Morgunblaðið - 09.11.2016, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 09.11.2016, Qupperneq 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2016 ✝ Stefán Stef-ánsson fæddist í Reykjavík 9. jan- úar 1936. Hann lést á heimili sínu 4. nóvember 2016. Stefán var sonur Árnýjar Jónu Páls- dóttur, f. 12. jan- úar 1907, d. 27. júlí 1987, og Stefáns Íslandi, f. 6. októ- ber 1907, d. 1. jan- úar 1993. Stefán kvæntist Ólöfu Helgu Sveinsdóttur, f. 17. október 1935, d. 7. júní 2016, þann 13. apríl 1957. Ólöf var dóttir hjónanna Hólmfríðar J. Þorbjörnsdóttur, f. 16. febrúar 1915, d. 3. júní 1999, og Sveins Óskars Ólafssonar, f. 26. mars 1913, d. 21. maí 1995. Þau bjuggu fyrstu hjúskaparárin sín á Hjallavegi 14, Reykjavík, þar til þau fluttu í Kópavog ár- ið 1957. Árið 1959 byggðu þau hús með foreldrum Ólafar að Lyngbrekku 7, Kópavogi. Stef- án og Ólöf eignuðust sex börn, en þau eru Stefán Óskar, f. 21. júlí 1955, d. 23. desember 1999, en hann og kona hans, Margrét Elín Ragnheiðardóttir, eign- uðust þrjá syni: Stefán Helgi, f. 1973, en hann á tvö börn, Arn- ar, f. 1982, og Brynjar, f. 1985, hann á tvo syni og einn stjúp- son. Þorbjörn Helgi, f. 8. jan- úar 1957, á hann þrjú börn og eina stjúpdóttur með fyrri konu sinni, Kristínu Ein- arsdóttur, en þau eru Una, stjúpdóttir, f. 1975, hún á tvo syni, Ólöf Helga, f. 1977, hún á þrjú börn, Sædís, f. 1983, á hún þrjú börn, og Sveinn Óskar, f. 1985, og á hann eina dóttur. Kristín Anna, f. 1959, hún og mað- ur hennar, Guðjón Bachmann, eiga þrjú börn, Þórhildi Kristínu, f. 1985, og á hún einn son, Bjarni, f. 1993, og Hjördís, f. 1993. Hanna Dóra, f. 1961, og á hún eina dóttur, Hólmfríði Jóhönnu, f. 1988, á hún einn son. Árný Jóna, f. 1966, hún á þrjú börn með sambýlismanni sínum, Loga Dýrfjörð, þau eru Arna, f. 1992, Óskar Páll, f. 1996, og Íris Ösp, f. 1998. Hólmar Þór, f. 1967, hann eignaðist fjögur börn með fyrri konu sinni, Þóru Viðarsdóttur, þau eru Jóna Dóra, f. 1994, Viðar Magnús, f. 14. apríl 1995, d. 15. apríl 1995, Adda Margrét, f. 1996, og Stefán Óskar, f. 2000, hann á þrjú stjúpbörn með seinni konu sinni, Guðrúnu Þorláksdóttur. Stefán lærði bifreiðasmíði og vann í mörg ár hjá Volvo eða þar til hann hóf kennslu við Iðnskólann í Reykjavík 1977. Hann kenndi bílasmíði þar til hann fór á eftirlaun og naut hann sín vel við kennsluna. Útför Stefáns fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 9. nóv- ember 2016, kl. 11. Pabbi minn og afi barnanna minna er farinn í draumalandið að hitta sína heitelskuðu til rúmlega 60 ára enda ekki nema rúmir fimm mánuðir síðan við kvöddum bestu mömmu í heimi. Lýsingarorðin eru ófá sem lýsa pabba mínum, einstaklega orðheppinn, kátur, tryggur, söngelskur o.s.frv. Ég er ein- staklega heppinn með pabba, hann var alltaf til í allt, hjálp- samur og til í sprell. Pabbi og mamma voru alltaf innan seil- ingar þegar eitthvað gekk á í blíðu eða stríðu. Allt sem hann tók sér fyrir hendur var ein- staklega vandað, hann smíðaði bíla og gerði við bíla sem við systkinin „óvart“ skemmdum, smíðaði hús utan um fjölskyld- una í Lyngbrekku og sá um við- haldið, smíðaði sumarbústað, stundum pirraði það mig hve vandvirkur hann var, en þau vinnubrögð hef ég reynt að til- einka mér og vonandi næ ég því einn daginn. Þegar samkomur voru haldn- ar þá elskaði hann söng, söng manna hæst og hafði alveg skoðun á því hvernig söngvari viðkomandi var. Taktviss með eindæmum og kunni svo sannarlega að dansa samkvæmisdansa, að fá að dansa við pabba var snilld, því hann kunni svo sannarlega réttu taktana. Þolinmæði hafði hann mikla og gat miðlað frá sér, ófá- ir nemendur hans pabba komu til hans og okkar systkina, þökkuðu fyrir frábæra kennslu enda var hann kennari af lífi og sál við Iðnskóla Reykjavíkur og síðar Borgarholtsskóla. Margar minningar komu upp við það að hugsa um pabba og mömmu, um verslunarmanna- helgina 2015 þá héldum við litla þjóðhátíð í Fljótshlíðinni og djömmuðum stíft, sungum og dönsuðum. Þessi helgi er mér svo fersk í minni, því þau töluðu um að þau hefðu ekki vakað svona lengi í mörg ár og gleymt sér við söng og tónlist. Á mínum yngri árum þegar mamma þurfti að bregða sér af bæ, þá sá pabbi um matseldina og það var ekki flókið, pylsur, pylsur og stundum bjúgu. Þetta var borðað út í eitt, en hann sá til þess að við systkinin urðum aldrei svöng en ofsalega urðum við ánægð þegar mamma kom til baka því þá var eitthvað ann- að á boðstólum. Síðar varð ég einstaklega heppin þegar börn- in mín fæddust því þá gerðist mamma dagmamma þeirra og pabbi aðstoðarmaður hennar, það sem dekrað var við þau og brallað var með ólíkindum. Ég öfundaði oft börnin mín því það voru ótrúlegir hlutir sem þau gerðu saman, fóru m.a. í Kolaportið, skoðuðu bíla/báta og endalausir göngutúrar. Börnin mín koma til með að sakna þín alveg ótrúlega mikið, en í sumar náðum við að lagfæra sumarbústaðinn í Fljótshlíð með þér og Hönnu Dóru systur. Þú gast endalaust hlegið að óförum okkar við þær fram- kvæmdir, t.d. málningarfatan sem við ákváðum að yrði bara á milli okkar. Það verður skrýtið að geta ekki leitað til þín og spjallað en minningum um ein- stakan pabba verður haldið á lofti. Elsku pabbi minn, ég kem til með að sakna þín óendanlega mikið Árný Jóna Stefánsdóttir. Árið 2016 er búið að vera erf- itt ár, mamma lést 7. júní sl., og pabbi lést 4. nóvember. Við and- lát pabba skapast nú mikið tómarúm hjá mér, því nú eru mínir bestu félagar og vinir bæði farin. Pabbi vann alla tíð hörðum höndum og hann þurfti svo sannarlega að hafa sjálfur fyrir hlutunum. Hans helsta áhugamál var sumarbústaðurinn en fyrst eignuðust þau bústað í Hvera- gerði, síðan í Borgarfirði og enduðu svo í Fljótshlíðinni. Pabbi elskaði að vinna við gróð- urinn, dytta að bústaðnum eða bara hlusta á fuglasönginn í kyrrðinni. Hann var með vandvirkari mönnum, alveg sama hvað hann tók sér fyrir hendur, allt varð að vera óaðfinnanlegt og oft hristi ég hausinn yfir því. Hann hefur aðstoðað mig við kaup á öllum mínum bílum sem ég hef eignast og ég hef aldrei verið svikin af þeim bílakaup- um. Pabbi hafði mjög ákveðnar skoðanir á hlutum og ekki þýddi að reyna að tala hann ofan af neinu því sem hann var búinn að mynda sér skoðun á. Pabbi var mikill snyrtipinni og fór aldrei út úr húsi nema hann væri búinn að fara vel yfir útlitið enda var hann alltaf mun lengur að hafa sig til en mamma. Við höfum eitt ófáum stund- um saman undanfarin ár til að spjalla um hvað þyrfti að gera í sumarbústaðnum og hvernig, oft urðum við sammála en ekki alltaf. Ég kem til með að sakna þess að geta ekki heimsótt þau í Ár- salina en pabbi átti allt gott skil- ið frá mér því hann og mamma reyndust mér ofboðslega vel þegar Hólmfríður mín var yngri, enda sagði mamma oft við hana „æ, hann pabbi þinn“, enda reyndist hann henni eins og besti pabbi. Ég veit að þú ert ánægður með það að hafa hitt mömmu aftur og að nú ert þú heill heilsu. Elsku pabbi minn, þín er sárt saknað. Þín dóttir, Hanna Dóra. „Áfram veginn í vagninum ek ég.“ Tengdapabbi minn og afi barnanna minna hann Stefán Stefánsson kvaddi þennan heim á heimili sínu síðastliðinn föstu- dag eftir erfið veikindi. Ég segi afi barnanna minna vegna þess að það sannarlega var hann, þau litu öll mikið upp til afa síns og ömmu og dýrkuðu. Öll voru þau í pössun hjá þeim ömmu og afa sem litlir krakkar og mynduðu mikil tengsl við þau sem héldust allan tímann og styrktust eftir sem tíminn leið. Óskar Páll lærði allt um bíla hjá afa sínum og alveg síðan þá er hann með óbilandi bíladellu, það tókst ekkert hjá mér að rökræða við Óskar um bíla, hann vissi alltaf betur vegna þess að afi sagði það. Fyrir næstum 30 árum kynntist ég konunni minni, laugardaginn 8. nóvember 1987, og nokkrum dögum síðar hitti ég Stefán og eftir það urðum við mestu mátar og miklir vinir þó stundum hefðum við rökrætt heilmikið, en það jók vinskapinn og í raun þroskaði vinskap okk- ar alltaf betur og ég sá hversu ákveðinn og réttsýnan mann hann hafði að geyma. Útivera í sumarbústað og að vera tengdur við náttúruna var órjúfanlegur þáttur alla tíð, hans líf og yndi. Áttum við margar stundir saman, fyrst á Mýrum í Borgarfirði og svo í Fljótshlíð og síðast nú í sumar. Og það sem við gerðum og ræddum um verslunarmanna- helgina 2015 mun ég alltaf geyma á góðum stað í hjartanu. Eitt það síðasta sem Stefán gerði í þessu lífi var að fá dætur sínar tvær og son í smá bíltúr og fóru þau þá í Fljótshlíðina í síð- asta sinn svona bara til horfa yf- ir dagsverkið og kveðja. Núna í sumar fórum við í fjöl- skyldu- og vinnuhelgi í Fljóts- hlíðina til að klára að klæða og mála húsið, þó Stefán tæki ekki mikinn þátt í handavinnunni þá var allt gert undir styrkri verk- stjórn hans og glöggu auga, það mátti ekki gera neitt fúsk, allt yrði að vera fagmannlega unnið. Þannig maður var hann alla tíð, mjög nákvæmur og vandvirkur sama hvað var unnið. Nú er söngurinn hljóður og horfinn, aðeins hljómar frá bjöllunnar klið. Allt er hljótt yfir langferða leiðum þess er leitar að óminni og frið. Logi Dýrfjörð. Það er ótrúlega skrítið að hugsa til þess að eiga ekki leng- ur afa og ömmu í Ársölum. Nú er Stebbi afi farinn í drauma- landið til hennar ömmu og vakir yfir okkur. Það eru fáir sem hafa átt jafn skemmtilegan afa og við. Það var stutt í grínið, og aulabrand- ararnir hans ófáir. Jafnvel eftir að amma féll frá, þá gat hann grínast í okkur og notið lífsins. Við áttum svo góðar stundir með afa í sumar í Fljótshlíðinni, sem munu fylgja okkur að ei- lífu. Elsku afi minn, svo sár er söknuðurinn. Í Fljótshlíðardalnum, í hljómsveitarsalnum, þú varst með mér alla leið. Lyngbrekkan svo full af lífi, þú gerðir allt að sönglífi. Með þér var allt svo miklu betra, líkt og snjórinn kemur ávallt þegar vetrar. Minningarnar eru svo ótal margar, við vorum öll ægilegir vargar. Þú sýndir alltaf þolinmæði, takk fyrir að vera æði. (Íris Ösp Dýrfjörð) Stebbi afi og Ólöf amma hafa sett svip sinn á líf okkar allra og skilja eftir sig ótrúlega dýr- mætar minningar. Minningin um frábæran afa lifir í hjörtum okkar. Þín barnabörn, Arna Dýrfjörð, Óskar Páll Dýrfjörð og Íris Ösp Dýrfjörð. Ótal margar minningar koma upp í hugann þessa dagana og get ég með sanni sagt að ég hugsa um lítið annað. Þið amma voruð mér allt og tilhugsunin um að þurfa að kveðja ykkur með svo stuttu millibili; ég er full söknuðar. Ég hugga mig þó við það að nú eruð þið saman á ný. Þegar ég hugsa til baka kem- ur fyrst upp í hugann þegar ég fékk að skottast um á verkstæð- inu og narta í kremkex uppi á kaffistofu. Toppurinn á tilver- unni var samt þegar þú komst að sækja mig í skólann á Lapp- anum, ég var sennilega í 1. eða 2. bekk, og fannst öllum ég eiga flottasta afann. Enda bara flottir afar sem keyra um á svona tryllitæki. Ég þarf þó ekki að hugsa langt til baka til að finna góðar minn- ingar. Fyrir ekki svo mörgum dög- um fékk ég heila viku með þér sem ég met mikils. Það er samt ekki bara ég sem á eftir að sakna þín, en Hólmar yngri sá ekki sólina fyrir þér. Þið gátuð eytt klukkustundum saman í geymslunni, bæði í Ár- sölunum og uppi í bústað. Fyrir honum varst þú afi sem kann allt, „afi lagar þetta bara“ var vinsælasta setningin. Kannski ekki skrítið, enda ófá leikföngin sem enduðu á leikfangaverk- stæðinu þínu. Það er skrítið að hugsa til þess hvernig lífið verður án þín, án ykkar. Ég veit samt að núna líður þér vel og amma hefur tekið vel á móti þér. Takk fyrir allt, elsku afi, ég veit að þú skilar kveðju til ömmu og kyssir hana á bakvið eyrað frá okkur. Hólmfríður. Stefán Stefánsson Elsku móðir okkar, amma, langamma og langalangamma, GUÐFINNA INGIMARSDÓTTIR FOX sjúkraliði, Miðbraut 19, Seltjarnarnesi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund við Hringbraut 29. október. Útför fer fram frá Vídalínskirkju, Kirkjulundi 3, Garðabæ, föstudaginn 11. nóvember klukkan 13. . Guðrún Kolbrún Thomas, Gordon Fox, barnabörn, barnabarnabörn, langalangömmubarn. Faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR JÓNASSON búfræðingur, fyrrverandi útibússtjóri Kaupfélags Eyfirðinga á Siglufirði, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstudaginn 4. nóvember. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 12. nóvember klukkan 14. . Jónas Guðmundsson, Anh-Dao Tran, Arnfríður Guðmundsdóttir, Gunnar Rúnar Matthíasson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR, Aðalstræti 9, Reykjavík, er látin. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 14. nóvember og hefst athöfnin klukkan 13. . Lars Emil Árnason, Erla Árnadóttir, tengdabörn og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGRÍÐUR ÞORLÁKSDÓTTIR, Norðurbrún 1, áður Guðrúnargötu 5, lést á Landspítalanum 29. október. Útförin verður frá Fossvogskirkju í dag, 9. nóvember, klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins. . Kristjana Aðalsteinsdóttir, Þorsteinn Aðalsteinsson, Tryggvi Aðalsteinsson, Aðalbjörg Þorvarðardóttir, Sólveig Aðalsteinsdóttir, Málfríður Aðalsteinsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og systir, GUÐRÍÐUR ÓSK JÓHANNESDÓTTIR, Þorrasölum 2, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans Kópavogi síðastliðinn föstudag. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. nóvember klukkan 15. . Jaap de Wagt Sientje Sólbjört Nína de Wagt Alex Matthías Dagur de Wagt Sigurður Ingvar Geirsson Viðar Geirsson Hannes Geirsson Anton Jóhannesson Guðjón Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.