Morgunblaðið - 12.11.2016, Síða 1

Morgunblaðið - 12.11.2016, Síða 1
L A U G A R D A G U R 1 2. N Ó V E M B E R 2 0 1 6 Stofnað 1913  266. tölublað  104. árgangur  FÓR ÚR TANNSMÍÐUM Í GLERSMÍÐAR SÆKIR INNBLÁSTUR Í ÆVINTÝRI RÚNA SÝNIR VERK SÍN 46PERLA Í BLÁU HÚSI 14 hluti af ÞÚ ÞARFT um helgar Frábært afmælistilboð Nánar á síðu 13 Hjörtur J. Guðmundsson Agnes Bragadóttir Vinnuhópar frá Sjálfstæðisflokki, Viðreisn og Bjartri framtíð munu hefja vinnu við gerð stjórnarsáttmála ríkisstjórnar þessara flokka um helgina. Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, segir for- mennina sammála um að láta vinnuna ganga hratt fyrir sig og kveðst vonast til að það liggi fyrir um miðja næstu viku hvort hægt sé að ná saman. Formenn flokkanna þriggja ákváðu í gær að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður. „Við ætlum að láta reyna á stjórnarsátt- mála núna og teljum að þessi samtöl hafi leitt það í ljós að það séu nægi- lega margir samstarfsfletir,“ sagði Bjarni eftir fund formannanna og þingflokksfund og bætti því við að hann væri ágætlega bjartsýnn á að það tækist vel. Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, sagði eftir þingflokksfund að þar væri vilji til að láta reyna á samstarf með Sjálfstæðisflokki og Bjartri framtíð. Ekki gætir mikillar bjartsýni um að þessi tilraun takist, samkvæmt samtölum við þingmenn og stuðn- ingsmenn flokkanna, en þó virðast margir telja hana þess virði. Byrjað á sáttmála um helgina Morgunblaðið/Eggert Valhöll Bjarni Benediktsson kynnti ákvörðun formanna flokkanna um að ganga til formlegra stjórnarmyndunarviðræðna á þingflokksfundi.  Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Björt framtíð reyna að mynda ríkisstjórn MFormlegar viðræður hefjast »6 Jón Þórisson Guðni Einarsson Verkfall sjómanna getur haft alvar- leg áhrif á markaði fyrir íslenskan fisk, sérstaklega fyrir ferskan fisk nú fyrir jólin. Það er mat stjórnenda útgerðarfyrirtækja. Fiskiskipin hífðu inn veiðarfæri í fyrrakvöld þegar vinnustöðvun Sjó- mannasambands Íslands, Sjómanna- félags Íslands og Verkalýðsfélags Vestfirðinga tók gildi. Skipin héldu til hafnar og voru byrjuð að tínast inn í gær. Það tekur togarana sem eru í Barentshafi hins vegar viku að sigla heim. Lítið bar í milli Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrir- tækja í sjávarútvegi, telur að lítið hafi borið á milli deiluaðila þegar sjó- menn slitu viðræðum á ögurstundu í fyrrakvöld vegna ágreinings um mönnunarmál á uppsjávarskipum og ísfisktogurum. Segir hún að þá hafi verið búið að fallast á allar megin- kröfur sjómanna. Samninganefnd sjómanna telur að of langt hafi verið gengið í fækkun í áhöfnum skipanna. Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins, segir að þeir hafi boðið að lágmarksmönnun á uppsjávarskipun yrði 9 menn, sem er fjölgun um einn, á meðan unnið væri að rannsókn á því hvað þyrfti marga til að manna þessi skip. „Þrátt fyrir að verkfall sé nú stað- reynd leysa aðilar sig ekki undan þeirri ábyrgð að þeim beri í lengstu lög að afstýra verulegu tjóni og áframhaldandi verkfalli,“ segir Heiðrún í aðsendri grein í blaðinu í dag. Leita annað eftir fiski Pétur Hafsteinn Pálsson, forstjóri Vísis í Grindavík, segir að verkfallið nú geti orðið miklu skaðlegra en fyrri verkföll. „Saltfiskmarkaðir eru ekki að vaxa og mjög fáir markaðir eru góðir fyrir ferskan fisk. Frakk- landsmarkaður er sennilega okkar verðmætasti markaður núna og þetta er allt sett í uppnám. Markaðs- aðilar þar bíða ekkert eftir að þetta verkfall klárist, frekar en annars staðar. Þeir leita bara annað eftir vörunni og við höfum ekki leyfi, hvorki við né sjómenn, til að láta það gerast,“ segir Pétur. Kristján Vilhelmsson, fram- kvæmdastjóri útgerðarsviðs Sam- herja, segir að markaðurinn leiti í aðra vöru og þegar ferskfiskur ber- ist á markað á ný sé undir hælinn lagt hvort markaðurinn verði enn til staðar. Alvarleg áhrif á fiskmörkuðum  Ber að afstýra verulegu tjóni, segir framkvæmdastjóri SFS MVerkfall sjómanna »4 og 30 Morgunblaðið/Golli Löndun Sjómenn mega einvörð- ungu sigla heim og landa í verkfalli.  Formenn lögreglusambanda allra landa á Norðurlöndum vara við þeirri þróun sem verið hefur í lög- gæslu á undanförnum árum, í ákalli sem birt er í Morgunblaðinu í dag. Sagt er að öryggi, traust og ná- lægð við almenning heyri brátt sög- unni til. Vilja þeir að forgangsraðað verði í þágu trausts, nálægðar og fagmennsku. Að öðrum kosti muni kreppan innan lögreglunnar versna. »27 Öryggi, traust og nálægð að hverfa Norski heimsmeistarinn Magnús Carlsen og Rússinn Sergei Karjakin settust að tafli í fyrstu skákinni í ein- vígi um heimsmeistaratitilinn í New York í gærkvöldi. Skákinni lauk með jafntefli eftir 42. leiki. „Strax í byrjun reyndi Magnús að koma Karjakin á óvart með því að velja byrjunarleið sem þótti minna á sigurvegara bandarísku forseta- kosninganna, Trompovsky-byrjun. Hann kom ekki að tómum kofanum hjá andstæðingi sínum sem jafnaði taflið án teljandi erfiðleika,“ skrifar Helgi Ólafsson skákskýrandi. »30 AFP Einvígi Meistarinn Magnús Carlsen að tafli gegn Sergei Karjakin. Jafntefli í fyrstu skák Ökumaður vörubifreiðar sem ók inn í aurskriðu í Berufirði í gær- kvöldi kenndi sér meins og var fluttur á sjúkrahúsið í Neskaupstað til skoðunar og aðhlynningar. Aur- skriða féll upp úr klukkan 19 á hringveginn rétt norðan við bæinn Núp. Hún var 20-30 metra breið og upp undir metri á þykkt. Úrhellis- rigning var á svæðinu. Bíllinn lenti á skriðunni og var kominn langleiðina yfir hana þegar hann stöðvaðist. Björgunarsveit og lögregla komu á staðinn og hjóla- skófla frá Vegagerðinni opnaði veginn eftir tæpa þrjá klukkutíma. Vörubíll lenti á aurskriðu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.