Morgunblaðið - 09.11.2016, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2016
E-60 Stólar
Klassísk hönnun frá 1960
Hægt að velja um lit og áferð
að eigin vali
Verð frá kr. 28.400
Íslensk hönnun og framleiðsla
Lífstíðarábyrgðá grind og
tréverki
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavík • Sími 553 5200 • solo.is
ÍSLENSKA KÍSILSTEINEFNIÐ FRÁ GEOSILICA
INNIHELDUR HREINAN JARÐHITAKÍSIL
*Rannsóknir hafa sýnt fram á þessi áhrif, kísilvatnið er fæðubótarefni og kemur ekki í staðinn fyrir lyf.
Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is
GeoSilica kísilvatnið fæst í Heilsuhúsinu,
öllum helstu apótekum og í Hagkaup Kringlunni,
Hagkaup Smáralind og Hagkaup Garðabæ.
ANNA
GUÐMUNDSDÓTTIR
„Ég mjaðmargrindarbrotnaði illa
fyrir tíu mánuðum, ég hef verið
að taka kísilinn ykkar núna í
u.þ.b. 8 mánuði og eftir tveggja
til þriggja mánaða inntöku varð ég strax vör
við mikinn mun. Í dag finn ég varla fyrir því að hafa brotnað.“
• Styrkir bandvefinn*
• Stuðlar að þéttleika í beinum*
• Styrkir hár og neglur*
• Stuðlar að betri myndun kollagens
fyrir sléttari og fallegri húð*
Ólafur Fáfnir Sigurgeirsson
olafur@mbl.is
Viðskiptaráð Íslands hefur birt út-
tekt á heimasíðu sinni á þeim frum-
vörpum sem fráfarandi ríkisstjórn
lagði fram og
urðu að lögum.
Þetta er gert til
að meta efnahags-
leg áhrif þeirra.
Að mati ráðsins
þá höfðu laga-
breytingar ríkis-
tjórnarinnar í
heild jákvæð áhrif
á efnahagslífið.
Jákvæðustu
áhrifin höfðu
frumvörp um losun hafta en nei-
kvæðustu áhrifin höfðu frumvörp um
húsnæðismál.
„Vandinn við núverandi stuðning
stjórnvalda á húsnæðismarkaði er að
hann ýtir undir aukna eftirspurn á
markaðnum,“ segir Björn Brynjúlfur
Björnsson, hagfræðingur Viðskipta-
ráðs Íslands, í samtali við Morgun-
blaðið.
Stuðningskerfi séu afmörkuð
„Stuðningskerfin eru almenn og ná
til breiðs hóps sem leiðir til hækk-
unar á íbúðaverði. Þannig grafa
stjórnvöld undan eigin markmiðum
með kerfunum,“ segir Björn.
Viðskiptaráð hefur kallað eftir því
að þessi stuðningskerfi séu betur af-
mörkuð. „Þau nái til þeirra hópa sem
sannarlega þurfi á þeim að halda og
hafi því bæði minni áhrif til verð-
hækkana og skili sér betur til þess-
ara hópa,“ segir Björn.
Að hans mati fóru stjórnvöld öfuga
leið í þessum málum, eins og með
hækkun húsnæðisbóta, nýju stuðn-
ingskerfi við kaup á fyrstu fasteign
og svo með almennri niðurgreiðslu á
fasteignalánum með hinni svokölluðu
leiðréttingu.
Losun hafta hafði jákvæð áhrif
„Við teljum erfitt að leggja nógu
mikla áherslu á það hversu miklum
árangri ríkisstjórnin náði í haftamál-
unum,“ segir Björn. „Þau hjuggu á
risastórann hnút sem voru slitabúin,
með mjög vel heppnuðum aðgerðum.
Það sést meðal annars í hækkandi
lánshæfismati ríkissjóðs. Þau juku
einnig fjárfestingarheimildir lífeyris-
sjóða sem geta nú fjárfest erlendis.“
Ekki síður mikilvægt skref var að
losa um höft á einstaklinga og fyr-
irtæki, að mati Björns. „Íslensk fyr-
irtæki geta því byggt upp alþjóðleg-
an rekstur eins og eðlilegt er.
Hagvöxtur á Íslandi og bætt lífskjör
munu velta á því hve mikið af alþjóð-
lega samkeppnishæfum fyrirtækjum
koma til með að starfa hér á Íslandi.“
Björn telur að í skattamálum hafi
fjármálaráðherra lyft grettistaki
þegar kemur að neyslusköttum.
Vörugjöld voru afnumin af 630 vöru-
tegundum, tollar afnumdir af öllu
nema matvælum og virðisaukaskatt-
sþrepin voru færð nær hvort öðru.
„Þetta hefur leitt til verulegra verð-
lækkana í fjölmörgum vöruflokkum
og var mikið framfaraskref fyrir
neytendur og verslun á Íslandi,“ seg-
ir Björn að lokum.
Telja aðgerðir leiða til
hærra húsnæðisverðs
Stuðningur olli aukinni eftirspurn að mati Viðskiptaráðs
Morgunblaðið/Eggert
Ríkisstjórnin Lagabreytingar voru í heild jákvæðar að mati VÍ.
Mismunandi áhrif
frumvarpa
» Viðskiptaráð gefur frum-
vörpum einkunn á bilinu -10 til
+10 eftir umfangi efnahags-
legra áhrifa.
» 43 lagafrumvörp höfðu já-
kvæð efnahagsleg áhrif.
» 29 lagafrumvörp höfðu nei-
kvæð efnahagsleg áhrif.
» Flest frumvörpin sem höfðu
jákvæð áhrif komu frá fjár-
mála- og efnahagsráðuneytinu.
Björn Brynjúlfur
Björnsson
Hagnaður Eikar fasteignafélags
nam 963 milljónum króna á þriðja
ársfjórðungi, en hann var 1.541 millj-
ón króna á sama fjórðungi í fyrra.
Munar þar mestu að matsbreyting
fjárfestingareignar var mun minni í
ár en í fyrra, en hún nam 607 millj-
ónum króna í ár í samanburði við
1.667 milljónir á þriðja fjórðungi
2015.
Rekstrarhagnaður Eikar fyrir
matsbreytingu og afskriftir nam hins
vegar 1.299 milljónum króna á þriðja
ársfjórðungi en var 1.096 milljónir á
sama fjórðungi í fyrra. Rekstrar-
tekjur námu 1.822 og jukust um 336
milljónir króna á milli ára.
Hagnaður Eikar á fyrstu níu mán-
uðum ársins nam 2,4 milljörðum
króna en hann var 3,1 milljarður yfir
sama tímabil í fyrra. Rekstrartekjur
námu 5,0 milljörðum króna og jukust
um 14% á milli ára. Þar af voru leigu-
tekjur 4,2 milljarðar króna og tekjur
vegna hótelrekstrar liðlega 0,5 millj-
arðar.
Rekstrarhagnaður fyrir mats-
breytingu og afskriftir nam 3,4 millj-
örðum króna frá janúar til septem-
ber í ár en hann var tæplega 3,1
milljarður yfir sama tímabil í fyrra.
Matsbreytingar námu hins vegar 1,7
milljörðum í samanburði við 3,1 millj-
arð í fyrra.
Rekstrarhagnaður fyrir mats-
breytingu, afskriftir og einskiptisliði
sem hlutfall af leigutekjum – svokall-
að NOI hlutfall – nam 76,3% á fyrstu
níu mánuðum ársins, en það var
76,6% á sama tímabili í fyrra.
Heildareignir Eikar námu 78,6
milljörðum króna í lok september,
þar af námu fjárfestingareignir 70,8
milljörðum og eignir til eigin nota 3,7
milljörðum. Hótel 1919 er fært sem
eigin eign þar sem í fasteigninni er
annar rekstur en útleiga fasteigna.
Eigið fé félagsins nam 25,1 milljarði
króna í lok september og var eigin-
fjárhlutfall 31,9%.
Hagnaður Eikar 963 millj-
ónir á þriðja ársfjórðungi
Rekstrarhagnaður eykst en dregur úr matsbreytingum
Morgunblaðið/Jim Smart
1919 Tekjur Eikar af hótelrekstri náum 513 milljónum fyrstu 9 mánuðina.
● Gamma hóf í
gær starfsemi á
nýjum sérhæfðum
alþjóðlegum fjár-
festingarsjóði,
Gamma Global
Invest, en hann
hefur fengið stað-
festingu frá Fjár-
málaeftirlitinu.
Sjóðurinn er op-
inn almennum fjár-
festum og stofnanafjárfestum og er haft
eftir Gísla Haukssyni, forstjóri Gamma, í
tilkynningu að undirbúningur að starf-
semi sjóðsins hafi staðið yfir í tvö ár.
Sjóðurinn verður skráður í evrum og
hefur heimild til fjárfestinga erlendis í
samræmi við ný lög um afnám gjald-
eyrishafta. Samkvæmt þeim hafa fjár-
festar 30 milljóna króna fjárfestingar-
heimild í erlendum eignum og hækkar sú
fjárhæð í 100 milljónir króna um áramót.
Fjárfest verður í erlendum verðbréfa-
sjóðum og sérhæfðum sjóðum, þar sem
undirliggjandi eignir geta meðal annars
verið hlutabréf, skuldabréf, fasteignir og
sérhæfðar fjárfestingar. Auk þess hefur
sjóðurinn heimild til beinna fjárfestinga,
m.a. í erlendum hlutabréfum og skulda-
bréfum.
Gamma setur á flot
nýjan alþjóðlegan sjóð
Gísli
Hauksson
● Farþegum með
Wow air fjölgaði
um nær 140% í
október síðast-
liðnum frá sama
mánuði í fyrra. Alls
flutti félagið
175.222 farþega til
og frá landinu í síð-
asta mánuði og var
sætanýting 86%.
Hélst hún svipuð á
milli ára, þrátt fyrir 151% meira sæta-
framboð.
Framboðnum sætakílómetrum til og
frá Norður-Ameríku fjölgaði um354% á
milli ára, en Wow air mun fljúga sitt
fyrsta flug til New York hinn 23. nóv-
ember næstkomandi.
Flug Mikill vöxtur
er hjá Wow air.
Mikil fjölgun farþega í
október hjá Wow air
STUTT
9. nóvember 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 110.85 111.37 111.11
Sterlingspund 137.58 138.24 137.91
Kanadadalur 82.9 83.38 83.14
Dönsk króna 16.447 16.543 16.495
Norsk króna 13.472 13.552 13.512
Sænsk króna 12.34 12.412 12.376
Svissn. franki 113.5 114.14 113.82
Japanskt jen 1.0597 1.0659 1.0628
SDR 152.9 153.82 153.36
Evra 122.41 123.09 122.75
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 152.6518
Hrávöruverð
Gull 1284.0 ($/únsa)
Ál 1716.0 ($/tonn) LME
Hráolía 45.7 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á