Morgunblaðið - 09.11.2016, Page 32

Morgunblaðið - 09.11.2016, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2016 ✝ Búi Snæbjörns-son fæddist í Reykjavík 9. ágúst 1929. Hann lést á heimili sínu að Hrafnistu í Reykja- vík 2. október 2016. Foreldrar hans voru hjónin Sigríð- ur Dýrleif Jóns- dóttir og Snæbjörn Eyjólfsson. Systk- ini Búa voru Eyjólfur og Ellen Þóra, en þau eru bæði látin. Eiginkona Búa var Áslaug Jónsdóttir, f. 3.4. 1928, d. 2.9. 2008 frá Akureyri, en foreldrar hennar voru þau Guðný Ólöf Magnúsdóttir og Jón Benedikts- son. Börn Búa og Áslaugar eru þrjú; 1) Sigríður, gift Áskeli Mássyni. Synir þeirra eru Jósep Georg Adessa, sem er látinn, og Davíð Thor Adessa. Börn Dav- íðs Thors eru Ísar Leó og Dög- un Líf. 2) Auður, en dætur hennar eru a) Áslaug Sif gift Anurag Rai. Börn þeirra eru Rúben Búi og Míra. b) Sara Hrund gift Finni Thorlacius. Dætur þeirra eru Auður Krista og Ása Sólveig. 3) Jón giftur Immaculada Morales. Dóttir Jóns er Svava María, gift Krist- jáni Árna Knúts- syni. Búi ólst upp í miðbæ Reykjavík- ur, fyrst á Lauga- vegi 51b og síðar á Rauðarárstíg 19. Hann gekk í Austurbæjarskólann og lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræða- skóla Austurbæjar. Tvítugur að aldri sigldi hann með Trölla- fossi til náms í flugvirkjun í Cal-Aero í Glendale í Kali- forníu. Námið tók eitt ár, en hann réðst svo til starfa sem flugvirki og flugvélstjóri hjá Flugfélagi Íslands, síðar Loft- leiðum, Flugleiðum og loks Ice- landair, og vann þar óslitið til 67 ára aldurs. Búi var meðal stofnfélaga Flugvirkjafélags Ís- lands, og var í hópi brautryðj- enda þeirrar fagstéttar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þá er elsku besti afi okkar farinn í sína hinstu ferð, á vit nýrra ævintýra með ömmu Ásu. Afi gaf besta faðmlagið, hélt þéttingsfast í hönd okkar þegar á þurfti að halda, var alltaf til staðar, boðinn og búinn að veita aðstoð og gefa góð ráð. Hann hafði einstaka nærveru, hann var hlýr, rólegur, yfirveg- aður og hnyttinn í tilsvörum. Laginn var hann, einstaklega natinn og nákvæmur, féll aldrei verk úr hendi. Þetta átti nú líka við eldhús- og heimilisstörfin sem hann víl- aði ekki fyrir sér að ganga í þrátt fyrir að það hefði nú e.t.v. ekki verið algengt hjá mönnum af hans kynslóð. Afi gerði besta steikta fisk- inn og síldarsalatið hans var engu líkt. Afi og amma Ása ferðuðust mikið jafnt innanlands sem ut- an, einnig á framandi slóðir og bar heimili þeirra þess glöggt merki. Uppstoppuð dýr, framandi styttur, myndir og annað sem var gríðarlega spennandi fyrir okkur barnabörnin og jafnvel langafabörnin að fá að alast upp við og fá meira að segja stundum að leika með. Afi var einstaklega natinn og góður við langafabörn sín sem nutu þeirrar gæfu að fá að kynnast honum og skapa marg- ar góðar minningar með afa. Tónlist skipaði stóran sess í lífi afa allt fram á síðasta dag, hann var óþrjótandi að kynna okkur fyrir mismunandi straumum og stefnum og út- varpið skildi hann varla við sig. Eftir lát ömmu Ásu varði hann sífellt meiri tíma í sum- arbústað mömmu okkar, þar var hann á heimavelli, fór í göngur, umgekkst dýr og naut þess að eiga samverustundir með fjölskyldunni og góðum vinum í sveitinni. Nú er komið að öðrum að njóta fallega brossins hans afa. Við yljum okkur við allar góðu minningarnar sem þessi ein- staki maður, sá allra besti afi sem nokkur hefði getað óskað sér, sá um að búa til með okk- ur. Við erum þakklátar fyrir all- ar þær góðu stundir og þann langa tíma sem við höfðum elsku afa Búa hjá okkur. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson.) Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Með ástarkveðju, Áslaug Sif og Sara Hrund. Búi Snæbjörnsson Kveðja frá Leik- skólanum Álfheimum Ásgeir byrjaði í Álfheimum haustið 2007 ásamt tvíburasystur sinni, Guðrúnu Katrínu. Það var strax ljóst að Ásgeir var einstakur drengur. Hann var glaðvær og félagslynd- ur sem bræddi hvers manns hjarta með brosi sínu og útgeisl- un. Hann sýndi einstakan kjark og dugnað í daglegu lífi. Ásgeiri þótti sérstaklega gaman að koma við í eldhúsinu á gönguferðum sínum til þess að athuga hvernig gengi með matargerðina. Söngur og hreyfing í salnum auk útiver- unnar var í miklu uppáhaldi hjá Ásgeir Lýðsson ✝ Ásgeir Lýðssonfæddist 31. jan- úar 2006. Hann lést 13. október 2016. Útför Ásgeirs fór fram 24. októ- ber 2016. honum. Hann eign- aðist góða leikfélaga og vini í leikskólan- um sem spurðu um hann og hugsuðu til hans þá daga sem hann kom ekki. Ás- geir hafði mjög góða nærveru og kenndi okkur öllum svo ótal margt um lífið og til- veruna. Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast honum og fjöl- skyldu hans. Ó, faðir, gjör mig ljúflingslag, sem lífgar hug og sál og vekur sól og sumardag, en svæfir storm og bál. (Matthías Jochumsson.) Ágústa, Lýður og börn, megi allir góðir vættir styrkja ykkur og styðja. F.h. starfsfólks Leikskólans Álfheima, Lísbet Nílsdóttir. ✝ Sverrir Ketillvar fæddur 27. mars 1999 á hjúkrunarheimil- inu á Höfn í Hornafirði. Hann lést af slysförum 30. október 2016. Sverrir lætur eftir sig foreldr- ana Gunnar Pál Halldórsson og Helgu Guðbjörgu Þorvarðardóttur, systkinin Guðbjart Frey og Guðrúnu Ósk Gunnarsbörn og fjölda annarra vina og vanda- manna. Útförin fer fram frá Hafnar- kirkju í dag, 9. nóvember 2016, klukkan 14. Við spyrjum drottin særð, hvers vegna hann hafi það dularfulla verkalag að kalla svona vænan vinnumann af velli heim á bæ um miðjan dag. Og þó, með trega og sorg, skal á það sæst, að sá með rétti snemma hvílast megi í friði, er hafði, fyrr en sól reis hæst, fundið svo til, að nægði löngum degi. (Jóhann S. Hannesson) Elsku Sverrir vinur minn. Þú varst svo góður og hjartahreinn, það skipti ekki máli hvað var langt síðan maður hitti þig, þegar við byrjuðum að tala þá var eins og við hefðum aldrei verið í burtu hvort frá öðru. Þó þú sért farinn, þá verðurðu alltaf hjá okkur í hjörtum okkar og við munum aldrei hætta að elska þig. Þín vinkona, Agnes. Ungur frá æsku ertu burtu genginn, blómið úr fríðri blómafjöld; snemma var sofnað, snemma var kallað, snemma var þinnar sólar kvöld. Títt falla tárin, titrar sorg á vanga — faðir og móðir þreyja þig; fingurnir stirðir, fögur þögnuð röddin, og fuglinn litli felur sig. (Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson) „Eins og köld hönd gripi um hjartað.“ Þessa lýsingu hef ég oft rekist á í skáldsögum en aldrei upplifað fyrr en sunnu- dagsmorguninn sem mér barst fréttin um að Sverrir Ketill, ná- granni minn til margra ára, væri látinn. Í gegnum hugann flaug myndin af síðasta skiptinu sem ég sá hann, við beygðum bæði inn í okkar innkeyrslur á sama tíma. Ég að koma einhvers stað- ar frá og hann greinilega að koma með mömmu sinni úr búð- inni. Þegar við stigum út úr bíl- unum litum við hvort á annað yf- ir leikvöllinn og kinkuðum kolli áður en við fórum inn. Algerlega eðlileg og venjuleg samskipti milli nágranna. Það er ekki sjálfgefið að eiga góða nágranna, en betra ná- grenni en Miðtúnið á Höfn er vandfundið, elskulegt fólk og skemmtileg samrýmd börn. Þannig eru flestar minningar mínar um Sverri. Þegar ég hugsa um þessar minningar renna þær dálítið saman í eina, af litlum gormi með snoðaðan koll í sólskini, sem skoppar inn um opnar garðdyrnar hjá mér og spyr dálítið rámri barns- röddu: „Gulla, áttu ís?“ Um leið dúkka upp í dyrunum kollarnir á Guðrúnu systur hans og Agnesi minni og ég skamma þær létt fyrir að senda alltaf Sverri til að sníkja fyrir sig, hlæ innra með mér og næ í ísinn. Þau skoppa síðan með ísinn sinn út í sól- skinið. Við Sverrir áttum fyrstu árin í svona sambandi, ég var mamma Agnesar og þau voru vinir. Á tímabilum voru þau óaðskiljan- leg þessi þrjú, Guðrún elst, svo Agnes og Sverrir, stundum voru aðrir krakkar úr hverfinu með og stundum leið nokkur tími þar sem ég sá systkinin við hliðina lítið. Agnes og Sverrir voru sam- an í bekk í skólanum og komu oft saman heim, stundum voru fleiri með. Með aldrinum komu svo nýir vinir en sambandið þeirra á milli var alltaf jafn sterkt. Síðan eltust þau og komu í unglinga- deildina þar sem ég tók við þeim sem kennari og á tímabili um- sjónarkennari Sverris. Hann var þá orðinn djúpt þenkjandi ung- lingur sem leið ekki alltaf vel og tók sínar unglingasveiflur. Þá áttum við oft svona kennara – nemanda spjall um lífið og til- veruna, tilganginn og framtíð- ina. Síðan óx hann enn meir, kláraði grunnskólann og var nú orðinn ungi maðurinn í næsta húsi. Í stað ljósa snoðkollsins var komið sítt aflitað hár og djúp rödd en augun breyttust aldrei, í þeim var alltaf þessi góðlega kyrrð sem einkenndi hann. Þegar við kinkuðum kolli hvort til annars yfir leikvöllinn viku áður en þessi skelfilega frétt barst okkur, hefði engan grunað að nokkuð jafn hræðilegt gæti skekið okkar litla samfélag. Elsku Helga, Gunnar Páll, Guð- bjartur Freyr og Guðrún Ósk, engin orð geta lýst þeirri sorg né þeirri samúð sem fyllir hjarta mitt. Megi ljós minninganna lýsa ykkur veginn í gegnum þann sorta sem nú hvílir yfir. Guðlaug Úlfarsdóttir. Napur sunnudagur að hausti. Fjöllin grá niður í miðjar hlíðar og síðustu laufin fokin af trjám í görðum. Veturinn á næsta leiti með myrkur og kulda. Fréttin berst um hræðilegt slys. Ungur maður, í lífsins blóma, er tekinn frá okkur. Eftir standa aðstand- endur og vinir í djúpri sorg og syrgja Sverri Ketil Gunnarsson. Minningar um ljúfan og greindan dreng sækja á hugann. Fyrstu árin í skólanum í Nesjum ásamt fjörugum hópi barna úr árgangi 1999. Seinna í Hafnar- skóla og svo í Heppunni. Þar fór ekki mest fyrir Sverri Katli en hann pjakkaðist með. Alltaf kurteis og hugulsamur. Spark- andi fótbolta, í alls kyns vafstri með vinum og meistari í tölvu- leikjum. Á hugann sækja góðar minningar um ferðalög, skemmt- anir og ýmsar uppákomur í leik og námi. Minningar um samtöl, þar sem djúpar og heimspeki- legar vangaveltur leitandi ung- lingsstráks ber hæst. Minningar um samveru í ferðalagi lífsins með fallegum dreng. Starfsfólk grunnskólans send- ir Helgu, Gunnari, Guðrúnu Ósk, Guðbjarti Frey og öðrum að- standendum innilegar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Sverris Ketils Gunnarsonar. Ég á eitt leiði langt frá manna glaumi þar liggur nokkuð undir sem ég missti því dauðans vindur dýran blómknapp hristi og hreif hann burt úr lífsins geisla- draumi. Þar sit ég stundum, andinn minn hinn aumi í endurminning fram um tímann líður því tíminn var svo tignarlega blíður og tárið rann með beiskum harma- straumi. Því þú ert horfin, þú ert ekki lengur sem þrýsti ég að vörmu föðurhjarta og ljósið mitt er liðið burt af jörðu. Í harmi slitnar hörpu minnar strengur, þar hjálpar ekki neitt um það að kvarta, þú lifir samt þig ljóssins englar vörðu. (Benedikt Gröndal) Fyrir hönd starfsfólks Grunn- skóla Hornafjarðar, Sæmundur Helgason. Sverrir Ketill Gunnarsson Í dag kveð ég Jó- hann, mág minn, með sorg í hjarta og vil þakka honum allt sem hann hefur gert fyrir okkur á sinni lífsleið. Þeir greiðar eru óteljandi og af öllu tagi. Hann var með afbrigðum góður og hjálpsamur maður sem vildi öllum gott gera og var að því fram á síðustu stund. Það verkefni varð að klárast áður en kallið kæmi, þó að þrekið væri í raun löngu búið og tíminn að renna út. Hann vissi að dagar hans voru taldir. Jóhann vann lengst af við pípu- Jóhann Lúthersson ✝ Jóhann Lúth-ersson fæddist 9. janúar 1934. Hann lést 23. októ- ber 2016. Útför Jóhanns fór fram 31. októ- ber 2016. lagnir og var mjög vandvirkur og lag- hendur. Um tíma hékk flott mynd uppi á mælingastofu pípu- lagningamanna af verki sem hann vann í húsi í Garðabæ fyrir mörgum árum. Hann lagði í mörg þekkt hús í Reykja- vík, meðal annars Austurbæjarbíó og Landspítalann . Þegar vatnið kom í Kópavog lagði hann heim í húsin frá flestum götum Kópavogs. Hann lagði í Kópavogskirkju og gaf þá vinnu til styrktar kirkjunni. Eitt sinn fór hann á Hellissand til að leggja í eitt hús en var þar í 5 ár og lagði í 51 hús á Hellissandi og í Ólafsvík. Annað sinn ætlaði hann að prufa að fara í einn túr á togara, sem urðu 10 ár á sjónum, lengst af á togaranum Surprise, og var hann á honum þegar hann strand- aði 1968 á Landeyjasandi. Þetta var á þeim árum sem vöruúrval var lítið og gjaldeyrir af skornum skammti. Sjómenn fengu gjald- eyri fyrir hvern túr og kom Jó- hann heim með dýrmæta hluti, ferð eftir ferð, sem hann gaf bróð- ur sínum sem var að byrja að búa og átti ekki mikið til. Þannig mað- ur var Jóhann. Jóhann var frábær tafl- og bridsmaður og tók þátt í mörgum mótum og vann til fjölda verð- launa. Hann var einn af stofn- félögum skátafélagsins og Breið- bliks í Kópavogi. Hann las mikið og átti stórt safn af úrvalsbókum og gat talað af dýpt um flest mál- efni. Hann hafði stálminni. Hann var með sannkallaða bíla- dellu alla sína tíð og hafði yndi af fallegum og góðum bílum. Aldrei sást blettur né skráma á bílunum hans. Þannig maður var Jóhann; þrautseigur, sterkur og æðrulaus, sem ætlaðist aldrei til neins af öðr- um en alltaf boðinn og búinn að rétta öðrum hjálparhönd. Hann barðist eins og hetja við ólæknandi voðasjúkdóm og fór sáttur við Guð sinn og menn. Börn mín og barnabörn í Kali- forníu senda samúðarkveðjur. Þeim þótti mikið vænt um frænda sinn „uncle Jói,“ eins og þau köll- uðu hann. Innilegar samúðarkveðjur til ættingja og vina. Þakka þér samfylgdina, góði vinur. Sveinn Þórðarson. Innilegar þakkir fyrir samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu, dóttur, móður, tengdamóður og ömmu, SOFFÍU WEDHOLM GUNNARSDÓTTUR, sem lést miðvikudaginn 26. október. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki krabbameins- og líknardeildar Landspítalans. . Helgi Björnsson Jóna Jóhannesdóttir Wedholm Gunnar Wedholm Helgason Þóra Björk Eysteinsdóttir Ólöf Helgadóttir Guðmundur J. Kristjánsson Erlen Björk Helgadóttir Kristinn Ottason Elsku afi minn. Það er sorglegt að þurfa að kveðja þig því þú varst alltaf svo góður við mig og alla sem nærri þér voru. Ég elska allar þær minningar sem ég hef upplifað með þér. Það var alltaf svo gott að heimsækja þig og ömmu og vera í kringum þig, þú gafst ást og hlýju frá þér og breyttir því ekkert þó að þú værir orðinn mjög veikur. Það var gott að geta farið síðustu ferðina með þér og ömmu í sum- Leifur Friðleifsson ✝ Leifur Frið-leifsson fædd- ist 12. desember 1929. Hann lést 10. október 2016. Útför Leifs fór fram í kyrrþey. arbústaðinn í Borg- arfirðinum í júní. Ég mun aldrei gleyma þeim góðu stundum sem við áttum saman, þeg- ar þú fórst að hlæja að góðum brandara eða þegar þú leyst- ir vind og kenndir ömmu um það, já þá var gaman hjá okkur. Ég vona innilega að þú hvílir í friði þar sem þú ert núna, sjáumst seinna, afi minn. Hafðu það gott og guð blessi þig. Megi góður guð styðja og styrkja ömmu í hennar miklu sorg, hún er svo einmana núna, það vantar þig. Kveðja, Laufey Guðrún Vilhjálmsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.