir með að hafa samræmt þessi mál fyrir svona löngu,“ segir Einar. Finnst þér réttlætanlegt hjá körfuknattleiks- og knattspyrnu- sambandinu að greiða dómurum ólíkt eftir því hvaða kyn keppir? „Ég ætla ekki að svara því. Það sem ég get sagt er að þetta er jafnréttisákvörðun sem við tókum hjá HSÍ fyrir rúmum 10 árum og til að mynda er kvennahandbolti á mjög háu stigi í Skandinavíu og í sumum tilvikum fá leikmenn betur borgað hjá kvennaliðum en karla- liðum. Norska kvennalandsliðið hefur t.a.m. dregið vagninn í Nor- egi og þar hefur verið mjög haldið á öllu því sem snýr að jafnrétti,“ segir Einar. Greiða þarf jafnt óháð kyni Hann segir þó ljóst að ef menn ætli í jafnréttisátt þá þurfi að greiða dómurum það sama hvort sem um sé að ræða karla- eða kvennaleik. Þannig megi tryggja að bestu dómarapörin dæmi hjá báðum kynjum. Morgunblaðið/Eggert Í varnarvegg Leikmenn íslenska kvennalandsliðsins í varnarvegg í leik gegn Svartfjallalandi. Tekin var ákvörðun um það hjá HSÍ fyrir um áratug að jafna greiðslur landsliðanna. Morgunblaðið/Eggert Ísland Leikmenn karlalandsliðsins þakka fyrir stuðninginn eftir leik við Portúgal í Laugardals- höll. Landsliðið hefur tekið þátt í 19 stórmótum frá árinu 2000 en kvennaliðið þrívegis. Við breyttum öllu okkar umhverfi í jafnréttisátt fyrir um tíu árum. Við jöfnuðum líka árangurs- tengdar greiðslur til fé- laganna. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2016 Nokkur umræða skapaðist eftir að í ljós kom að tals- verður munur var á því hvað dómarar fengu greitt fyrir að dæma karla- og kvennaleiki í körfuknattleik í meist- araflokki. Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, sagði ný- lega að til stæði að jafna greiðslur til dómara. Svipaðar aðstæður eru uppi hjá KSÍ þar sem meira er greitt fyrir karla- en kvennaleiki. Ekkert bendir til þess að því verði breytt. „Körfuknattleiksumhverfið er mjög líkt því sem gerist í handbolta. Knattspyrnan er hins vegar á allt öðru stigi hvað rekstrartekjur varðar,“ segir Einar. UMRÆÐA UM JAFNRÉTTI Hannes S. Jónsson Mun breytast í körfunni H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Hverfakosning 2016 er hafin á vefnum kosning.reykjavik.is. Þar getur þú valið milli allskyns hugmynda að endurbótum fyrir þitt hverfi sem fram komu í hugmyndasöfnun borgarbúa í vor. Veldu þínar uppáhaldshugmyndir fyrir 17. nóvember. Hvað kýst þú fyrir hverfið þitt? Hverfiðmitt Kosning 2016

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.