Morgunblaðið - 09.11.2016, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 09.11.2016, Qupperneq 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2016 Fréttablaðið birti frétt á dögunum und- ir fyrirsöginni „Tveggja ára gæsa- skytta fékk fjórar í fyrstu ferð“. Í grein- inni er m.a. komist á eftirfarandi hátt að orði: Stúlkan (tveggja ára barn) sat róleg og lék sér með boltann sinn, þegar gæsahóp- urinn flaug yfir og náðu foreldr- arnir fjórum fuglum. „Veiðar eru frábært fjölskyldusport og fannst henni (barninu) ótrúlega gaman,“ sagði Karen (móðirin)“. Marvin (faðirinn) tjáði sig um þetta í grein- inni m.a. með þessu orðalagi „… þetta er líka krúttlegt fjöl- skyldusport“. Undirrituðum, sem hefur lengi fylgst með dýrum og kynnt sér þau, er mjög annt um þau öll og ber mikla virðingu fyrir þeim, blöskrar þetta framferði foreldranna – þess- ar uppeldisaðferðir – og framsetn- ing fréttamanns á þessu framferði. Gæsirnar eru miklar fjölskyldu- og samfélagsverur, sem para sig varfærnislega strax á fyrsta vetri ævi sinnar, en bíða átekta saman í eitt til tvö sumur áður en þær eign- ast unga saman. Gæsaparið er síð- an hvort öðru trútt og lifir saman sem „hjón“ alla ævi. Sem getur ver- ið 16-18 ár. Gæsahjónin eru hvort öðru náin og er elska þeirra mikil. Ungarnir eru teknir inn í þennan nána fjölskylduhóp framan af. Gæsafjölskyldur mynda síðan með sér sambönd og lifa og ferðast um sín verusvæði saman. Skipulegt oddaflug þeirra er þekkt. Villigæsin er næm og háþróuð félagsvera. Það hefði verið nær að foreldr- arnir, Karen og Marvin, hefðu reynt að upplýsa tveggja ára dóttur sína um hinn heillandi heim gæs- anna og margra annarra dýra og kenna henni að virða og elska dýrin í stað þess að kenna henni að murka lífið úr þessum fallegu og merkilegu, en varnarlausu og sak- lausu verum, og það að gamni sínu. Spyrja má líka, hvort hjónin hafi skotið fuglana fjóra með haglabyssu, en ef svo er, er líklegt að margar aðrar gæsir hafi særst, tærst upp og dáið hörmung- ardauða síðar. Fyrr á tímum urðu Íslendingar að veiða sér til matar til að komast af í harðbýlu landi. Aðrar þjóðir voru margar hverjar í sömu sporum. Við þessu var ekkert að segja. Þetta var hluti af lífsbar- áttu manna. Nú til dags eru hins vegar fáir eða engir hér háðir slík- um veiðum með sína lífsafkomu. Þeir sem hafa gleði og fá frið- þægingu af að elta, særa, níða niður og drepa saklausar og varnarlausar skepnur og splundra fjölskyldum þeirra og samfélagi, vilja nú kalla þetta sport. Slíkt er í mínum huga mikið rangnefni. Fyrir mér væri rétta nafngiftin hér dýraníð. Dýr til lands og sjávar, lítil og stór, grös og plöntur, gróður og tré, loft og vatn – náttúran í öllum sín- um skrúða og fjölbreytileika – eru ein aðalgjöf og gæði þessa heims, sem menn verða að læra að virða, elska, hlú að og vernda. Það er nóg komið af misnotkun, spillingu, útrýmingu og eyðilegg- ingu sköpunarverksins. Furðulegar uppeldisaðferðir og fréttaflutningur Eftir Óla Anton Bieltvedt Ole Anton Bieltvedt »Nær hefði verið að foreldrarnir hefðu kennt tveggja ára dótt- ur sinni að virða og elska dýrin í stað þess að kenna henni að murka lífið úr þeim. Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslu- maður og stjórnmálarýnir. Fæstir hefðu trúað að þetta væri hægt, en henni tókst það þó! Þrír mánuðir nægðu Oddnýju formanni með sérstakri hern- aðaráætlun til að skera þrefalt niður þingmannatöluna! Í töflu um hrap flokksins í Reykjavík- urkjördæmum í Fréttablaðinu 31. október kemur fram, að 2009 fekk hann samanlagt 23.235 atkvæði í þeim báðum, en féll niður í 10.001 atkvæði árið 2013 eftir sín Icesave-, ESB-, skjaldborgar-, árnapáls- og stjórnlagaráðs- ævintýri, en datt síðan ofan í 3.766 atkvæði sl. laugardag, og fauk þar hausinn jafnvel af sjálfum Evrópusambands-taglhnýtingnum bráðfyndna, en oft illa tímasetta Össuri Skarphéðinssyni. Er hann nú kominn í ónáð í Brussel – eða þann- ig. Fréttin af þessari „fylgisþróun frá 2009“ nefnist að yfirskrift: Oddný ætlar ekki að segja af sér for- mennsku. En „yesterdays news“ – þið vitið – það er oft lítil ending í þeim! Samfylkingin hefur misst tengslin við upp- haflega undirstöðu Al- þýðuflokksins gamla: verkalýðshreyfinguna, vanrækt kjaramál al- mennings og orðið æ meira á valdi femínism- ans. Einnig hefur hún lagt sig mikið eftir að ná stuðningi minnihlutahópa, m.a. múslima og andstæð- inga Ísraels, en svo var hún jafnvel svipt einkarétti á ýmsum sínum heitu réttlætismálum á þeim sviðum, sbr. hvernig síðasti lands- fundur Sjálfstæðisflokksins tók af skarið um, að hann myndi sækja enn frekar fram í „hinseginmálum“ og jafnvel í því kappsmáli fem- ínistakrata að herja á lífsrétt ófæddra barna! Eftir situr svo Samfylkingin með sárt ennið og reynir að ráða gátuna, fyrir hvað henni var refsað. Ótrúlegur árangur Samfylkingar Eftir Jón Val Jensson Jón Valur Jensson » Samfylkingin hefur misst tengslin við ís- lenzka undirstöðu sína. Höfundur er guðfræðingur og fæst við skrif. Undanfarnar vikur hef ég fylgst með nokkurri eftirvænt- ingu með aðdraganda kosninga, allt frá því að tilkynnt var í her- búðum ríkisstjórnar að sitjandi stjórn færi frá völdum og myndi boða til kosninga. Það er ætíð spenn- andi að fylgjast með framvindu stjórnmála okkar Ís- lendinga, enda má segja að við séum jafn mörg lénsríki og íbúar landsins eru margir. Hver hefur sína vel ígrunduðu skoðun og um- ræður eru oft bæði heitar og lit- skrúðugar. Sérstaklega hafa stjórnmál okk- ar verið áhugaverð síðustu átta árin, eða allt frá því að hrunið æddi af stað haustið 2008, með öll- um þeim afleiðingum, atburðum, og flokkadráttum – og fangels- isdómum – sem fylgt hafa í kjöl- farið. Mörg smáframboð hafa komið fram. Sum lifðu ekki af sínar fyrstu kosningar, önnur komust á þing en leystust þó upp, enn önn- ur þreyttu sundið til næstu kosn- inga, og umræður bæði í fjöl- miðlum og á samfélagsmiðlum ærið heitar. Þá hefur hinn svo- nefndi fjórflokkur, eða valdablokk Sjálfstæðisflokks, Framsóknar, Samfylkingar og Vinstri grænna, riðlast allverulega. Nokkrar sveiflur hafa verið í fylgi flokkanna, bæði til og frá og í dag er staðan sú að fullyrða mætti að allir þessir fjórir flokkar hafi klofnað, þó mismikið. Nýlega heyrði ég því fleygt að fjórflokk- urinn væri orðinn sjöflokkur, en þó meira í gríni en alvöru. Frá því Alþingi samþykkti bráðabirgðaviðauka við stjórn- arskrá lýðveldisins sumarið 2013, og þáverandi forseti, Ólafur Ragn- ar, samþykkti þau lög, hef ég haldið því fram – með rýni í stjórnarskrána sjálfa – að fráfar- andi Alþingi ásamt forseta hafi ógilt stjórnarskrána og að í merk- ingarfræðilegum og siðferðilegum skilningi sé ógilt það stjórnkerfi sem á henni hvílir, ásamt lögum sínum og dóm- um. Þeir sem rýnt hafa í rök mín fyrir þess- ari rýni eru mér all- flestir sammála en oftar en ekki hefur mér fundist að þessi gjörningur – ef svo má kalla – sé líkari nýju fötum keisarans en lagalegri og menn- ingarlegri rýni, því fólk kann ekki við að taka undir. Rétt eins og ég hafi vogað mér að sitja í musterinu forðum daga, meðan aðrir voru við krossfest- inguna, og séð þegar fortjaldið rifnaði og vogað mér að benda á að sáttmálsörkin væri ekki þar fyrir innan. Sumt er ýmist of flók- ið eða of djarft. Hér er ég einmitt kominn að ástæðu þess að ég hripa saman þessi orð, því oft hefur mig langað að setja saman línur um þetta efni og senda lesendum blaðsins, en þó ég sé orðhvatur á mínum eigin vefmiðlum, þá þarf að tala varlega í fermingar- og skírnarveislum. Því aðgát skal höfð. Gjörningurinn þegar stjórn- arskráin var felld úr gildi er ein- faldur. Skráin tekur skýrt fram að sé við hana bætt grein eða við- auka eða tímabundinni grein, skuli leysa upp þing og kjósa nýtt þing. Þar skuli klára umræðuna og staðfesta. Nú er hins vegar komið nýtt þing, og umræðan um nýjar greinar við stjórnarskrána sem til stóð að klára fyrir kosningar árið 2017 er ókláruð. Fyrir um ári var rætt op- inberlega um fjórar nýjar greinar en í 1. umræðu á Alþingi (mál 841) nú í haust voru þær komnar niður í þrjár. Ekki veit ég hvernig mál- inu mun farnast í vetur en fróð- legt verður framhaldið. Í sjálfu sér skiptir mig minna máli hvað verður í greinunum, eða hvort þær enda í skjalinu sjálfu, heldur málsmeðferðin og þá sér- staklega samfélagssamræðan. Ef fara má með stofnsamning félags- ins „Lýðveldið Ísland“ eftir því sem mönnum sýnist og ef ekki er hægt að ræða hvort meðferðin sé samkvæmt virðingu við lög og sið- ferði eða hvort hún sé vanvirðing- argjörningur, þá hlýt ég að spyrja hvar við sem þjóð séum stödd. Hvarvetna er hrópað, ýmist eft- ir nýrri stjórnarskrá eða upp- skurði þeirrar sem nú er í (ó)gildi, en fæstir virðast hafa lesið gjörn- inginn frá 2012 eða skjalið frá 1944. Hvernig getur þjóð krafist endurskoðunar á stofnsamningi fé- lagsins sem við nefnum „Íslenska ríkið“ ef hún þekkir ekki samning- inn og er létt um hvernig með sé farið? Þess vegna fylgdist ég með af mikilli forvitni hvernig færi um kosningarnar 29. október síðastlið- inn og var á einhvern hátt undr- andi hvernig þær fóru. Langt mál væri að tíunda undrun mína, með tilsjón með gengi sumra ónefndra flokka í skoðanakönnunum síðustu þrjú árin. Í raun festi ég ekki í fljótu bragði hugarhönd á því hvar undrun mín kemur að landi. Síðustu daga hef ég margrætt þetta við félaga mína í Úlfahópn- um og þá sem koma að umræðum hópsins. Fáir hafa heyrt um Úlfa- hópinn en hann var stofnaður dag- inn eftir téðar kosningar, til að ræða stjórn- og samfélagsmál á breiðum grunni til lengri tíma. Nær allir sem ég ræði við segja það sama. Fólk er undrandi á þessum kosningum en festir ekki hughönd á hvar hnífurinn stendur í kúnni. Allir virðast þó sammála um að ný hugsun sé tímabær. Þetta er í grófum dráttum spurn- ingin sem sjálfstæðir úlfar, sem veiða í hópum, ætla sér að svara á næstu misserum. Er undirritaður opinn fyrir ábendingum og leið- réttingum í þessa veru. Úlfar og kosningar Eftir Guðjón E. Hreinberg Guðjón E. Hreinberg » Örstutt hugleiðing um stöðuna eftir ný- liðnar haustkosningar með tilliti til umræðunn- ar um stjórnarskrá. Höfundur er heimspekingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.