Morgunblaðið - 09.11.2016, Qupperneq 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2016
„Okkur þykir mjög vænt um þessi
verðlaun,“ segir Anton Máni Svans-
son, framleiðandi Hjartasteins í
leikstjórn Guðmundar Arnars Guð-
mundssonar, en kvikmyndin hlaut
nýverið áhorfendaverðlaun Politi-
ken á CPH:PIX kvikmyndahátíð-
inni í Kaupmannahöfn.
Alls kepptu tólf alþjóðlegar kvik-
myndir um áhorfendaverðlaun
CPH:PIX. Í frétt um málið á vef há-
tíðarinnar er á það bent að Guð-
mundur er þriðji íslenski leikstjór-
inn sem vinnur áhorfendaverð-
launin á jafnmörgum árum. Fyrst
vann Benedikt Erlingsson með
Hross í oss og síðan Dagur Kári
Pétursson með Fúsa.
Danska dagblaðið Politiken er
bakhjarl verðlaunanna, en þeim
fylgir dreifingarstyrkur og kynn-
ing í Danmörku. „Verðlaunin eru
mjög mikilvæg fyrir myndina og
munu hjálpa okkur, því það er ekki
sjálfgefið að íslensk mynd fái al-
mennilega dreifingu í Danmörku,“
segir Anton Máni og bendir á að
meðframleiðandi myndarinnar sé
SF Studios í Danmörku. „Ég held
að óhætt sé að segja að það sé ís-
lensk bylgja í kvikmyndagerð, sem
er frábært. Þetta á ekki bara við í
Danmörku heldur víðar um heim.“
Hjartasteinn hefur sópað að sér
verðlaunum á kvikmyndahátíðum
erlendis að undanförnu, en kvöldið
eftir að myndin vann í Kaupmanna-
höfn vann hún aðalverðlaun 58.
Norrænu kvikmyndahátíðarinnar í
Lübeck og fetaði þar í fótspor
myndar Baldvins Z, Vonarstrætis,
sem hlaut sömu verðlaun árið 2014.
Hjartasteinn hefur því samtals hlot-
ið tíu alþjóðleg verðlaun til þessa.
Framleiðendur Jesper Morthorst og Lise Orheim Stender frá SF Studios.
Hjartasteinn heillar
Leikarinn,
skemmtikraft-
urinn og söngv-
arinn Þórhallur
Sigurðsson, betur
þekktur sem
Laddi, fagnar 70
ára afmæli sínu
20. janúar á næsta
ári. „Af því tilefni
verður blásið til
stórglæsilegra
ferilstónleika þann 21. janúar í Eld-
borg Hörpu,“ segir í tilkynningu frá
Senu. Sala á tónleikana hefst á morg-
un á vefnum harpa.is. Á síðustu vik-
um hafa farið í spilun tvö ný lög frá
Ladda, annars vegar „Lúxuslíf“ og
hins vegar „Hér er ég“.
Laddi sjötugur
Þórhallur
Sigurðsson
Who’s the Daddy! munvera þriðja og síðastauppistandssýningin íþríleik leikhópsins
Pörupilta um samskipti kynjanna,
sem frumsýndur er á um fimm ára
tímabili. Í uppistandssýningunni
Homo erectus ræddu þeir opinskátt
um tengslin við hitt kynið, í fram-
haldinu stóðu þeir fyrir kynfræðslu
fyrir unglinga og nú er komið að af-
leiðingum ástalífsins því Dóri Maack
(Sólveig Guðmundsdóttir) er orðinn
pabbi. Hann skuldar þrjá mánuði í
meðlag með kornungri dóttur sinni
og grípur til þess ráðs til tekjuöfl-
unar að standa fyrir feðrafræðslu í
Tjarnarbíói í anda allra þeirra fyrir-
lestra sem þeir félagar hafa sótt hjá
Vinnumálastofnun í gegnum tíðina.
Ætlun Dóra Maack er að ræða
lykilspurningar á borð við hver
skeindi síðast, hvort allar barns-
mæður séu snarklikkaðar, hvernig
senda má börnum skýr skilaboð sem
og rök með og á móti meðlags-
greiðslum, en fljótlega er hann hins
vegar farinn að rifja upp sambandið
við barnsmóður sína frá því þau
kynntust og allt þar til hún henti
honum út. Allt er þetta kryddað
kveðskap Dóra sem kitlaði sann-
arlega hláturtaugarnar.
Framan af sér Dóri Maack einn
um fræðsluna með aðstoð
Powerpoint-myndasýningar meðan
Nonni Bö (Alexía Björg Jóhann-
esdóttir) og Hermann Gunnarsson
eða Hemmi Gunn (María Pálsdóttir)
passa litla krílið utan sviðs. En líkt
og allt sem þessir gaurar taka sér
fyrir hendur klúðrast það, því Nonni
Bö og Hemmi Gunn lenda í stökustu
vandræðum með barnið þegar það
vaknar og krefst þess að því sé sinnt.
Sýningin hófst af miklum krafti
með dansatriði áður en brast á með
fyrirlestrinum sem var best heppn-
aði hluti sýningarinnar. Þar mæðir
mest á Sólveigu sem er sannkallað
kamelljón og virðist ekkert hafa fyr-
ir því að stökkva inn í hlutverk hins
seinheppna lúða sem Dóri Maack er.
Aðeins eru tæpir tveir mánuðir síð-
an Sólveig frumsýndi á sama sviði
Sóleyju Rós ræstitækni og miðlaði
átakanlegri reynslu af barnsmissi.
Umbreytingin á leikkonunni, jafnt í
útliti, líkamstjáningu og raddbeit-
ingu, er alveg hreint ótrúleg enda
fantagóður leikari sem óskiljanlegt
er að stóru atvinnuleikhúsin í borg-
inni leiti ekki oftar til.
Eftir innkomu Nonna Bö og
Hemma Gumm tók við heilmikið
plott sem var um margt sniðugt en
gekk samt ekki fyllilega upp í asa
sínum og hefði þurft ítarlegri yfir-
legu og efnismeiri úrvinnslu. Þrátt
fyrir ágætis spretti í handritinu var
eins og lopinn væri of oft teygður og
á stundum var hreinlega erfitt að
greina hvort um væri að ræða vand-
ræðagang Pörupilta sjálfra eða
skapara þeirra.
Líkt og Sólveig eru María og
Alexía sannfærandi í gervum sínum
og töktum sem Hemmi Gunn og
Nonni Bö, þó undirrituð eigi erfitt
með að skilja kvenhylli þess síðar-
nefnda sem virðist ítrekað koma
honum í vandræði. Heilt yfir er sýn-
ingin býsna fyndin og skemmtilegt
að fá tækifæri til að sjá heiminn með
gleraugum Pörupilta. Á stundum
virtust þeir félagar hins vegar búa
yfir aðeins of miklu innsæi og skiln-
ingi eins og t.d. þegar umráðarétt
kvenna yfir eigin líkama bar á góma
sem aftur dró úr trúverðugleika
þeirra.
Fyndin „Heilt yfir er sýningin býsna fyndin og skemmtilegt að fá tækifæri til að sjá heiminn með gleraugum Pöru-
pilta,“ segir um uppistandssýninguna Who’s the Daddy! sem sýnd er í Tjarnarbíói. Leikkonurnar Alexía Björg Jó-
hannesdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir og María Pálsdóttir í hlutverkum sínum sem Pörupiltar með ónefnt barn.
Og svo kom barn!
Tjarnarbíó
Who’s the Daddy! bbbnn
Eftir Pörupilta, þ.e. Dóra Maack, Nonna
Bö og Hemma Gunn. Leikarar: Sólveig
Guðmundsdóttir, Alexía Björg Jóhann-
esdóttir og María Pálsdóttir. Frumsýn-
ing í Tjarnarbíói föstudaginn 4. nóv-
ember 2016, en rýnt í aðra sýningu 5.
nóvember.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Kolibri trönur
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verði
Kolibri penslar
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaflokki
á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavörum
WorkPlus
Strigar frá kr. 195
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
HACKSAW RIDGE 5.30, 8, 10.45 (P)
DR. STRANGE 3D 8, 10.30
TRÖLL 2D ÍSL.TAL 6
BRIDGET JONES’S BABY 5.30, 8, 10.25
POWERSÝNING
KL. 22.45
Miðasala og nánari upplýsingar