Morgunblaðið - 09.11.2016, Side 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2016
✝ Þórir Sigur-björnsson
fæddist í Gamla
Lundi á Akureyri
26. október 1945.
Hann lést 29.
október 2016.
Foreldrar hans
voru Margrét Pét-
ursdóttir, f. 1924,
d. 2005, og Helgi
Hallsson, f. 1926,
d. 2003. Kjörfaðir
Þóris var Sigurbjörn Yngvi
Þórisson, f. 1923, d. 1981.
Systkini Þóris sammæðra:
Pétur Sigurbjörnsson, f. 1948,
d. 2013, Agnar Hólm Krist-
insson, f. 1951, d. 1971, Anna
Fríða Kristinsdóttir, f. 1953,
Baldur Hólm Kristinsson, f.
1954, Gullveig Ósk Kristins-
dóttir, f. 1958, Snorri Viðar
Kristinsson, f. 1964. Systkini
Þóris samfeðra: Hallur Helga-
son, f. 1950, Jón Karl Helga-
og mannlífi. Þau fluttu til
Reykjavíkur 1991 þar sem
Þórir hóf störf við Laugarnes-
skóla og kenndi þar til ársins
2006.
Þórir og Sigrún eignuðust
þrjú börn: Halldór Má, f.
1964, Grétar Hall, f. 1966, og
Helgu Björk, f. 1972. Halldór
Már er kvæntur Vilborgu
Arnarsdóttur, saman eiga þau
tvíburana Þóri Garibalda og
Elísu Vilborgu, fyrir átti Hall-
dór Andra Má og Birgittu
Björk. Fyrir átti Vilborg
Ragnar Vestfjörð (lést 2001)
og Sindra Vestfjörð. Vilborg
og Halldór eiga þrjú barna-
börn. Grétar Hallur er kvænt-
ur Ólöfu Önnu Gísladóttur,
saman eiga þau Gísla Jóhann,
Sigrúnu Maríu, Elínu Ösp,
Þóreyju Öglu og Jóhönnu
Björt. Grétar og Ollý eiga
fimm barnabörn. Helga Björk
er gift Ágústi Guðmundssyni
og saman eiga þau Ísak Mána
og Magdalenu Maríu. Fyrir
átti Helga Björk Bjart Haf-
þórsson.
Útför Þóris fer fram frá
Fella- og Hólakirkju í dag, 9.
nóvember 2016, klukkan 13.
son, f. 1955, Ragn-
heiður Signý
Helgadóttir, f.
1958, og Helgi
Helgason, f. 1962.
Þórir ólst upp á
Akureyri til 17
ára aldurs en fór
þaðan til náms í
Íþróttakennara-
skólann á Laugar-
vatni veturinn
1963-1964. Hann
tók við stöðu íþróttakennara
og sundlaugarvarðar í Nes-
kaupstað og flutti þangað
haustið 1964 ásamt eftirlif-
andi eiginkonu sinni, Sigrúnu
Maríu Gísladóttur, f. 1943, frá
Grund í Súðavík. Þau giftu sig
í Akureyrarkirkju 3. júlí 1965.
Ásamt því að vera kennari við
Nesskóla vann Þórir meðal
annars við sjúkraflutninga og
köfun, auk þess var hann
mjög virkur í félagsstörfum
Elsku Þórir minn.
Það er svo sárt að sjá á eftir
þér, en samt svo sanngjarnt að þú
fáir þína hvíld eftir öll þessi erfiðu
veikindi sem þú barðist svo hetju-
lega við, en líkaminn þolir ekki
endalausa og ósanngjarna árás
en hugurinn var alltaf til staðar.
Ég man svo vel þegar ég dvaldi
þrjú sumur í Neskaupstað sem
barn hjá þér og Sigrúnu, þá voru
erfiðleikar heima fyrir en hjá
ykkur fann ég ást og umhyggju
og öryggi, ég hef alltaf sagt að hjá
ykkur á ég bestu minningar úr
minni æsku. Þú varst svo mikill
viskubrunnur og hafðir einstak-
lega skemmtilegan frásagnar-
hæfileika, þú gerðir leiðinlegar
sögur skemmtilegar og ómerki-
legar sögur merkilegar, það var
einfaldlega bara gaman að hlusta
á þig, vissir svo mikið um svo
margt.
Þú leiddir mig þegar ég var
barn og þurfti á því að halda, þú
leiddir mig upp að altarinu þegar
ég gifti mig á sínum tíma, ég
þakka fyrir að hafa fengið að leiða
þig síðustu daga þína í þessu lífi.
Þú varst og verður alltaf hetj-
an mín, þín verður sárt saknað,
elsku bróðir.
Þín
Gullveig.
Þórir Sigurbjörnsson, vinur
okkar, mágur og svili, er kvaddur.
Eftir lifa minningar um ein-
staklega umhyggjusaman mann,
hjartahlýjan og hjálpfúsan, hrein-
skiptinn, rökfastan og hnyttinn.
Þórir var óþrjótandi fróðleiks-
brunnur um málefnin sem föng-
uðu huga hans og átti auðvelt með
að segja frá og hrífa aðra með sér.
Dimm en mjúk röddin og hlátur-
inn hans verður ljóslifandi í þess-
um skrifuðum orðum.
Tækifæri okkar til að njóta
mannkosta Þóris hafa í gegnum
tíðina verið ríkuleg.
Meðan Þórir og Didda bjuggu í
Neskaupstað gistu þau jafnan á
heimili okkar þegar þau komu til
Reykjavíkur. Að sama skapi nut-
um við gestrisni þeirra hjóna í
Neskaupstað. Dvalir með Þóri og
Diddu á Grund í Súðavík eru
margar og eftirminnilegar, einnig
samvistirnar í félagsskapnum
Laufið. Gangan mikla með Þóri
og Diddu út Þorskafjörð, um
Teigsskóg og fyrir Hallsteinsnes-
ið árið 2011, er glitrandi perla á
minningabandinu.
Þórir ræktaði garðinn sinn vel.
Hann átti vini í konu sinni, börn-
um og barnabörnum. Hann sinnti
móður og systkinum af alúð.
Margir minna skyldir og óskyldir
nutu umhyggju hans og hjálp-
semi.
Kæra fjölskylda, Didda, Hall-
dór Már, Grétar Hallur, Helga
Björk, makar og barnabörnin öll:
Við vottum ykkur dýpstu samúð.
Halldór og Rannveig.
Okkar góði vinur er fallinn frá,
það er erfitt að sætta sig við að
þannig sé komið. Kynni okkar
hófust þegar hann réði sig til
kennslu við Laugarnesskóla árið
1991.
Þórir kenndi í Neskaupstað áð-
ur en hann kom að Laugarnes-
skóla. Við höfðum heyrt um
kennslu hans í náttúrufræðum
sem hann var að vinna með þar,
sem var framúrstefnuleg og
skemmtileg, meðfram kennslunni
hafði hann stundað köfun, fjall-
göngur og sjúkraflutninga. Þegar
hann kom í Laugarnesskóla
kenndi hann íþróttir, ásamt
bekkjarkennslu, en honum var
margt til lista lagt, og síðar tók
hann að sér að vinna á skólasafni
skólans. Þar leiddi hann frábært
starf og til gamans má geta þess
að honum líkaði ekki nafnið bóka-
vörður, honum fannst nafnið
vörður benda til þess að starfs-
maðurinn ætti að verja bækurnar
svo þær væru ekki eins aðgengi-
legar fyrir nemendur!
En svo hófst tölvuvæðing skól-
anna og þá var hann strax kominn
í forustu á þeim vettvangi, hann
var ótrúlega naskur á að kynnast
því nýjasta í tölvumálunum og
koma með það í skólastarfið. Það
var gott að nýta færni hans þegar
endalaust var verið að innleiða ný
kerfi og þá kynnti hann sér þau
og sá um verkefni þeim tengd.
Hann var alltaf fljótastur að til-
einka sér nýungarnar og leiða
okkur hin áfram í þeim.
En fljótlega eftir að hann kom
til starfa við skólann kom fram
veikleiki í lifur sem hann þurfti sí-
fellt að vera að berjast við og sem
sigraði hann svo að lokum. Eftir
hverja veikindalotu kom hann til
baka ótrúlega öflugur og lét aldr-
ei bera á því að hann væri ekki
fullhraustur. Það var með ólíkind-
um hvað hann var fljótur að ná
sér, kominn til vinnu og farinn að
synda einn til tvo kílómetra og
hlaupa á fjöll.
Við hjónin höfum margs að
minnast frá góðum samveru-
stundum með Þóri og Sigrúnu.
Við vorum saman í hjónaklúbbn-
um Laufinu og sóttum þar dans-
leiki og ferðalög. Við áttum fasta
miða í leikhúsi og nutum þess að
fá okkur hressingu eftir leiksýn-
ingar og ræða upplifun leikverk-
anna.
Við fórum líka tvisvar í
skemmtisiglingu og ógleyman-
legt er þegar þau Þórir og Sigrún
heimsóttu okkur í sumarhúsið
okkar á Látrum. Þórir starfaði í
Félagi eldri borgara í Reykjavík
og var um tíma gjaldkeri í dans-
nefnd sem sá um danskennslu á
vegum félagsins. Glæsilegra
reikningshald er vandfundið þar
sem ársskýrslum var skilað með
mikilli nákvæmni.
Þórir kynnti sér gamlar sagnir
um ævaforna viðburði sem tengd-
ust náttúrufyrirbærum og las út
úr þeim vísbendingar og heimild-
ir sem hann bar saman við ís-
lenska náttúru. Einnig lagði hann
sig eftir margvíslegum eigindum
vatns.
Hann tók virkan þátt í Félagi
musterisriddara „Heklu“, sótti
þar fundi og hélt erindi um rann-
sóknir sínar og starfaði í nefnd-
um.
Það er erfitt að sætta sig við að
þessi glaðlyndi, hjálpsami og
hressi vinur sé horfinn, en minn-
ingar um hann eru allar góðar og
tengdar margskonar upplifun. Ef
við vorum í vandræðum með að
láta tölvuna okkar vinna eins og
við vildum, var alltaf fyrsta hugs-
unin „við verðum að spyrja Þóri“
og hann kom að vörmu spori
hvernig sem á stóð og leiðbeindi
okkur.
En að lokum viljum við flytja
Sigrúnu aðdáun okkar á hve vel
hún annaðist Þóri í öllum veikind-
um hans og stóð alltaf sterk við
hlið hans.
Við vottum henni og fjölskyldu
hennar samúð og biðjum þeim
blessunar.
Jón Freyr Þórarinsson.
Nú er skarð fyrir skildi.
Fallinn er í valinn yngsti
menningarvíkingurinn og sam-
starfsmaður okkur um árabil. Það
er gaman að segja frá því að við
Þórir, Reynir og Oddur erum allir
fæddir á 500 metra radíus á Ak-
ureyri, ef við rekum niður staur
við innganginn á Sjallanum á Ak-
ureyri sem við komum stundum í.
Þórir er síðasta barnið sem fædd-
ist í Gamla-Lundi á Oddeyri áður
en það var gert að vélsmiðju, en
við Reynir og Oddur erum fæddir
í Brekkugötunni. Samfélagið og
manngildið sem við ólumst upp
við gerði það að verkum að við
urðum hugsjónamenn og komum
hreinskilnislega og heiðarlega
fram. Samvinna okkar um menn-
inguna hefur varað í áratugi. Þór-
ir átti mörg áhugamál og ræddum
við oft saman, gömlu víkingarnir,
og fengum ýmsar hugmyndir
hver frá öðrum sem við nýttum í
störfum okkar, bæði hjá ORG og í
lífinu, því að allt byggist þetta á
að tala saman persónulega og að
virða skoðanir hver annars og
mættu aðrir taka það sér til fyr-
irmyndar.
Það er sár söknuður okkar fé-
laganna, en við sjáum fram á að
það eru til yngri víkingar og val-
kyrjur sem halda áfram okkar
verki. Þóris er sárt saknað, en
svona er gangur lífsins.
Fyrir hönd ORG,
gömlu víkingarnir,
Reynir og Oddur.
Við fráfall Þóris, vinar míns,
opnaðist fyrir ljúfan og stóran
minningasjóð. Því verður ekki hjá
komist að grípa til stílvopnsins. Í
upphafi langar mig að votta Sig-
rúnu og börnum mína dýpstu
samúð við fráfall Þóris.
Við Þórir kynntumst sem sam-
kennarar við Laugarnesskóla fyr-
ir mörgum árum. Hann sem um-
sjónarmaður við bókasafn
skólans og tölvusnillingur með
meiru og ég sem tónlistarkennari.
Við urðum strax góðir kunningj-
ar, sem þróaðist yfir einlæga vin-
áttu sem hélst þar til yfir lauk.
Þórir hafði mjög breitt áhuga-
svið, allt frá því að hafa skoðanir á
upphafi alheimsins og endalokum
hans og upphafi Íslandbyggðar
og þar til henni mun ljúka. Saga
þessara atburða er það löng að
hún verður ekki rakin í stuttri
minningargrein en gaman var að
hlusta á framsögumanninn segja
frá og rökstyðja mál sitt fyrir op-
inmynntum hlustanda.
Þórir átti í rauninni við lang-
varandi veikindi að stríða þó síð-
asta árið hafi verið það erfiðasta.
Nú veit ég að Þórir situr í góðu yf-
irlæti á „eyjunni bláu“ og lætur
fara vel um sig, um leið og hann
slær sér á lær, brosir kankvíslega
til mín og segir: „Ég vissi þetta
alltaf og sagði þér það, Stebbi
minn.“
Stefán Þ. Stephensen.
Elsku Þórir og fjölskylda. Það
voru góðar og ánægjulegar
stundir sem við áttum saman og
eins og ávallt þegar hugsað er til
baka hefðu þær mátt vera enn
fleiri. En við svo sannarlega nut-
um þeirra. Frásagnargáfa þín var
einstök og gaman að hlusta á allar
sögurnar sem þú hafðir að segja
og svo varstu mikill fræðimaður,
á óvenjulegum og skemmtilegum
sviðum. Það var gott að vera í ná-
vist þinni.
Við tökum svo sannarlega und-
ir með þér, elsku Þórir, þegar þú
kvaddir okkur með þeim orðum
að það hefði verið yndislegt að við
skyldum hafa fengið tækifæri til
að kynnast. Okkur er bæði heið-
urinn og ánægjan.
Elsku Sigrún og fjölskylda, við
sendum ykkur innilegar samúð-
arkveðjur og elsku Þórir, eins og
segir á leiði pabba okkar: Minn-
ing þín lifir.
Jón Karl, Signý og Helgi.
Öðlingur, traustur, kærleikur,
viska – er það sem kemur í hug-
ann þegar ég hugsa til Þóris Sig-
urbjörnssonar.
Við Þórir kynntumst í sund-
lauginni. Við vorum í hópi þeirra
sem tóku daginn snemma og
syntu í dagrenningu. Að loknu
sundi var oft spjallað og það var
gaman að ræða og fylgjast með
öllu því sem Þórir var að velta
fyrir sér hverju sinni. Sameigin-
legur áhugi á hinum ýmsu heim-
spekilegu málefnum átti síðar eft-
ir að tengja okkur á margvíslegan
hátt þar sem við nutum margra
góðra samverustunda yfir hugð-
arefnum okkar. Þórir var enda-
laus uppspretta fróðleiks og visku
og það var auðvelt að gleyma sér
þegar hann fór á flug.
Það var Þórir sem vakti áhuga
minn á qigong á sínum tíma. Fyr-
ir hans tilstilli hóf ég að iðka qi-
gong og ástunduðum við það síðar
reglulega í hóp með fleirum þrisv-
ar í viku. En það fannst okkur þó
ekki nóg, því við vildum læra
meira og kynnast fræðunum að
baki.
Ásamt Sigfúsi Sverrissyni tók-
um við að hittast reglulega, horfa
á kennslumyndbönd og ræða mál-
in. Þegar Þríeykið kom saman
voru klukkustundirnar fljótar að
fjúka. En þetta var langt í frá eina
áhugamál Þóris. Hann sökkti sér
á kaf í hugðarefnin, alls kyns
rannsóknir og fræðimennsku á
ýmsum málum, sem unun var að
fylgjast með. Hann gerði þetta
allt svo vel.
Það var gaman að fara með
Þóri austur á Hvolsvöll og hlýða á
fyrirlestur hans um Þríhyrning.
Hann hreif alla með sem á
hlýddu. Erindi hans um vatnið
flutti hann einnig víða og vakti
mikinn áhuga.
Það eru forréttindi að hafa
fengið að kynnast Þóri. Hann var
einstakur. Minningin um kæran
vin lifir.
Innilegar samúðarkveðjur
sendi ég til Sigrúnar og ástvina
allra.
Það er við hæfi að kveðja að
hætti Þóris:
„Blessi þig.“
Þín vinkona,
Þóra Halldórsdóttir.
Vinur minn, Þórir Sigur-
björnsson, er látinn, liðlega sjö-
tugur að aldri.
Um langt árabil vorum við
samstarfsmenn við Nesskóla í
Neskaupstað. Góð og gefandi ár í
byggðarlagi sem ávallt hefur lagt
metnað í menntun og framþróun í
skólamálum. Þórir var íþrótta-
kennari að mennt og sinnti
kennslu á því sviði en færði sig
smám saman yfir í bókleg fræði,
einkum er laut að líffræði og tölv-
unarfræðum. Með sjálfsnámi og
yfirlegu náði hann frábærum tök-
um á þeim greinum og var leið-
andi í skólanum á þeim sviðum.
Þannig var Þórir gerður. Ein-
beittur og kappsamur ef verkefni
tengdust áhugasviðum hans.
Hann var góður og samvisku-
samur kennari og naut vinsælda í
störfum sínum. Utan hins hefð-
bundna skólastarfs var hann
nemendum innan handar við ým-
is verkefni, ekki síst við skipulag
íþróttamóta og undirbúning árs-
hátíða. Hann setti sterkan svip á
skólastarfið, var þægilegur í
samstarfi og úrræðagóður, ræð-
inn og fjörmikill. Í félagsmálum
var hann ákafamaður og nutu
mörg félagasamtök í Neskaup-
stað krafta hans; Rauði krossinn,
björgunarsveitin og Lions, svo
fátt eitt sé nefnt, og gjarnan var
hann í forystu. Þegar hann og
Sigrún eiginkona hans fluttu til
Reykjavíkur hóf hann störf við
Laugarnesskóla og hafði þar
ásamt kennslu yfirumsjón með
tölvumálum skólans og kom ekki
á óvart og þá ekki síður rík þörf
hans fyrir þátttöku í félagsmál-
um. Hann kom víða við á því sviði
í Reykjavík og hélt ótrauður
áfram þrátt fyrir erfið veikindi
sem hann glímdi við síðustu árin.
Örlögum sínum tók hann af aðdá-
unarverðu æðruleysi. Hann
eyddi ekki púðri í sjúkdómssögu
sína en ræddi af ákafa hugðarefni
sín sem tengdust tölvuverkefn-
um eða því sem hann hafði lesið
og leitað svara við um hinstu rök
tilverunnar. Með Þóri er góður
maður genginn. Hann var fjöl-
skyldumaður í bestu merkingu
þess orðs og þar ríkir sorg og
söknuður. En öll él birtir upp um
síðir og minningin um góðan
mann lifir. Við Óla færum Sig-
rúnu og fjölskyldu okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Gísli Steinar Sighvatsson.
Einstakur heiðursmaður er
fallinn frá. Mín kynni af Þóri eru
ef til vill ekki löng mæld í árum. Í
gæðum hafa þessi ár gefið mikið.
Það sem skiptir öllu þegar litið er
til samskipta, sama hve lengi þau
hafa staðið, er hvað þau hafa gef-
ið. Ég kynntist Þóri fyrst er hann
gekk til liðs við Reglu musteris-
riddara árið 2006. Það kom fljótt í
ljós hve gegnheill hann var og
hve áhugi hans á andlegum mál-
efnum var mikill. Hann leitaði
víða fanga og var ætíð tilbúinn til
að deila vitneskju sinni til okkar
bræðranna. Hans er nú sárt
saknað. Þórir var óþreytandi við
að leita fanga í leit sinni eftir ræð-
um og greinum stofnanda Regl-
unnar Jóns Árnasonar. Þórir
vann að þessu áhugamáli sínu
fram á síðasta dag. Hann skilur
eftir sig myndarlegt magn verka
Jóns, nánast tilbúin til útgáfu.
Þannig var Þórir, vinnandi að
áhugamálum sínum, mjög veikur,
vitandi hvað beið handan við
hornið en ætíð horfandi fram á
veginn.
Þórir var heiðarlegur og sann-
ur maður, sönn fyrirmynd öllum
sem honum kynntust.
Við Musterisriddarar sendum
Sigrúnu og aðstandendum öllum
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Sveinn H. Skúlason.
Hann Þórir var svo hlýr, hann
var svo traustur, hann var alltaf
svo góður og innilegur. Mér leið
alltaf vel þegar ég hitti hann. Ég
trúi því ekki að ég eigi ekki eftir
að heyra þessa djúpu og fallegu
rödd hans aftur.
Dóttir mín hefði ekki getað átt
betri afa en hann og ég syrgi það
að barnabörnin mín hafi ekki náð
lengri tíma með honum.
Innilegar samúðaróskir til
ykkar allra, Sigrún mín.
Lilja, Bjarki og fjölskylda.
Þórir
Sigurbjörnsson
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
ERLA ÁSGEIRSDÓTTIR,
Borgarhrauni 10,
Hveragerði,
lést 3. nóvember. Útförin fer fram frá
Kotstrandarkirkju laugardaginn 12. nóvember klukkan 14.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
.
Ólafur Pétursson
Magnús Bjarkason Guðlaug Pálmadóttir
Hólmfríður Bjarkadóttir Páll Ólason
Anna Elín Bjarkadóttir
Pétur Már Ólafsson Aðalheiður L. Guðmundsd.
Eva María Ólafsdóttir Bragi Konráðsson
ömmu- og langömmubörn.
Okkar elskulega eiginkona, móðir,
tengdamóðir, dóttir, systir og mágkona,
DAGMAR HRÖNN GUÐNADÓTTIR,
Sóleyjarima 9, Reykjavík,
lést á deild E6 á Landspítalanum í Fossvogi
3. nóvember 2016. Jarðarförin fer fram frá
Grafarvogskirkju 14. nóvember 2016 klukkan 11.
Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á Styrktar-
og líknarsjóð Oddfellowa.
.
Guðmundur Eiríksson,
Guðni Eiríkur Guðmundsson, Hanna Björg Sigurðard.,
Guðni Arnberg Þorsteinsson, Hallgerður Þórðardóttir,
Þorsteinn Arnberg Guðnason, Ingigerður Þórðardóttir
og aðrir aðstendendur.