Morgunblaðið - 12.11.2016, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016
Kæli- og frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666
FRÉTTASKÝRING
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Formenn Viðreisnar, Benedikt Jó-
hannesson, og Bjartrar framtíðar,
Óttarr Proppé, komu til stutts fundar
við Bjarna Benediktsson, formann
Sjálfstæðisflokksins, í fjármálaráðu-
neytinu kl. 15 í gær. Niðurstaða þess
fundar varð sú að formennirnir
ákváðu að hefja í dag formlegar
stjórnarmyndunarviðræður.
Ekki gætir mikillar bjartsýni í garð
þessar tilraunar, samkvæmt samtöl-
um við þingmenn og stuðningsmenn
flokkanna þriggja, en þó virðast
margir telja að það sé þess virði að
láta með formlegum hætti reyna á
hvort hún geti tekist.
Send var út fréttatilkynning um kl.
17 í gær, um ákvörðunina um að hefja
formlegar viðræður flokkanna
þriggja.
Þegar í dag munu flokkarnir þrír
setja í gang vinnuhópa til þess að
vinna að gerð stjórnarsáttmála.
Bjarni Benediktsson gekk á fund
Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Ís-
lands, kl. 16.45 og kl. 17.15 fundaði
hann með þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins og kynnti stöðu mála.
Líkt og fram kom í Morgunblaðinu
í gær var stærsta ágreiningsefnið um
mögulega þjóðaratkvæðagreiðslu
vegna aðildarumsóknar að Evrópu-
sambandinu. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins kom það skýrt fram í
máli Bjarna, þegar hann ræddi við þá
Benedikt og Óttarr, að Sjálfstæðis-
flokkurinn myndi ekki skuldbinda sig
fyrirfram til nokkurs hlutar í þeim
efnum.
Hann hefði jafnframt lýst því yfir
að flokkurinn vildi gjarnan að það mál
yrði tekið fyrir og afgreitt á Alþingi
fyrir lok kjörtímabilsins. Það yrði
þannig mál Alþingis en ekki
ríkisstjórnarinnar og ef niðurstaða
Alþingis yrði sú að vilja efna til þjóð-
aratkvæðagreiðslu, þá myndi Sjálf-
stæðisflokkurinn lúta vilja þingmeiri-
hluta á Alþingi.
Sjálfstæðismenn pirra Viðreisn
Stuðningsmenn Viðreisnar sögðu í
gær að neikvæð skilaboð og neikvætt
viðhorf frá stórum hluta þingflokks
Sjálfstæðisflokksins væri farið að
pirra Viðreisn verulega. „Það er ein-
faldlega heilmikill pirringur og fýla í
Sjálfstæðismönnum,“ sagði stuðn-
ingsmaður Viðreisnar. Hann bætti við
að heyrst hefði úr herbúðum Sjálf-
stæðismanna að Benedikt Jóhannes-
son, væri „mikill þverhaus“. Hann
hafnaði þeirri lýsingu, og sagði að
hann hefði bæði verið „skýr og mál-
efnalegur“ í sínum málflutningi.
Formaður Viðreisnar gírugur
Úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins
má vissulega heyra mikinn pirring,
jafnvel óþol, í garð Viðreisnar og þá
ekki síst í garð formannsins, Bene-
dikts Jóhannessonar. Þingmenn lýsa
framkomu hans sem yfirlætis- og
hrokafullri. Hann setji fram skilyrði.
Þá hafi það spurst út að Benedikt sé
þegar farinn að máta sig alvarlega í
stól frænda síns, Bjarna Benedikts-
sonar fjármálaráðherra.
Einn þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins orðaði þetta svo í gær: „Bensi er
bara svo frekur og gírugur að þetta á
allt eftir að reynast mjög erfitt. Það er
til marks um yfirganginn í Benedikt
að hann hefur þegar sett fram kröfu
um að fá að verða fjármálaráðherra.
Er það nú tímabært að koma með
slíka kröfu áður en formlegar viðræð-
ur eru hafnar? Þetta er í mínum huga
súrrealískt dæmi um frekju.“
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur
blaðamanni ekki tekist alla vikuna að
ná í Benedikt, til þess að heyra við-
brögð hans við þeirri hörðu gagnrýni
sem fram hefur komið á hann frá
þingmönnum Sjálfstæðisflokksins.
Betri umsagnir um Bjarta
Af samtölum við þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins að dæma njóta þing-
menn Bjartrar framtíðar mun já-
kvæðari umsagna en þingmenn
Viðreisnar. Þeir eru sagðir málefna-
legir og sanngjarnir.
Formlegar viðræður hefjast í dag
Starfshópar um málaflokka skipaðir í dag af Sjálfstæðisflokki, Viðreisn og Bjartri framtíð Sjálf-
stæðisflokkur fellst á að atkvæðagreiðsla á Alþingi um ESB-aðildarumsókn fari fram í lok kjörtímabils
Morgunblaðið/Eggert
Samtaka Formenn Viðreisnar og
Bjartrar framtíðar vinna saman.
Morgunblaðið/Eggert
Ákvörðun Bjarni Benediktsson sagði frá ákvörðun sinni um að ganga til viðræðna við Viðreisn og Bjarta framtíð, í
samtölum við blaðamenn fyrir þingflokksfund sjálfstæðismanna í Valhöll. Hann kom beint þangað af fundi forseta.
„Menn eru ánægðir með að við séum komnir á þennan stað,“ sagði Bjarni
Benediktsson eftir fund með þingflokki Sjálfstæðismanna og hélt áfram:
„Það eru allir sammála um að við eigum að láta reyna á þennan valkost.
Línur hafa skýrst frá kosningum og smám saman hefur staðan þrengst
niður í það að það var í raun og veru bara einn kostur eftir og við viljum
láta reyna á hann.“
Spurður um lausn á mismunandi stefnu flokkanna í afstöðunni til um-
sóknar um aðild að Evrópusambandinu sagði Bjarni: „Við erum ekki búnir
að ljúka því máli en það er eitt af þeim málum, já, sem við höfum þurft að
gefa okkur tíma til þess að fjalla um og það er ljóst að það ber talsvert á
milli flokkanna í afstöðunni til Evrópusambandsins en ég tel að með því
að við leggjum málið frekar inn til þingsins með einhverjum hætti þá
finnist nú lausn á því.“ hjortur@mbl.is
Viljum láta reyna á þennan kost
BJARNI BENEDIKTSSON, FORMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Ríkissáttasemjari hefur boðað til
fundar í kjaradeilu grunnskóla-
kennara og sveitarfélaga á mánu-
dag eftir hádegi.
„Þetta er fyrsti fundur í kjara-
deilunni eftir að henni var vísað til
ríkissáttasemjara,“ segir Ólafur
Loftsson, formaður Félags grunn-
skólakennara, en kennarar hafa
undanfarið í tvígang fellt kjara-
samninga og eru ósáttir bæði með
kaup og kjör og jók nýlegur úr-
skurður kjararáðs um laun þjóð-
kjörinna fulltrúa enn á óánægju
þeirra.
„Við leggjum áherslu á að ná
fram meiri launahækkunum en
voru í felldum samningum ásamt
breytingu á vinnutíma og umhverfi
kennara.“
Kennarar og sveitarfélög funda á mánudag
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Þjóðvegur 1 í gegnum Borgarnes
verður áfram á sama stað, sam-
kvæmt ákvörðun sveitarstjórnar
Borgarbyggðar. Lengi hefur staðið
til að leggja veg frá Borgarfjarðar-
brúnni upp með bakka Hvítár um
svonefnda Sandvík og þaðan svo
áfram inn á núverandi þjóðveg rétt
ofan við bæinn. Gert hefur verið ráð
fyrir þessu á aðalskipulagi sveitar-
félagsins en nú verður undið ofan af
því til samræmis við ákvörðun sem
sveitarstjórn tók nú í vikunni.
„Vegur á þessum slóðum myndi
að okkar mati skapa fleiri vandamál
en hann myndi leysa,“ segir Geir-
laug Jóhannsdóttir, fulltrúi í sveit-
arstjórn og formaður byggðaráðs
Borgarbyggðar. „Umhverfisáhrifin
yrðu mikil og útsýni íbúa í Sandvík
og Bjargslandi yrði skert verulega
með nokkurra metra háu vegstæði.
Áætlað var að þessi framkvæmd
myndi kosta 1,4 milljarða króna, það
eru miklir fjármunir sem við teljum
að betur sé varið til annarra fram-
kvæmda í vegamálum hér í Borgar-
firði. Ekki er heldur vanþörf á að
bæta vegina hér í Borgarbyggð,
sem eru um 800 km en innan við
40% þeirra eru með bundnu slit-
lagi.“
Bæta umferðaröryggi
Í stað þess að flytja hringveginn
út fyrir Borgarnes vill sveitar-
stjórnin að gerðar verði ýmsar
bragarbætur í þágu umferðar-
öryggis. Nefnt er að útbúa þurfi
göng undir þjóðveginn í Borgarnesi
sem tengja myndi íbúðahverfi betur
saman við til dæmis leik- og grunn-
skóla auk íþróttasvæðis.
Einnig þarf, segir Geirlaug Jó-
hannsdóttir, að bæta umferðar-
öryggi við innkomu í Borgarnes,
enda myndi slíkt bæta umferð-
arflæði og draga úr hættu á fjölförn-
um gatnamótum. Þá þurfi að fara í
mikla endurbætur á vegum og brúm
í Borgarfirði svo sem uppsveitum og
dölum – og vestur á Mýrum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Borgarnes Þjóðvegurinn þverar bæinn og það verður óbreytt samkvæmt
ákvörðun sem sveitarstjórn Borgarbyggðar tók á fundi sínum nú í vikunni.
Þjóðvegurinn verður áfram
í gegnum Borgarnes
Aðalskipulag-
inu verður breytt